Alþýðublaðið - 25.02.1942, Blaðsíða 7
Miðvikudagxir 25. fehrúav' 1M2
ALÞÝOUBLAÐIÐ
Bærinn í dag.|
Næturlæknir er Kjartan Guð-
mundsson Sólvallagötu 3, sími:
5051.
Næturvörður er í Laugavegs- og
IngóKsapóteki.
ÚTVARPIÐ:
12.15—13.00 Hádegisútvarp.
20.30 Föstumessa í Dómkirkjunni
21.20 Hljómplötur:
21.30 Minnisverð tíðindi (Axel
Thorsteinsson).
21.50 Fréttir. — Dagskrárlok.
• V ''' .
Næturakstqr
fer fram kl. 18.30—21.00 mið-
vikudaginn þ. 25. febr. á vegirium
Geitháls—Kolviðarhóll. ’
Alþýðuflokksfólk!
Ef þið vitið um kjósendur héðan
úr bænum, sem nú dvelja úti á
landi, þá látið vita í skrifstofu
A-listans í Alþýðuhúsinu. Vinnið
að sigri A-listans.
Alþýðuflokksmenri!
Munið að kjósa áður en þið farið
úr, bænum.
Kjósið A-listann.
Vegna missagnar
sem kom fram ifiér i blaðinu,
þegar skýrt var frá fráfalli Lárus-
ar Marissonar, semy druknaði af
m. b. Græði, skal þess getið að
hann var kvæntur. Heitir ekkja
hans Margrét Benediktsdóttir og
er búsett á ísafirði. Börn þeirra
eru öll upþkomiri.
Hallgr í mspr estakall:
föstugiiðsþjóriusta í bíósal Aust-
urbæjarskólans kl. 8.30 í kvöld.
Séra. Jakob Jónsson.
Gestir í bænum.
Erlingur Friðjónsson, bæjarfull-
trúi á Akureyri. Friðrik Steinsson,
erindreki, Eskifirði. Sá síðamefndi
er fulltrúi á Fiskiþinginu, sem nú
stendur yfir.
Viggó Björgóifssyni,
hafnfirska piltinum sem varð
fyrir skoti á sunnudagiim, leið
betur í gær og var hann þá yfir-
heyrður, en fulltrúi bæjarfógeta í
Haínarfirði segir, að ekkert nýtt
hafi komið fram í málinu.
Ðúfnaeigendur
í bænum hafa verið kvaddir á
fund lögreglustjóra og er það gert
í samráði við borgarstjóra. Mun
vera ætlunin að hefja herferð gegn
flækingsdúfum, því að talið er, að
þær valdi óþrifnaði í bænum.
Öivun
hefir verið mikil hér í bænum
undanfama daga og voru 26 menn
teknir úr umferð um síðustu helgi.
Skemmdarvargarnir
heitir framhaldssýning í Gamla
Bíó núna. Aðalhlutverkin leika
Fay Wray og Charles Lang.
Baráttan um milljónaarfinn
heitir ameríksk skemmtimynd,
sem Nýja Bíó sýnir'á fimmsýningu
núna. Aðalhlutverkin leika Made-
leine Carroll, Franz Lederes og
Mischa Auer.
Hún bað hans
heitir amerísk skemmtimynd,
aem Gamla Bíó sýnir. Aðalhlut-
verkin leika Fred Mac Murray og
Madeleine Carrolt.
200 smálestir
af appelsínum eru væntanlegar
hingað innan skamms. Hefir inn-
flytjendasambandið og S. í. F. fest
kaup á þeim.
Orðsending til kaupendanna.
Ekki tókst að koma blaðinu til
kaupenda í tveimur hverfxmx í
gær fyr en séint. Þetta stafar af
því að böm, sem áður báru blaðið
út gátu ekki unnið að því fyrri
hluta dags og urðu því að hætta.
En ákaflega er erfitt að fá fólk til
stárfa nú. Þetta mun þó komast
fljótt í lag og eru kaupendur beðn-
ir að hafa þolinmæði á meðan.
Eyðimerkurhernaðurinn.
Frh. af 5. síöu.
mennirnir hafi verið sendir til
iþess að varpa sprengjum sínum,
því að samkvæmt fyrri reynslu
éru ekki miklar líkur til þess að
þeir hitti.
Bæði Þjóðverjar og Bretar
fyrirlíta ítölsku hermennina í
Vestureyðimörkmni. Enda segja
þýzkir hermehn, sem teknir
hafa verið til fanga, að þeir noti
ítalina ekki nema að litlu leyti
til hernaðar, heldur til þess að
annast verkamannavinnu, sem
nauðsynleg er í hernaði. Og
samlyndið er ekki sem bezt hjá
þeim. Þýzkir og ítalskir fangar
eru aldrei fluttir í sama vagni,
því að búast má við að þeir
týni tölunni á leiðinni.
Herdeildarforingi einn, sem
staddur var með lið sitt nálægt
Sidi Barrani, sagði, að sér þætti
—vænt um að ítalir væru farn-
ir að fljúga þýzku flugvélunum.
Það værí þá minni hætta af á-
rásunum. Þeir flygju aldrei
lægra en í 15000 ft. hæð, þegar
þeir vörpuðu sprengjunum, og
væru slíkar loftárásir nær ein-
göngu til málamynda.
Það voru ástæður fyrir því,
að ítalir voru farnir að fljúga
þýzkum flugvélum. Ein var sú,
að Þjóðverjar þurftu á öllum
flugmönnum sínum að halda á
rússnesku vígstöðvunum, en
þeir urðu að skilja flugvélarnar
eftir, svo að möndulveldin
hefðu flugvélar í eyðimerkur-
hernaðinum. Um þessar mundir
voru ítalir alveg að verða flug-
vélalausir, og flugvélafram-
leiðsla þeirra var engin. Þá
skorti gersamlega hráefni.
*
Á margra þúsund mílna
svæði í eyðimörkinni sjást á víð
og dreif leifar eftir ítali, sem
hafa verið á flótta. Víða sjást
hjálmar, sem iþeir hafa misst af
sér á flóttanum, sums staðar
sjást yfirhafnir, en langvíðast
eru það skómir, sem orðið hafa
eftir, hálffyllst af sandi og hafa
snákar þá að bæli sínu. Fjöldi
krossa gnæfir upp úr auðninni,
og bera þeir allir sams konar á-
letrun: Hér liggja grafnir svo
og svo margir óþekktir ítalir.
'Eins og áður er skýrt frá, er
miklum erfiðleikum bundið að
ná í hæft drykkjarvatn í eyði-
mörkinni. Vatnsstöðvamar eru
jafnframt mikilvægar hernaðar-
legar stöðvar, sem barizt er um
að ná eða halda. Við venjulegar
kringumstæður em hverjum
manni áætlaðir fjórir lítrar af
vatni á dag. En í eyðimörkinni
er öðru máli að gegna. í herbúð-
unum á kvöldin ræða yfirmenn
og óbreyttir hermenn um vatn
á sama hátt og heimsmenn og
nautnabelgir ræða um vín í
veizlusölum. Þeir, sem kuim-
ugir em orðnir í eyðimörkinni,
hella vatni í flösku og bragða
á og segja: ÍTÞetta er Buqbuq-
vatn“ eða: „Þetta er á bragðið
eins og Sidi-Barrani-vatn“ eða:
„Það er ég sannfærður um, að
þetta er Siwa-vatn.“
Það er langt á milli vatns-
stöðva í eyðimörkinni. Enginn
maður leggur af stað frá vatns-
bólunum út á eyðimörkina án
þess að hafa vatnsflöskuna sína
fulla og án áttavita. Ef maður
villist vatnslaus í eyðímörkiimi,
örmagnast maður eða missir vit-
íð innan tveggja sólarhringa, og
dauðinn er vís innan skamms.
Liðsforingi nokkur, sem var
þaulvanur eyðimerkurhemaðí,
hefir sagt: — Ég var að villast
á eyðimörkinni nýlega í þrjá
klukkutíma, og ég hefi aldrei
verið jafn hræddur á ævi minni.
Enginn innfæddur maður
sást á svæðinu á bak við víg-
línur Breta í Libyu, og ekki
heldur á stórum svæðum í
Egyptalandi. Þeir höfðu allir
verið reknir burtu vegna þess,
að þeir höfðu verið famir að
leggja stund á þann atvinnuveg
að ganga milli herbúða banda-
manna og öxulríkjanna með
seljanlegar upplýsingar, og þótti
þeim það góð verzlun. Hinir
einu innfæddu, sem sjást meðal
brezku hermannanna, em fáein
múldýr, sem tekin hafa verið
herfangi af ítolum, og apar.
Það var einn múlasni, í Buq-
buq. Árið 1940 var svo oft
minnzt á Buqbuq í fréttum frá
Libyu, að ókunnugir mættu
álíta, að það væri stór borg með
Þakka öllum, er sýndu okkúr samúð og vináttu við and-
lái mannsins míns, r
VILHJÁLMS VIGFÚSSONAR.
Fyrir mína hönd og annarra vándamanna.
Þárdís Þorsteinsdóttir.
mörgum strætum og mikilli
vagnaumferð. En reyndar er
Buqbuq ekki annað en vatns-
ból með fáeinum trjám um-
hverfis. Þegar ítalir fóru þaðán
varð Iþar eftir einn múlasni,
sem hafði beðið hreyfingar-
laus tímum saman eftir því, að
húsbóndi sinn kæmi aftur. Þeg-
ar talað var við hann á ítolsku,
dillaði hann eyrunum.
Aðalfæðutegundirnar í eði-
mörkinni eru kjöt og te, bjór og
ávaxtasafi. Áströlsku hermenn-
irnir drekka mikið af bjór, og
liggur fjöldi af tómum bjór-
flöskum eftir þá, þar sem þeir
fara.
Þá eru hermönnunum gefnar
C-vitaminpillur, sem eru á
stærð við baunir.
í bréfum sínum heim skrifa
sumir hermennimir: „Það
fyrsta, sem ég geri, þegar ég
kem heim, er að fara í ein-
hverja ölstofuna og fá mér öl.“
Hermennina í herbúðunum
vantar.rendar ekki öl eða bjór,
en það er ekki hið sama að
drekka úti í eyðimörkinni og
að sitja í sæmilegri ölstofu,
þar sem maður kannast við um-
hverfi sitt. Og til þess að minna
á gömlu London hafa þeir gef-
ið ýmsum stöðum í herbúðun-
um nöfn ýmissa þekktra staða í
London.
Borðlð
á Café Central
SKIAUTAR, nokkur pör til
sölu á Lokastíg 7. Gólfteppa-
filt til sölu á sama stað.
Brezkt stórskotalið í eyðimörk, Libyu.
BRUNINN Á LAUGAVEGI
Frh. af 2. síðu.
bjálkaloft hússins og austur
éftir því, að kvistherbergi, sem
er austast á því, og átti slökkvi-
liðið þar í míklum erfiðleikum
með að ráða niðúrlögum eldsins.
Á hanabjálkaloftinu eru marg-
ar kompur og stoppað milli
þilja með marhálmi og var þv£
mjög erfitt að fást við eMiim
Þurfti að dæla miklu vatni og
f ór það niður gegnum allt húsið
og olli miklu tjóni í því öllu.
Um klukkan fjögur hafði
slökkviliðið þóráðið niðurlögum
eldsins, en brezkir slökkviliðs-
menn aðstoðúðu það.
Húsið er múrhúðað timbur-
hús og eru eigendur Ljósafoss
einnig eigendur þess.
RnnöUor finðjöDsson
bókbindari iðtinn
IGÆR klukkan 4,30 lézt í
sjúkrahúsi hér í bænum
Runólfur Guðjónsson, bók-
bindari, 64 ára að aldri. Hann
hafði verið bókbandsmeistari í
fjölda mörg ár og rekið bók-
bandsyinnustofu í Safnhúsinu.
Andlát hans bar að með
þeim hætti, að hann fannst ó-
sjálfbjarga í vinnustofu sinni £
fyrradag kl. 1. Mun hann hafa
fengið heilablóðfall, þar sem
hann var að vinnu sinni.
Runólf Guðjónsson þekktu
mjög margir Reykvíkingar —
og var hann vinsæll maður.
Símon Jönsson kanp
maðor
Á bersvæði þar sem hvorki er skjól fyrir sólskininu né sandstormunum-
SÍMON JÓNSSON kaup-
maður lést hér í bænum á
laugardag eftir langa vanheilsuu
Hafði hann legið £ síðustu 6
mánuði, bungt haldinn.
Símon Jónsson var frá Læk £
Ölfusi. Hér í bænum hafði hann
rekið matvöruverzlun síðan
1917, nú síðast og lengst af á
Laugavegi 33, en í því húsi bjó
hann.
Símon var mjög vinsæll mað-
ur af viðskiptavinum sínum og
öllum sem kyntust honum.
Hann naut mikils trausts meðal
stéttarbræðra sinna og hafði
hann verið gjaldkeri félags
matvörukaupmanna síðast liðin
8 ár. — Hann var 48 ára, er
hann lést.
1 ammummmssm
J Ðtbrelðið
Alpýðublaðið.
immmxumí
H\*t*t*