Alþýðublaðið - 29.04.1942, Side 3
MiSvífcudagur 29. apríl 1942.
ALPYÐUBLAÐiÐ
Japönsk steypiflugvél
Miklar loftárásir gerðar á Köln
í»essi flugvél — eða réttara sagt flak af flugvél — er japönsk og var skotin niður af Ame-
ríkumönnum á Hawaii eyjum. Var það ein af steypiflugvélinn þeirra, en Ameríkumennimir
hafa grandað miklum f jölda þeirra.
Franskí hershöf ðinginn
Glraud komlnn tll Sviss
....+» -..
^ti'auk úr kastalafangelsinu Königs-
stein hjá Dresden.
RANSKI HERSHÖFÐINGINN GIRAUD, sem fyrir
nokkru flúði úr þýzku fangelsi, er nú kominn til Sviss,
-eftir því, sem fréttastofufregn hermir. Ekki er þó getið
um það, hvert hann muni halda.
Þjqðvenjar höfðu sent þúsundir le,ynilögreglúmanna
til að leita að Giraud, og hafði stórfé verið heitið hverjum
þeim, sem gæti gefið upplýsingar, er leiddu til handtöku
hans. Einnig hafði lýsingu af honum verið útvarpað.
Sviar áMnir að íyigja
fordæmi Norðmanna, ef
á ðá verður ráðizt.
FYBIR NOKKBU fór hinn
þekkti Englendingur, Sir
Kenneth tlark, í fyrirlestraferð
til Svíþjóðar. Fór hann loftleið-
is þangað, en eins og kunnugt er,
halda Bretar uppi flugsamgöng-
vun við Svíþjóð, þótt flugvél-
arnar verði að fljúga yfir Dan-
xnörku.
Sir Kenneth kynnti sér allvel
viðhorf Svía, og segir hann, að
þrír af hverjum fjórum Svíum
hafi samúð með bandamönnum.
Svíar hafa hina dýpstu samúð
með Norðmönnum og banda-
mönnum þeirra, Bretum. Á hinn
bóginn búa þeir enn yfir sögu-
legu hatri til Rússa og hafa hina
mestu samúð með Finnum.
Þannig var það fyrir nokkru, að
haldin var sýning á finnskum
málverkum í Svíþjóð til styrkt-
ar fyrir norsk börn.
Sir Kenneth segir frá því, að
hann hafi víða í Svíþjóð séð
myndir af Churchill, en nær
hvergi af Hitler.
Svíar búast ekki við að drag-
ast inn í stríðið, en þeir eru á-
Giraud var geymdur í kastal-
anum Königsstein, sem er við
ána Elben, skammt frá Dresden.
Er enn allt á huldu um það,
hvernig hann komst á brott, en
enginn vafi er á því, að hér er
um einn ævintýralegasta flótta
stríðsins að ræða. En sennilega
verður þess íangt að bíða, að
sagt verði nánar frá honum.
Eins og áður hefir verið skýrt
frá hér í blaðinu, stjómaði
Giraud 9. her Frakka í orrust-
unni um Frakkland. Hann var
einnig tekinn til fanga í síðustu
heimsstyrjöld, og flúði hann þá
einnig frá Þýzkalandi og komst
til Bretlands.
HITLER hefir gefið út fyrir-
skipun, þar sem landsstjór-
um hans er gefið ótakmarkað
vald til að kalla tií þjónustu
| alla þá menn, konur og börn,
sem að gagni mega koma við
framleiðslu Þýzkalands.
A.PANIR hafa gert loftárás á
Darwin í Norður-Ástralíu
og tóku 26 flugvélar þátt í
henni. Orrustuflugvélar skutu
niður 7 af þeim.
kveðnir í því að verjast, ef til
þess kemur. Það er metnaður
Svía, að fylgja fordæmi Norð-
manna.
Brezkir kafbátar
sðkkva 4 skipnm
ð Miðjarðarhafi.
Stórn skipi sðkkt við Nor-
egsstrendur.
• • i _____
BREZKIR k-afbátar hafa
sökkt fj&rum skipum á
Miðjarðarhafi. Var þetta til-
kynnt af flotamálaráðuneytinu
í London í gær, og var þess þá
einnig getið, að brezkur kaf-
bátur hefði sökkt stóru flutn-
ingaskipi við strendur Noregs.
Skipin, sem sökkt var í Mið-
jarðarhafi, voru öll á leið til
Libyu með birgðir fyrir her
Rommels, en Þjóðverjar senda
nú eins mikið til hans og þeir
framast geta. Er sagt, að þeir
muni senda til hans, þar til síð-
asta ítalska skipinu hefir verið
sökkt. Eitt þessara fjögurra
skipa, sem nú síðast hefir verið
sökkt, var stórt flutningaskip,
annað var stór skonnorta,
drekkhlaðin vörum, hið þriðja
var lítið flutningaskip og hið
fjórða var tundurduflaslæðari.
í stóra flutningaskipinu varð
sprenging mikil og er talið, að
það hafi verið hlaðið skotfær-
um.
Það var hinn frægi kafbátur
Trident, sem sökkti stóra flutn-
ingaskipinu við strendur Nor-
egs. Hann hefir áður getið sér
mikla frægð m. a. fyrir að hitta
stórt þýzkt beitiskip með tund-
urskeyti og var talið, að það
hefði verið Prinz Eugen.
RÚSSNESKIR fangar, 24 að
tölu, sem Þjóðverjar höfðu
flutt til Noregs, hafa sloppið úr
fangabúðum, þar sem alls voru
um 4500 fangar. Munu flótta-
mennirnir hafa komizt til Sví-
þjóðar.
Reykjavíkurannáll
sýnir revyuna Halló, Ameríka!
í kvöld kl. 8.
og Þrándhelm.
Engir blaðamenn fá enn
að koma til Rostock.
Bretar hafa opnað nýjar víg-
stöðvar, segir sænskt blað.
....♦
O ÓKN BREZKA LOFTHERSINS var í fyrrinótt aðal-
^ lega beint gegn tveim borgum, Köln í Ruhrhéraðinu
og Þrándheimi í Noregi. Aðeins könnunarflugvélar fóru
til Rostock við Eystrasalt, og logaði þar enn í rústum Heín-
kelverksmiðjanna. Engum blaðamönnum hefir enn verið
leyft að skoða borgina, en þeim, sem beðið hafa um það,
hefir verið neitað.
Eitt af sænsku blöðunum segir um loftsókn Breta, að
nú þegar hafi verið myndaðar nýjar vígstöðvar í Vestur-
Evrópu.
Engar nánari fregnir hafa enn borizt af árásunum á
Köln, en það er þriðja stærsta borg Þýzkalahds og ein
mesta iðnaðarborg landsins. Um árásina á Þrándheim er
einnig tíðindalaust, en vitað er, að þar er nú verið að gera
geysimikla flotastöð, og eru þegar mörg af stærstu her-
skipum Þjóðverja komin þangað, t. d. von Tirpatz, systur-
skip Bismarcks. Bretar misstu í árásunum 18 flugvélar.
í gær voru orrustuflugvélar
og sprengjuflugvélar allan dag-
inn á flugi yfir Norður-Frakk-
landi og gerðu þær árásir á
verksmiðjur, járnbrautarstöðv-
ar og flugvelli.
Það er enginn vafi á því, að
Bretar eru með þessum miklu
árásum orrustuflugvéla sinna
að reyna að knýja Þjóðverja til
að flytja sem mest af flugstyrk
þeirra til Vestur-Evrópu. og
þannig létta af Rússum. Einnig
er vel líklegt, að tilgangurinn
sé sá, að lokka orrustuflugvél-
arnar þýzku suður á bóginn til
að minna verði af þeim norðar,
þar sem brezku sprengjuflug-
vélarnar fara yfir á leiðinni til
Norður-Þýzkalands.
Það er oft, að brezku flugvél-
arnar fljúga langar leiðir yfir
franska grundu, jafnvel langt
inn í land, án þess að mæta
þýzkum flugvélum. Venjulega
slær þó einhvers staðar í bar-
daga, en flugvélatjónið er enn
mjög lítið. í gær 'misstu Bretar
t. d. aðeins 6 orrustuflugvélar.
Árásir hafa aftur byrjað á
Malta eftir dálítið hlé. Nú taka
ekki aðeins þýzkar, heldur og
ítalskar flugvélar þátt í árásun-
um. í gær voru skotnar niður 5.
Þjóðverjar hafa „í hefndar
skyni“ gert all harða árás á bæ
einn í Mið-Englandi og varð
þar allmikið tjón og margir fór-
ust.
DE GAULLE hefir birt á-
skorun til Frakka um að
sameinast í þögn kl. 6 1. maí
n.k. Segir í fréttinni, að þetta
sé gert samkvæmt óskum, sem
borizt hafa frá Frakklandi
sjálfu.
Mikil loítárás Japana
ð Lassio í Bnrma.
Ameríkamenn skjóta niðnr 11
flngvélar.
—! F !
JAPANIR sækja nú af mikl-
um ákafa að járnbrautinni,
sem er á milli Lassio og Man-
dalay í Burma. Sækja þeir upp
Sittang-dalinn í þrem deildum
og stefna tvær þeirra að jám-
brautinni, en ein reynir að ein-
angra kínverska hersveit sunn-
ar í dalnum.
Mikil loftárás hefir verið
gerð á Lassio og mun borgin
vera í báli. Ameríksku orrustu-
flugvélamar komu of seint á
vettvang og mættu japönsku
flugvélunum, þegar þær komu
frá árásinni. Lögðu þær þegar
til orrustu og skutu niður 11 af
flugvélum Japana, en misstu
enga sjálfir.
BEA.VERBROOK lávarður,
sem nú er í Bandaríkjun-
um, hefir haldið ræðu, þar sem
hann lagði áherzlu á það, að nú
væri rétti tíminn til að hefja
sókn gegn Þjóðverjum í Vest-
ur-Evrópu.
Hinn frægi sænski iðjuhöldur,
Axel Wenner-Gren, hefir verið
settur á hinn svarta lista Banda-
ríkjastjómar, sem tekur yfir alla
þá erlenda iðjuhölda, sem talið
er að selji nazistum vaming
sinn.