Alþýðublaðið - 09.10.1941, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 09.10.1941, Qupperneq 1
r RITSTJÓRI: STEFÁN PÉTURSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XXH. ÁRGANGUR_________ FIMMTUDAGUR 9. OKT. 1941 236. TÖLUBLAÐ HerSína Rissa rofin á tvel toðnm Skriðdrekahersveitir Þjóðverja hafa brot- izt í gegn bæði hjá Viazma og Bryansk. Riíssár hðrfa úr Orel, 120 km. fyrir austan Bryansk —...------- Hætta talin á að her Timo- sjenkos verði umkringdur. ------_------- v ÞAÐ virðist nú ekki neinn vafi á því leng- ur, að Þjóðverjar hafi brotizt í gegnum herlínu Rússa á tveimur stöðum á miðvíg- stöðvunum, við Viazma og Bryansk, og að her Timosjenkos marskálks sé í alvarlegri hættu fyrir því að verða umkringdur á svæðinu milli þessara borga. Rússar viðurkenna, að ástandið á miðvígstöðvunum sé mjög alvarlegt og tilkynntu á miðnætti í nótt, að her- sveitir hefðr^ orðið að hörfa úr Orel, hernaðarlega mikil- vægri borg, sem er við járnbrautina milli Moskva og Charkov um 120 km. austur af Bryansk, en 320 km. suður af Moskva. Hefir járnbrautarsambandið milli Moskva og Charkov þar með verið rofið. Harðar orustur eru þó einnig . sagðar standa yfir umhverfis Bryansk. Þjóðverjar héldu því fram í gærkveldi, að þeir hefðu þá þegar verið búnir að króa inni mikinn rússneskan her við Viazama og biði hans ekkert annað en tortíming. I morg- un segjast þeir einnig vera búnir að umkringja mikinn rúss- neskan her hjá Bryansk. í fregnum frá London í morgun er talið, að þessi sókn Þjóðverja á miðvígstöðvunum muni vera mesta sóknin í stríðinu hingað til og orusturnar, sem háðar eru, þær ægi- legustu í allri veraldarsögunni. séki i Mið-Kína FREGNIR frá London í morgun herma, að Kín- verjar hafi s.l. föstudag hafið mikla sókn á hendur Japönum í Mið Kína og standi nú yfir harðir bardagar norðvestan við hina miklu iðnaðarborg Han- kow. Er takmark sóknarinnar talið vera borgin Itzchang við Yang- tsefljót. Hin nýja sókn Kínverja er sögð vera mesta sókn þeirra í stríðinu þar eystra hingað til. flðraðsdómarar bind ast santikia. TJ ÉRAÐSDÓMARAR koma * saman á fund hér í bænum á morgun og ætla að stofna með sér félagsleg samtök. í fundinum taka þátt allir sýslumenn og bæjarfógetar á landinu, lögmaðurinn í Reykja- vík og sakadómari. Tilgangurinn með stofnun þessara samtaka er sá, að gæta hagsmuna stéttarinnar og auka andleg og verkleg viðskipti þeirra sem störf þessi stunda. Sérstök nefnd héraðsdómara hefir séð um undirbúning fund- arins og voru í henni Jón Stein- grímsson sýslumaður í Mýra og Borgafjarðarsýslu, Bergur Jóns son bæjarfógeti í Hafnarfirði og Gísli Sveinsson sýslumaður Skaftfellinga. iðalfnndir Presta- fðlags tslands hefst á morgnn. AÐALFUNDUR Prestafélags Islands hefst á moTgun og tnerður haldinn í Háskólanum. Dagskrá hans verður á þessa (pið: FSstud. 10. ofetóber: Kl. 10 f. h. Gu'ösþjónlusta i HAskólakc^ieJlunni (séHi Eriðrik J. Rafnar, vigsluibisloip). Kl- |!l f- h Skýrsla félagsstjórn- BT. Ársrieikninguir. Kl. 2 e. h. Kosning nefindar, Prh á 4. stðu. Nýtt herbragð Psóftverja. Svo virðist nú sem pessi sókn Þjóðverja sé búin að standa í heila viku, þó að ekki væri gtetið uim hana í rússneskum fregnum fyrr en á sunniudag og i her- stjórnartilkynnimgum Þjóöverja ekki fyrr en í gær. I hinum þýzkiu fregnum frá því í gærkveldi er sagt, að sóknin hafi hafizt á fimmitudagsmorgiun í síðustu viku. Höfðu Þjóðverjar þá aðferð i þetita sinn, að láta skriðdreka- sveitir sínar sækja fram, án nokk-> urrar undangenginnar stórskoita- hríðar, til þess að sóknin sikyldi koma Rússum alveg á óvart, og virðist þetta nýja herbragð þeitrra hafa gefizt vel og gert þeim til- tölulega létt að brjótast í gegn um herlínu Rússa. Það er þó ekki vitað enn, hve mikið af fótgönguliði Þjóðverja hefir hingað tiil getað fylgt í spor vélahersveitanna, en eftir því fer það vitanlega, hve mikil hætta er á því fyrir her Timosjenkos, að hann verði umkringdur. Svo mikið er víst, að harðir bardagar standa enn víðsvegar að baki þeim hersveitum Þjóð- verja, sem br.otizt hafa í gegn. Blöðin í Moskva segja þó í morgun, eftir því sem fregn- irnar frá London herma, að knýjandi nauðsyn sé á því, að menn geri sér það vel ljóst, hve alvarleg hættan sé, og fórhi öllu, einnig lífinu, til ,þess að verja þýðingarmestu fram- leiðsluhéruð Sovét-Rússlands. Stjórorostnr við Asovshaf Samtímis hinum hrikalegu orustum á miðvígstöðvunum eru einnig háðar stórorustur suður við Asovshaf, þar sem að Þjóð- verjar sögðust í gærmorgun vera komnir til Mariupol aðeins 150 km. vestur aí Rostov við Don. [ Rússneskar fregnir af orust- Rrb. á 2. 3ÍÖu. Alþingi kallað sam* an á mánudagtan. ♦------— Aðaimál þess verða dýrtíðarmálin, lokun áfengisverzlunarinnar og ráð- stafanir vegna „ástandsins". -------♦ ÞAÐ mun nú hafa verið ákveðið, að alþingi komi saman næstkomandi mánudag. Mun stjórnin ætla að leggja dýrtíðarmálin enn einu sinni fyrir það. En eins og kunnugt er, hafa dýrtíðariögin frá því í vor ekki verið framkvæmd, þó að vitað sé, að meiri- hluti stjórnarinnar hafi krafizt þess. Heyrst hefir og, að viðskiftamálaráðherra muni leggja 'einhverjar viðbótartillögur um lausn þessara mála fyrir þingið. Þá mun það og vera ætlun stjórnarinnar að láta alþingi skera úr því, hvort áfengisverzlun ríkisins skuli framvegis vera lokuð eða ekki. Og loks er búizt við, að rætt verði um einhverjar ráð- stafanir vegna „ástandsins“. Þetta eru þau aðalmál, s*em þingið mun fjalla um. En áður en umræður hefjast um þau mun stjórnin skýra þing- mönnum frá samningum sínum og samningaumleitunum við Bretland og Bandaríkin. Niólkurskortnr síðdegís, en nóg á veitiagastdðnnnm á kvoldin. ■----♦ Salan hefur aukizt gífurlega og eru nú dagiega seldir 22 þúsund lítrar. |Wr OKKUR skortur er far- * inn að verða á mjólk hér í bænum. Ber sérstaklega á þessu síð- degis — og verður fólk oft að hverfa úr mjólkurbúðunum, án þes að fá þá mjólk, sfem það hef- ir beðið um. Þetta er vitanlega rnjög baga- legt og fólfe reynir aö sjálfsögöu aö leita skýringa á þessúi. Maður kom að máli viÖ AlþýÖu blaðið í morgun og skýrði frá því, að hann befÖi farið í mjólk- urbúð snemina í morgun, sem hann hefir verzlað við í mörg ár. En hann gat ekki feingið mjólk þá, sem hann bað u«n. Á sama tíma fluttu brezkir her- menn tv>o kassa afi nijök að bíl, sem þeir vortui með- Er þefcta óskiljanlegt. Fyrst og fremst verður að krefjast þess, að íslenzk hehnili' séu látin ganga fyrlr um mjólk, eftir þðrfúm þeirra áður en fadð verðluir að selja mjólk til eriendra manna. Aiþýðubláðið snéri sér til Hall- dórs Eirikssonar forstjóra Mjólk- ursamsðljunnar. Hann sagði ,að sér kæmi það á óvart að ekki væri hægt að fá mjólk svona snemma dags. Hins- vegar væri skortur á mjólk og þó bæði Mjólkursamsalan um alla þá injóík, sem hægt væri að fá. Á sunnudaginin seldust í bæ- inn 19 þúsunid lítra og á inárm- dag 22 þúsund lítrar, en fþað mun vera meðalmagn þess, sem jselst í bæinn á dag. Mjólkursal- an hefir aukist gífiurlega. Bæði eru fleiri Islendingar hér í bæn* *- uon en niokkdi sinini áður og auk þess kaupa hiermenn mjólk að dálitlu leyti. Fólk er nú farið að kaupa alla mjólk sína til dagsins strax að morgninum. Gerir það þetta vegna þess, að það hefir oft ekki fengið rnjólk seinni partinn — og þess vegna *xná búast við að mjólk fáist ekki uim hádegisbiliö. Þess verður að knefjast, að Mjólkursamsalan sjái svo uin, að mjólkurbúðirnar hafi nóga mjólk, én í stað þess verði dregið úr þeiril mjólk, sem seld er í i Frii. á 2. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.