Alþýðublaðið - 09.02.1942, Qupperneq 1
AIÞYMBLAÐIÐ
KÍTSTJÓRI: STEFÁN PÉTURSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKLKINN
XXiH. ÁRGANQTJR
MÁNUDAGUR 9. FERR. 1942.
34. TÖLUBLAÐ
Japanir komu liði á land á
Singaporeeyju i gærkveldi.
Harðir bardagar
lættolegasta stund ^
ifriðarinsivor, segir
Stafferd Cripps.
á vesturstrðnd eyjarinnar.
Desar vorsóks Þjóðverja hefst
anstur á Rnsslaudi.
SIR STAFFORD CRIPPS,
sem nýlega lét af störfum
sem sendiherra Breta í Moskva
norg nú er kominn til London, lét
svo ummœlt í viðtali í gær, að
úrslit ófriðarins gætu oltið á
því, að Bretar og Bandaríkja-
menn sæju Rússum fyrir nægi-
legum hergögnum í vor til þess
að verjast hinni fyrirhuguðu
sókn Þjóðverja þá. Vorið og
sumarið, sem nú færi í hönd,
myndi sennilega verða örlaga
þrungnasta missiri ófriðarins.
Sir Stafford sagði, að Þjóð-
verjar myndu sennilega byrja
vorsókn sína í Suður-Rússlandi
í apríl með það fyrir augum,
að brjótast austur til olíulind-
anna í Kákasus, og allt væri
undir því komið, að Rússar
gætu varizt þeirra sókn.
Fregnir frá Moskva í morg-
un segja frá hörðum bardögum
á Leningradvígstöðvunum.
Rússar sækja fram yfir hið ísi
lagða Ladogavatn, í áttina til
Schlusselburg og hafa rekið þar
mikinn fleyg inn í varnarlínu
Þjóðverja.
Sunnar á vígstöðvunum eru
harðir bardagar um bæinn
Rhzew, norðvestur af Moskva.
Beita Rússar þar fyrir sig
skriðdrekum af allra stærstu
gerð, 52 smálestir. Bærinn er
nú innikróaður af Rússum.
APÖNUM tókst að koma töluverðu liði á land á vestur-
strönd eyjarinnar, sem Singapore stendur á, í gaer-
kveldi og í nótt, eftir ógurlega stórskotahríð yfir sundið,
sem staðið hafði látlaust í 12 klukkustundir.
Fluttu Japanir liðið á bátum yfir sundið, sem er þama
um 15 km. breitt. Og héldu steypiflugvélar Japana uppi
stöðugum loftárásum á stöðvar Breta á ströndinni meðan
landgangan fór fram.
Það er ekki vitað, hve miklu liði Japanir hafa komið á land,
en í fregninni frá Singapore í morgun, sem skýrir frá landgöngu
þeirra, er viðnrkennt, að eitthvað af liðinu hafi komizt nokknð
inn á eyjuna, og standi yfir harðir bardagar við það, en Bretar
geri sér góðar vonir um að geta ráðið niðurlögum þess.
'éaétt/fe
I Wm$m.
A PsUnihanf y', '--f'-'j % -A
ft X TufnU
; GVJNBA
^ sí
• -'ly £> t p g ’ 'y J
_________________________^AUStRAUA )
sgale OF mes
C50 0 250 600'
Ófriðarsvæðið í Austur-Asíu.
Aðrar fregnir í morgun frá 0
Austur-Asíu eru þær, að allt
sitji við sama á vígstöðvunum
við Saluenfljót í Burma, en í
gærkveldi var skýrt frá því, að
Wavell hefði undanfarna viku
verið í kynnisför þar.
Farið er að flytja fólk burt
úr Rangoon, höfuðborg Burma,
vegna hinna sífelldu loftárása
Japana, en Sir Ronald Smith,
landstjóri Breta í Burma, hefir
lýst því yfir, að Rangoon verði
varin, hvað sem það kostar.
fiarðnandi loitárásir Jap
asia i ðosiuF'Ifidiiiii!.
■ Fregn frá Batavia, höfuð-
borginni á Java, hermir, að í
morgun hafi Japanir gert
fyrstu loftárás sína á þá borg.
En nánari fregnir af þeirri árás
eru enn ókomnar.
Á Surabaya, flotabækistöð-
ina austar á Java, gerðu Jap-
anir fjórðu loftárásina á laug-
ardaginn og varð töluvert tjón
af henni.
Þá hafa Japanir um helgina
Fifi. á 4. sfftu.
Línnveiðarínn „Fróði“ strandaði f
íétt á Vesturboða við Grundarfjorð
Mannbjðrg varð, en skipið er talið ónýtt
Farmgj aldahækkun á öllum
vörum nema vísitöluvörum.
.• y . .
Pað ern somu fllraunirnar, að falsa vfsitöluna
eins og með verðlagsúrskurði gerðardémsins.
AÐ er nú orðið kunnugt, að nokkru fyrir áramótin
hsekkuðu farmgjöld um allt að 25% á öllum vörum,
nema þeim sem koma til greina við útreikning vísitöl-
unnar.
Skipafélögin höfðu krafizt þess, að hækkun farmgjaldanna
kæmi til framkvæmda nokkru fyr eða í nóvember, en hækkun-
inni var frestað þar til í destember.
Það voru ráðherrarnir Ólafur Thors og Eysteinn Jónsson,
sem réðu þessari stefnu, en með því að taka undan hæfckuninni
þær vörur einar, sem koma til greina við útreikning vísitölunnar,
var grteinilega stefnt að því sama og fram kom í fyrsta verðlags-
úrskurði ,.gerðardómsins“: að halda vísitölunni og þar með dýr-
tíðaruppbótinni á kaup lannastéttanna niðri, þrátt fyrir það, þó
að dýrtíðin lialdi áfram að vaxa hröðum skrefum.
LINUVEIÐARINN „Fróði“
strandaði í nótt á Vestur-
boða við Grundarfjörð. Mann-
björg varð, en skipið marar í
kafi að aftan, en stendur enn
upp úr að framan. Búizt er við,
að skipið sé gersamlega eyði-
lagt.
Vesturboði er stórt sker. við
innsiglingu Grundarfjarðar
undan Krossnesi. Það var þar,
sem Súðin strandaði hér um ár-
ið, en brimið bar hana yfir
skerið og sakaði hana ekki.
Skipstjóri á „Fróða“ var
Guðjón Finnbogason úr Reykja
vík. Hafði skipið verið leigt
Skipaútgerð ríkisins í tvær
ferðir til Breiðafjarðar með
vörur og var það að koma úr
seinni ferðinni og átti eftir að
koma á einn fjörð, Grundar-
fjörð.
Frh. á 4. síðu.
Þar með er raunverulega
verið að falsa vísitöluna og
hafa fé af launastéttunum. Þær
taka með því á sípar herðar
byrðar dýrtíðarinnar, því að
dýrtíðaruppbót þeirra er ekki
lengur í samræmi við vöxt dýr-
tíðarinnar, þar sem hún er mið-
uð við of lága vísitölu.
Hræsni forsprakka Sjálf-
stæðisflokksins og yfirdreps-
skapur verður því berari í
þessu máli þegar þess er
minnzt, að í sambandi við út-
gáfu kúgunarlaganna talaði ÓI-
afur Thors mjög um endur-
skoðun vísitölunnar til hags-
bóta fyrir launastéttirnar. Það
gerði hann eftir að hann hafði,
ásamt Framsóknarhöfðingjun-
um, unnið markvisst að því að
dylja dýrtíðina fyrir launastétt-
unum, taka þær vörur einar
undan farmgjaldahækkun, sem
koma til greina við útreikning
vísitölunnar, en leyfa farm-
gjaldahækkun á öllum hinum,
um 25%. En vitanlega verður
allur almenningur að bera einn-
ig þá hækkun, þó að hann fái
hana ekki uppbætta.
Þegar þessar aðfarir við
farmgjaldahækkunina eru
bornar saman við fyrsta verð-
lagsúrskurð „gerðardómsins“
svokallaða, getur enginn vafi
leikið lengur á því, að hér er
beinlínis um kerfisbundnar til-
raunir að ræða til þess að falsa
vísitöluna í þeim tilgangi að
hafa hina fullu dýrtíðaruppbót
á kaupið af launastéttunum.
Þetta er öll barátta þessara
herra á móti dýrtíðinni. Þær
vÖrur, sem ekki hafa hingað til
verið teknar með í vísitöluna,
mega halda áfram að hækka-, en
til þess að leyna því — og þar
með raunverulegum vexti dýr-
tíðarinnar, eru vísitöluvörurnar
teknar undan, vísitölunni þar
með haldið niðri — og verka-
lýðurinn og launastéttirnar
sviknar um fulla dýrtíðarupp-
bót samkvæmt lögformlegum
samningum.
Eíbb þekktasti sér-
fræðingur Bitlers
ferst við flngslys.
Dr. Todt hðfundnr hinnar
frægn Siegfriedlínu.
ÞAÐ var tilkynnt opinber-
lega í Berlín í gærkveldi,
að dr. Fritz Todt, bygginga-
meistari hinna frægu bílabrauta
Hitlers og Siegfriedlínunnar á
vesturlandamærum Þýzkalands,
hefði farizt við flugslys.
Þriggja mínútna þögn var
fyrirskipuð um allt Þýzkaland
til minningar um hann og á-
kveðið htefir verið að þýzka rík-
ið skuli kosta útför hans.
Við dauða dr. Todt hefir
Hitler misst einn af sínum
beztu sérfræðingum. Löngu
fyrir stríð var hann orðinn
þekktur maður úti um heim af
hinum frægu nýju bílabraut-
um um þvert og endilangt
Þýzkaland, sem Hitler lét
Frii. á 4. síðu. i