Alþýðublaðið - 31.10.1941, Síða 1

Alþýðublaðið - 31.10.1941, Síða 1
Andarnir, sem Hitler hefir sært fram. Hann hélt að hann hefði,gengið frá þessum þjóðum dauðum, nú sér hann, að hann ræður ekki lengur við andana,, sem hann hefir sært fram. Rússa* búa sig nn und> ]*~ að hðria úr Rostov. / Vélarnar fluttar úr verksmiðj- unnm austur yfir Donfljótið. ------*------ Öllnm áblaupum hrundið á ví gstöðvunum við Moskva IHERSTJÓRNARTILKYNNINGU RÚSSA í MORGUN er skýrt frá ógurlegum orustum vestan við Rostov í gær og í nótt, og þykja fréttirnar þaðan benda ótvírætt til þess, að Rússar búist ekki við að geta varið Rostov öllu lengur. Er sagt að allar verksmiðjur borgarinnar hafi þegar verið yfirgefnar og vélar eða vélahlutir úr þeim verið flutt- ir austur yfir Don, til þess að Þjóðverjar hafi þeirra engin not, þótt þeir næðu borginni á sitt vald. Segja Rússar, að Þjóðverjar fái þar ekkert annað en rústir. Engu að síður þykir augljóst, að það yrð,i Rússum hinn al- varlegasti hnekkir að missa Rostov, því að um iþá borg liggur eina jámbrautarlínan, sem tengir Kákasus við Rússland. Olíu- leáðsla liggur þangað einnig fKá Rákasus, en að sjálfsögðu verður hún eyðilögð. Rfkfsatjéri fellst ekki ð laosiar- beiloi stjóroarioo ar fyrst om sioo. Bíðut ettir afpreiðsiu dýr tiðarBálanaa a alpingi. RÍKISSTJÓRI lýsti því op- inberlega; yfir í gær, að hann hefði ákveðið að fallast ekki á lausnarbeiðni stjórnar- innar fyrr en séð væri, hverja afgreiðslu dýrtíðarmálin fengju á því þingi, sem nú situr. Yfirlýsing ríkisstjóra, sem send-var blöðunum og jafnframt birt í útvarpinu síðdegis í gær, var svohljóðandi. „Eftir að hafa kynt mér svo rækilega, sem kostur hefir verið á, viðhorf.ið á ^lþingi, hefir rík- isstjóri ákveðið að fresta því að fallast á lausnarbeiðni ráðu- neytis.ins, þar til útséð er um það, hverj-a afgreiðslu dýrtíðar- málin fá á aukaþingi því, er nú situr. Ráðuneytið hefir ekki að athuga við frest þennan og mun það halda áfram stjórnar- störfum á sama hátt sem hingað Ornstan nm Moskvíi Á vígstöðvunum við Moskva segir í herstjórnartilkynningu Rússa að barizt hafi verið af hinni mestu heift í alla nótt, en áthlaupum Þjóðverja hafi alls staðar verið hrundið. Verja Rússar nú, í hálfhringn um, stern Þjóðverjar hafa slegið um Moskva, sxiðurbakka Volga fljótsins fyxir norðan borgina, hjá Kalinin, norðausturbakka Narafljótsins fyrir suðvestan borgina hjá Malo Jaroslavetz og norðurbakka Okafljótsins fyrir sunnan borgina, skammt norðan við Tula. Er látið skína í það í fréttunum, að sókn Þjóðverja sé sérstaklega hættuleg á þess- um síðastnefnda stað. Fyrir sunan Charkov sögðust Þjóðverjar seinnipartmn í gær Frb. á 4 siðu. Blnti ðr pýzkn stríðskvlkmyBd- inni „Eldsfeírnin“ sýndnr hér. .---.. Náðist á Bermudaeyjuni og var settur Imn i stórkostlega sðgnlega kvikmyod trá Amertkn. KVÖLDIÐ áður en Þjóð- verjar réðust inn í Nor- eg í fyrra sýndi sendiherra þeirra í Oslo nýja þýzka kvik mynd þar og bauð ýmsum norskum fyrirmönnum á sýn- inguna. Þessi kvikmynd hét „Eld- skímin“ og sýndi vígvél Þjóð- verja — og hin ægilegu hryðju- verk þeirx-a í Póllandi, eftir að þeir réðust á það land. Átti kvikmyndin að líkindum að sýna Norðurlöndunum á hverju þeir ættu von, ef þeir tækju sér vopn í hönd til varnar. Þessa mynd sýndu Þjóðverj- ar og víða í löndum áður en þeir réðust á þau. Hluti úr þessari kvikmynd er nú kominn hingað og verður sýndur í Gamla Bíó innan fárra daga. Er þessi hluti „Eldskírnar- innar“ að vísu stuttur en sýnir þó ógnarmátt hinnar þýzku víg- vélar og eyðileggingarstarf henn ar. Bandaríkjamenn náðu þess- um hluta myndarinnar á Ber- mudaeyjum, en hún kom þangað í pósti til Suður-Ameríku. Hafa Bandaríkjamenn sett hana inn í mikla sögulega kvik- mynd um hugsjónir Ameríku- manna, þátttöku þeirra í síðustu styrjöld og ástæðurnar fyrir henni — og undirbúning' þeirra undir átttöku í núverandi styrj öld. Öll þessi kvikmynd er hin athyglisverðasta — og mun efni hennar seint fyrnast þeim, sem sjá hana. Ingibjðrg H. Bjarna- son skólastj. Kvonna skðlaus lézt í gar. \T LUKKAN hálf átta í gær- kveldi andaðist hér í bæn- um Ingihgörg H. Bjarnason, skólastjóri Kvennaskólans í Reyikjavík, tæplega 73 ára að aldri. Banamein hennar var hjartabiiun. Hún hafði um alllangt skeið verið heilsuveil, en íþó gegnt störfum þar til í haust. Þá á- gerðust veikindin svo mjög, að hún hafði ekki haft fótavist frá því skólinn var settur og var það í fyrsta skipti frá því að hún tók við skólastjórn, að hún gat ekki sett hann. í dag fellur niður kennsla í Kvennaskólanum í tilefni af láti hennar. Ingibjörg H. Bjarnason var fædd 14. desember 1868 að Þing eyri í Dýrafirði, dóttir Hákonar Bjarnasonar kaupmanns og frú Jóhönnu Þorleifsdóttur prófasts í Hvammi í Hvammssveit. Hún var sett ung til mennta og var við nám bæði innanlands og utan. En því næst gerðist hún kennari v.ið kvemxaskólann hér í Reykjavík og tók við sicóia- stjórn þar árið 1906 Hefir hún alla tíð síðan eða í 36 ár. haft iþað starf á hendi við vaxandi vinsældir og virðingu nemenda Hrh , á 4. sfóu. 5 mínútna allsheijarverk- f all i Frakklaidi kU.idag? De Gaulle skorar á þjóð sína að mót~ mæla þannig morðunum á gislunum. DE GAULLE, leiðtogi hinna frjálsu Frakka, hef ir skorað á þjóð sína að gera fimm mínútna allsherjarverk fall klukkan fjögur í dag í mótmælaskyni gegn morðun- um á hundruðum Frakka undanfarnar vikur, sem Þjóð verjar hafa tekið fasta og lát- ið skjóta í hefndarskyni fyrir árásir á þýzka hermenn. De Gaulle ávarpaði frönsku þjóðina í útvarpi frá London í gærkveldi og hvatti hana til þess að leggja niður alla vinnu á mínútunni klukkan fjögur í dag. Er svo til ætlast, að allir staðnæmist þar sem þeir eru þær fimm mínútur, sem alls herjarverkfallið á að standa. Fimmtán mínútum áður en allsherjarverkfallið á að hefjast, verður útvarpað frá London nýju ávarpi til frönsku þjóðar- innar. Naeturvarzla blfreiða. er í nótt hjá Bifröst, sími: 1508.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.