Alþýðublaðið - 25.02.1942, Page 2

Alþýðublaðið - 25.02.1942, Page 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ - . . - ■ 1 - 1 ' - ■ ‘ Kíghóstinn er mjðg vægnr. ALÞÝÐUBL. spurði M. Pétursson héraðs- lækni í gærkveldi um kíghóstafaraldurinn, sem fólk er mjög hrætt við. „Kíghóstinn er mjög vægur,“ sagði héraðs- læknirinn. Aðeins 10—12 tilfelli fram að miðjum mánuði. En nú eru mörg börn með kvef —• og þau ganga venjulega með kvef í hálfan mánuð áður en kíghóstinn keminr. — Læknarnir eru nú önnum kafnir við að sprauta börnin.“ Mikið íjðn af eldi í hnsinn nr. 27 við Langaveg. Slðkkviliðið barðist við eld- inn i 2 klnkkntima. ALLMIKBö TJÓN varð af eldi í gær í húsinu númer 27 við Laugaveg, en i húsinu er meðal annars raftækjaverzlunin „Ljósafoss". Klukkan 1.56 í gær kom upp eldur á annari hæð hússins, en það eru tvær hæðir. Kom eld- urinn upp annaðhvort í eldhúsi eða svefnherbergi, sem er áfast við eldhúsið, en það er ekki rannsakað til fullnustu. Eldurinn breiddist út með leifturhraða og upp hana- Frh. á 7. síðu. Amerikskn varðskipi sðkt' viö strendnr íslands. 34 af áhðfninni fárnst, en allmargir særðust illa. -... ♦ ' ...— tslenzkir vélbátar björguðu allmörgum af skipshöfninni. IGÆRKVÖLDI klukkan 9 var skýrt frá því f Lund- únaútvarpinu, samkvæmt fregn frá Washington, að fyrir nokkru síðan hefði verið sökkt bandaríksku strand- vamaskipi við ísland (“Coastal Cutter”). Þess var enn- fremur getið, að um 30 menn af áhöfninni hefðu farizt, en nokkrir auk þess særzt. Næsta leikritið: Djðfsi eftir Franz Molnar. LEIKFÉLAGIÐ hefir nú á- kveðið, hvaða leikrit það tekur næst til sýningar. Verður það „Der Teufel“ eftir þýzka leikritahöfundinn Franz Molnar Ekki hefir verið ákveðið énn þá um hlutverkaskipun, en leik- stjóri verður Indriðí Waage . Leikfélagið hefir, nú sýnt „Gullna hliðið“ iþrjótíu og tvisv- ar sinnum við fágæta aðsókn. Hefir alltaf verið húsfyllir, og hafa aðgöngumiðamir að hverri sýningu selzt á rúmum klukku- tíma. Er það einsdæmi hér, að leikrit hafi verið svona vel sótt. Mun láta nærri, að um 10 000 manns hafi séð þetta vinsæla leikrit. Hér mun vera átt við banda- ríkskt varðskip, sem sökkt var út af Garðskaga um síðustu mánaðamót. Fórust 34 af á- höfninni, en allmargir særð- ust. Þar af eru 6 enn í sjúkra- húsum setúliðsins hér. Það mun hafa verið þýzkur kafbátur, sem sökkti varð- skipínu. Um þennan atburð var nokk uð talað hér í bænum, þegar hann varð, og aðallega vegna þess, að íslenzkir vélbátar björguðu mörgum af áhöfn- inni á varðskipinu. Vélbátar þessir voru: „Freyja" úr Njarðvíkum, „Haki“ úr Kefla- vík og „Aldan“ frá Seyðisfirði, sem gengur nú frá Keflavík. Vélbátarnir björguðu skip- brotsmönnunum í Garðsjó, á fiskimiðum. Voru þeir í björg- unarbátum, er vélabátarnir hittu þá. Bréf til alþingis: Alpýðnsambandlö mót- mælir knflunarlðgnnnm. 1 nafni 18000 verkamanna, sjómanna, iðnaðarmanna og verkakvenna. STJÓRN Alþýðusam- bands fslands ritaði í gær, í nafni þeirra 17—18 þúsund verkamanna, sjó- manna, iðnaðarmanna og verkakvenna, sem eru í félaginu innan sambands- ins, eftirfarandi bréf til Al- þingis: Stjóm Alþýðusambands fs- lands mótmælir eindregið frum- varpi því, er nú liggur fyrir Al- þingi, til staðfestingar á bráða- birgðalögunum frá 8. janúar s. I. um gerðardóm í kaupgjalds og verðlagsmálum sem ómak- legri árás á verkalýðssam- tökin og önnur samtök laun- þega, auk þess, sem slík laga- setning væri skýlaust brot á viðurkenndum þegnfétti og sjálfsögðu lýðfrelsi. I nafni verkalýðssamtakanna skorar Alþýðusambapd íslands iastlega á hið háa Áíþingi, að rækja það hlutverk dyggilega, sem þjóðin hefir falið því og standa tryggilega vörð um þegnfrelsi og það lýðræðisskipu- lag, sem þjóð vorri hefir ávallt verið svo kært og mikils um vert, og koma í veg fyrir, að nokkur þau bráðabirgðalög, sem brjóta viðurkenndar meginregl- ur lýðræðisskipulagsins, fái staðfestingu. Alþýðusambándið væntir þess, að fyrrgreint frumvarp, er svo glöggt stefnir til einræðis og gæti orðið, ef samþykkt væri, til þess að stofna friðnum í land- inu í óvænt efni og hefði þá í för með sér ófyrirsjáanlega af- leiðingar, sem þeir einir hæru ábyrgð á, sem að því 'og sam- þykkt þess stæðu, verði fellt, og þar með vísað á bug þeirri hættu, sem lagalegu og hefð- bundnu frelsi og þegnréttindum félaga og einstaklinga virðist nú vera stefnt í. „Freyja“ kom með yfir 30 skipbrotsmenn hingað til Reykjavíkur og voru margir þeirra allmikið særðir. „Haki“ og „Aldan“ komu með skip- brotsmennina til Keflavíkur og voru nokkrir þeirra, sem komu með þessum bátum, nokkuð særðir. Þegar slík slys verða hér við land, geta blöðin ekki skýrt frá þeim strax, af hernaðarlegum ástæðum. Nú hefir tilkynning verið gefin út um slysið í Was- hington og virðist því ekki á- stæða til að þegja yfir þessari fregn lengur. Brezkir togart strandar við Eyjar. Vélbátnr dró hann til lands. IFYRINÓTT strandaði er- ledur togari á svonefndu Dragaskeri við Vestmannaeyj- ar. Sendi togarinn frá sér neyð- arljósmerki, og sáu skipverjar á vélbátnum „Ársæli“ þau. Kom vélbáturinn skipverjum á togar- anum til hjálpar. Togarinn hafði þá losnað af skerinu, en hafði misst skrúfuna og brotið stýrið Vélbáturinn „Ársæll“ dró togarann til Vestmannaeyja. — Ekkert slys varð á mönnum. Míðvíkudagur 23. fehrúar ÍMS Fnrðnlenur dómnr félagsdóms 1 gær: Félag rafvirkja úm\ 1 8 800 br. skaðabætnr tii melstara. — ... ----------- FÉLAGSDÓMUR rak smiðshöggið á hina furðúlegu og •hlutdrægu afstöðu sína til deilu rafvirkja og raf- virkjameistara með því að dæma Félag rafvirkja í gser i 8.800 króna skaðabætur til rafvirkjameistara. Höfðu rafvirkjameistarar gert kröfu um þessar skaða- bætur og tók meirihluti dómsins kröfuna að fúllu til greina. Eins og kunnugt er, hafðí Félagsdómur áður dæmt verkfall það, er rafvirkjar hófu um áramótin, ólöglegt. Sigurjón Á. Ólafsson skilaði sératkvæði gegn þessari af- stöðu meirihluta dómsins. Hann var einnig ósamþykkur þessari síðari dómsuppkvaðningu og vísaði í því efnitil afstöðu sinnar i fyrri dóminum.. Óþingleg framkoma ráð- Þeir gátu ekkl stiilt sig um að gripa 21 sinni fram i ræðu Haralds Guðmundss. HIN ÓÞENfGLEGA fram- koma ráðherranna á AI- þingi í gær, sýnir greinilega, að þeim er óhægt innanbrjósts út af kosningafrestuninni og hversu gjarnan þeir vildu kom- ast hjá þvi, að það mál sé rætt opinberlega. í framhaldsumræðunum um kosningafrestunina í gær tók Haraldur Guðmundsson fyrstur til máls og svaraði ræðum ráð- herranna, sem þeir fluttu i fyrradag. Hrakti hann ummæli þeirra lið fyrir lið, og þoldu þeir það afarilla, og sýndu mikla vanstillingu, sem kom glöggt fram í því, að ráðherr- arnir, allir til samans, gripu tuttugu og einu sinni fram í fyrir Haraldi í þessari einu ræðu. Haraldur hóf mál sitt á því ^ að leiðrétta útúrsnúninga Jakobs Möllers á skrifum Jóns Blöndals um dýrtíðarmálin. Hafði Höller verið að stagazt á því sama, sem hann sagði um iþessar greinar í svokallaðri „greinargerð” sinni í útvarp- inu, sem síðar var sérprentuð og gefin út í bæklingi, ásamt nokkrum setningum, sem slitn- ar höfðu verið út úr eðlilegu samhengi 1 greinum Jóns Blön- dals. Var ráðherrunum það sýnilega mjög óljúft umtals- efni. Hermann forsætisráðherra hafði lýst því yfir í ræðu sinni í fyrradag, að hann hefði frá upphafi verið iþví fylgjandi, að kosningum í Reykjavík yrði frestað. Haraldur benti á, að það væri furðulegt, ef stjómin hefir frá upphafi verið svo ein- huga í þessu máli, þar sem vit- i að sé, að svo miklar stympingar urðu í sambandi við það innan ' ríkisstjómarinnar, að Sjálf- stæðis-ráðherramir hótuðu að segja af sér, ef frestunin næði ekki fram að ganga. Forsætisráðherrann svaraði ..•—----- .1 ádeilunni um einokun rfkisút- varpsins á iþá leið, að „eina yfir- sjón sín,” hefði verið, að ríkis- stjómin hefði ekki notað út- varpið nógu oft á þennan hátt, til þess að hamla upp á mótl Alþýðublaðinu. Mikils þótti iþeim við þurfa! í hinni vesöltt vöm sinni reyna ráðherrarair yfirleitt að ganga út frá því sem aðalforsendu fyrir kosninga- frestuninni, að Alþýðuflokkur- inn haf í komið prentaraverkfall- inu af stað og þar með afnumið prentfrelsið, enda iþótt hvert mannsbarn viti, að það vora allt aðrir aðilar, sem stóðu að verk- fallinu. Loks leiddi Haraldur athygli að því, að forsætisráðherra tal- aði mn það eins og einhverja dyggð, að hann hefði „leyft” Alþýðublaðinu að koma út Ekki gæfi þó forsætisráðherra blaðið út. Og hér væri prent- frelsi ríkjandi samkv. stjómar- skrá íslands. Annars vora þessi ummæli ráðherrans einna lík- ust því, að hann gerði sér ekki lengur Ijóst, að hann fer ekki með nema eina grein rikisvalds- ins, nefnilega framkvæmda- valdið, löggjafarvald og dóms- vald væri hjá öðrum aðilum. Hann hefði því ekkert vald til að ákveða, hvort dagblöð koma út eða ekki. En þrátt fyrir það væri þetta gáléysislega gor- geirshjal ráðherrans ískyggilegt; tímanna tákn. Fyrstu umræðu er enn ektó lokið Lét ekki sjð sig. í efri deild vora í dag til fyrstu umræðu bráðabirgðalög ríkisstjmarinnar um vegabréf í Reykjavík og Hafnarfirði. Fór frumvarp þetta .umræðulaiiist til nefndar, þar eð viðkoinandi ráðherra, Hermann Jónasson, lét ekki sjá sig í deildinni til þess að gera þingmönnuro grein fyrir þvi!

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.