Alþýðublaðið - 10.04.1942, Qupperneq 2
MJÞÝ0UBLAÐIÐ
,i>/ ,í- J
Faetnáagur 10 aprí! 1942.
Japanskar flugvélar sokksa tveim Vð
\ ■ 't •
brezkum beitiskipm á Bengalfióa á 1
Mörgum kaupskip"
um eionig sökkt.
FLOTASTJÓRNIN í Lon-
don tilkynnti í gær, að Ja-
panskar flugvélar hefðu sökkt
tveimur beitiskipum í Beng-
alflóa. Voru það skipin Corn-
wall og Dorsetshire, sem bæði
eru um 10 þús. smál. að stærð,
og voru smíðuð á árunum 1928
—1930. Hafa 1Í00 menn af
6
skápunum verið settir á land
einhvers staðar á Indlandi, og
eru þar á meðal skipstjórar
þeirra beggja. Engar nánari
fregnir hafa borizt af þessnm.
viðburði
Það var tilkynnt í New
Delhi í gær, að 4—500 skip-
brotsmenn hefðu verið undan-
farið settir á land í héraðinu
Orissa, sem er milli Madras og
Bengal. Eru þeir af mörgum
kaupskipum, sem Japanir
hafa sökkt í Bengalflóa.
Um þetta tilkynna Japanir,
að þeir hafi sökkt 21 flutninga-
skipi Bandamanna á flóanum,
og hafi þau verið samtals um
140 þús. smál. Þá segjast þeir
hafa laskað meira eða minna
önnur 23 skip, sem væru sam-
tals 102 þús. smál.
Fregnir, sem bárust seint í
gærkveldi hermdu, að Bretar og
JapajSír byggju sig nú af ákafa
undir mikla sjóorustu í Beng-
alflóa og er búizt við að hún
verði enn meiri en orustan í
Javasjó.
Fljúgandi virki úr ame-
ríkska flughernum í Indlandi
eru nú að leita að japönsku
flotadeildinni á Bengalflóa.
arnar eftir.
Loftárás hefir nú verið gerð
á Tincomalee, flotastöðina á
norðurströnd Ceylon. Hafa
engar fregnir borizt af árásinni
— nema þær, að engir, menn
hafi látið lífið. Þá hafa tvær
japanskar flugvélar verið yfir
Colombo, en þær köstuðu eng-
um sprengjum.
12000 skriðdrekar
tii Rnssiands?
ÞAÐ hefir komið mönnum
á óvart u mallan heirn,
hversu geysimiklum fjölda
skriðdreka Russar hafa, á að
skipa. Er enginn vafi á því, að
þeir hafa átt miklar varabirgð
ir, en hjálpin frá Bandamönn-
um mun einnig vera afar mikil.
Er jafnvel álitið meðal kunn-
ugra manrta í Englandi, að
Bretar og Bahdaríkjamenn hafi
sent Rússum um 12 þus.' skrið-
dreka. Bendir margt til þess,
cð þetta sé Þjóðverjum hið
mesta áhyggjuefni, enda hafa
Rússar enn hrundið öllum
skriðdrekaárásum þyzka hers-
ins.
Hefja þeir sókn?
George Brett,
yfirforingi flugh. í Ástralíu.
Dcuglas Mac Arthur
yfirhershöfðingi í Ástralíu.
í nótt bárust fréttir um það, að Roosevelt hefði sent
mikilsverð skilaboð til Mac Arthurs. Er ekki vitað um inni-
hald orðsendingarinnar, en í A-neríku er það talið vel mögu-
legt, að herir Bandaríkjamanna og Ástralíumanna í Ástra-
líu hefji sókn á hendur Japön ;m. Varnir landsins voru frá
upphafi skipulagðar með tilliti til gagnsóknar og þar að auki
virðast Japanir nú hafa ákveðið að stefna fyrst um sinn til
Indlands og er því mikils um vert, að þeir hafi nóg að gera
á öðrum vígstöðvum.
iBdland og
Indverjar.
INDLANDSMÁLIN erU nú á
álíra vörum og fylgjast menn
hvarvetna af hinni mestu at-
hygli með tilraunum Breta
til að leysa þau. Sir Stafford
Cripps á við margvíslega erf-
iðleika að etja og mun hin
mikla flokkaskipting Ind-
verja vera þar mestur þránd-
ur í götu. Við skulum nú at-
huga þessa skiptingu dálítið
nánar.
ALLS MUNU Indverjar hera
um 389 000 000 og er það
önnur fjölmennasta þjóð
heimsins. Eins . og menn
munu kannast við af fréttum,
er Kongressfl. stærsti fl.
landsins og telur hann mest-
an hluta Hindúanna, en þeir
eru um 239 milljónir. Næst
kemur Moslemflokkurinn,
sem hefir á að skipa flestum
Múhameðstrúarmönnum í
landinu. Eru þeir um 77
millj. , :
MISMUNURINN milli ’ Hindú-1
anna og Múhamedstrúar-
manna er mjög mikill.. Þeir
fyrri trúa á marga guði, þeir
síðari á einn. Hjá þeim fyrri
ríkir ströng og mikil stétta-
skipting, en hjá þeim síðari
er slíkt ékki til. Hindúar telja
kúna heilagt dýr, Múhameds-
trúarmenn fara eftir dauð-
ann upp í hinn sjöunda him-
in, þar sem dásamlegt er að
vera. Samtals eru þessir tveir
ólíku flokkar níu tíundu hlut-
ar allrar þjóðarinnar.
Á INDLANDI eru talaðar 225
mállýzkur og þótt reynt hafi
verið að viðurkenna eitt mál
fyrir alla þjóðina, geta aðeins
örfáir talað það. Var árið
1930 talið, að það værtu 7 af
hundraði, en sú tala eykst
hröðum skrefum og var 1941
álitin vera komin upp í 12 af
hundraði, sem gætu talað
þetta sameiginlega mál.
KONGRESSFLOKKURINN
var stofnaður af Englend-
ingnum A. O. Hume árið
1885. Var tilgangur flokksins
þessi: 1) Að berjast fyrir
pólitísku sjálfstæði Indverjá,
2) Að vernda indverska
menningu, 3) Að vinna áð
einingu Indverja.
INDVERJAR hafa um langan
aldur háð baráttuna við
Breta af miklu kappi og beitt
þar ýmsum aðferðum, en
frægastar eru hinar „óvirku“m
mótmselaaðgerðir þeirfa.
Hafa þeir þá þúsundum safn-
an setzt á torg og stræti óg
teppt alla umferð. Stundum
. hafá þeir mótmælt með því
að kaupa ekki brezkar vörur. •
ÞÓTT INDVERJAR beiti sltk-
um aðferðum ög Bretar hafi
oft á tíðum tekið á þeim ó-
vægum höndum, er ekki svo
að skilja, að illindi ein sé að
finna þáma eystra. Geysilegt .
menningar- og framfarastárf
hefir v.erið unnið hin síðustu
ár, og eiga Bretar þar ótví-
ræðan hlut í máli.
nna
anskaga er lokift
Corregidor mun verj ast áfram.
Miklar tilraunir voru gerðar til að
koma þangað liðstyrk* en árangurslaust.
1 '-------
ITINNI HETJULEGU VÖRN Ameríkumanna og Filipps-
eyinga á Bataanskaga er nú lokið. Með geysilegu ofur-
efli liðs og ógrynni steypiflugvéla, skriðdreka og stórskota-
liðs hefir Japönum tekizt að brjóta viðnámsþrótt þeirra á
bak aftur og neyða þá, örmagna eftir stöðugar orrustur og
lélegan matarkost, til að hætta vörninni.
Wainwright, hershöfðingi, gaf út tilkynningu frá Fort
Mills á eyvirkinu Corregidor, þar sem hann skýrði frá því,
að bardögunum væri nú um það bil lokið. Sagði hann, að
eftir ógurleg áhlaup hefði Japönum tekizt að brjótast í
gegnum eystri hluta víglínunnar, og hefði 'þá þegar í stað
verið send herdeild, sem gera skyldi gagnáhlaup, en her-
mennirnir hefðu þá verið orðnir svo örmagna, að það hefði.
ekki tekizt. Búizt var við, að örfáir hermenn hefðu kom-
izt yfir til Corregidoreyju.
, ., . Stimson, hermálaráSherra Bandaríkjanna, sagði í gær í
Washington, að miklar tilraunir hefðu verið gerðar til að koma
birgðum til Bataanskaga, en þær hefðu ekki tekizt vel. Sagði
hann, að fyrir hvert eitt skip, sem komizt hefði þangað frá
Ástralíu, hefðu tvö farizt. Skotfæri skorti aldrei á skaganum,
eil nokkur matarskortur var vegna hins mikla mannfjölda, sem
þangað hefði safnazt saman.
Þá skýrði Stimson frá því, að hersveitir Bandaríkjanna og
Filippseyinga hefðu verið um 37 þúsund, en Japanir hefðú haft
að minnsta kosti 135 þúsund. Þá hefðu auk hermannanna verið
á Bataanskaga 5—6 þús. iðnverkamenn frá Luzon og um 20
þús. flóttamenn. Var því ekki að furða, þótt matarskammtur
væri Iítill. Auk skorts hefðu svo ýmsir sjúkdómar gert ástand-
ið enn verra. n
Corregidoreyja mun verjast
áfram. Hafa virkin þar og menn
irnir, sem í þeim eru, þegar
staðist mjög harðar árásir bæði
úr lofti og af ströndum Manila-
flóa. H'efur þessi eyja alger-
lega hindrað það, að Japanir
gætu haft hin minnstu not af
höfninni í Manila, sem er ein
stærsta og bezta höfn þarna
eystra.
Bardagarnir á Bataanskaga
stóðu rúma þrjá mánuði. Hörf-
aði.: MacArthur út á skagann
eftir að Manila féll í janúar
bjó hann þar rammlega um, sig.
Hann hafði aðeins örfáar flug-
vélar til umráða og voru það
Tomahawk orrustuflugvélar.
Það var hins vegar bersýnilegt,
að þær svo fáar mundu litlu fá
áorkað gegn ofurefli þeirra
japönsku flugvéla, sem árásir
gerðu á stoðvar Ameríkumanna
Var því gripið til þess að útbúa
flugvélarnar svo að þær gætu
borið sprengjur. Gerðu þær
síðan rásir á japönsk herflutn-
ingaskip og sökktu mörgum
þpirra og drekktu þar: þúsund-;
,um' hermanna. Er talið, að þar
háfi lokasókn Japan táfizt um
laiiga- ’hríð. ...
Samgönguleið sú, sem birgja
játti Filippseyjar, var um eyj-
arnar Midway, Wake og Guam.
Fyrstu daga stríðsins tóku Jap-
anir þéssar eyjar og stór lösk-
uðii fjölda herskipa í Pearl
Harbor. Þannig atvikaðist það,
að állar fyrri áætlanir um hjálp
til Filippseýja fóru út um þúf-
ur.
Daoir gefa stðrfé til
fiugvélakaupa.
NEFND frjálsra Dana gekk
í gær á fund Churchills
og færði honum 38 þúsund
sterlingspund, sem verja á til
kaupa á flugvélum fyrir þá
dönsku flugmenn, sem berjast
með brezka flughernum. Sagði
Churchill, að sú stund, er Dan-
ir skipuðu aftur sess sinn með-
al hinna frjálsu þjóða Evrópu,
mundi ef til vill koma fyrr en
skynsamlegt væri að ætla. Þá,
sagði hann, að Bandamenn,
mundu aldrei hætta við þetta.
stríð eða stöðva það, fyrr eni
sigur væri unninn.
Þegar nefndin kom af fundi
Churchills, voru Danir í Lon-
don komnir saman í einu af
stærstu samkomuhúsum borg-
arinnar. Færði formaður nefnd
arinnar fundinum boðskap
Churchills og var honum tek-
ið af miklum fögnuði. Sagði
formaðurinn, að frjálsir Danir
í dönskum flugvélum væru
svarið við 9. ’apríL
ítölsku beitiskipi sökkt
BREZKA flotamálaráðu-
neytið hefir tilkynnt, að
fyrir nokkru hafi ítölsku 10
þús. smál. beitiskipi verið. sökt
á Miðjarðarhafi. Var það kaf-
bátur, sem hitti skipið með
túndurskeyti og varð rétt á eft-
ir mikil sprenging í því.