Tíminn - 21.09.1963, Page 9

Tíminn - 21.09.1963, Page 9
Skutu bjarndýr inni í kofa - fengu 50 kr. fyrir feldinn SÚ KYNSLÓÐ, sem nú er aS fær. ast á efrl ár, hefur lifað melrl breytlngatíma en nokkur önnur — og að vlð höldum melrt breyt. Ingar en næstu kynslóðlr eiga eft- ir að lifa í þessu landl. Því er að ýmsu leytl forvltntlegt, að heyra þetta fólk rlfia upp atburði frá liðnum dögum. Og ekki endilega þá, sem framámenn hafa taliit f sfnum byggðarlögum, ekki endi- lega forustumennfna I félags- at- vinnu og menningarmálum, held ur og ekki síður hina, þá óbreýttu alþýSumenn þelrrar vösku sveit- ar, er meS elju sinni, atorku og ódrepandi selglu, byggSu grunn þelrra Itfskjara, er vlð lifum vlð [ dag. Og af þessum sökum geng- um vlS Jón Tómasson frá Hrúta- tungu og Þorbjörn Bjarnason, kennari á BorSeyrl, á vlt elns þessara alþýðumanna hlnn 4. ág- úst s. I. — Sá heitlr EINAR ELÍESERSSON, búsettur á Borð- eyrt, og stóð þann dag á sjötugu. Það viðtal fer hér á eftlr, ef verSa mættl einhverjum af lesend um Ttmans tll nokkurrar énægju. — Þú ert fæddur í Bæjar- hreppnum. — Ég er fæddur á Valdasteins- stöðum 4. ágúst 1893. Foreldrar mínir voru þau Elíeser Eiríksson og Þuríður Einarsdóttir. Ég ólst upp í Hrútafirðinum, á ýmsum bæjum hjá foreldrum mlnum, en þau bjuggu síðast í Óspaksstaða- seli. — Manstu nokkuð sérstakt frá þínum æskuárum? — Ég man ekki eftir neinu sér- stöku frá þeim tfma. Mín æskuár hafa að sjálfsögðu verið svipuð æskuárum annarra á þeim tlma. Mér er minnisstæðast, að ég var 13 ára, er ég fór fyrst í göngur. — Já, snemma hefurðu byrjað, en segðu mér, faðir þinn var l'engi póstur norður á Strandir. Þegar hann fór I póstferðirnar, annaðist þú þá ekki búið heima fyrir? — Jú, faðir minn mun hafa ver- — Skylduflutningurinn var 60 pund og fyrir það voru greiddar 40 kr., en fyrir hvert pund þar fram yfir voru greiddir 20 aurar. Þetta fluttum við á hestinum til Hólmavíkur, en það, sem norður átti að fara, lagði ég á bakið. — Hvað heldurðu, að þú hafir fengið fyrir ferðina? — Næði flutningurinn 100 pund um, voru greiddar fyrir hann 48 krónur, en af því varð ég að borga fyrir hestinn eina krónu yfir nóttina og þá var nú ekki orðið mikið eftir. Sjálfur þurfti ég hvergi að borga. — Manstu eftir nokkru sér- þeirra var einn bær, Drangavík. Segir nú ekki af feröum mlnum fyrr en ég kem á móts við Dranga vik. Ég sé þá þar I fjörunni ein- hverja skepnu á hreyfingu og held ( fyrstu, að þetta muni vera kind. Sá ég þó, að svo var ekki og kenndi brátt, að þar var bjarn dýr á ferð. Varð mér þá ekki um sel, sneri frá fjörunni og upp í hlíðina fyrir ofan og herti göng- una, stytztu leið til bæjar. Bjarn- dýrið mun hafa haft veður af mín um ferðum, heldur- það í humátt á eftir mér, og þegar ég kveð dyra I Drangavík, stöðvast það við kofa, er stóð skammt frá bæn V :• & i' í íi ©=# I M 11II ið Strandapóstur alls í 25 ár. — Hann fór frá Stað í Hrútafirði, fyrst norður I Árnes og síðan norður i Ófeigsfjörð. — En fórstu aldrei póstferðir fyrir hann? — Ég fór póstferðirnar fyrir hann frostaveturinn 1918. — Hvað varstu lengi í hverri póstferð? — Þrjár vikur. Ég fór alltaf gangandi, en hafði með mér baggahest til Hólmavikur, en bar síðan póstinr þaðan og norður og ég mátti halda vel á til að komast á viku' frá Stað norður ' Ófeigsfjörð. — Þurftirðu ekki stundum að bera þunga bagga? stöku atviki úr póstferðunum þennan vetur? — Við máttum ekki fara frá Hólmavík á undan ísafjarðarpóst- inum og urðum stundum að bíða nokkra daga eftir honum. Eitt sinn, er þannig stóð á, ákvað ég að fara norður að Dröngum að hitta föðursystur mína, er þar bjó. Þennan vetur var, eins og kunnugt er, hafís fýrir öllu Norðurlandi. Geng ég nú eins og leið liggur, meðfram sjónum, frá Ófeigsfirði að Dröngum. Fór ég meðfram sjónum, að ráði föður míns, til að villast ekki, en bær- inn Drangar stendur rétt við sjó. Var mér sagt, að þetta væri fimm tíma gangur, en á milli , XsvíwJvíXwJwíVt um. Þar inni stóð grútarkaggi. Hefur dýrið sennilega fundið lykt ina af grútnum, því að það fór inn í kofann. Hlupu þá tveir menn, vopnaðir byssum, heiman frá bænum, skelltu aftur hurð- inni, en hún opnaðist út, og skutu síðan dýrið gegnum gat á kofan- um og fyrir skinnið fengu þeir 50 krónur. Nú ég var vopnlaus, með ein broddstaf og hvernig farið hefði ef okkar fundum hefði bor- ið saman, kann ég ekki frá að segja, en trúlega sæti ég þá ekki hér núna. — Þú munt líklega einu nú- lifandi Hrútfirðingurinn, sera séð hefur lifandi bjarndýr, en segðu okkur, á þessum ferðum þínum hefur þú sé$ margar álitlegar ungar meyjar. — Já, svo sannarlega, og vel leizt mér á þær, en þá mátti mað- ur ekki neitt, því þá var maður kvæntur. — Hvenær kvæntist þú? — í apríl 1917, fyrri konu minni, Pálínu Björnsdóttur, og árið eftir byrjuðum við búskap i Óspaksstaðaseli. 1933 missti ég konuna, en móðir mín var hjá mér til 1935. — Hvað áttuð þið Pálína heit- in mörg börn? — Við eignuðumst átta börn, en þegar konan mín dó lifðu að- eins fjögur, þar af þrjú ófermd og þau eru öll enn á lífi. Þau eru Björn, starfar hjá Vegagerð ríkisins, Halla, býr I Reykjavík, Jónas, kaupfélagsstjóri á Borð- eyri og Ingimar, bifreiðarstjóri I Reykjavík. Þau eru öll gift og barnabörnin mín eru nú 10. — Þú hefur verið fátækur, þeg ar þú varst I selinu. — Já, ég man það. Ég gleymi því aldrei og ég finn til með þeim fátæku, þó ég hafi nóg í dag. Ég man þá tíð, að mig vantaði heldur en hitt. — En aldrei barðirðu þér. — Ég kuhni það ekki og hef aldrei lært það. — Búið hefur verið lítið. — Ég var oftast með um 30 kindur og kýr til heimilisins. Eitt vorið drap tófan hjá mér 16 lömb, en það var um helmingur lambanna. — Varstu I sjálfsábúð eða leigu liði I Óspaksstaðaseli? — Fyrst sem leiguliði Ingþórs heitins á Óspaksstöðum, fóstur- föður konu minnar. Eftirgjaldið var tvær vetrarfóðraðar ær og 1 gemlingur, en þess er skylt að geta, að oftast kom ég með aðra ána heim aftur. Þau Óspaksstaða hjón, Ingþór og Hallbera gáfu Pállnu sálugu hana. — Hafðirðu ekki einhverjar tekjur utan búsins? — Ég var I vegavinnu á vorin, fram á slátt og I sláturhúsinu á Borðeyri á haustin. Uppskipunar vinnu reyndi ég líka að stunda, eftir því sem ég gat, en var erfitt um vik, enginn simi nema á Óspaksstöðum og um eða yfir 20 kílómetra leið úr Selinu og til Borðeyrar og oftast varð ég að fara þetta gangandi. — Vinnubrögð hafa verið með ólíkum hætti þá og nú. — Já, það er óhætt um það. Fyrst, þegar ég var I vegagerð, bárum við möl'ina I pokum á bak inu. Ég man það enn, hvar það var, það var I moldarbrú norðan 1 Grunnavatnshæðum. Slðan feng um við hjólbörur og ókum möl- inni í þeim og þótti mikill munur, síðan hestvagninn og það jaðraði við byltingu, nú svo öll tæknin, sem við þekkjum allir. Þetta er mikil breyting, sem betur fer. Eins var með uppskipun og slátr- un. Þá var öll vara, sem skipað var á Iand eða út I skip, borin á bakinu, hvaða nafni sem hún nefndist. Það er að vísu engin bryggja komin hér enn, en þessi burður er þó með öllu horfinn, • bílarnir komnir I staðinn. — Já, breytingarnar eru miklar og við vonum flestar til hins betra, en þú sagðir áðan, að þú hefðir hætt búskap árið 1935. Þá verða þáttaskil á þinni ævi, og það ár varstu fyrir stóru happi að þeirra tlma mati, ekki satt? — Jú, þá hætti ég búskap og þá vinn ég I happdrætti. Ég keypti þá um vorið miða I Háskóla happdrættinu, var staddur á Borðeyri og átti 15 krónur I vas anum, fer inn til Magnúsar Rich ardssonar, sem þá var stöðvar- stjóri og póstafgreiðslumaður á Boröeyri og umboðsmaður happ- drættisins. Ég kaupi einn fjórð- ungsmiða og borga hann, hefði keypt fleiri, ef ég hefði átt fyrir þeim. í næst„ úrdrætti kemur hæsti vinningurinn 10.000 kr. á miðann og af því fékk ég Yi eða 2500 kr. Þetta voru miklir peningar þá. Á þennan miða vinn ég svo alls fjórum sinnum þetta ár. Ég á hann enn og fl'eiri, hef oft unnið, en aldrei eins stórt og fyrst. Tvö síðustu árin hef ég ekkert unnið. Það er víst af því, að ég er orðinn svo ríkur. — Þessi stóri vinningur hefur komið sér vel fyrir þig? — Já, hann kom sér vel. Ég var skuldugur, bæði vegna lang varandi veiklnda á heimilinu og eins eftir búskaparbaslið. Ég greiddi skuldirnar allar um þetta leyti og sfðan hef ég, held ég, ekki skuldað neinum neitt. — Og nú ferðu að vinna hingað og þangað? — Ég var I vegavinnu hjá Jó- hanni heitnum Hjörleifssyni í mörg sumur, átta vetur var ég við fjárgæzlu hingað og þangað. — Og svo kvæntistu aftur. — Hvaða ár var það? — Það var árið 1942. Þá kvænt ist ég núlifandi konu minni, Guð Framhaid á 13. sflfu. TÍMINN, laugardagtnn 21. september 1963 9

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.