Alþýðublaðið - 12.02.1942, Blaðsíða 2
FIMMTUDAG 12. FEBR, 1942
5MÁAUGLÝ5INGAR
ALÞÝQUBLAÐSINS
■' v - -----
I VINNA
UNGUR reglusamur maður
óskar eftir verkstæðisplássi
(trésmíði). Tilboð sendist afgr.
blaðsins fyrir laugardag.
1 HÚSNÆÐI
FAGVINNU í byggingariðn-
aðinum, fyrirf ram greidda húsa-
leigu eða aðra þóknun, eftir
samkomulagi, fær sá, sem getur
látið fámennri, reglusamri
fjölskyldu í té húsnæði nú þeg-
ar eða 14. maí. Tilboð í afgr. bl.
fyrir 15 . þessa mán. merkt
„Fljótt“. •
Sölnmaðnr
Okkur vantar strax sölu-
mann í bæinn og nágrenn-
ið.
Heildverzlun
GUÐM. H. ÞÓRÐARSONAR
Austurstr. 17. Sími 5815.
Nýkomnar
vðrur:
NÝTT KERAMIK í miklu úr-
vali.
BURSTASETT, mjög smekkleg.
HÁRBURSTAR, margar gerðir.
TESETT til ferðalaga, 8 stærðir.
Margs konar skrautvamingur,
svo sem: hringar, nælur.
manchettuhnappar, púður-
dósir o. fl.
Ennfremur höfum við fengið
aftur mikið úrval af alls
konar LEIKFÖNGUM.
Komið, —- skoðið og kaupið!
Windsor Megasin
Laugavegi 8.
UBgnr maðnr
með gagnfræðaprófi óskar
eftir atvinnu við verzlun
(helzt matvöruverzlun).
Þeir, sem vildu sinna
þessu, leggi tilboð sín til
afgr. blaðsins merkt „Ung-
ur maður“ sem fyrst.
Vörnbíll
til söiu á Frakkasííg 26 A
eftir kl. 4.
Blý
kaupir
VERZLUN
O. ELLINGSEN.
ÁRÁSIN Á SWATOW
Frh. af 1. sdðu.
valdi Japana, unnu þar mikinn
usla á hemaðarlegum mann-
virkjum við höfnina og
sprengdu í loft upp skotfæra-
birgðir, en hurfu því næst aftur
inn í land.
Nýf (lotaforiogi banða-
maona i Anstnr-Indiom.
Hart flotaforingi, hinn amer-
íkski aðmíráll, sem síðan um
nýjár hefir verið yfirmaður alls
bandamannaflotans í Austur-
Indíum og úti fyrir Austur-As-
íu yfirleitt, undir yfirstjóm
Wavells, hefir beðizt lausnar og
þegar látið af störfum.
Við yfirstjórn bandamanna-
flotans þar eystra hefir nú tek-
ið í hans stað hollenzkur flota-
foringi, Helprich aðmíráll, sem
áratugum saman hefir veitt
forstöðu hollenzka flotanum í
Austur-Indíum og þekkir þar
hverja ey, hvert sund og hvem
vog. Hefir hann aðalbækistoð
sína í Surabaya á Java.
EKEE) INN UM GLUGGA
Frh af 1. síðu.
trillunni og óku inn um sýn-
ingarglugga verzlunarinnar
Verðandi.
Er þetta stór sýningargluggi
og varð mikið tjón að.
AU»yPUBLAfUÐ
Banatilræði gegn
Þjóðverjam i Frakk-
landi f aramjög í vöxt
BANATUJLEÐI gegn Þjóð-
verjum í París fara mjög í
vöxt. Samkvæmt upplýsingum
frá Hr. M. Cardozo, fréttar-
ritara „Daly Mail“ i Madrid,
eru þau einkum framkvæmd
með handsprengjum, vélbyss-
uffl og smá-vélbyssum.
Þ. 9. desember, segir þessi
fréttaritari, var gerð í París enn
iþá ein árás á þýzka sveit, cg
fórust tveir menn. Þjóðverjam-
ir veittu öfluga mótspymu, en
árásarmennimir komust undan
á flótta.
Ef maður ber þennan atburð
saman við íyrri árásir, sem gerð-
ar hafa verið á þýzka hershöfð-
ingja, ýrnist á götum úti eða á
svölum kaffihúsa, skilur maður
óróa þýzkra hermanna yfir sí-
auiknum vopnaburði. Þýzku yf-
irvöldin vita nú að í allri ring-
ulreiðinni, sem hmninu fylgdi,
komst ógrynni yopna í hendur
franskra manna, sem andvígir
eru Þjóðverjum og ekki munu
hika við að beita iþeim. Kveður
svo mjög að þessu, toætir Car-
dozo við, að aðstaða setuliðs-
manna er að verða lífshættu-
legri en hún var á sjálíum vig-
stöðvunum.
Eggert fiiifer skák-
meistari fimmtngnr.
IDAG er Eggert Gilfer skák-
meistari fimmtíu ára. Hann
er sonur þeirra merku hjóna
Þuríðar Þórarinsdóttur og Guð-
mundar Jakobssonar, sem flest-
ir eldri Reykvíkingar munu
kannast við. Em ættir þeirra
beggja velþekktar og óþarfi að
rekja hér. Gilfer á að baki
merkan feril sem tónlistarmað-
ur, og mundi það eitt nægja til
að halda nafni hans á lofti, en
hér verður ekki farið út í þá
sálma, því að til þess munu nóg-
ir aðrir verða. Hér verður að-
eins rúm til að geta lítillega um
afrek hans á skákborðinu utan
lands og innan. Hann var ekki
kominn af bamsaldri, þegar
hann kynntist skáklistinni.
Varð hann þegar hugfangirm af
töfmm hennar og verður ekki
séð að þau áhrif hafi rénað síð-
an. Fyrst vakti hann á sér at-
hygli, er hann, átján ára gam-
all, sigraði í fjöltefli í Kaup-
mannahöfn hinn heimsfræga
skákmeistara Capablanca, er
síðar varð heimsmeistari. Eftir
heimkomuna frá Höfn komst
hann brátt í fremstu rÖð ís-
lenzkra skákmanna, og tuttugu
og tveggja ára gamall varð
hann skákmeistari íslands í
fyrsta sinn. í meira en aldar-
fjórðung, sem síðan er liðinn,
hefir hann unnið fleiri og
glæsilegri sigra en nokkur ann-
ar íslenzkur skákmaður fyrr
eða síðar. Nægir til marks um
það að geta þess, að hann hefir
alls átta sinnum orðið skák-
meistari fslands, og mun líða á
löngu, unz nokkur kemst þar
jafnfætis honum. Fjórum sinn-
um hefir hann keppt á alþjóða-
skákmótum fyrir íslands hönd,
og þá ávalt á fyrsta borði. Hef-
ir hann þar unnið sér frægð,
svo að hann er þekktastur er-
lendi? af öllum íslenzkum skák-
mönnum. Einna frækilegast
þótti, er hann sigraði í Ham-
borg 193Q á einum og sama degi
Almes, skákmeistara Þýzka-
lands, í gullfallegri skák, og
Sultan Khan, skákmeistara
9
Englands, sem þá þótti einhver
efnilegasti skákmaður heims-
ins. Á sama móti gerði hann
jafntefli við Marshall, hinn
gamla ameríkska skákjöfur, og
mun honum sjálfum þykja
mest til um það afrek sitt.
Á síðari alþjóðamótum hefir
hann annið margan góðan sig-
ur, t. d. er hann vann Thomas,
frægasta skákmann Englend-
inga, og Pirc, skákmeistara
Júgóslavíu. í sumum þessara
frægustu skáka hans koma sér-
staklega í ljós þeir eiginleikar,
sem helzt einkenna skákstíl
hans, dirfska, en þó einkum
furðuleg hugkvæmni.
”Það skyldi þó enginn ætla. að
þýðing Eggerts Gilfers fyrir ís-
lenzka skáklífið sé einurig-s
fólgin í hans eigin sigrum, því
að með réttu má segja, að hann
hafi verið kennari hinna yngri
meistara okkar og stuðlað
þannig að því öðrum fremur, að
hefja skákstyrk íslendinga á
hærra stig, og verður það
naumast ofmetið. Enn í dag er
hami einn hinn traustasti og
bezti félagi í Taflfélagi Reykja-
víkur og telur eltki eftir sér að
Aðalfnndnr Hen-
endasambandsfiagn-
fræðaskðlans i Rvík.
AÐALFUNDUR Nemenda-
sambands Gagnfræða-
slcólans í Reykjavík var haldinn
10. febrúar síðastliðinn.
Verkefni aðalftlndar voru:
Að ganga frá lögum sam-
bandsins og kjósa stjóm.
í stjórn voru kosnir: Ingi R.
Helgason, íorseti, Ingvar Ing-
varssion, Jóhann Gíslason,
Unmj|r Niikt/Jásd'ólttir, Hreiðar
Ólafsson, Skúli Magnússon.
Karl Sigurðsson. StjómJn á
eftir að skipta með sér störf-
um. Almennur áhugi lildr á
málum sambandsins og félags-
líf skólans er prýðilegt. en
stutt’ af skólastjóra.
Ný félðg í Í. S. I.
ESSI félög hafa nýlega
gengið í íþróttasamband
íslands:
U.M.F. Grettir, Miðfirði, fé-
lagatala 66, form. Sigurður
Daníelsson. íþróttasamband
Hólaskóla, félagatala 42, form.
Amór Óskarsson, Knattspymu-
félagið Óðinn, Blönduósi, fé-
lagatala 47, form. Konráð Díó-
medesson, U.M.F. Sindn,
Höfn, Homafirði, félagatala 55,
form. Benedikt St. Þorsteins-
son.
Sambandsfélög Í.S.Í. em nú
119 að tölu, með yfir 15 þúsund
félagsmenn.
í tilefni af 30 ára afmæli
Í.S.Í. 28. jan. s.l. gerðust eftír-
taldir menn ævifélaar Í.S.Í.:
Konráð Gíslason bókari, Ní-
els Carlsson forstjóri, Leiiur
Auðunsson frá Dalsseli, frú Að-
alheiður Þorkelsdóttir, Jón
Helgason kaupmaður, frú Klara
Bramm Helgason.
Ævifélagar Í.S.Í. em nú 128.
Í.S.Í. hefir nýlega stofnað 2
ný ráð í Reykjavík. Hand-
knattleiksráð Reykjavíkur, for-
maður Baldur Kristjónsson í-
þróttakennari, og Skautaráð
Reykjavíkur, formaður Konráð
Gíslason bókari.
Tiðbúnaðnr í N.arvib.
FREGNIR jrá Svíþjóð
hertna, að Þjóðverjar hafi
nú stórkostlegan viðbúnað í
Narvík í Noregi.
Er sagt að þeir ætli sér að
koma þar upp mikill flotabæki-
stöð — og þar verði einnig mik-
il birgðastöð. Hafa Þjóðverjar
fyrirskipað öllum íbúum Nar-
víkur burtu úr bænum, og er
það öðm sinni að þeim er skip-
að á brott.
tefla við þá, sem byrjendur eru
í listinni, og það var ekkx sízt
þess vegna, að Taflfélag Reykja
víkur gerði hann að heiðuvsfé-
laga sínum fyrir nokíxrum ar-
um, sem lítinn vott þeirrar"
þakklætisskuldar, er féiagPS
stendur í við hann. Munu hinir
mörgu vinir Gilfers og aðdá-
endur óska þess í dag, að snilli
bans megi í mörg ár cnn njóta
sín og vera hinum ýngri til
tovatningar og fyrirmyndar.
Félagi í T. R.
Kol
Kol.
Góð tegnnd af húsakolnm nýkomin.
KOiWl l\/AÁ \ 8(ilHÍIUAM)8X
SlMAR l%4' &40n KliYKMVtK
’+mf*
ipynnlng.
Frá og með föstudeginum 13. febrúar 1942 verður
reiknað 30 aura heimsendingargjald fyrir hverja sendingu
frá verzluninn félagsmanna.
Jafnframt eru heiðraðir viðskiptamenn áminntir um
að gera innkaup sín tímanlega, sérstaklega á laugardöginn.
FÉLAG KJÖTVERZLANA í REYKJAVÍK
v I
liikynning
frá Viðskiptanefnd.
Með tilvísun til samnings um sölu á fiski til
Bretlands, dags. 5. ágúst 1941, tilkynnist það
hérmeð, að frá og með deginum í dag til apríl-
loka 1942 hafa öll ídenzk og færeysk fisk-
flutningaskip leyfi til að kaupa fisk á Breiða-
firði til sölu í Bretlandi.
Viðsklptanefndin.
Reykjavík, 11. febrúar 1942.