Alþýðublaðið - 14.08.1941, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 14.08.1941, Blaðsíða 4
ELMMTUÐAGUR 14. ÁGCST 1§41 ALÞÝÐUBIAÐIÐ FÍMMTUDAGUH Næturlæknir er Úlfar Þórðar- son, Sólvallagötu 18, sími 4411. Næturvörður er í Laugavegs- og Ingólfsapóteki. ÚTVARPIÐ: 20,30 Minnisverð tíðindi (Jón Magnússon fil. cand.). 20,50 Hljómplötur: íslenzkir söngvarar. 21,00 Upplestur: „Brunnur vitr- inganna“, saga eftir Selmu Lagerlöf (Kristján Gunn- arsson kennari). 21,20 Strokkvartett útvarpsins: Kvartett nr. 13, í G-dúr. eftir Haydn. 21,40 Hljómplötur: „Mephisto- valsinn“ eftir Liszt. Veiðiveður var mjög slæmt fyrir Norður- landi í gær og lágu flest skip í vari. Norðan bræla var og þoku- súld. Fáein skip komu þó inn með slatta. Trúlofun sína hafa opinberað ungfrú Halla Þórhallsdóttir (Þórhalls Jónassonar stýrimanns, Vesturgötu 17) og Captain C. Abramowsky frá Póllandi, ' skipstjóri á M.s. „Bug“. Læknablaðið 4. tbl. er nýkomið út. Efni: Um shock, eftir Valtý Albertsson lækni, Um heilsuvernd herliðs, Um útgáfu og dreifingu fagrita, eftir Björn Sigurðsson o. m. fl. Þingvallaferð Stúdentafélags Reykjavíkur. Eins og frá hefir verið skýrt áður hér í blaðinu fer Stúdentafélag Reykjavíkur til Þingvalla n.k. laugardag og verður lagt' af stað frá Alþingishúsinu. Allar upplýs- ingar um ferðina verða gefnar á skrifstofu Ólafs Jóhannssonar lög- fræðings í Sambandshúsinu. Fiskhöllin og aðrar fiskútsölur Jóns og Steingríms hafa tilkynnt, að frá og með deginum í gær lækki verð á ýsu um 10 aura kg. Bifrelðasamakstur varð í morgun kl. tæplega níu neðst á Hverfisgötuni. Rákust á ensk og fslenzk bifreið. Skemmdir urðu litlar og meiðsli engin. KVENHERMENN Frh. af 3. síðu. er eldað var í. Búrið var í sam- ræmi við þetta. Síðast skioðuðum við birgða- skemmu deildarinnar. Vortu þar einkennisbúningar, vinniuföt og allt sem herdeildin þarf að mota. Var þetta á hillum í ,löng- um sal, ölllu vel fyrir komið, eing og þetta væri vöruibirgð- ir hjá heildsala. En stúglkurnar fá allan fatnað ókeypis, svo og fæði húsnæði o. s. frv. og sama kaiup og hermenn eins og fyrr var getið, (og þó heldur meira, eins og siðar mun sjást). Meðan við vorum á gangi þarna um birgðaskemmUna spurði ég: „Hvar eru speglarnir?“ Var mér svarað að þairma væru engir speglar ,og spurði ég hverju sætti slík meðferð á svona duglegri herdeild. Var mér þá svarað að stúlkurnnr fengju hvorki spegla, varalit, kinnailit, andlitsduft ué önnur fegurðar- rneðul, en fengju 3 penee .(33 aura) aúkreitis á viku (fram yf- ir karlmenn) til þess að k'aupa sér þetta. Geta má þess, að margir bifreiðastjörar frá þessari kvennaherdeild voru í Flandem, þegar mest mæddi á brezkahem- uim, og reyndust ágætlega. Útbreiðlð Alpýðublaðlð ;|M| yo Baoaíiiræði við v ra fonætisráðh. Japaa IMORGUN var gerð tilruan til að ráða af dögum vara- forsætisráðherra Japana, Hara- numa. Maður nokkur kom til bú- staðár varaforsætisráðherrans með skjal, er hann kvaðst þurfa að fá varaforsætisráð- herrann til að skrifa undir. Var honum leyft að ganga á fund ráðherrans, en þá skaut hann úr skammbyssu á hann og særðist hann nokkuð. Til- ræðismaðurinn var handsamað- ur. Ferðafélag íslands fer tvær skemmtiferðir um næstu helgi. Aðra ferðina inn að Hvítárvatni, Kerlingarfjöllum og Hveravöllum. Lagt af stað kl. 2 e. h. á laugardag og ekið um Gull- foss norður á Hveravelli og gist þar. Á sunnudaginn dvalið á nefnd um stöðum og komið heim um kvöldið. Hin ferðin er gönguför á Esju, og lagt af stað á sunnudags- morgun kl. 9. Ekið upp að Bugðu í Kjós. Gengið þaðan apstan við Flekkudal upp á fjallið á Hátind. Þá haldið vestur eftir fjallinu og komið niður hjá Mógilsá. Farmið- ar seldir að Hveravallaferðinni til kl. 6 á laugardag hjá afgreiðslu Sameinaða félagsins og farið það- an. Darlan hefir haldið ræðtr 4 Vichy og skorað á Frakka að fylgja hinni nýju stefnu Pe- tains. SGAMLA BlOtaW Hertn pig fieorge! (COME ON GEORGE.) Ensk gamanmynd. Aðal- hlutverkið leikur enski skopleikarinn og gaman- vísnasöngvarinn George Formby. Sýnd klukkan 7 og 9. NÝJA Blð Mturgangati (The Man with nine Lives.) Spennandi og dularfull ameraksk kvikmynd. Að- alhlutverkið leikur sér- kennilegasti „karakter“- leikari nútímans, BORIS KARLOFF. Börn fá ekki aðgang. Sýnd klukkan 7 og 9. Símapöntunum ekki veitt móttaka. Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir, Brandur Jónsson, Garðastræti 16, andaðist í dag á Landsspítalanum. Reykjavík, 13. ágúst 1941. Jóhanna Jóhannsdóttir. Margrét Brandsdóttir. Svava Brandsdóttir. Haraldur Guðmundsson. Tvær skemmtilegar bækur eftir Ólaf við Faxafen, sem bera mjög einkenni höfundarins, eru Allt í lagi í Reykjavík (verð 5,50) og Upphaf Aradætra (verð 4,00). Fást hjá bók- sölum. Í.S.Í. K.R.R. Knattspyrnismót Reykjavtkur f I kvöld kl. 8.15 keppa frak n Víkingnr. V.K.F. Framsókn fer í berjaferð föstudag 15 ágúst þær konur sem viija taka þátt í förinni gefi sig fram á skrifstofu félagsins til kl. 7 i dag eða í síma 2046 eftir kl. 7 ef einhverju plássi væri óráðstafað Stjórnin Sendlsveinn óskast strax BREKKA Mwaílagi&Wi 1. — fi'mi MíWa 36 VICKI BAUM: SUMAR VIÐ VATNIÐ handlegg honum, eins og fugl stingur höfði sínu undir væng sér. — Ég skelf svo hræáfilega, sagði hún. — Ég neyð- ist til þess að fara úr votu iiötunum. Hell var nú farinn að ókyrrast. Honum leizt ekki á blikuna. Hann svipaðist um eftir baðkápunni sinni, en hin umhyggjusama Rési hafði lagt hana út til þerris. — Sjáðu til, sagði hann. — Þú getur farið í storm- -treyjuna mína og hlýjað þér. Hann heyrði Aníku sýsla eitthvað í myrkrinu bak við sig, en hann hafði stungið höfðinu út um gluggann. Alltaf þarf kven- fólkið á að koma mér í einhver vandræði, hugsaði hann, meðan regnið draup úr hári hans. En upphátt sagði hann: — Bíddu ofurlítið, nú skal ég sækja vatn og hita þér tesopa, svo að þér hlýni ofurlítið innvortis. — Anika hljóðaði hástöfum og sagðist ekki þora að vera einsömul hér stundinni lengur, heldur myndi hún henda sér á höfuðið í vatníð, en hún vildi eiga það á hættu að vera tekin hér til fanga eins og mús í gildru. Hún var nú orðin alveg róleg, þegar Hell sat hjá henni. En Hell fór ei að síður út úr herberginu og læsti hurðinni á eftir sér. Landslagið umhverfis baðstaðinn var sveipað jþokuhjúpi. Kalt regnið sáldraðist niður úr skýja- flóka. Hvergi sáust fjöll né strendur. í svona veðri var óhætt að treysta því, að enginn kæmi út á bað- ströndina. Hell þorði ekki að hugsa um það, hvernig hann ætti að eyða tímanum í návist Aniku þangað til klukkan fjögur um morguninn. í þessum þreng- ingum sínum varð honum hugsað til May, og þessa stundina fannst honum hún líkust engli. Og hvað átti hann að gera, ef þeir færu nú að leita að henni og fyndu hana hér í herbergi hans? Hann gat ekki yfirgefið stelpuhnyðruna á þennan hátt, en skollinn hafi það allt saman. Hvað var það ekki, sem hún gat steypt honum út í með óvarkárni sinni? En hann hlakkaði til þess, ef hann fengi einhvern tíma færi á því að tala við greifann undir fjögur augu. Úr e€nu herberginu heyrðist tónlist. Þar sat Matz litli á miðju gólfi og lék á munnhörpu. Hell stenzaðá hjá honum með fulla könnu af vatni í hendinni og hugsaði sig um. — Matz, sagði ha»n. — Það koma sennilega ekki fieiri út á baðströndina í dag. En það er sennilega vissara að þú sitjir þar og gætir að, hvort nokkur kemur. Og ef einhver kemur og spyr eftir mér, sama hver það er, þá segirðu, að Hell sofi. Og svo flýtirðu þér til mín og bankar þrjú högg á hurðina. Skilurðu það? — Já ,sagði Matz og kinkaði líolli, án þess að hætta að spila á munnhörpuna. Þegar Hell kom aftur til herbergis síns, hafði orðið þar töluverð breyting á. Frá vegghillunni og út að glugganum var búið að strengja snúru, og á henni héngu föt Aniku til þerris. Glugginn var lok- aður og búið var að kveikja á olíulampa. Anika var komin í náttföt Hells, en þau voru henni allt of stór og hólkvíð. Svo hafði hún hallað sér útaf í rúmið og var að reykja vindling. — Nú er orðið viðkunn- anlegt hér, sagði hún um leið og Hell snaraðist inn og lokaði hurðinni á eftir sér. — Mjög viðkunnanlegt, tautaði Hell. En í hug- anum sá hann margar Anikur liggjandi í mörgum rúmum, og hann beygði sig yfir þær allar, frá sér numinn — og það var langt þangað til klukkan yrði fjögur. Anika horfði á hann háðslega, en þó með ofurlitlum áneagjusvip þar sem hann stóð fyrir framan litla suðutækið sitt, og hann var svo utan við sig, að hann brenndi sig á fingrunum. — Um hvað er Bulli að hugsa? spurði hún. En Bulli var að hugsa um vélaverksmiðju nokkra. Hann flýði, í huganum, frá þessu hættulega umhverfi inn í verksmiðjuhávaðann. Honum var að verða "óglatt af þessu öllu saman. Hann þorði ekki aS horfa á hana. En hve það hefði verið dásamlegt að vera núna í vélaýerksmiðjunni, þar sem niðlurinn af vélahjólum söng í eyrum og olíulyktin breiddist um allt. Hell þráði að vera kominn til mannanna, sem þar voru að vinna í bláu, olíusmurðu samfesting- unum, með ofspennta vöðva og þreytuleg andlit. En hve hann þráði starfið, sem honum hafði látið svo vel. En hérna vildu konurnar helzt gera hann að kjölturakka. Og bréfið var ekki komið ennþá. En allt í einu datt honum nýtt í hug. — Hefirðu peninga til heimferðarinnar? spurði hann Aniku um leið og hann rétti henni teglas. Anika hnyklaði brýrnar, tók ferðatösku sína og fór að gramsa í henni. — Ég veit ekki í raun og veru, hvað það var, sem ég tróð ofan í hana. Ég tók ekki annað en það, sem ég hafði í baðherberginu. Allt hitt fór lögregian með. — Það er þokkalegt athæfi, sagði hún. En svo

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.