Alþýðublaðið - 17.02.1942, Blaðsíða 2
3>EIÐJUDAG 17. FEBR. 1942.
ALÞÝÐUBLAÐiB
SMÁAIIGLÝ3IHGAR
ALÞYflUBLAÐSIHS
SILFURN ÆLA (fiðrildi) —
tapaðist síðastliðið laugau-
dagskvöld, sennilega í Al-
þýðuhúsinu, eða þaðan að
Litlu Bílstöðinni. Vinsamleg-
ast skilist gegn fundarlaunum
á Hörpugötu 28.
NÝR SVAGGER (á lítinn
kvenmann) til sölu. Ennfrem-
ur: Tvenn ný drengjaföt á 9—
10 ára gamla. Til sýnis á Rán-
argötu 15, efstu hæð, eftir kl.
12 á miðvikudag.
Skrifstofuherbergi
Lítið skrifstofuherbergi
óskast til leigu við eða í
Miðbænum, strax. Tilboð
auðkennt: „Lítið her-
bergi“ sendist afgr. Alþbl.
Starfsstnlknr
óskast í iðnfyrirtæki.
Uppl. í skrifstofu Fél. ís-
lenzkra iðnrekenda Skóla-
stræti 3, Sími 5730.
EININGARFUNDUR. annað
kvöld kl. 8. Öskupoka-upp-
boð og ýms annar gleðskap-
ur. Dans hefst kl. 10,30.
ÞING OPINBERRA STARFS-
MANNA
Frh. af 1. síðu.
ir: Björn L. Jónsson, veður-
fræðingur og Ingibjörg Ög-
mundsdóttir, fulltrúi frá félagi
símamanna, og til vara Pálmi
Jósefsson, kennari.
Árnaðaróskir bárust stofn-
þinginu frá Alþýðusambandi
íslands og Verzlunarmannafé-
lagi Reykjavíkur.
Bréfið, sem stofnþinginu
barst frá Alþýðusambandinu
var svohljóðandi:
16. febrúar 1942.
„í tilejni af stofnun Banda-
lags opinberra starfsmanna
vill Alþýðusamband íslands,
allsherjarsamtök ísl. verka-
lýðssamtaka, færa hinu ný-
stofnaða bandalagi beztu árn-
aðar- og framtíðar-óskir.
Alþýðusambandið vonar
fastlega, að Bandalagi opin-
berra starfsmanna megi auðn-
ast að rétta hlut meðlima
þeirra félaga er innan vé-
banda þess eru, með því að
bæta kjör þeirra og kaup og
ráða fram úr öðrum þeim að-
kallandi nauðsynjamálum,
sem ráða þarf bót á.
Eins og allir launþegar í
landinu hafa gleggst orðið
varir við, er nú unnið að því á
markvisan hátt að þrengja
kosti launþeganna, og leggja
hömlur og viðjar á þau samtök
sem berjast fyrir réttindum
þeirra, í von um að á þann
hátt takist að bæla niður, and-
stöðuna við hinar gerræðis-
fullu og ómaklegu árásir, sem
launastéttirnar hafa orðið
fyrir.
Verkalýðssamtökin hafa nú
þegar liafið ákveðna baráttu
undir merkjum Alþýðusam-
bandsins, fyrir endurheimt-
ingu þess frelsis og þeirra sjálf
sögðu lýðræðislegu réttinda,
sem verkalýður og allir aðrir
launþegar hafa verið sviptir.
Sú barátta ber . því aðeins
gipturíkan og skjótan sigur í
skauti sér, að launþegarnir í
hvaða starfsgrein, sem er,
fylki liði og taki höndum sam-
an og sæki að settu marki. sam
huga og samtaka.
Ávallt hefir nauðsyn á traust
um samtökum verið mikil en
efalaust • aldrei brýnni og meir,
aðkallandi, en einmitt nú. Al-
þýðusambandinu er það því
mjög mikið ánægjuefni, að fé-
lög opinberra starfsmanna
hafa treyst raðir sínar og
stofnað með sér allsherjar
bandalag.
Um leið og vér færum Banda-
lagi opinberra starfsmanna
vorar beztu árnaðaróskir, vilj-
um vér mega vænta þess, að
gott og gæfuríkt samstarf
geti hafizt og haldizt milli þess
og Alþýðusambandsins í öllum
þeim málum, sem sameigin-
legra hagsmuna er að gæta.“
Á fundi þingsins á laugardag
var eftirfarandi ályktun um
bætt launakjór og réttarbætur
— samþykkt:
„Bandal. beinir svofelldum
áskorunum til Aliþingis, bæjar-
stjórna og annara hlutaðeig-
andi aðila:
1. að launakjörn opinberra
starfsmanr.a verði tekin til end-
urskoðunar nú þegar á Alþingi
í bæjarstjórnum og ihjá öðrum
aðilum, og þau bætt að mun,
enda hefir hagur landsins batn-
að svo, að það er bæði fært og
skylt.
2. að framkvæmd verði nú
þegar ítarleg rannsókn á grund-
velli verðlagsvísitölu kauplags-
nefndar cg verðlagsvísitalan
endurskoðuð m.a. með hliðsjón
af búreikningum frá fleiri stétt
um manna en hingað til. Jafn-
framt 'verði fjölgað nefndar-
mönnum í kauplagsnefnd um 2
og tilnefni BSRB annan þeirra.
3. að opinberum starfsmönn-
um, sem eiga fyrir ómegð að
sjá, verði með Iöggjöf ákveðin
aukaverðlagsuppbót eftir ó-
magafjölda, og reiknist hún frá
1 jan. ’41.
4. að ákvæðum um aldurs-
uppbætur opinberra starfs-
manna verði breytt þannig, að
hámarkslaunum verði náð á
ekki lengri tíma en sex árum.
(sþ. 33 shlj.)
5. að lögum um Lífeyrissjóð
embættismanna og Lífeyrissjóð
barnakennara sé breytt í það
horf, að þeir veiti fulla örorku
og ekknatryggingu auk þeirra
réttinda ,er þeir nú veita, og sé
öilum opinberum 'starfsmönn-
um gefinn kostur á samsko.nar
tryggingu, enda leggi viðkom-
• andi stofnanir fram nauðsyn-
legt stofnframlag í því skyni.
(sþ. 33 shlj.)
ALÞYÐUFLOKKSFELAGIÐ
Frh. af 1. síðu. i
inn hefðu vitandi vits og af
ásettu ráði framkaUað vaxandi
dýrtíð og þar af leiðandi aukn-
ar kröfur um launabætur af
hendi launastéttanna og síðan
gefið út kúgunarlögin og
bráðabirgðalögin um frestun
bæjarstj.kosninganna. — Þetta
gerðu flokkarnir með sér fyrst
að Ólafur Thors neitaði að
framfylgja því ákvæði dýrtíð-
arlaganna að lækka farmgjöld
—v og Framsóknarráðherrarnir
síðan með því að hækka
verð á landbúnaðarafurðum
upp ur öllu veldi.
Þegar svo var komið, var það
sjálfsögð s jálfþ j ar g ajr y i ðleit n.i
launastéttan-na að gera tilraun-
ir til að fá kjör sín bætt. En
þegar samtök þeirra reyndu
það greip ríkisstjórnin til
þeirra ofbeldisrðástafana að
banna frjálsa samninga miili
launþega og atvinnurekenda.
^Blík framkoma er einsdæmi í
íslenzkri stjórnmálasögu.
Haraldur Guðmundsson rakti
þessi mál í langri og skýrri
ræðu, sem var mjög vel tekið.
Ekki. vannst tími til að" ljúka
aðalfundarstörfum að fullu og
verður framhaldsaðalfundur
innan skamms.
! Ranði krossinn hefir
fjðrsðfnnn tii stari-
seiai sinnar á merpn
S
Brezk leiksfning að
Rernððsstððfls.
„AIlt pettð — og
ísland líka(i.
Cb REZKIR setuliðsmenn
hafa samið skemmtlegan.
leik, sem þeir kalla „All this
and Iceland too.“ . . Allt þetta
og ísland líka.
Leikurinn er bráðskemmti-
legur. Er hann í mörgum sýn-
ingum og í revyustil.
Fjallar hann um ,líf her-
manna. hér, stjórn setuliðsins,
vonir og þrár, komu amerísku
hersveitanna hingað — og á-
standsmálin.
Er þetta saklaust og góðlát-
legt gaman. Mikil söngur er í
leiknum, dans og kátína.
Annað kvöld verður leikur-
inn sýndur, og er sýningin sér-
staklega ætluð fyrir íslend-
inga. Leikhúsið er fiskhúsið að
Þormóðssföðum, sem mjög
hefir verið breytt. Aðgöngu-
miðar fást í öllum bókabúðum
og kosta 8 krónur. Einstakir
aðgöngumiðar eru ekki seldir.
6. að ríki og opinberar stofn-
anir greiði nauðsynleg iðgjöld
í Lífeyrissjóðina fyrir starfs-
fólk sitt á móti tillagi sjóð-
félaga og sé tillag sjóðfélaga
eigi hærra en gjald til Lífeyris-
sjóðs íslands er á hverjum tíma.
7 að átarfsmönnum allra bæj-
axfélaga séu tryggð eftirlaun
með svipuðum kjörum og
Reykjavíkurbær veitir starfs-
mönnum sínum.
8. að stofnanir þær,sem kost-
aðar eru af ríki. og bæ í sam-
einingu, greiði kostnað við
tryggingar starfsmanna sinna
hlutfallslega við þátttöku ríkis
og bæja í launagreiðslum.
OFNUNARDAGUR Rauða
Kross íslands er á morgun,
öskudaginn, og verða þá börn
send út um bæinn til söfnunar.
Starfsemi R.K.Í. hefir aukizt
mjög á síðari árum og hefir fé-
lagatala þrefaldast á s.l. fjórum
árum. Þá hafa fjárframlögin á
öskudaginn aukizt mjög. Þau
sjöfölduðust í hitt ,eð fyrra og
sú upphæð tvöfaldaðist í fyrx’a.
R.K.Í. hefir starfandi R.K.-
deildir á: Akranesi, Akureyri,
Hafnarfirði, ísafirði, Sauðár-
krók, Siglufirði og Vestmanna-
eyjum, auk ungiiðadeilda á
sumum öðrum stöðum.
Þótt starfsemi R.K.Í. hafi
aukizt með ári hverju, þá hefir
samt starfsemi R.K.Í. aldrei
verið svipuð því eins mikil og
1941. Þá hefir R.K.Í. haft af-
skipti af að koma um 3000
börnum í sveit.
Þá hefir undirbúningsstarf-
semi vegna hernaðaraðgerða
verið aukin og má þar minna á
blóðsöfnun R.K.Í.
Stjórn R.K.Í. óskar þess, ef
einhverjum finnst starfsemi
R.K.Í. einhvers virði, að hann
styrki starfsemina á öskudag-
inn með framlagi annaðhvort á
skrifstofunni eða í innsiglaðan
(plomberaðan) söfnunarbauk
eða með því að kaupa merki.
Kosningeskrifstof'
ir A-Iistans
ern tvær.
báðar í AlþýðU"
búslnu á 3. og
6. hæð.
Símar 5020 og
2931.
Vinnið fjrip A-
listann. Svarið
ku gunarlög um S
IttMHrflr
vita að æíilö*g
fylgir krÍKgusnum írá
SieWRÞÓK.
SETNING ALÞINGIS
Frh. af 1. síðu.
leikum. Til þess þarf meðal
annars að leitast við að safna í
sjóði, svo að fé verði fyrir
hendi til þess að inna af hendi
nauðsynlegt viðreisnarstarf. —
Verður óumflýjanlegt að afla.
ríkissjóði frekari tekna í því
skyni.
Auk venjulegs fjárlagafrum-
varps munu frumvörp þau, or
stjórnin leggur fyrir Alþingi
að þessu sinni, aðallega bein-
ast í þá átt, sem greint hefir
verið.“
Því næst tók aldursforseti
við fundarsjórn. Minntist.
hann íyrrverandi þingmanns,
sem látizt hafði, Matthíasar
Ólafssonar. Var því næst fundi
frestað, þar’ eð margir þing-
menn voru ókomnir til þings.
Æffotfri baroa á
„Sólskinsdeildin1 fær alls-
sfaðar frábæriega ffóðar
viðtðknr.
Barnakórinn „sól-
SKINSDEILDIN“,
stjórnandi Guðjón Bjarna-
son, hefir staðið í miklum
ferðalögum undanfarið.
Fyrst fór kórinn austur yfir
fjall og hafði söngskemmtanir
að Eyrarbakka, Stokkseyri, Ölf-
usá og Hveragerði, og um helg-
ina að Sandgerði og Keflavílc.
Aðasókn að söngskemmtun-
unum var mjög góð allsstaðar,
og sums staðar varð fólk frá að
hverfa.
Kórinn söng eingöngu lög við
íslenzka texta.
27 börn eru í kórnurn. Það
yngsta 10 ára og hið elzta 16
ára. Sérstaka athygli vekur ein-
söngvari í kórnum, 10 ára
hnokki.
Þegar kórinn var á heimleið
úr Keflavík í fyrrakvöld, lenti
hann í miklu æfintýri. Kl. urn.
11 var lagt af stað frá Keflavík,
en skammt þar frá bilaði bif-
reiðin og var hún biluð í 7
klukkustundir. Litlu söngvar-
arnir dvöldu í bílnum allan
þennan langa tíma. Var vitan-
lega mikið sungið, en mun
heldur hafa dofnað þegar fór
að líða fram undir morguninn.
En skapið var ágætt og líð-
anin góð.
Um mánaðamótin ætlar „Sól-
skinsdeildin“ að heimsækja
Hafnfirðinga •— og þá verða
Hafnfirðingar að vera gest-
risnir.
Alúllar-filt
í 6 litum, er nú komið á markaðinn. Á gólf, undir
teppi og meðfram. Á skrifborðsstóla. Tilvalið á gólf
í öllum sumarbústöðum, veiðimannahúsum og til
ýmissar annarrar notkunar.
Jóss Siverisem
Sími 3085.