Alþýðublaðið - 02.04.1942, Page 6
?
ALÞÝÐUBLAÐKÐ
Finuntudagur 2. apríl 1942.
Nú á að gera sér glaðan dag!
Þau eiga heima í Klettafjöllunum, en eru nú í kaupstaðarferð. Þau hafa öll fengið sér eitt-
hvað í glösin. í glasi gamla mannsins er sjálfsagt eitthvað sterkt, en iþær mæðgurnar báðu
um gosdrykki, en litla stelpan er þó svo feimin, að hún þorir ekki enn að líta upp, hvað þá
heldur að snerta á góðgætinu.
HANNES Á HORNINU
(Frh. af 5. síðu.)
gátu. Hefðu hermennirnir ekki áð
þessu sinni sýnt stillingu, þá hefði
hæglega getað orðið slys út af
jþessu ábyrgðarlausa rausi.“
„ÉG TEL .ALVEG nauðsynlégt,
að þetta mál allt sé athugað gaum
gæfilega. Ástandið er svo slæmt,
að engu tali tekur. Ég spái því, að
ef ekkert verður að gert, þá sé
ekki langt að bíða þess, að stórslys
hljótist af þessu ástandi."
Ný sjóðstofnun :
Heilsuhæli utan Reyfejaíi-
ur i uánd við jarðhita.
-------------, ♦ ..
Heilsubót og lækningar án lyfja með
uáttúruiegum aðferðum*
- » ........
Kejrpíi bjór og hveiti
hjá setnliðiou.
SÍÐASTLIÐINN laugardag
var gerð húsrannsókn hjá
Karli Þorsteinssyni bakara, en
grunur lék á, að hann hefði haft
viðskipti við setuliðið.
Fundust hjá honum fimmtán
sekkir af hveiti og tuttugu til
þrjátíu dósir af sírópi og sultu,
sem hann hafði fengið hjá setu-
liðsmönnum. Enn fremur hafði
hann fengið hjá setuliðinu fjóra
eða fimm kassa af bjór.
Málið bíður nú dóms.
Afmceli brezka
flug&ersims.
BREZKI flugherinn átti 24
ára afmæli í gær. Var
stofnun hans hin mesta viður-
kenning á því, hversu mikils-
vsrt flugið var í stríði. Síðan
hefir flugherirm vaxið stöðugt
og tekið stór stökk eftir að stríð-
ið brauzt út. Mesta afrek brezka
flughersins er vafalaust orustan
um Bretland, þegar hann með
örfáum deildum orustuflugvéla
varði England fyrir árásum
mörg þúsund þýzkra sprengju-
flugvéla.
ÐALFUNDUR Náttúru-
lækningafélags íslands
var haldinn í Baðstofu iðnað-
armanna miðvikudaginn 18.
marz síðast liðinn.
Auk venjulegra aðalfund-
arstarfa flutti frú Rakel P.
Þorleifsson þar fróðlegt er-
indi um nytjajurtir og ræddi
aðallega um hvönnina, og
Jónas Kristjánsson læknir
flutti inngangserindi að er-
indaflokki, sem hann nefnir:
Hvernig sjúkdómar verða til.
Fundir eru haldnir mánaðar-
lega í félaginu, nema sumar-
mánuðina fjóra. Eru þar flutt
erindi og frásagnir varðandi
heilbrigðismál og heilsuvernd,
og á hverjum fundi eru lesin
svör við fyrirspurnum, sem for-
setanum, Jónasi Kristjánssyni,
berast frá félagsmönnum.
Helzta starf félagsins á síð-
asta ári, auk fundahalda, var
útgáfa bókarinnar „Sannleikur-
inn um hvíta sykurinn“, sem
vakti mikla athygli og seldist
vel. Næsta rit félagsins .verður
safn helztu rítgerða Jónasar
Krisjánssonar um heilbrigðis-
mál, og eru þær elztu þeirra um
20 ára gamlar, en síður en svo
reltar; gætu að flestu ieyti
verið ritaðar í dag. Bókin mun
koma út á þessu ári óg verður
á að gizka 12 arkir. Einnig hefir
félagið í hyggju að gefa út tíma-
rit, svo fljótt sem við verður
komið.
Á fundinum var stofnaður
sjóður í þeim tilgangi að
stuðla að því, að komið verði
upp heilsuhæli eða hressing-
arhæli utan Reykjavíkur, í
nánd við jarðhita, þar sem
einkum verði lögð stund á
heilsubót og lækningar án
lyfja, með náttúrlegum að-
ferðum, svo sem mataræði,
sólböðum, loftböðum o. fl., í
samræmi við reynsluþekk-
ingu fyrri og síðari tíma og
vísindalegar niðurstöður
ýmsra þekktustu og áreiðan-
legustu næringarfræðinga,
heilsufræðinga og lækna,
eldri og yngri. Auk þess á
stofnun þessi að verða mið-
stöð fræðilegrar og hagnýtr-
ar fræðslu og leiðbeininga
um heilsuvemd og hollustu-
hætti á sama gundvelli, al-
menningi til handa. Mun sjóð-
urinn taka á móti gjöfum og
áheitum frá einstaklingum
eða félögum, og leitast mun
við að afla honum tekna á
fleiri vegu.
Enginn hefir gengið úr félag-
inu á árinu, en 45 bætzt í það,
og telur það nú rétta 1550 fé-
laga. Stjómina skipa: Jónas
Kristjánsson (forsati), Bjöm L.
Jónsso'n (varaforseti), Hjörtur
Hansson (gjaldkeri), frú Rakel
P. Þorleifsson,Blátúni (ritari)
og Sigurjón Pétursson.
SAMSTARF OG STJÓRNAR-
ANDSTAÐA
Frh. af 4. síðu
Kröfurnar um víðtækari
stjómarsamvinnu eru næsta
| fráleitar þegar það er athugað
að þeir flokkar, sem nú stjórna
landinu ráða yfir % af þing-
sætum og fengu við síðustu al-
þingiskosningar um % af öll-
um greiddum atkvæðum. Er það
ekki nægilega breiður grund-
völlur fyrir stjórnina? Hvers-
vegna þessi hræðsla þessara
flokka við að stjórna einir og
þetta tal um ábyrgðarleysi
annarra flokka ef þeir vilja ekki
vera með?
Er það ekki hin slæma sam-
vizka, sem þarna kemur í ljós?
Er það ekki af því þeir vilja \
ekki gera hið rétta í vandamál-
um þjóðarinnar, vilja ekki fara
að vilja hennar, vilja fá að
halda áfram pólitík einkahags-
munanna og sérdrægninnar og
strútspólitík aðgerðaleysins?
Geri þeir skyldu sína og þá hafa
þeir ekkert að óttast fyrir dóm-
stóli þjóðarinnar! En bregðist
þeir þjóðinni, á sama hátt og
þeir hafa gert hingað til, þá
verðskulda þeir sannarlega að fá
sinn dóm.
SKÓLABÖRNIN
Frh. af 5. síðu.
Skemmtunin var tvisvar á
laugardag og einu sinni á sunnu-
dag. Ávalt fyrir fullu húsi.
Þetta er 11 vorið, sem börnin
halda slíka skemmtun.
Tilgangurinn með þessum
skemmtunum er að afla fjár til
þess að gefa fullnaðarprófsbörn-
um tækifæri til þess að hrista
af sér bæjarrykið og sjá nokkuð
af hinni ótæmandi fegurð lands
vors.
Börnin hafa ávalt annast þess-
ar skemmtanir sjálf. En auk.
þess hafa margir aðrir lagt hönd
á plóginn. Mó þar fyrst og
fremst nefna Frú Ragnheiði
Jónsdóttur skáldkonu, sem í
öll þessi ár hefir lagt til a. m. k.
eitt leikrit. Enda hafa börn úr
Barnaskóla Hafnarfjarðar, sýnt
flest leikrit frúarinnar á leik-
sviði.
Hari.
ST. FRÓN nr. 227. Fundur í
kvöld kl. 8Vé. Prófessor Ás-
mundur Guðmundsson flytur
erindi. — Kl. 9 verður fund-
urinn opinn fyrir alla, ekki
aðeins góðtemplara, heldur
einnig þá, sem eru utan Regl-
unnar. — Þeir, sem sækja
fundinn, eru beðnir að hafa
með sér sálmabækur.
Kristilegt stúdentafélag.
Almenn samkoma
verður haldin á vegum fé-
lagsins í húsi K.F.U.M. og K.
við Amtmannsstíg á páska-
dag kl. 8Vi e. h.
Stúdentar tala.
Stúdentar, skólafólk og
aðrir velkomnir meðan hús-
rúm leyfir.
HAFNARFJÖRÐUR:
K. F. U. M
Samkomur um bænadagana:
Skírdag kl. 8Vá. Flutt ræða
eftir Stein Sigurðsson.
Föstudaginn langa: cand.
theol. Gunnar Sigurjónsson
talar.
lep veiða í
Skerjafirði.
Eo pó með takmörkunum
SAMKOMULAG hefir náðst
milli setuliðs Bandaríkj-
anna og fulltrúa fiskimanna við
Skerjafjörð um veiðileyfi hinna
síðartöldu þar í firðinum.
Mega fiskimennimir fara út
fjörðinn til veiða þegar bjart er,
en þeir verða að fiska að eins
utan línu, sem dregin er frá
Suðurnesvita á Seltjarnamesi í
Breiðabólsstaðareyri á Álfta-
nesi
Leikfélag Reykjaviknr
„GULLNA HLIÐIÐM
50. sýning á annan í páskum kl. 4.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 2 til 5 á laugardag.
Meikamöt skölanna
heldur áfram í kvöld kl. 20,30, og sýna þá þrír flokkar úr
Laugar vatnsskóla.
Málverkasýning
Finns Jónssonar
í bókhlöðunni íþöku við Menntaskólaim,
verður opin frá kl. 10—ZVz uxn bænadagana og fram yfir
páska. Inngangur aðeins frá Amtmannsstíg.