Alþýðublaðið - 11.07.1941, Blaðsíða 1
BITSTJÓRI: STEFÁN PÉTURSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XX2Z. ÁRGANGUR
FÖSTUDAGUR 11. JCLI 1941.
160. TöLUBLAÐ
RíMsstJéri tilkynnir Roosevelt
staðfestingu samkomnlagsins
— —.......
í símskeyti, sem sent var til forsetans i gæro
♦----------------
EFTIR AÐ ALÞINGI hafði í fyrrinótt samþykkt að r
fnllnst ó samknmnlflíJ rikisstinrnarinnar við fnrseta HfiijfllÍ1 Fnðrlksson
tslaðí f daoski ít-
varpið frá Loadoi
O
FTIR AÐ ALÞINGI hafði í fyrrinótt samþykkt að
fallast á samkomulag ríkisstjórnarinnar við forseta
Bandaríkjanna urn hervernd íslands meðan á styrjöldinni
stendur — og samkomulagið hafði síðan, í gær, verið stað-
fest í ríkisráði, sendi ríkisstjóri, Sveinn Björnsson, Roose-
velt Bandaríkjaforséta skeyti, þar sem hann skýrði honum
frá staðfestingu samkomulagsins.
Skeyti ríkisstjórans er svohljóðandi:
„Forseti Bandaríkjanna, Washington.
Löggjafarþing þjóðarinnar, Alþingi, hefir nú fallizt ú sam-
komulag það um hervernd Bandaríkjanna á íslandi, sem gert
var heyrinkunnugt m!eð boðskap yðar, herra forseti, til con-
gressins 7. júlí og ávarpi forsætisráðherra íslands til íslenzku
þjóðariunar sama dag. Það hefir í dag hlotið staðfestingu í ríkis-
ráði íslands. Hefir því samkomulagið nú fengið þá meðferð, er
stjórnskipulög vor mæla fyrir um svo það fái fullnaðargildi.
Við þetta tækifæri vil ég mega hafa þá sæmd að senda yður,
herra forseti, sérstaka kveðju. Vér minnumst þess í dag, að fyrsti
hvíti maðurinn, sem steig fæti á grund Amteríku, var íslending-
urinn Leifr Eiríksson. Vér minnumst þess og, að margir menn
af íslenzku bergi brotnir eru nú góðir borgarar Bandaríkjanna.
Og síðast en ekki sízt minnumst vér þess, að hin göfuga Banda-
ríkjaþjóð hefir ávallt borið hátt merki frelsis og lýðræðis, sem
við þjóðirnar, sem erum norrænar að uppruna, sögu, tungu og
menningu, virðum svo mikils og höfum lagt svo mikla áherzlu
á í norrænu samstarfi, þótt það samstarf sé nú því miður stöðvað
í bili. Jafnframt er það teinlæg ósk vor og von, að sú nánari
samvimna, sem nú hefst milli íslands og Bandaríkjanna, megi
hafa giftu í för með sér og auka vinsemd og kynni þjóða vorra.
Ég færi yður, herra forseti, og þjóð yðar óskir mínar og
íslenzku þjóðarinnar um alla heill og farsæld nú og á ókomnum
tímum.
Sveinn Björnsson, ríkisstjóri íslands.“
BaradaríMn éfísiépsf
V
zka árás á Island
líervemd landsins enn aðalumræðuefni
blaða og stjórnmálamaima þar vestra.
LAFUR FRIÐRIKSSON
talaði í danska útvarpið
í London kl. 4.15 í gær.
Flutti hann, ávarp t'il danskra
verkamanna, bað þá vera von-
góða, því að Bretar myndu sigra
í striðinu og þeir myndu aftur
öðlast frelsi s'i'tt. Pá ræddi hann
um þah, að afstaða Islands til
sjálfstæðismálsins hefði veriðrök
Frh. á 2. síðu.
Islandsmeistararnir.
Hér hirtist mynd af knattspyrnuflokki K. R., sem vann íslands-
mótið',' og þar með titilinn, „Bezta knattspyrnufélag íslands."
Aftari röð frá vinstri: Erlendur Ó. Pétursson, form. K. R., Jón
Jónasson, Haraldur Guðmundsson, Björg\ún Schram, Guðbjart-
ur Stefánsson, Óli B. Jónsson, Birgir Guðjónsson, Þórarinn Þor-
kelsson. Fremri röð frá vinstri: Haraldur Gíslason, Sigurjón
Jónsson, Sigurður Jónsson, Anton Sigurðsson, Skúli Þorkelsson
og Guðbjörn Jónsson.
AfligilpgaBali9 pýzks R®mi»iúmlsfa8
íslenzku keminúnistaroir I (jði-
nstu rússnesku leynilðgreglunnar!
-----4-----
Eimskipafélagsskipin, sem fóru milli Hamborgar og
Reykjavíkar, voru notuð til að flytja leyaipóst á miili.
s
Sjóiena boða
til iBBdar.
SÁTTASEMJARI ríkis-
ins hefir nú lagt fram
tillögu til samkomulags
um aukna áhættuþóknun
á togurunum.
Af þessu tilefni boða
f jögur stéttafélög sjó-
manna til funda um málið
annað kvöld. Eru það þessi
félög: Sjómannafélag
Reykjavíkur, Sjómanna-
félag Hafnarfjarðar, Vél-
stjórafélag íslands og Fé-
lag íslenzkra loftskeyta-
manna.
v
A
KVÖRÐUN Bandaríkj-
anna um að taka að sér
hervernd Islands, meðan á
stríðinu sténdur, er enn aðal-
umræðuefni stjórijmálamanna
og hlaða í Ameríku. Fær hún
hinar beztu undirítektir hjá öll-
um, nema svæsnustu forsprökk
um einangrunarstefnunnar, svo
sem Robert Taft, leiðtoga
Republikanaflokksins, stem
sagði í öldungadeild Banda-
ríkisþingsins í gær, að þessi
ákvörðun Bandarílcjastjórnar-
innar jafngilíi árásarstyrjöld.
Mörg blöð benda á það, að
alvarleg hætta. hefði verið á því,
að Þjóðverjar gerðu innrásartil-
raiun á Isiand, enda hefði það verið
kunnugt, að þeir hefðu um langt
skeið haft liðsamdrátt og undir-
Frh. á 2. síðu.
JALDAN HEFIR VERIÐ varpað eins skörpu ljósi yfir
vinnubrögð Moskvakommúnistanna og í bók, sem er ný
lega út komin, bæði í Ameríku og í Englandi — og heitir
„Out of the Night“, eða í íslenzkri þýðingu, Út úr myrkr-
unum.
Höfundur þessarar hókar er fyrrvterandi þýzkur kommún-
isti, sem kallar sig Jan Valtin, en heitir réttu nafni, eftir því,
scm upplýst hefir verið í ameríkskum blöðum, Krebs, og lifir
nú landflótta í Ameríku.
Hann var ármn saman einn af aðalerindrekum Alþjóða-
samhands kommúnista og rússnesku leynilögrteglunnar G.P.U.
og ferðaðist víða um heim undir fölsku nafni og með fölskum
vegahréfmn, og var aSalstarffssviðj híans áróður, skipulagning
og skemmdaxjverkastánfsetni í höfnum |og á kaupskiþaflotum
landánna. Hafði hann þó lengi aðalbækistöð í Hálnborg og stjórn-
aði þaðan moldvörpustarfi Moskvakommúnistanna og fylgis-
manna þeirra á Norðurlöndum.
Eru í bókixmi margar mjög
merkilegar upplýsingar um
þessa starfsemi meðal frænd-
þjóða okkar, og þó sérstaklega
í Danmörku, en þar höfðu
Moskvakommúnistar mjög þýð-
ingarmikla bækistöð, eftir að
Hitler hafði brotist til valda í
Þýzkalandi. En íslandi er held-
ur ekki gleymt.
Eftirfarandi setning í bók
Valtins, sem mörgum hér á
landi mun þykja harla athyglis-
verð, er af höfunqlinum aðeins
sett fram sem dæmi þess, hve
vel moldvörpustarf Alþjóða-
sambands kommúnista og rúss-
nesku leynilögreglunnar GPU
hafi verið skipulagt á Norður-
löndum, jafnvel í því smæsta:
„Meira að segja einu tvö
gufuskipin, sem fóru reglu-
legar ferðir milli íslands óg
Hamborgar, „Dettifoss“ og
„Goðafoss“ voru mönnuð að
meirihluta af kommúnistum,
og notuð sem leynipóstfleyt-
ur fyrir G.P.U.“
Það skal nú ósiagt látið hvort
meirihluti skipshafnanna á
þessum tveimur skipum verða
höfundinum nokkuð sérstak-
lega þakklátar fyrir það,að vera
stimplaðar af honum sem kom-
múnistar. Hitt er ekki’ ástæða
til að rengja að höfundinum
hafi verið kunnugt um erind-
reka kommúnista um borð í
Frh. á 4. síðu.
TiAindalinst á anstnrvíg-
stððvnnnm, ssgfa Rnssar.
SÍÐASTA herstjórnartil-
kynning Rússa, sem
barst til London árdegis í
dag, segir, að tíðindalítið
hafi verið alls staðar á víg-
stöðvunum 1 nótt og raunar
einnig í gær.
Bardagar halda þó áfram víðs
vegar á hinni löngu herlíniu, en
Frh. á 2. síðu.