Alþýðublaðið - 09.08.1941, Blaðsíða 4
LAUGAKDAGUR 9. ÁGCST 1941
LAUGARDAGUR
Næturlæknir er í nótt María
Hallgrímsdóttir, Grundarstíg 17,
sími 4384.
Næturvörður er í Reykjífvik-
ur- og Iðunnar-Apóteki,
ÚTVARPIÐ:
19.30 Hljómplötur: Samsöngur.
20.00 Fréttir.
20.30 Hljómplötur: Tataralög.
20.40 Upplestur: „Sjálfs er höndin
hollust“, smásaga (Friðfinn-
ur Guðjónsson leikari).
21.00 Útvarpshljómsveitin: Vin-
sæl danslög.
21.25 Hljómplötur: a) „Galdra-
nerninn" eftir Dukas.
b) „Till Eulenspigel,“ eftir
Richard Strauss.
21.50 Fréttir.
SIJNNUDAGUR:
Helgidagslæknir er Úlfar
Þórðarson, Sólvallagötu 18, sími
18, sími 4411.
Næturlæknir er Kjart-u; Ú’afs-
son, Lækjargötu 6 B, sír d 2814.
Næturvörður er í -Laugavegs
og Ingólfs-Apóteki.
MESSUR:
Messöð í dómkirkjunni á morg-
un kl. 11, síra Fr. H.
Hallgrímsprestakall. Hámessa í
dómkirkjunni á morgun kl. 2. —
Síra Sigurbjörn Einarsson.
Frjálslyndi söfnuðurinn í Rvík:
Messa í fríkirkjunni í Reykjavík
á morgun kl. 5.30. Sr. J. Au
Viðeyjarkirkja Messað á morg-
un, sunnudaginn 10. ágúst kl. 14.
Sr. Hálfdan Helgason. .
Messur í kaþólsku kirkjunni í
Landakoti: Lágmessa kl. 6.30 árd.
Hámessa kl. 10. Engin síðdegis-
guðsþjónusta.
Bæjarráff
samþykkti í gær á fundi sínum
að setja Guðjón bryta Jónsson
dyravörð Miðbæjarskólans.
AIÞÝÐUBLAÐIÐ
Verið að preata seðl-
ana fjrrir anbasyk-
arskamtinn.
FINNUR IðNSSON
Frh. af 3. síöu.
teldum þetta iekki sanirýmast
starfi íslenzkra ræðismanna og
að við hefðum talið jafn ófæ'rt
að Vilhjálmur I>ór hefði umhoöið
áfram eins og að Thor Tliors
hefði þaö. Ákvörðun me'irihliut-
ans var því á engan hátt stefnt
gegn Thor Tbors.
Atvinnumáliaráðherra hefir ]ýst
hið fyrnefnda ósatt.
Orð mín standa gegn hans orð-
um. Ráðherrann er að skoira á
mig að útvega vottorð. Ég sé
enga ástæðu til þess. Sumirtrúa
mér, aðiir honum, en auk minna
staðhæfinga hefi ég fært fram
líkuT, sem styðja mjög minn mál-
stað.
Hversvegna voru Sjálfstæðis-
Inennirnlir í nefndinmi annars allt-
af að ala á því að Thor Thors
yrði' boðið umboðið, nema af pví
að þeir töldu að þá yrði einka-
söluihei'mildin veitt? Jafnvel fram
til þess síðasta var þetta, eftir
því sem ég bezt veit, skoðun
ailra nefndarmanna. Síðast á
fundi nefndarmnar, 5. júlí gerir
Jóh. Jósefssloo það að skilyrði
fyrir atkvæði um tillögu tii á-
bendingar um einkasöl'u á allri
síTd að ræðismaðurinn í Niew
York, Tbor Thors sé beðinn að
hafa umsjón með Umboði nefnd-
arinnar í Ameríku.
Ég sé ekki ástæðu til að orð-
llengja þetta meira. Ég hefi í
Alþbl. 25. f. m. skýrt mjög ræki-
iega frá ágætu starfi' Vilhjálms
Þórs, fyrir SíTdarútvegsnefnd í
Amerfku lOg em ummæli atvinnu-
málaráðherra um mig í því sam-
bandi tómur uppspuni, sem get-
MARGIR hafa spurt um
það, hvenær farið yrði að
úthluta seðlum fyrir aukasyk-
urskammtinum.
Al'þýðublaðið hefir- spurzt
fyrir um það hjá Skömmtun-
arskrifstofu ríkisins og fengið
þau svör, að verið sé að prenta
seðlana, en að því búnu verði
þeir sendir út um land. En ekki
er hægt að segja um það með
vissu, hvenær skömmtun hefst.
Vonandi dregst það ekki lengi
úr þessu.
;---v . -■ . - {
---------------------------------*
ur stafað af ofþreytu hans við'
að Ieysa vandræði sjávarútvegs-
ins, nú. síðast með hinum brezka
Siamningi.
Við höfuix jafnan átt litia sam-
lieið ég og atvinnumálaráðherra
þó illindalaust hafi mátt kalilast,
frá því þjóðstjórnin var mynduð.
Ég hefi oft heyrt hann kasta
fremur óvöldum orðum að sínum
eigin flokksmönnum, sem hann
á að þakka margra ára vináttu
og upphefð- Tek ég þvi köpur-
yrðum ráðherrans í minn garð,
fremur létt, ekki síz-t fyrir það,
að ég á sama tíma hefi fengið
al-veg óbeðið ótvíræða traustsyf-
ii’iýsingu, fyrir síarf mitt í síld-
arútvegsnefnd, frá fu'.ltrúum Sjálf
stæðismanna í nefndinni, sem þar
hafa unnið meö mér árUrn saman,.
Finmur Jónsson.
i
S9GAMLA BIO
Stúlka á
hverjum flngri!
(MAN ABOUT TOWN).
Amerísk söng- og gaman-
mynd.
Áðalhlutverkin leika:
DOROTHY LAMOUR.
JACK BENNY.
EDWARD ARNOLD.
Sýnd kl. 7 og 9.
NÝJA BIO
ððir Æskuur
Stórfengleg ameríksk
tónlistarmynd.
Aðalhlutverkið leikur:
Jascha Heifeltz.
Sýnd kl. 7 og 9.
Jarðarför okkar hjartkæra sonar,
Árna,
er ákveðin frá dómkirkjunni mánudaginn 11. þ. m. og hefst méS
bæn að heimili okkar kl. 1% e. h.
Guðmunda Jónsdóttir. Steindór Árnason.
F. í. Á.
Danslelknur
i
í Oddfellowhúsinu í kvöld, 9. ágúst, kl. 10.
HLJÓMSVEIT AAGE LORANGE LEIKUR.
Ðansaðir verða bæði gömlu og nýju dansarnir.
Aðgöngumiðar seldir í Oddfellowhúsinu í dag frá kl. 8
I dag ern siðnstn forvðð að endurnýja og kanpa miða.
Á mánudag verðar dregið f 6. flokki.
HAPPDRÆTTiÐ.
32 1 VICKI BAUM:
SUMAR VIÐ VATNIÐ
skulum bara sjá, hverju fram vindur. Ég bíð á
hverjum degi eftir að fá fréttir. En ég hefi nú
reyndar þegar beðið töluvert lengi,
— Hversu lengi?
— Látum okkur sjá .... Það er orðið nærri því
ár, sagði Hell hikandi.
— Ár, sagði May og varð hugsandi.
En nú var Hell kominn af stað og talaði um allt,
bæði fátækt sína og .neyð og hina glæsilegu fram-
tíðarvon. Honum var einkennilega innanbrjósts. Það
var ekki fjarri því, að hrollur væri í honum hér í
sólskininu. Það sótti stundum á hann svo einkenni-
legt óyndi, þegar hann var að hugsa um uppfinningu
sína, það var svo langt síðan hann hafði gert þessa
uppfinningu. Og æsingin og eftirvæntingin þennan
langa biðtíma höfðu tekið mjög á taugar hans. Allt,
sem hann sagði, var sannleikanum samkvæmt, en ei
að síður fannst honum hann vera svikari — hann
trúði ekki sjálfur því, sem hann var að segja, og
það var ekki heldur útlit fyrir, að May tryði því.
Hún var allt í einu orðin svo alvarleg á svipinn og
hugsandi. Það voru komnar hrukkur í ennið.
— Hlustaðu nú á mig, sagði hún eftir langa þögn.
Gætirðu ekki hugsað þér að tala við pabba um málið.
Svona málefni er hann fljótur að skilja. Ef til vill
gæti hann í bili fundið, aðra stöðu handa þér — í
verksmiðjunni. Eða .... ja, mér datt í hug, að við
gætum gengið í hjónaband, ef þér sýndist svo?
— Já, hvíslaði Hell. Það var eitthvað í rödd hans,
sem brast, hann hafði ekki gott vald á röddinni.
— Jæja, þarna geturðu séð. Það þarf að toga hvert
orð út úr þér með töngum. Við skulum þá ákveða
það, að þú talir við pabba um þetta mál.
— Ég get ekki talað við hann, fyrr en ég hefi
fengið þetta bréf, sem ég er alltaf að bíða eftir. Ég
vil nefnilega ekki ganga fram fyrir Lyssenhop á
gömlum, hælaskökkum skóm, þegar ég er að biðja
dóttur hans. Nei, það geri ég ekki, sagði Hell
þrjózkufullur,
— En, hver er að tala um að þú þurfir að biðja
hann um hönd mína? Við erum fullorðin! Ef við
komum okkur saman, ,þá er málið útrætt. Annað
þarft þú ekki að segja við föður minn.
— Ekki fyrr en bréfið er komið, svaraði Hell og
lét ekki þoka sér.
— Drottinn minn dýri! En hye þú ert ósveigjan-
legur, sagði May. — Jæja, bíddu þá eftir þessu
bréfi þínu.
Þau sátu ennþá þögul stundarkorn og létu fæt-
urna lafa fram af stökkpallinum. Gagnsæ hádegis-
móða hvíldi yfir vatninu. Sólin skein lóðrétt ofan á
vatnið og skinið -var eins og eldglæringar. May
stökk á fætur og teygði úr sér. Hún gekk fram á
pallbrúnina og vaggaði sér. — Komdu, sagði hún,
við skulum steypa okkur bæði í einu.
— Þú veizt, að ég er klaufi að steypa mér, sagði
hann, en þó reis hann á fætur og spennti vöfivana.
— Komdu, samt, sagði hún. — Það gengur vel,
þegar við steypum okkur bæði.
Þau gengu bæði út á brún pallsins og lögðu hend-
urnar á axlir hvors annars. Þau teygðu úr sér og;
horfðust brosandi í augu.
— Nú steypum við okkur, sagði Hell. Og í sömu
andránni steyptu þau sér í löngum boga, snéru sér-
við í loftinu og þutu niður í vatnið. Svo stóð silfur-
glitrandi vatnsstrókurinn upp í loftið og allt varð
grænt fyrir augum þeirra, svalt og dásamlegt. §
Og þetta var trúlofun May Lyssenhop og Urbans
Hell.
Spádómur Birndls reyndist réttur, þegar hann á.
sínum tíma talaði um áhættuna. Varla var ágúst-
mánuður byrjaður, þegar tekjurnar af sundkennsl-
unni lækkuðu. Flestir gestanna voru hættir. að taka
tíma hjá sundkennaranum, allir voru farnir að geta.
fleytt sér, að vísu hættu þeir sér ekki langt frá
fjörunni eða bryggjunum, en þeir þurftu ekki á
hjálp Hells að halda. Starf hans nú orðið var ekki £
öðru falið en því, að standa á bryggjunni í hvernig;
veðri sem var og gæta þess að enginn drukknaði.
Stöku sinnum lét hann það eftir sér að stinga sér og;
synda spölkorn, keppa við Körlu, May, stundum við
Boby eða Sztereny greifa. Hell borðaði óreglulega,.
það er að segja, hann borðaði ekki nema annan og
þriðja hvern dag. Að hverri máltíð lokinni lagðist
hann í sandinn stundarkorn, hann var máttlítill og,
í slæmu skapi. Á kvöldin mátti alltaf búast við ill-
viðri, svo að allir þustu inn.
Óveðrið var alltaf af suðaustri. Fyrst heyrðist
veðragnýr í fjöllunum, svo fór vatnið að ýfast og
seinast risu fjallháar bylgjur og brimið freyddi við
ströndina. Þetta var hið þekkta Meyjavatnsóveður.