Alþýðublaðið - 03.03.1942, Blaðsíða 3
^riðjudagur 3. marz 1942.
ALÞYÐUBLAÐID
s
E>eir berjast á Java.
Wavell farinn trá Java!
Þessi mynd sýnir ameríkska hermenn. Marshall, yfirforingi þeirra, sagði í gær, að hlutverk þeirra væri að sigra óvinina
fjarri Bandaríkjunum og því yrðu þeir sendir til hinna fjarlægustu landa. Ameríkskar herdeildir berjast nú við hlið Hol-
lendinga á Java.
Innrás
er nú
Java
gangi.
BlóOngir bardagar á tvelm stöðnm á
norðurstrðnd eyjarinnar.
Stór iapanskur sklpafloti „ .
J ,r, , „ „ Quishngur
sezt a leið öanafað. { B ma
STÓR japanskur floti sást á leiðinni til Java í gærkveldi.
í honum var fjöldinn allur af skipum af öllum teg-
undum.
Fljúgandi virki og aðrar sprengjuflugvélar frá Java
hafa farið til árása á flotann, en ókunnugt er um árangur.
1 ’' • r
Orustur geisa nú aðallega á tveim stöðum á Java:
Aústan við höfuðborgina Batavíu og um 200 km. vest-
an við flotahöfnina Surabaya. Batavía mun ekki vera í al-
varlegri hættu enn, en Hollendingar eru þó byrjaðir að
eyðileggja þar öll mannvirki, sem gætu komið Japönum að
gagni.
Talið er, að skipa- og manntjón Japana sé gífurlegt.
Þeir hafa að líkindum haft um 140 flutningaskip til inn-
rásarinnar, en líklegt er, að um þriðjungi þeirra hafi verið
sökkt og hafi þúsundir japanskra’ hermanna drukknað án
þess að stíga fæti sínum á land á Java.
Fregnir aj bardögunum sjálfum eru mjög óljósar og tilkynn-
ing frá aðalstöðvum hollenzka hersins í Bandung segir aSeins að
bardagarnir gangi vel.
Skammt frá Surdbaya, eða milli borganna Rembang og Tuban
settu Japanir lið á land úr urti-20 flutningaskipum. Gerðu orustu-
flugvélar Bandamanna þar álcafar árásir á þá og sökktu fjölda
báta. sem fluttu menn og hergögn á land. Skammt frá ströndinni
eru miklar olíulindir, sem Japanir sækjast eftir. Er einnig talið
líklegt, að þeir muni ætla sér að leika sama leikinn við Surabaya
og þeir léku við Singapore, þ. e. ná flotahöfn á sitt vald með sókn
af landi.
Japanir nota nú þegar skrið-
dreka, brynvarðar bifreiðir og
reiðhjól á Jáva og sömu hern-
aðaraðferðir og á Malakka-
skaga. Fótgönguliðarnir skjót-
ast léttklæddir gegnum frum-
skógana og yfir akrana, þeir
klifra í trén og stökkva niður
á skriðdreka, og þeir dulbúa sig
og fara á bak við víglínur
bandamanna.
Aðeins í lofti virðist þeim
vera veitt meiri mótstaða en
áður í sókn þeirra, nema ef vera
skyldi yfir Rangoon. Flugvélar
bandamanna hafa gert hverja
árásina á skip þeirra á fætur
annarri og sökkt fjölda þeirra.
Brezkt herlið berst nú með
Hollendingum, Ástralíu- og
Ameríkumönnum. í dagskipun
til liðs þessa var sagt: Vér er-
um stoltir að fá að berjast við
hlið Hollendinga og kalla þá
bandamenn okkar. Vér tökum
nú þátt í vörn síðasta vígis lýð-
FTÉR sjáið þið fyrrverandi
! 1 forsætisráðherra Burma,
sem U. Shaw heitir. Hann
'fór s.l. haust í ferðalag íil
Englands og Bandaríkjanna
og heimsótti bæði Churchill
og Roosevelt.
En skömmu eftir heim-
komu hans var hann handtek
inn í Rangoon af brezku yf-
irvöldunum, ákærður um
föðurlandssvik.
Játaði hann að hafa verið
í sambandi við Japani og
gefið þeim ýmsar upplýsing-
ar. Atti hann vafalaust að
gegna svipuðu starfi i landi
sínu og Quisling í Noregi.
ræðislandanna í Suðvestur-
Kyrrahafi og munum gera okk-
ar ‘ýtrasta. Vér megum ekki
vera í vörn, vér verðum að vera
í sókn.“
Hvað er að ger-
ast í Noregi?
Vilja þýzkir heríorinfljar
flytja herinn ur Noregi?
ÞAÐ er nú skammt stórra
fregna á milli frá Noregi
um mikinn viðbúnað Þjóðverja
þar. Höfninni í Bergen hefir nú
verið lokað og járnbrautir
landsins hafa verið teknar til
liðsflutninga.
Fréttaritari Times í Washing-
ton skrifaði nýlega grein um á-
standið í Þýzkalahdi og sérstak-
lega meðal leiðtoga þjóðarinn-
ar. Sagði hann, að herforingja- S
klíkan væri tilbúin að steypa *
Tekur aftur við yflr
herstjórn á índlandi
Hollendingar
taka sjálfir v!5
stjérn á Ind~
landseyjum.
AÐ var tilkynnt í gær-
kveldi í London, að
Wavell hefði verið skipaður
yf irf oringi á Indlandi og
Burma. Segir enn fremur í
tilkynningimni: „Þar eð Jap-
anir hafa náð á sitt vald
Malakka og Sumatra, hafa
herir Hollendinga og Breta
verið skildir að. Það er því
álitið nauðsynlegt, að Hol-
lendingar taki sjálfir við her-
stjórn á Java, en Wavell
verði fluttur til Indlands, þar
sem hann á að tryggja varnir
landsins og sambandið við
Kína.“
Þar með eru Bandamenn
aftur skildir að, þar eð sam-
eiginleg herstjórn er illfram-
kvæmanleg.
Ilins vegar var því lýst yfir í
London í nótt, að brezku her-
sveitirnar á Java myndu berj-
ast áfram við hlið Hollendinga
þar til yfir lyki. .
Hitler, er alvarlegir ósigrar
kæmu, og myndi fyrsta verk
hennar þá verða að draga her-
inn í Rússlandi til styttri víg-
línu og kalla herinn burt úr
Noregi, sem þeir halda fram, að
sé Þjóðverjum nú gagnslítill.
Alllp biskupar Noregs
hafa sagt af sér starfi
—" • —...—-
Athyglisverður atburður, sem varð við
Dómkirkjuna í Þrándheimi.
A LLIR biskupar Noregs hafa sagt af sér í mótmælaskyni
JT±
gegn nýjustu ofbeldisskipun Quislings, að öll norsk
börn verði að ganga í Hitlersæskuna. Biskuparnir í Noregi
munu vera 7, en Bergrav yfirbiskup var settur frá störfum
fyrir nokkrum dögum vegna þessa sama máls. Hafa starfs-
bræður hans fylgt honum drengilega, enda hafa þeir þjóð-
ina óskipta að baki sér. Mörgum biskupanna hefir verið
skipað að mæta tvisvar á dag á lögreglustöðvunum.
Atburður einn, sem kom fyrir í Þrándheimi, hefir vakið
geysilega athygli og haft allmikil áhrif á mótmæli biskup-
anna.
Biskupinn í Þrándheimi ætlaði að halda guðsþjónustu
í dómkirkjunni, en þá kóm fyrirskipun frá Osló um að naz-
istinn Dahl skyldi tala. Engin mótmæli dugðu og hann
talaði yfir nokkrum hræðum, nazistum og Quislingum.
Safnaðist brátt mannfjöldi utan við kirkjuna, er hann
hafði lokið ræðu sinni, og vildi komast inn til að hljóta
blessun prestanna, sem þjónuðu fyrir altari. En þá kom
lögregluvarðsveit og varnaði mannfjöldanum inngöngu. En
Norðmennimir hurfu ekki frá, heldur stóðu utan við kirkj-
una hundruðum saman, þótt helkuldi væri. Þá heyrðist
söngur frá útjaðri kirkjutorgsins, og brátt endurómaði stað-
urinn af sáhnasöng, er allur mannfjöldinn tók undir. Loks-
ins er biskupinn hafði beðið fólkið að fara heim, gerði það
svo.