Alþýðublaðið - 10.04.1942, Side 4

Alþýðublaðið - 10.04.1942, Side 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Föstudagur 10. apríl 1942. fUjnj&nblaðtb Útgefaaði: Alþýðuflokkurinn Bitstjóri: Stefán Pjetursson Ritstjóm og afgreiðsla í Al- j þýðuhúsinu við Hverfisgötu Símar ritstjómar: 4901 og 4902 Simar afgreiðslu: 4900 og 4906 Verð i lausasölu 25 aura. Alþýðuprentsmiðjan h. f. TUkjDBiigar ríkis- stjórnariDnar. RíiOSSTJÓRNlN hefir gefið ut þrjár tilkynningar til almennings hér í höfuðstaðnum og birtust þær í blöðunum í gær. Hafa þessar tilkynningar inni að halda leiðarvísi og fyr- irmæli um það, hvernig mönn- um beri að haga sér, ef til hern- aðarlegra átaka skyldi kbma hér, svo og boðskap um það, hvaða ráðstafanir séu fyrirhug- aðar af hinu opinbera í slíku tilfelli. í sambandi við þessar- til kynningar ríkisstjórnarinnar lét annað aðalstuðningsblað hennar, Morgunblaðið, svo um mælt í gær, að hættan á því, að til hernaðarlegra átaba kæmi hér á landi, hefði „ávallt vofað yfir, síðan annar hernaðaraðil- inn tók sér hér bólfestu, og er því ekki um neina nýja hættu að ræða.“ Alþýðublaðinu þykir rétt að undirstrika þessi ummæli Morgunblaðsins, því að ævin- lega, þegar slíkar tilkynningar eru gefnar út, er nokkur hætta á því, að þær verði af almenn- ingi teknar sem vísbending um einhverja nýja og alvarlegri hættu, en áður hafi verið vitað um. En þó að það sé ekki tilfellið, ber almenningi hér í Reykjavík engu að síður að kyrma sér til- kynningar ríkisstjórnarinnar vel og gæta allrar þeirrar var- úðar, sem þar er ráðið til. Því að hvað, sem öllum líkum um hernaðarleg átök hér á landi líð- ur, er eins og tekið var fram í blaðinu í gær, aldrei hægt að fortaka það, eins og nú er á- statt í heiminum umhverfis okkur, að ekki geti komið til á- taka eða árása einnig hér. Það er rétt og nauðsynlegt, að horf- ast í augu við þann möguleika og búa sig undir að geta mætt honum, ef úr honum skyldi verða veruleiki. En tilkynning- ar ríkisstjórnarinnar fjalla ein- mitt um það, á hvern hátt al- mennihgi beri að búa sig undir það. • Það er augljóst, að það væri mjög takmarkað, sem hið opin- bera gæti gert almenningi til hjálpar, ef slíka hættu bæri að höndum, þó að sjálfsögðu yrði reynt að aðstoða fólk við brott- flutning, fyrst og fremst bama, úr bænum og boðað sé meðal annars, að allir bílar myndu verða teknir leigunámi í því skyni. En því meira veltur á varúð og fyrirhyggju einstak- Jinganna sjólfra; og um undir- Framtíðarmál atvinnuveg- anna til sjávar og sveita. Samþyiktir áttunda þlngs Alpýðu* * samb. Vestfjarða, sem nú er nýloklð A TTUNDA þing ‘Alþýðu- sambands Vestfjarða hófst á ísafirði þann 1. apríl s. 1., og sátu það um 20 full- trúar frá verkalýðsfélögun- um á Vestfjörðum. Þinginu sleit laugardaginn 4. apríl. Þetta voru helztu samþykktir þingsins: A-Sjávarútvegsmál. 1. Áttunda þing Alþýðusam- bands Vestfirðingafjórðungs lýsir mjög eindregið óánægju sinni yfir brezku samningunum, þar sem það telur hagsmuni bátasjómanna og vélbátaútgerð- arinnar hafa verið fyrir borð borna við þá samninga, til hags- bóta fyrir stórútgerðarmenn. Telur þingið nauðsynlegt, að þá er samið verður við Breta á nýj- an leik, hækki allt fiskverð um 75 % — eins á hraðfrystum fiski og öðrum — og felur það þing- mönnum Alþýðuflokksins að vera á verði um hagsmuni báta- sjómanna, fiskiðnaðarins og smáútgerðarinnar í sambandi við væntanlega samninga. 2. Áttunda þing Alþýðusam- bands Vestfiröingalij órðungs lít- ur svo á, að starfsemi fiskimála- nefndar beri að efla, og að nauð- synlegt sé að veita áfram hag- kvæm lán til hraðfrystihúsa. Telur þingið, að samvinnufélög hinna vinnandi stétta um út- gerð, verkun sjávarafurða eða verzlun eigi að ganga fyrir öðr- um, á hverjum stað, um hag- kvæm lán til hraðfrystihúsa, en næst slíkum fyrirtækjum gangi félög, sem séu eign sem flestra útgerðarfélaga og einstakra út- gerðarmanna á staðnum. Þingið telur ehn fremur, að nauðsyn- legt sé að koma.sem fyrst upp kæliskipum til útflutnings á ís- lénzkum afurðum. Þá telur þingið, að halda beri áfram með tilraunir til framleiðslu á niður soðnum sjávarafurðum, en læt- ur í ljós óánægju yfir hinum stórfelldu mistökum, sem orðið hafa á framleiðslu niðursuðu- verksmiðju S. í. F. í Reykjavík og þeirri leynd, sem verið hefir yfir rekstri þess hálfopinbera fyrirtækis. 2. Áttunda þing Alþýðusam- bands Vestfirðingafjórðungs vill beina þ.ví til útgerðarfyrir- íækjanna á ísafirði og í ná- grenninu, að nauðsynlegt er, að kömið verði sém fyrst upp verk- smiðju á ísafirði, er vinni úr síld og blautum fiskúrgangi og sé um leið nýtízku lifrarbræðsla. 4. Áttunda þing Alþýðusam- bands Vestfirðingafjórðungs skorar á stjórn síldarverksmiðja ríkisins að láta fullkomna lönd- unartæki verksmiðjanna og enn fremur koma því svo fyrir í framtíðinni, að , öll síld, sem verksmiðjurnar veita móttöku, verði vegin, en ekki mæld. 5. Áttunda þing Alþýðusam- bands Vestfirðingafjórðungs leggur áherzlu á, að nú, þegar tekjumöguleikar ríkissjóðs af stríðsgróða á braski og fiskút- flutningi eru svo miklir, að ná má milljónatekjum í skatt af slíkum gróða, án þess að gengið sé nærri skattgreiðendum, verði Fiskveiðasjóður íslands stórum efldur, svo að hann reynist fær um að inna af hendi það hlut- verk sitt, að endurnýja og auka fiskiflotann. Þingið lítur svo á, að útflutningur á hraðfrystum fiski, niðursoðnum sjávarafurð- um og ísuðum fiski í stórum skipsförmum hljóti að verða framtíðarmál, og því beri alveg sérstaklega að leggja áherzlu á að þæta og auka vélbátaflota landsmanna, þar sem sú aukn- ing hans, sem mundi fullnægja eðlilegri atvinnuþörf lands- manna eftir styrjöldina, mundi kosta margfalt minna fé en hliðstæð aukning togaraflotans. 6. Áttunda þing Alþýðusam- bands Vestfirðingafjórðungs skorar á alþingi að leggja fyrir ríkisstjórnina, að athuga, hvort ekki sé fáanlegt norskt selveiði- skip, svo og norskur skipstjóri og skyttur, og ef svo reynist, þá láti ríkið gera skipið út á sinn kostnað á selveiðar frá Vest- fjörðum, sem eru mjög nærri hinum veiðisælu selveiðasvæð- um Norðmanna í Grænlands- ísnum. Selveiðar hafa oft verið mjög arðvæn atvinnugrein hjá Norðmönnum, og telur þingið ekki vanzalaust af hendi okkar íslendinga að láta þá bjargræð- ismöguleika, sem í selveiðunum felast, vera ónotaða í framtíð- inni, svo góð sem aðstaðan er til að stunda þær —- og þá einkum frá Vestfjörðum. B. Landbúnaðarmál. Áttunda þing Alþýðusam- bands • Vestfirðingafjórðimgs lítur svo á, að hinum vinnandi stéttum bæja og þorpa beri að láta sig varða hag fólksins £ sveitunum og telur það miður farið, að vakin verði úlfúð milli vinnustéttanna í landinu. Þing- ið gerir sér ljóst, að nauðsyn beri til sem heilbrigðastrar verkaskiptingar í þjóðfélaginu, og eins og hagur bænda er kom- inn undir kaupgetu vinnustétt- anna við sjóinn, eins er velmeg- un sveitafólksins skilyrðið fyrir því, að nægileg framleiðsla sé á landbúnaðarafurðum, og að fólkið úr sveitunum þyrpist ekki um of í þorp og bæi og or- saki þar óeðlilegt framboð á vinnuáfli. Þingið lítur svo á, að stefna beri að því með löggjöf, að vinnuhættir og búskaparlag bændanna breytist sem mest í það horf, sem telja megi hlið- stætt við þær framfarir í fram- leiðsluháttum, sem orðið hafa í bæjum og þorpum. Þingið vill því beina eftirfar- andi til þingmanna Alþýðu- flokksins: 1. Ræktunarstyrkir hafa yfir- leitt verið miðaðir . undanfarið við stækkun hins ræktaða lands, en þingið telur, að í stað þess beri nú fyrst um sinn einkum að leggja áherzlu á tvennt við styrkveitingar til ræktunar- mála: Hvað hið ræktaða land gefur af sér. b. Hvort það er véltækt. 2. Styrkir til áburðarhirðing- ar verði hækkaðir, enda verði það gert að skilyrði fyrir styrk- Frh. á 7. síðu. búning þeirra fjalla tilkynning- ar ríkisstjórnarinnar fyrst og fremst. Eru þar fyrirmæli um það, hvernig börn þyrftu að vera útbúin, ef til skyndilegs brottflutnings þeirra skyldi koma, svo og hvernig hið full- orðna fólk þarf að vera viðbúið, hvort sem það nú kysi eða yrði að vera um kyrrt í bænum, eða óskaði að komast burt úr hon- um. Aðalatriðið er að sjálfsögðu á þessu vori eins og síðustu und- anfarin vor, að koma sem flest- um börnum út úr bænum, og er í því sambandi rétt að undir- strika, að þær ráðstafanir, sem ríkisstjórnin hefir fyrirhugað til brottflutnings barnanna, ættu ekki á neinn hátt að draga úr því, að fólk sneri sér til sum- ardvalamefndar í því skyni að koma börnum sínum fyrir í sveit, en starf hennar er eftir sem áður alveg óháð fyrirætl- unum ríkisstjórnarinnar. Um hið fullorðna fólk er hins vegar það að segja, að fyrirsjáanlega gæti af atvinnuástæðum aldrei nema takmarkaður fjöldi af því farið úr bænum. En engu að síður ber því 'að athuga þær varúðarráðstafanir, sem bent er á í tilkynningum ríkisstjórnar- innar einnig því til öryggis, hvort sem það yrði um kyrrt í bænum eða ekki. iÞví að allur er varinn beztur. * Að endingu skal það aðeins tekið fram, að það er engin á- stæða fyrir fólk til þess að verða forviða yfir þessum til- kynningum ríkisstjórnarinnar. Slík varúð er nauðsynlég eins og nú er ástatt, enda þótt það sé viðurkennt, að það sé engin ný hætta, sem því veldur, að ríkisstjómin snýr sér nú til al- mennings í þessu skyni. Það eina, sem ástæða til að undrast, er þetta og vafalaust munu menn leggja þá spurningu fyr- ir sig: Hvemig stendur á því, að ríkisstjórnin hefst handa í þessu máli eimnitt nú, og ekki fyrr en nú, til dæmis fyrir ári síðan eða jafnvel fyrr, úr því að viðurkennt er, að hættan hafi þá verið sú sama og að um enga nýja hættu sé nú að ræða? ÐALUMRÆÐUEFNI BLAÐANNA í gær var að sjálfsögðu hinar nýju tilkynn- ingar ríkisstjórnárinnar, og fyrirmæli um varúðarráðsl/af- anir til þess að almenningur hér í Reykjavík skuli vera við búinn, ef til hernaðárlegra á- taka skyldi koma hér. Morgunblaðið skrifar: „Almenningur verður loks að gera sér Ijóst, að hér er eingöngu um varúðarráðstafanir að ræða. Það liggja engar nýjar upplýsing- ar fyrir um að meiri hætta sé nú en áður. En reynslan hefir sýnt frá öðrum löndum, að hættuleg- ast er að hugsa sem svo: „slíkt getur aldrei hent hér.“ Vonandi kemur aldrei til hernaðarátaka hér á landi. En hins vegar væri heimska að loka augunum fyrir því, að hér gæti dregið til hern- aðarátaka. Þessvegna er skylda yfirvaldanna að benda almennirigi á og leiðbeina eftir föngum.“ Nýtt dagblað skrifar: „Það er í. alla staði rétt og sjálf- sagt að gera sér grein fyrir hvern ig almenningi sé bezt að haga sér ef til árása kemur á land vort. í því felst engin spásögn um að til slíkra atburða muni draga en það eru flón ein, sem ekki vilja gera sér ljóst, að á hverri stimdu get- ur komið hér til hemaðaraðgerða, og það er með öllu ástæðulaust að láta slíka atburði koma sér að óvörum, vér höfum haft nægan tíma til undirbúnings, og ættum því að geta mætt því, sem að höndum kann að bera, á skynsam- iegan hátt.“ Vísir skrifar: „Þegar þess er gætt, að ísland liggur miðja vega að leiðinni frá Ameríku til Murmansk, er auð- sætt, að hvorum hernaðaraðilja er að því mikil stoð, að hafa hér bækistöð, og hvor þeirra^ sem það hefir, getur átt von á því að verða sóttur hér heim, og bitna slík átök engu síður á heima þjóðinni. Það sakar því ekki, að búast við hinu versta — hið góða skaðar ekki.“ , , En um fyrirmæli ríkisstjórn- arinnar segir Ýísir sjðan: „Þótt ekki kpmi hér til átaka er þetta sjálfsögð öryggisráðstöf- stöfun, enda nætt við að mörgum, sem heima sitja, fyndist þröng fyrir dyrum, ef brottflutningur fólks skyldi hefjast fyrirvara- laust, og því holað niður í nær- sveitum fyrir tilstuðlan hins op- inbera. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið, og ætti fólk því að gera ráðstafanir í þessu efni nú þeg- ar.“ Hér hafa menn ummæli. þriggja blaða í gær. Og segi ! menn svo, að blöðin séu aldrei I sammála! /

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.