Alþýðublaðið - 06.09.1941, Qupperneq 1
RITSTJÓRI: STEFÁN PÉTURSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XXII. ÁRGANGUR LAUGARDAGUR 6. SEPT. 1941. 208. TÖLUBLAÐ
Rússar segja: Sókn Þjóð-
verja við Leningrad stöðvuð
Þjóðverjar segja: Stórskotahríð hafin
á Lenlngrad og stórbrunar í borginni.
Var „Pétnrsey“
sobkt af kaf bát ?
Brak hefir fundizt úr
stýrishúsi skipsins.
VÉLBÁTURINN „Svanur“
hefir nú fundið hrak,
sem reynzt hefir að vera stýr-
ishússþakið af línuveiðaranum
„Pétursey”, en ekkert hefir
spurzt til hans síðan 12. marz
s.l. Allt virðist benda til þess, |
að skipinu hafi verið sökkt ,
með skothríð, því að kúlna- \
brot hafa fundizt í þakinu.
Línuveiðarinn ,,Pétursey“
fór frá ísafirði 8. marz s.l. með
ísfisk til Englands. Kom hann
við í Vestmannaeyjum og
skipti þar um tvo menn. Fór
skipið síðan þaðan að morgni
þess 10. marz og var þá með
10 manna áhöfn. Þann sama
dag var .,Reykjaborg“ sökkt.
Tveim dögum síðar, 12.
marz, mætti vélskipið ,,Dóra“
„Pétursey“ suður af Eyjum. —
Virtist þá allt vera í lagi á
„Pétursey.“ Síðan hefir ekkert
til hennar spurzt, þar til flak-
ið, sem fyrr var nefnt, fannst.
Vélbáturinn ,,Svanur“ frá
Keflavík var 3. þ. m. staddur
um 18 mílur út af Garðsskaga,
og sá þá fleka í sjónum, sem
merktur var íslenzka fánan-
um. Innbyrtu þeir flakið og
létu fara svo um það, að sem
minnst rask yrði á því. Flutti
„Svanur“ flakið síðan til
Reykjavíkur, þar sem þeim
Friðrik Ólafssyni og Sveini
Sæmundssyni var íalið að rann
saka það.
Við rannsóknina kom í ljós,
að skothríð hafði dunið á stýr-
ishúsinu, sérstaklega á bak-
borða. Eru víða brot úr sprengi
kúlum og verður sennilega
h!ægt að ákveða stærð kúln-
anna. Stafir eru á brotunum og
verður ef til vill hægt að kom-
ast að eftir þeim, hvers lenzkar
kúlurnar hafa verið. Flakið er
3 m. á lengd og IV2 á breidd.
Trúlofun.
í gær opinberuðu trúlofun sína
Jónína Jóhannsdóttir frá Álfta-
mýri í Arnarfirði og hr. Páll J.
Briem, bankamaður í Búnaðar-
banka íslands.
FREGNIR af bardögunum við Leningrad hafa aldrei
verið óljósari og mótsagnakenndarf en í dag.
Fréttaritari Reuters í Moskva símar, að Rússar séu nú bjart-
sýnni en áður og telji sig hafa stöðavð sókn Þjóðverja til Lenin-
grad.
En þýzka fréttastofan tilkynnti í gærkveldi, að stórskotahríð
hefði verið hafin á Leningrad ogv útborg hennar, Schlusselburg,
sem stendur við Nevafljótið nokkru austar og í finnskum fregn-
um er sagt, að stórbrunar séu komnir upp í borginni og sjáist
langar leiðir.
í fregnum frá Moskva í morg-
un er sagt, að manntjón Þjóð-
verja við Leningrad sé orðið
ógurlegt og verði þeir að flytja
nýtt og nýtt lið til vígstöðv-
anna þar.
Þá er og í morgun getið um
harða bardaga víðsvegar ann-
ars staðar á austurvígstöðvun-
um, einkum við Gomel og O-
dessa. Eru það aðallega sagðir
vera Rúmenar, sem sækja að
Odessa og segja Rússar, að
manntjón þeirra sé gífurlegt.
Inni í borginni er unnið nótt
og dag að hergagnaframleiðsl-
unni og er engan bilbug að sjá
á vörn borgarinnar.
í fregn frá London í morgun
er þess getið, að í blaði einu í
Tokíó í Japan hafi birzt grein
— þar sem horfurnar í styrj-
öldinni fyrir Þjóðverja séu
taldar ískyggilegar og vekur
það allmikla athygli, að slíkt
skuli vera viðurkennt þar
eystra.
í greininni er bent á það, að
Þjóðverjum hafi ekki tekizt að
buga Bretland með loftárásun-
um á það í fyrrahaust, að þeim
hafi ekki tekizt að vinna neinn
sigur í orustunni um Atlants-
hafið, að herjum þess miði
mjög hægt 1 Rússlandi, og að
ólgan sé stöðugt að fara í vöxt
í.hérteknu löndunum'.
Leit hafin aö kafbátnnm,
sem réöist á tnndnrspillinn
-----«,---
Roosevelt fyrirskipar að tortima honum
A MERÍKSK HERSKIP eru nú að leila að þýzka kafbátn-
um, sem gerði árásina á- tundurspillinn ,,Greer“ á leið-
inni til íslands'. Roosevelt hefir gefið þeim þá fyrirskipun,
að „tortíma“ kafbátinum, ef þau hafa upp á honum.
í fregn frá London í morgun er sú frétt sögð frá Reykja-
vík, að brezkar flugvélar taki þátt í leitinni.
Það var í fyrradag, sem árásin var gerð á túndurspillinn, og
hann kom hingað til Reykjavíkur í gær. Hann var með póst til
ameríkska setuliðsins hér.
Rioosevelt skýr'ði blaðamönnuim,
svo frá á fundi í Washington
í gær, að árásin á „Greer“ hefði
verið greinilega auðkennt með
ameríska fánauum. Það væri því
mjög ótrúlegt ,aö kafbátsfioiringj-
anum hefð'i ekki verið þaið Ijóst,
að hann var að ráðast á amer-
íkskt herskip, og það því held-
ur, sem mörgUm tundurskeytum
hefði verið skotið á tundurspill-
inn. 1
B« hvað sem því liði, væri eng-
in afsökun til fyrir kafbátiinjn.
sa,gði forsetinn. Því aö það væri
engu betra, að skjóta tundur-
skeyti á skip, sem menn ekki
vissu, hverrar þjóðar væri.
Fofsetinn tók það sérstaklega
fraim við blaðamenninat, að fyrir-
skipun hans til herskipanma ,sem
hafið hafa leit að kafbátnum, hafi
verið orðuð þannig ,að þeim bæri
að ,,tortima“ honum. Það var
rétta orðið.
Hluistunartæki tundurspillisins
eiu talin hafa sýnt gið hann mUni
hafa verið beint yfir kafbátnum'
Unnsteinn Ólafsson skólastjóri afhenti ríkisstjórafrúnni fagran
blómvönd, er hún hafði opnað sýninguna.
GarðyrkjusýDingin er
égleymanlegt ævintýri.
ARÐYRKJUSÝNINGIN
var opnuð í gær kl. 2 að
viðstöddum mörgum gestum og
með mikilli viðhöfn. Ríkis-
stjórafrúin opnaði sýninguna,
en ríkisstjóri var og viðstaddur
opnunina.
Ræður fluttu við opnun sýning-
arinnar Unnsteinn Ölafsson skóla-
stjóri, Hermann Jónasson for-
sætisráðherra og Bjarni Bene-
diktsíon borgarsitjóri.
Þegar sýningin hafði verið
opnuð, dreifði fóillk sér um hinn
mifcla skála.
Er þarna öllu ákaflega vel fyrir
komið, og manni finnst eins og
maður sé kiominn í aldingarðinn
Eden.
Á þessari sýningu er aðail-
áherzlan lögð á blómræktina, og
pnu blómin í löngium röðum meÖ-
fram veggjum og í miðjlui 'en
gosbrunnur er um það bil um
mitt húsið.
í annari deifld sýningarininar er
mikið upphieypt korit af íslandi,
gert af Axel Helgasyni, og er það
hin mesta vöiundarsmíð. Sjást á
því ræktunars'töðvar og garö-
lönd, gróður landsins, jöklar og
öræfi. M'u'nu menn seint gefa slit-
ið sig frá þessu listaverki'. Þá
eru á sýningunm sýndar margs
konar afurði'r,jarðáir, gairðávextir,
ávextir gróðurhúsa, konn og hör,
og eru sýndir ýmsir mlunir, sem
framleiddir eru úr hörnuim.
1 ræðum þeim, sem haldnar
voru í gær við opniun sýningar-
innar, var lögð áherzla á þær
stórfelldu framfarir, sem orðið
hafa í garðrækt á síðu,s)tiu árum
og heitið vaxandi starfi1 og ár-
angri.
Þó að almenningur stundi ekki
þetta starf, getur hann stutt það,
meðall annars með því að sækja
þessa sýningu. — Enda er sýn-
ingin ógleymanlegt æfimtýrii.
þegar djúpsprengjunum var varp
að. Það er talið vel hugsanlegt
og meira að segja mjög líkliegt,
að kafbáturinn hiafi orðið fyrir
einhverjum skemmdum.
Stórrúðabrotin
í Nora-Magazin
STÓR rúða í Nora-Magazin
var brotin s.l. miðviku-
dagskvöld. Voru handalögmál
þar fyrir utan og munu tveir
menn hafa fallið inn um rúð-
una.
Þegar lögreglan kom á vett-
vang um miðnætti þetta kvöld,
var allmikil mainnþröng á staðn-
um. Voru þar erlendir sjómenn
og all ölvaðir. Höfðu verið slaigs-
mál á staðnum og tveár menn
fallið inn um gluggann. Voru
tveir manna'nna noirskir en einn
sænskur og vonu þeir allir þrír
teknir fastir. Tók lögreglan mál-
ið tíl meðferöar iog dæmdi menn-
ina til að borga rúðuna.
Mjólk hæbkar
enn mikið.
Og nö um 11,2 °|o
MJÓLKURVERÐLAGS-
NEFND samþykkti á
fundi sínum í gær, að hækka
mjólk og mjólkurafurðir.
Samkvæmt þessu verður veröið
eins og hér siegir:
Nýmjól'k í laUisU máli 80 aura;
var áður 72 au'na. Flöskumjólkin
verðui' nú á 84 aura- Rjómi kr.
5,50 iíterinn; var kr. 4,95. Skyr
kr. 1,50; var kr. 1,30.
Smjör í smásölu 9,95 kg.; var
áður kr. 8,95.
Ostar hækka um 10°/o-
Þessi hækkun er gífurieg. Á
mjóikinni nemur hún 11,2 0/0. —
Vísitalan hækkaði, eins og kunn-
ugt ‘er, um 10 stig. Smjörið hækk-
ar um 1 krónu kg. og ailt er
eftir þessu.