Alþýðublaðið - 05.04.1942, Side 6

Alþýðublaðið - 05.04.1942, Side 6
6 KIRKJAN Séra Sigurbjðrn Einarsson: Páskaboðskapurinn. ALÞÝÐUBLAÐIÐ Sunnudagur 5. apríl 1942. Verðlaunakettir. Þessir þrír kettir fengu fyrir nokkru verðlaun á mikilli kattasýningu í Bandaríkjunum. Þeir fengu, eins og myndin sýnir, fagra bikara að verðlaunum, en hefðú vafalaust fremur kosið að fá góðan mjólkursopa. Sennilega eru þó eigendur þeirra á öðru máli um það. PÁSKARNIR eru hátíð hinn- ar opnuðu grafar og hins sigraða dauða. Hvílíkt erindi á slíkur boðskapur til vorra tíma! Dauðinn er stórvirkur nú um sinn. Þeir, sem eru ofurseldir mætti hans dags daglega, verða naumast tölum taldir, því síður hinir, sem hann vofir yfir eða komast í námunda við hann. Það væri ekki ólíklegt að þess- ar staðreyndir hefðu meir en lítil áhrif á hugsunarhátt manna, beindu hugsuninni í þá átt sem dauðinn er, að gáta hans væri nærgöngul og áleitin fram- ar venju. Auðvitað er það jafn- satt eins og alltaf, sem Tómas Guðmundsson segir: En þó vér sjáum til ferða dauðans hvern dag og Drottinn stuggi við okkur á * marga lundu, er þetta hið eina ævinnar ferðalag, sem aldrei er ráðið fyrr en á síðusfu stundii -----ekki einu sinni á stríðs- tímum. En þó fer ekki hjá því, að öll þau sár, sem fregnimar af vígvöllum lands og sjávar og lofts valda, leiti inn og verði að spurningum: Er öllu lokið, er dauðinn algjör, aðskilnaðurinn skilyrðislaus? Þess vegna mætti ætla, að páskaboðskapurinn ætti hljómgrunn hjá þessari kyn- slóð, að einmitt hann væri svar við þyngstu spurningunni, tor- ræðustu gátunni. Mannkynið hefir aldrei látið sér nægja að horfast í augu við staðreynd dauðans. Það hefir spurt, hvort ekki dyljist eitt- hvað meira handan við þessa staðreynd, hin einfalda lausn grafarinnar hefir verið mikils til of einföld til þess að full- nægja hugsun og tilfinningum mannsins. „Hver veit nema lífið hér sé dauði og dauðinn hið sanna líf?“ sagði gríska skáldið Evripides. Hefir mannkynið komizt lengra í leit sinni að lausninni handan dauðans en þetta, en til þessarar spuming- ar: Hver veit? Þegar Sókrates, vitrastur alla vitringa, bjóst við dauða sínum, undruðust samtíð- armenn hans, hversu óttalfius hann var gagnvart dauðanum. Það var vegna þess, að hann hafði leitað vizkunnar og fundið vizkuna, — en hvaða vizku? Jú, dauðinn hlaut að vera eitt af tvennu, annaðhvort svefn, djúp- ur, draumlaus, óendanlegur, og því var gott að taka, því jafnvel hinn sælasti maður væri þó ekki í annan tíma sælli en þeg- ar hann sefur draumlausum svefni, eða þá a<J líf væri eftir dauðann í öðrum heimi, og þá gæfist manni að öllum líkindum kostur þess að kynnast hinum vitrustu og beztu mönnum lið- Inna tíma og fræðast af þeim. Sókrates gat sáttur dáið hvort sem heldur var. En þetta nægði ekki öllum, það voru ekki allir gæddir ró- semi Sókratesar. Því fór fjarri. Þegar Platon, lærisveinn Sókra- tesar, er undan skilinn, þá er þvílík afstaða til dauðans nokk- urn veginn einstæð meðal kunnra manna grískrar fornald- ar. „Betra ér vesælt líf en góð- ur dauði,“ segir Evripides við annað tækifæri, og Akkillevs vildi heldur vera vinnuþræll hjá'snauðum bónda á jörðinni, sem ekki ætti málungi matar, en að vera konungur yfir skugg- um dauðra manna í Undirheim- um. Einn átakanlegasti dráttur- inn í sálarlífi Grikkja, þessarar glæsilegu þjóðar, er óttinn við dauðann, vonleysið gagnvart dauðanum. Bókmenntir þeirra bera þess óræk vitni, legsteinar og grafaráletranir sömuleiðis. Hvergi hefir meir verið hugsað um gátur tilverunnar en einmitt í Grikklandi. Það var að vísu almannarómur lengst af þar í landi, að eitthvert framhald væri lífsins eftir dauðann, en allt var það þoku hulið, vafa og véfengingum, þegar bezt lét I staðfestulítil samsinning hefð- bundinna skoðana eða völt og hvikul dulræn eftirgrennslan. En einn dag stóð ókunnur maður á Aresarhæð í Aþenu- borg, Sál frá Tarsus, öðm nafni Páll postuli, og talaði um upp- risu dauðra. Hann fékk ekki góða áheyrn í það sinn. Sumir gerðu gys að, en aðrir sögðu: Vér munum hlusta á þetta hjá þér í annað sinn. Og þeir hiust- uðu á það í annað sinn. Hér fundu þeir að lokum hið full- nægjandi svar, hina fullu lausn. Hafi maður kynnzt til nokk- urrar hlýtar hugmynda- og trú- arsögu Grikkja verður manni ljóst, hvílík bylting var í upp- siglingu í andlegum efnum, þeg- ar Páll stóð á Aresarháeð. Af- staða kristindómsins til dauðans var hin róttækasta gjörbylting, sem fram hefir farið á Vestur- löndum. En í hverju var sú bylt- ing fólgin? Á hverju byggðist hún? Hún var ekki fólgin í nýj- mn, máttugri boðskap um ó- dauðleika sálarinnar, því síður neinni reynslusönnun fyrir sjálfstæðri tilveru hennar. Hún var fólgin í boðskapnum um upprisinn drottin, sem hafði sigrað dauðann og leitt í Ijós líf og ódauðleika. Hún var fólgin í upphafsorðum fyrra Péturs- bréfs: „Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists, sem eftir mikilli miskunn sinni hefir endurfætt oss til lifandi vonar fyrir upprisu Jesú Krists frá dauðum.“ Trú og vissa þeirra byggðist á samfélagsvitund við hinn upprisna Drottin, hans líf var gróðursett í þeim og það líf var dauðanum yfirsterkara. Þessi trú grundvallaðist á því, sem er öruggast af öllu, en það er almætti og kærleikur Guðs. Hin almenna skoðun og sam- sinning þess, að eitthvert fram- hald sé lífsins eftir að þessu líti er lokið, er e. t. v. á vorum dög- um og á voru landi ekki mjög miklu vissari né öruggari en á dögum Páls. „Ó, dauði, fyrir skugga þínum skelfur vor skynjun líkt og svipult hrævarlog,“ segir skáldið. ' Skyldi hann túlka rétt hina almennu afstöðu þessarar herj- uðu og dauðasærðu kynslóðar til dauðans? Þá erum vér hrakt- ir langt af leið hinnar kristnu trúar, páskatrúarinnar. Þá. er- um vér helzt til fjarlægir því að vera endurfæddir til þeirrar lif- andi vonar, sem segir: „Lífið er mér Kristur og dauðinn ávinn- ingur.“ Eitt af verkefnum nú- tímakirkjunnar er staðfastlegri og vissari upprisuboðskapur, en það þýðir í reyndinni ekkert annað en raunhæfari skilningur á boðskap Nýja testamentisins, meiri hollusta við upprisuboð- skap kristinnar trúar, nánara samfélag við hinn upprisna. Upprisan til eilífs lífs er Guðs verk, ný sköpun, endursköpun. Vér munum allir umbreytast, segir Páll. Því að þetta hið for- gengilega á að íklæðast ófor- gengileikanum, þetta hið dauð- lega að íklæðast ódauðleikan- um. Þetta er ein af tilraunum postulans að koma orðum að því, sem hann þó veit að er fyrir handan möguleika mannlegra orða. Hann veit að leyndardóm- ur hins eilífa lífs verður ekki afhjúpaður fyrr én í eilífðinni, þrátt fyrir hina öruggu vissu sjáum vér þó aðeins í skuggsjá og í óljósri mynd, en einhvern tíma munum vér sjá augliti til auglitis. En dauðinn er „upp- svelgdur í sigur“. Og 16 öldum eftir daga Páls játar Hallgrím- ur Pétursson: Dauði, ég óttast eigi afl þitt né valdið gilt. í Kristí krafti ég segi: Kom þú sæll, þegar þú vilt. Þetta er upprisuvissa, páska- trú. Mætti þetta vera vor vissa, vor trú. Sigurbjöm Einarsson. Hisigi AiþjrðiiM- bands Vestfjarða er lokið. Frá fréttaritara Alþýdubladsins. ÍSAFIRÐI í gærkveldi. I N GI Alþýðusambands Vestfjarða var lokið í dag. Þingið sátu 18 fulltrúar. Margar samþykktir voru gerð- ar í atvinnu-, verkalýðs- og dýr- tíðarmálum. Forseti samb. var kosinn Hannibal Valdimarsson, vara- forseti Guðm. Kagalín, ritari Helgi Hannesson og gjaldkeri Ragnar Guðjónsson og með- stjórnandi Finnur Jónsson. Nýjung ilvændum Járngrindur uieð- fram Bankastrætf neðst. UMFERÐIN er að verða æ meira áhyggjuefni þeim, sem hafa umferðamálin með höndum. Fer hún og vaxandi og vandamálin, sem hún skapar. Lögreglustjóri hefir nú skrif- að bæjarráði um að setja upp jámgrindur við götuhom Bankastrætis, Austurstrætis og Lækjargötu. Er gert ráð fyrir, að þessar járngrindur nái að gang- brautunum, sem fólki er ætlað að fara, en grindumar eiga að vera götu megin við gangstétt- imar. Slíkar jámgrindur em víða erlendis á götíihomum, þar sem umferð er mest. Hallgrímssókn. Á páskadag messaö kl. 2 í Aust- urbæjarskólanum, síra Sigurbjöm Einarssoh, annan páskadag kl. 11 bamaguðsþjónusta, sfra Sigurbjöm Einarsson. Kl. 2 messa, síra Jakob Jónsson. BÖRN í SVEIT Frh. af 4. síðu læti, verða þeir, sem fyrir fram- kvæmdum standa, ekki sakaðir, hvernig sem til tekst. Greinarstúfur þessi er ekki skrifaður sem ádeila. Ég viður- kenni, að örðugleikarnir á fram- kvæmdum slíkra mála séu erfið- ir og kemur þar margt til greina, en ég vil minna á, að slík mál sem þessi þarf að taka 'föstum tökum, svo að eigi verði um deilt á eftir, að»hér hafi verið viðhöfð vettlingatök. T. HITLER Frh. af 5. síðu. unj og skotfærum, en Ameríku- menn sendu þeim þúsund fall- byssur, margar vélbyssur og 750000 rifla og flygflotinn efld- ist. Sagnfræðingar komandi kyn- slóða munu sqnnilega undrast það, hvers vegna Hitler réðist ekki fyrr á England. Skoðun mín er sú, að hann hafði ofmetið franska herinn, en vanmetið kjark Breta. Fall Frakklands svona skyndi- lega, kom honum alveg á óvart og ferðin var svo mikil ó stríðs- vagni hans, að hann gat ekki stöðvað henn strax. Hann missti því tækifærið að gera árás á England, þegar það var veikast. HVAÐ SEGJA HIN BLÖÐIN Frh. af 4. síðu setuliðið) greiddi opinþerri vinnu- miðlun sama gjald og það greiðir „agentum" sínum nú.“ Eins og menn sjá, fullyrðir Morgunblaðið, að Búnaðarþing- ið hafi ekki æflast til að um- rædd 15% af launum verka- manna í setuliðsvinnunni yrðu tekin sem skattur af þeim, held- ur yrði setuliðið látið greiða þau! Finnst mönnum það ekki trúleg skýring, nú eftir dúk og disk, að Bunaðarþingið hafi verið svo vitlaust, að ætlast til, að alþingi færi að samþykkja lög um að skattleggja brezka setuliðið?! Trúi því hver, sem villí

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.