Alþýðublaðið - 02.04.1942, Side 2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Fimmíudagur 2. apríl 1942».
Nýr brezkur ræðiS'
maður kominn
i kt i. v •
tll Islands.
f „Firöir og fjöil' fslands mlnna
mlg m|og á heimaland mitt
Skotland9u sagOqMr.;Boss.
FYRIR NOKKRU kom
hingað til lands nýr
brezkur konsúll, Mr. Ross að
nafni, og mun hann taka við
störfum Mr. Sheppards, sem
er á förum. Alþýðublaðið átti
í gær tal við Mr. Ross, og
sagði hann:
,,Þegar ég sá ísland í fyrsta
sinn fagran sunnudagsmorgun/í
marz, s. 1. minntu firðirnir og
f jöllin mig þegar í stað á heima-
land mitt, Skotland. Síðan hefi
ég komizt að raun um, að fleirá
er líkt með íslandi og Skotlandi,
t: d. málið, sem þjóðirnar tala. í
Norður-Skptlandi úir og grúir
af örnefnum, sem minna mjög
á íslenzku. Þar er til Dingwall
(Þingvellir) og margt fleira.“
Þótt Mr. Ross hafi aðeins
verið hér á landi röskar tvær
vikur, getur hann þegar talað
töluvert á íslenzku. Sagði hann
m. a. auðveldlega: „Ég og konan
mín erum ánægð að vera send
til íslands.“
— Hafið þér verið lengi í ut-
anríkisþjónustu? spyr tíðinda-
maðurinn.
„Áður en ég kom hingað, var
ég 11 ár í Chicago í Bandaríkj-
unum. Þar þekkti ég íslending
einn,, sem sagði mér ýmislegt
um land og þjóð. Þar sá ég einn-
ig kvikmyndir í eðlilegum litum
frá íslandi, en síðar vonast ég
til að kynnast fegurð og tign
landsins af eigin reynd.
— Hvernig fannst yður að
koma til Englands eftir svo
langa dvöl erlendis?
„Mér virtist þjóðin vera mjög
ákveðin að heyja þessa miklu
barátfu, þar til sigur er unninn.
Fólkið er aðdáanlega vongott og
ber höfuðið hátt, þrátt fyrir
geysilega erfiðleika, sem það
hefir ox’ðið að sigrast á. Þáð ger-
ir sér fulla grein fyrir þeim
hættum, sem steðja að og mætir
þeim með ró en staðfestu.
Ég kom til London og varð
all undrandi, er ég sá, hvílíkur
baráttuhugur er í borgarbúum,
jafnvel þeim, sem mestar þraut-
ir hafa liðið. Það var meira en
ég hafði getað ímyndað mér.“
— Hvað segið þér um Ame-
ríkumenn og stríðið?
„Þeir vinna nú af öllu mætti
að sigri frelsis og réttlætis yfir
harðstjórunum. Er þeim annt
um að búa svo í haginn fyrir
komandi kynslóð, að hún megi
lifa hamingjusömu lífi og njóta
frelsis.
Iðnaður Ameríkumanna eykst
hröðum skrefum, enda eru
möguleikarnir geysilega mikl-
ir.“
— Hafið þér á ferðum yðar
orðið var við aukinn áhuga á ís-
landi í seirrni tíð?
„Já, kynning landsins út á við
virðist aukast mjög, og eiga her-
menn, sem verið hafa á íslandi,
mikinn þátt í því. Þeir segja vin-
um sínum og vandamönnum frá
fegurð og tign landsins og
öðru, sem þar ber fyrir augu
þeirra."
ípróttahns liskilais
verðnr reist á næstnnni.
............ '♦---
t>að á að standa á honii Melavegar
og Hringbrautar.
Aðalsalurínn 12 sinasism 24 metrar.
r
[’ÞRÓTTAHÚS HÁSKÓLA ÍSLANDS verður byggt
eins fljótt og nokkur kostur er á. Byggingarnefnd
Háskólans hefir haft þetta mál með höndum undanfarið.
Það stendur ekki á henni. Hún hefir rætt það við íþrótta-
fulltrúa ríkisins, og prófessor Guðjón Samúelsson, húsa-
meistari ríkisins, er einmitt um þessar mundir að gera
teikningar að íþróttahúsinu.“
y
Þánnig mæltist rektor Há-
slcólans, dr. Alexander Jóhann-
essyni, í samtali við Alþýðu-
bíaðið í gærkveldi.
— Og hvar á íþróttahúsið að
standa? v
„Það er gert ráö fyrir því, að
það muni staxida á horni Hring-
brautar og Melayegar. í íþrótta-
húsinu verður geysistór salur,
12 sinnum 24 metráf; áðlstærð.
böð og annar tilheyrandi út-
búnaður, svo og opin sundlaug,
nokkuð stór. Gert er og ráð fyr-
ir að íþróttahúsíð verði byggt
þannig, að íþróttasalurinn komi
með Hringbrautinni, en útbygg-
ingarnar, þ. e. böðin og fleira,
komi með Melaveginum. Inn á
milli verða svo grasblettir. Að-
aláherzlan mun verða lögð á
það að byggja Sjálfan íþrótta-
salinn og boðin, eri fresta þá
heldur byggirigu sundlaugar-
innar, 'þár 'til betra tækifæri
gefst.
„Kerlingin11 krýpur að fótum Maríu meyjar.
15 púsnndir hafa nú
séð Gullna hliðið.
50. sýning á annan í páskum.
L
EIKFÉLAG REYKJA-'
VÍKUR hefir nú sýnt
„Gullna hliðið“ 49 sinnum,
og fimmtugasta sýningin
verður annan páskadag,
Hefst sú sýning kl. 4. En um
kvöldið hefir Leikfélagið
boð fyrir leikara og starfs-
fólk.
Aldrei hefir neitt leikrit verið
sýnt jafnoft hér í Reykjavík,
óslitið, og eru þessar sýningar á
„Gullna hliðinu“ því met.
Sýningarnar hafa verið að
jafnaði annanhvorn dag og hef-
ir hvert sæti í leikhúsinu verið
skipað hverju sinni. Hafa að-
göngumiðar að sýningunum að
jafnaði selzt upp á einni klukku-
stund, enda fara sögur af því,
hve erfiðlega hefir gengið að
ná sér í aðgöngumiða að leik-
húsinu undanfarið.
Alls hafa séð leikinn hér í
Reykjavík um 15 þúsundir
manna.
Formaður Leikfélagsins, Val-
ur Gísíason, skýrði Alþýðublað-
inu svo frá í gær, að peninga-
legur gróði hefði, þrátt fyrir
þessa gífurlegu aðsókn, alls ekki
verið mikill, sökum gífurlegs
kostnaðar við sýningarnar-. 80
manns vinna beinlínis að sýn-
ingunum, og er þáð næsta eins-
dæmi um starfsmannafjölda við
sýningar Leikfélagsins.
Þá sagði formaður Leikfélags-
ins:
„Þetta leikrit og þessar sýn-
ingar hafa betur en nokkuð
annað sýnt hina miklu þörf, sem
er fyrir betra óg stærra leikhús,
þjóðleikhúsið, og er það krafa
allra, að því máli verði hrint í
framkvæmd, eins fljótt og vel
og nokkur kostur er.“
Hér er um mikið nauðsynja-
mál að ræða fyrir Háskólannog
færi vel á því, að allir, sem um
það mál eiga- að fjalla, ynnU
drengilega að því, að íþrótta-
húsið kæmist upp hið fyrsta.
(í frásögninni um hinri nýja
Stúdentagarð, í blaðinu í gær,
varð sú yilla, að Sigurður Guð-.
mundsson arkitekt hefði samið,
skipulag Háskólalóðanna. Það
gerði Guðjón Saxttúelsson, eins
og kunnugt er, í samráði við
byggirigánefrid Háskólaris.) ,
ittBnða þing ilpýðn
pfðusambands Vest-
fjarða sett ð ísa-
firði í dag.
ATTUNDA þing Alþýðusam-
bands Vestfjarða var sett
í gær á ísafirði. Jón Sigurðsson
framkvæmdastjóri Alþýðusam-
bands íslands mætir sem full-
trúi þess á þinginu.
í Alþýðusambandi Vestfjarða
eru 15 verkalýðsfélög frá Flatey
á Breiðafirði til Sléttuhrepps
og eru í þeim öllum rúmlega 2
þúsund félagar.
Fyrir þinginu liggja ýmis
merk mál og þá fyrst og fremst
samrýming kaupgjalds á sam-
bandssvæðinu og aukin sam-
vinna verkalýðsfélaganna á því.
Liggur þar mikið starf fyrir
höndum.
'Forseti Alþýðusambands
Vestfjarða er Hannibal Valdi-
marssoxx skólastjóri. Þingið mun
standa í tvo dsga.
Aðalfundnr Bygi-
ingarfétags alPýðu
r
I
BYGGINGARFÉLAG alþýðu
í Hafnarfirði hélt aðal
fund sinn miðvikud. 18. marz
síðastliðinn, fyrir fundinum
lágu venjuleg aðalfundarstörf.
í stjórn voru kosnir þessir
menn, Guðni Þórðarson vél-
smiður, Páll Sveinsson kennari,
Steingrímur Bjarnarson bygg-
'IrigaméiStari og Þóroddur
Hreinsson byggingameistari.
Félagsmálaráðherra . sklpaði
Óskar Jónsson formann félags
ins.
, í félaginu eru nú um 60
manns og auk þess eru mjög
margir, er bíða eftir að fá íbúð'
ir hjá því.
, Mjög sterkur áhugi ríkir fyr-
ir starfsemi félagsins.
Hari.
Dagsbrúo mótmælir
15% skattmom.
Verkalýðurinn
inun aldrei sætta
sig við slík
þrælalog.
Frá tránaðarráðs^
fnndi félagsins í
fyrrakviild.
TRÚNAÐARRÁÐ DAGS-
BRÚNAR hélt fund £
fyrrakvöld og ræddi ýms að-
kallandi félagsmál. Eftirfar-
andi ályktanir voru sam-
þykktar á fundinum:
„Trúnaðarráð Dagsbrúnar
mótmælir kröftuglega hinum fá-
ránlegu og einstæðu tillögum:
þings Búnaðarfélags íslands, ,er
fjalla um vinnumiðlun og skerð-
ingu á launum verkamanna í
landvarnarvinnunni.
Trúnaðarráðið telur það úti-
lokað, að verkalýðssamtökin
gætu sætt sig við slíkar ráð-
stafanir og skorar á alþingi að
sinna í engu nefndum tillögum.
Jafnframt vill Trúnaðarráðið
ítreka samþykkt vmf. Dags-
br'ún um nauðsyn þess, að sam-
vinna takist milli ríkisstjórnar-
innar, verkalýðssamtakanna og
stjórna setuliðanna um jákvæða
og heilbrigða skipulagningu
vinnuafls þjóðarinnar í þágu at-
vinnuveganna og landvarn-
anna.“
RÉTTINDI OG SKYLDUR
UTANFÉLAGSMANNA
„Að gefnu tilefni samþykkti
trúnaðarráðið, að eftirfarandi
reglum sé fylgt varðandi að-
komuverkamenn, sem vinna á
starfssvæði Dagsbrúnar:
1. Ófélagsbundnir aðkomu-
menn njóti allra félagsrétt-
inda að undanskyldum at-
kvæðisrétti og kjörgengi.
Skulu þeir skráðir sem auka-
meðlimir eftir nánari regl-
um, sem félagsstjórn setur..
Gegn þessu gréiði þeir árs-
gjald Dagsbrúnar.
2. Félagsbundnir aðkomumenn
njóti hinna gagnkvæmu rétt-
inda, sem tíðkazt hafs. í milli
verkalýðsfélaga inrian Al-
þýðusambandsins. Hins veg~
ar .greiði þeir vinnuréttindi
sín sama verði og hinir fyrr-
■ nefndu. Þá ber stjórn Dags-
brúnar að endurgreiða a£
verði vinnuréttindakortsins
það, sem némur ársgjaldi í
heimafélagi viðkomandi
manns, eftir réglurii, sem
stjórn Alþýðusambandsins
Áheit á HaHgrímskirkju.
, 2 kr. frá S. J.
setur.“
l.MAÍ
„Trúnaðarráðið samþykkti
tillögu þess efriis, að fela félags-
stjórninni áð leita sánivinnu við
stjórn Fulltrúáráðs Vérkalýðs-
félaganna og örinur launþega- ,
samtök um sameiginleg hátíða-
höld 1. maí.“
Hjónaband.
Gefin verða sámári í hjónaband
4. þ. m. ungfrú Ingrid Schröder og
dr. med. Óskar Þórðarson. Heim-
ili. þeirra vérður á Kronprinsesse-
gade 14,