Alþýðublaðið - 10.04.1942, Síða 6

Alþýðublaðið - 10.04.1942, Síða 6
$ Danskennsla Vegna fjölda áskorana tek ég fólk í einkatíma og í smá- flokka (ca. 15 manns). — Kenni nýja og ameríkska dansa, einnig Lanciers og gömlu dansana. Sigurður Guðmundsson Sími 4278 til kl. 7 og frá kl. 8—9 í síma 5982. Lærið að dansa og lærið að dansa rétt. / Lifandi músik: píanó. w Askorun frá ríkisstjérniniiKi. Ríkisstjórnin skorar hér með á almenning að kaupa nú þegar, svo mikið sem hægt er, út á matvælaseðla þá, sem nú hefir verið úthlutað fyrir tímabilið apríl til júlí. Þetta er nauðsynlegt til dreifingar á birgðum og vegna takmarkaðs geymslurúms fyrir vörur, sem til lands- ins eru fluttar. Þó skaí fólki, sem kaupir brauð sín í brauðgerðarhús- um, bent á að halda eftir kornvöruseðlum til venjulegra brauðkaupa, ennfremur þarf að taka frá seðla handa böm- um, sem fara eiga í sveit og öðrum heimilismönnum, sem á skömmtunartímabilinu kunna að fara til dvalar utan heimilis. VIÐSKIPTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ, 9. APRÍL 1942. Unglinga vantar til að bera Alþýðublaðið til kaupenda nú þegar. Alþýðublaðið. hIÞÝÐUBIAPIO I Samþjrkktir ilþlðosambands Vestfjarða. HAJSTNES Á HORNINTJ . (Frh. af 5. síðu.) að börnin kæmust í sveit sem fyrst á vorin, hvort sem stríð hefir geis- að eða ekki. En á þessu máli hefir verið allt of mikill seinagangur. ÉG VIL ráðleggja fólki að at- huga tilkynningar ríkisstjórnar- innar, sem birtust í blöðunum í gær og búa í haginn fyrir sig æðrulaust. Ég segi það enn einu dnni, þáð er sjálfsagt að vera við- búinn því slæma, því að það góða skaðar ebki. Á vegum Í.S.Í. hélt Axel Andrésson, knatt- spyrnukennari, námskeið í knatt- spymu að Hólum í Hjaltadal. Er því nýlega lokið. Flestir skólapilt- ar tóku þátt i námskeiðinu. 29 þeirra luku dómaraprófi í knatt- spymu. Ennfremur barst nýlega skýrsla um glímunámskeið Kjart- ans Bdrgmatnns Guðjónasonar, glímukappa íslands, er haldið var að Hvanneyri í fyrri mánuði. — Þátttakendur voru 40. Ársþing í. S. í. verður háð i Reykjavík dag- ana 12., 13, og 14. jöní n.k. ' Frh. af 4. síðu veitingu, að allar framkvæmdir í þessa átt séu sem hagkvæm- astar. 3. Að styrkir bænda til verk- færakaupa séu sem ríflegastir. 4. Að stefnt verði að sem víð- tækustum kynbótum * nautpen- ings, sauðfjár og dráttarhesta, og að sauðfjárræktarfélög verði lögboðin í hverjum hreppi. 5. Að einu fyrirmyndarbúi verði komið upp á Vestfjörðum og einnig búnaðarskóla, þar sem verði lögð alveg sérstök áherzla á verklega fræðslu. 6. Að tekið verði til nýrrar og vandlegrar íhugunar, hvort ekki sé tiltækilegt að stofna til áburðarverksmiðju hér á landi. Viðvíkjandli byggingar- og landnámsmálum sveitanna vill þingið vekja atygli þingmanna Alþýðuflokksins á þessum atrið- um: 1. Gerð verði gagngerð rann- sókn á því, hvort ekki megi lán- ast að finna innlent byggingar- efni, sem geri byggingar ódýr- ari en nú, og vill þingið nefna þar sérstaklega til innlenda framleiðslu á tígulsteini. 2. Þess verði vandlega gætt, að styrkja ekki af opinberu fé húsabætur á jörðum, þar sem ekki þykir líklegt, að fyrir hendi séu framtiðarskilyrði til búskapar. 3. Lagt verði fyrir Búnaðar- félag íslands, að rannsaka á fá- um árum ræktunar- og land- námsskilyrði í öllum sveitum landsins, og geri það síðan til- lögur um það til alþingis, hvar byggja skuli einstök býli í fram- tíðinni og hvar sveitahverfi, og samþykki alþingi því næst lög um þessi efni. Hin einstöku býli skulu svo byggð, strax og fyrir liggur umsókrrog umsækj- andi hefir sýnt skilríki fyrir því, að hann uppfylli sett skil- yrði, sem verði mun hagkvæm- ari en nú eru fáanleg. Hm sveitahverfin fari eftir sérstök- um lögum, eins og t. d. nú fer um vegagerðir og símalagning- ar. Verkalýðsmál. 1. 8. þing A. V. skorar á rík- isstjórnina að flytja frumvarp til laga um orlof verkafólks, að efni til eins og meirihluti orlofs- nefndar hefir skilað áliti um. 2. 8. þing A. V. skorar á þing- menn Alþýðuflokksins að beita sér fyrir þeirri breytingu á lög- um um stéttarfélög og vinnu- deilur, að hið opinbera greiði allan kostnað af málflútningi stéttarfélaganna fyrir félags- dómi. 3. 8. þing A. V. beinir því til þingmanna Alþýðuflokksins, að vinna að þeirri breytingu á al- þýðutryggingarlögunum, að hlutarmenn á 6-—12 smálesta vélbátum verði sömu réttinda aðnjótandi í slysa- og veikinda- tilfellum, eins og hlutarmenn á bátum, sem skylt er að skrá. 4. 8. þing A. V. lítur svo á, að þar sem það á sér alloft stað, að meðlimir ihinna ýmsu félaga fara staða á milli til þess að stunda atvinnu sína, og því erf- itt að innheimta hjá þeim árs- I gjöld viðkomandi félags — sé I nauðsynlegt að sambandsfélög- in veiti hvert öðru gagnkvæma aðstoð til innheímtu félags- gjalda. Jafnframt gæti félögin þess, hvert á sínu félagssvæði, að ekki virrni þar aðrir en þeir, sem hafa kvittuð félagsskírteini yfirstandandi árs. Þá telur þing- ið einnig nauðsyn bera til, að stéttarfélögin á ísafirði setji á stofn sameiginlega skrifstofu til þess að annast afgreiðslu hinna daglega aðkallandi mála samtakanna, svo og innheimtu félagsgjaldanna, eftir því sem þurfa þykir, og beinir þeirri á- | skorun til stjórnar A. V., að vinna að framgangi þess. 5. 8. þing A. V. telur að gefnu tilefni ekki nægilegt til samræmingar kaupgjalds, að sambandsfélögin sendi stjórn Alþýðusambands íslands samn- inguppköst sín til álits og at- hugunar áður en þau eru lögð fyrir atvinnurekendur, heldur þurfi einnig samþykki sam- bandsstjórnar eða fjórðungs- stjórnar að fásÞtil undirskrifta samninga, svo að þeir öðlist gildi, og skorar þingið því á næsta þing Alþýðusambands íslands að gera um það bind- andi samþykkt. 6. 8. þing A. V. mótmælir harðlega bráðabirgðalögum um svonefndan gerðardóm í kaup- gjalds- og verðlagsmálum og skorar eindregið á alþingi það, sem nú situr, að fella þau. 7. 8. þing A. V. telur, að efla beri fjórðungssambandið eftir föngum, og teldi þingið æski- legt að A.S.I. veitti sambandínu Grýlukerti. Þið hafið sennilega oft séð grýlukerti á hús- burst. En hafið þið nokk- uratíma séð grýlukerti á brunaliðsmanni? Hér sjá ið þið það í fyrsta sinn. Fostudagur 10. ajuríl 1M2. Lítill skíðagarpur. Þessi litla skíðakona heitir María Cooper, og er dóttir kvikmyndaleik- arans fræga, Gary. Cooper. nokkurt fé til umráða til að ann- ast aukna fræðslu og útbreiðslu- starfsemi á sambandssvæðinu. Ýmis mál. Áttunda þing Alþýðusam- bands Vestfjarða lítur svo á, að niðui'stöðutölur tekna og gjalda ríkissjóðs frá árinu 1941 sýni það glögglega a) að fjáreyðsla utan fjárlaga hafi verið óhófleg, b) að aðgerðaleysi hlutaðeig- andi ráðherra í dýrtíðarmálun- um hafi einungis verið að kenna viljaleysi og hirðuleysi um hag almennings og þjóðárheildar og hollustu við hagsmuni heild- sala og braskara. Þingið lítur enn fremur svo á, að mótbárur þær, er fram hafa komið gegn frumvörpum Alþýðuflokksins um dýrtíðar- málin og gengishækkun séu að- eins fyrirsláttur og skorar ein- dregið á alþingi að samþykkja þessi frumvörp. Pygmalion heitir myndin, sem Gamla Bíó sýnir núna. Er hún samkvæmt samnefndu leikriti eftir Bernhard Shaw. Aðalhlutverkin leika Wendy Hiller og einn frægasti skapgerðarleikari Englendinga, Leslie Howard. Á suðrænum slóðum heitir myndin, sem Nýja Bíó sýnir núna, og er hún tekin í eðli- legum litum. Aðalhlutverkin leika Don Ameche og Betty Grable. Hringið i sima 490G og gerist áskrifendur að Alþýðublaðlnu.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.