Alþýðublaðið - 03.02.1942, Page 1
ALÞTÐUBUBD
KITSTJÓRI: STEFÁN PÉTURSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XSHI. ARGANGUR
ÞRIÐJUDAG 3. FERR. 1942
31. TÖLUBLAÐ
Úrskurðir gerðardóms hver upp á niótl oðram?
Klæðskerar og bókbindarar sviftir
umsomdum grunnkaupshækkunum.
.—— ■
En lárniðnaðarmenn eiga að fá grunnkaupshækk'
un af l»vf að hagsmunir Kveldúlfs eru f veði!
Kúgunarlögin látin gilda i einu til
fellinu, en skotið tU hliðar í öðru!
20 keppendar f Skjaldar-
olimn Ármanns i gærkveldi
—..- ..-.
Sigurvegari varð Kristmundur Sigurðsson.
SKJALD ARGLÍMA
Ármatms fór fram í gær-
kveldi j Iðnó og hófst hún kl.
9. Keppendur voru 20 frá 9 fé-
löguni og hafa aldrei jafnmarg-
ir keppendur tekið þátt í skjald-
arglímu. Skjöldinn vann Krist-
mundur Signrðsson úr Ár-
mann.
Næstur honum varð Kjartan
B. Guðjónsson, glímukonungur
og glímusnillingur íslands,
einnig úr Ármann, og þriðji Jó-
harunes Ólafsson, bráðefnilegur
glímumaður, líka úr Ármann.
Vinningar voru sem hér seg-
ir:
Kristmundur Sigurðsson 18
vinninga, Kjartan B. Guðjóns-
son 17, Jóhannes Ólafsson 16,
Finnbogi Siguirðsson og Guð-
mundur Ágústsson 14 vinninga
hvor, Davíð Guðmundsson og
Sigurgeix Kristjánsson 13 vinn-
inga hvor, Steinn Guðmundsson
og Ingólfur Jónsson 11 vinninga
hvor, Léifur Guðjónsson, Sig-
urður Hallbjörnsson, Sigurður
Ingason og Andrés Sighvatsson
8 vinninga hver, Benoný Bene-
diktsson 7 vinninga,' Bjarni_
Bjarnason, Gunnlaugur J.
Briem 6 vinninga hvor, Krist-
inn Sigurjónsson 5 vinninga,
Björgvin Jónsson og Sigfús
Ingimundarscn 3 vinninga
hvor og Sigurjón Hallbjörnsson
með 1 vinning.
Fegurðarglímuverðlaunbik-
ar, sem gefinn var núna til að
keppa um, vann Kjartan B.
Guðjónsson til fullrar eignar.
Áður en keppnin hófst, flutti
forseti Í.S.Í. stutt erindi. Er
þetta fyrsta íþróttakeppnin,
sem fer fram í tilefni af 30 ára
afmæli Í.S.Í.
Glíman stóð yfir í fúma þrjá
klukkutíma. Húsið var troðfullt
áhorfenda og seldust miðarnir
á svipstundu. Fór keppnin hið
prýðilegasta fram.
Stórskotahríð yfir snndið
milll Halakka oo Singapore
-----♦.. -
Bretar hafa sprengt Johorébrúna milli
megínlands og eyjarinnar í loft upp.
JAPANIR hafa enn enga
alvarlega tilraun gert til
þess að brjótast yfir sundið
miili Malakkaskaga og Singa
poore, Bretar hafa sprengt
Johorebrúna, sem tengir
eyna við meginlandið, í ioft
WPP? og failbyssur þeirra
halda uppi látlausri stór-
skotahríð á bækistöðvar Jap-
ana norðan við sundið.
Loftárásir Japana á Singa-
poore eru stöðugt að færast í
aukana og síðan í gær hafa þeir
gert hverja st.eypiflugvélaárás-
ina á borgina eftir aðra. Hern-
aðarlegt tjón er þó ekki talið
hafa orðið mikið af þeim, þó að
bripiar hafi komið upp á stöku
stað.
Bretar svara þessum loftárás-
um Japana með því að gera loft-
árásir á bækistöðvar þeirra á
Malakkaskaga. Þannig hafa
þeir síðan í gær gert loftárásir
á flugvellina við Kuala Lum-
pur og Quantan.
Frh. á 4. síðu.
Nfiðst á veikustu félðgunum.
.......«•»....—
ERÐARI>ÓMUR þeirra Hermanns og Ólafs hefir nú
kveðið upp fyrstu úrskurði sína. Eru það þrír úr-
skurðir, sem hann hefir felt: Tveir s.l. iaugardag, annar í
kaupgjaldsmálum bókbindara, hinn í kaupgjaldsmálum
klæðskera, og einn í gær: í kaupgjaldsmálum járniðnaðar-
manna.
Eru þessir úrskurðir í einkennulegu ósamræmi hver við
annan, því að gerðardómurinn hefir úrskurðað allverufega
grunnkaupshækkun, um 8% auk ýmsra annarra kjarabóta, járn-
iðnaðarmönnum til handa, þrátt fyrir skýr ákvæði gerðardóms-
Jaganna, sem mæltu svo fyrir, að eldki mætti hækka grunnkaup
frá því sem það var fyrir áramót. En hins vegar ógildir dóm-
urinn með öllu ákvæði um gTunnkaupshækkanir hjá bókbind-
urum og klæðskerum, sem samizt hafði um milli þeirra og at-
vinnurekenda — og nam í öðru tilfellinu 6,5% (bókbindarar) og
í liinu tilfellinu 10% (klæðskerar). Kemur því í ljós, að gerðar-
dómurinn hefir beitt bókstaf kúgunarlaganna til þess ýtrasta
gegn bókbindurum og klæðskerum, en hins vegar skotið honum
til Jhliðar í úrskurðinum um kaupgjaldsmál járniðnaðarmanna!
Úrskurðir þessir voru
kveðnir upp eftir að gerðar-
dómurinn hafði tekið til at-
hugunar samning þann, sem
gerður var strax eftir áramótin
milli ’klæðskera og klæðskera-
meistara og samningsuppköst,
sem nýlega hafa verið gerð
milli bókbindara og bókbands-
meistara og milli jámiðnaðar-
manna og verkstæðiseigenda.
Klœðskerar:
Hafa klæðskerar unnið síð-
ap um áramót samkvæmt samn-
ingi' sínum, sem veitti þeim
mjög verulegar kjarabætur,
allt að 10% grunnkaupshækk-
, un, auk þess sem vinnutíminn
var styttur úr 60 stundum á
viku niður í 51 og hefir klæð-
skerum verið greiítt kaup
samkvæmt þessum samningi,
sem gerður var með frjálsu
samkomulagi aðila.
Nú ætla þeir Ólafur og Her-
mann og gerðardómur þeirra að
rifta þessum samningum og
svifta klæðskerana þeim kjara-
bótum, sem þeir höfðu inni að
halda.
Úrskurður gerðardómsins
bannar alla hækkun á grunn
kaupi hjá klæðskerum og
mælir ennfrennir svo fyrir,
að vinnuvika þeirra skuli
ekki styttast úr 60 stundum
niður í 51, héldur aðeins
niður í 54.
Bókbindarar:
Sömu kúgun á að beita við
bókbindarana. Þeir höfðu fyrir
Viku náð samkomulagi við at-
vinnurekendur um 5,5% grunn
kaupshækkun og einstakar
aðrar kjarabætur, gert um það
samningsuppkast og byrjað að
vinna s.l. þriðjudag, samtímis
því að samningsuppkastið var
lagt fyrir gerðardóminn. Hefir
síðan verið unnið á bókbands-
stofunum og bókbindurum ver-
ið greitt kaup samkvæmt
samningsuppkastinu.
En nú riftir gerðardómur-
inn einnig þessu samkomu-
lagi aðilanna, og bannar að
veita bókbindurum nokkra
grunnkaupshækkun. Hins
vegar leyfir dómurinn aðrar
kjarabætur, sem um hafði
samizt, þar á meðal nokkra
uppbót fyrir s.I. ár, þó að
hún sé teftirtalin í forsend-
unum.
En þó að gerðardómurinn
hafi þannig notað sér til hins
ýtrasta bókstaf kúgunarlaganna
Frh. á 4. slðu.
Áðalfnndor Dagsbrún
ar haldinn í bvðld.
mnmmm S
Þar verður skýrt frá úrslít-
um kosDinganna
' ; ' ■' ■ — : 1 1 í
VERKAMANNAFÉL. Dags-
brún heldur aðalfund
sinn í kvöld. Verður þar skýrt
frá úrslitum i kosningum þeim7
stem fóru fram í félaginu fyrir
og um helgina.
Alls kusu 1864 félagsmenn.
og var kjörsókn mest á sunnu-
dag. Þá kusu 1000. Aðstaða
listanna var mjög ólík við
kcsninguna. íhaldið og Héðinn
höfðu fullkomna kjörskrá til að
starfa eftir og voru vinnubrögð
in vitanlega í samxæmi við
það, — eins og við hverjar
aðrar almennar kosningar. —
Verkamannalistinn hafði ekki
annað en skrá frá síðustu
kosningum, sem fylgismenn
listans gátu þá búið til og var
hún mjög óviss, vegna þess að
margir höfðu skipt um heimilis-
fang og engir þeirra, sem gengu
í félagið á árinu voru á þeirri
skrá. Sendi Héðinn og íhaldið
nokkur bréf. út, en verka-
mannaiistinn 1. Komust bréf
íhaldsins' til skila, en ver gekk
með bréf B-listans, enda réðu
þeir fyrrnefndu yfir réttum
heimilisföngum félagsmanna.
Þá skal þess getið, að Morg-
unblaðið var á sunnudaginn
eingöngu helgað þessum kosn-
ingum og birti blaðið dæma-
lausar álygar á andstæðingana,
sérstaklega Alþýðuflokkinn.
Félagsmenn í Dagsbrún eru
beðnir að fjölmenna á aðal-
fundinn í kvöld. Hann verður
í Iðnó.
Aðalf nndnr Sjómanna
félags Hafnarfjarðar
Næstum einhuga hosning Al-
þýðuflokhsmanna í stjórn.
AÐALFUNDUR Sjómanna-
félag Hafnarfjarðar var
haldinn s.l. sunnudag og var
þar skýrt frá hag félagsins,
starfsemi á árinu og úrslitum
stjórnarkoþningáfrinnar.
í félaginu eru 208 menn og
höfðu 145 menn neytt atkv.~
réttar síns.
Kosningin fór þannig:
Formaður: Þórarinn Kr. Guð-
mundsson, 125 atkv.
Varaformaður: Friðrik Ágúst
Hjörleifsson, 111 atkvæði.
Ritari: Borgþór Sigfússon, 74
atkvæði.
Gjaldkeri: Pálmi Jónsson, 87
Varagjaldkeri: Ingimundur
Hjörleifsson, 91 atkv.
Allir þessir menn eru Al-
þýðuflokksmenn.
Frh. á 2. 'síðu.
i