Alþýðublaðið - 29.04.1942, Síða 4

Alþýðublaðið - 29.04.1942, Síða 4
WÞit&UBUkmm Mlðvilcudagnx 29. apríl l$4Z. ÚtfetaaOIt Aíþý#onakkujinn BMstfóri: Stefáa Pjetnrsson Ritstjóm og afgrríðsla í Al- þýðuhúsinu við Hverfxsgötu Símar ritstjórnar: 4901 og 4902 Stmar afgreiðslu: 4900 og «906 Verð í lausasölu 25 aura. Alþýðnprentsniiffian h. f. HverDigmpdiM- Isgii á kjirtoaa- skipoaW verlu? AÐ hefir veriÖ meira en broslegt, að lesa Tímann, blað Framsóknaxflokksins, síð- ustu tvær vikurnar, eða síðan mót fóru að sjást á þeim mögu- leika, að Alþýðuflokkurirm og Sjáifstæðisflökkurinn tækju höndum saman í bili til þess að breyta kjördæmaskipun og kosningafyrirkomulagi landsins á þann hátt, að kjósendur nytu nokkurn vegin jafnréttis til á- hrifa á stjórn landsins og stjórn- málaflokkamir fulltrúatöiu á þingi í samræmi við atkvæða- f jölda við kosningar. f Framsóknarblaðinu hafa allan. þemian tíma skipzt á hin- ar fáránlegustu frýjanir í garð Alþýðuflokksmanna og Sjálf- stæðismanna í sambandi við hin ar fyrirhuguðu breytingar á kjördæmaskipuninni og kosn- ingafyrirkcmulaginu. Einn dag- inn hefir því verið haldið fram að Sjálfstæðisflokkurinn væri að gleypa „tálbeitu“ eða ganga í snöru, sem Alþýðuflokkurinn hefði lagt fyrir hann; hinn dag- inn, að Alþýðuflokkurinn hefði ekkert upp úr því, þótt kjör- dæmaskipunarfrumvarp yrði saraþykkt. Sjálfstæðisflokkur- inn einn myndi bæta við sig þingsætum við breytinguna, og Alþýðuflokkurinn sitja eftir með sárt ennið. Þannig heíir Framsóknarblaóið streitzt við að vekja óvissu og óánægju í röðum þeirra flokka,. sem að k j ördæmaskipunarfrumvapinu verða að standa, ef það á að ná fram að ganga — í von um að geta fyiirfram spillt samvinnu þeirra um málið. * Hér skal nú lítilega tekið til athugunar það af þesstun þvætt- ingi Framsóknarblaðsins, sem aetiað er að verka á Alþýðu- flokksmenn, en það er sú stað- hæfing, að Alþýðuflokkurinn myndi ekkert bera úr býturn við breytinguna a kjördæma- skipuninni og kosningafyrir- komulagínu; það yrði Sjálfstæð isflokkurinn einn, sepi á henni hagnaðist. Slík frýjunarorð til A.lþýöu- flokksmanna eru mjög einkenn- andi fyrir hugsunarhátt Fram- sóknarhöfðingjanna: Ef ein’nver flokkur — í þessu tilfelii Al- þýðuflokkurinn — getur ekki hagnazt á réttlætinu, þá á hann að vera á móti því! Þetta er hugsunarháttur Framsóknar- höfðingjanna. Og þess vegna berjast þeir nú líka eins hálf- sturlaðir menn fyrir viðhaldí rangiætisins á sviði kjördæma- skipunarinnar og kosningafyrir- komulagsins. Því að á því ranglæti byggist valdaaðstaða Framsóknarflokksins að veru- legu leyti. En út í þessa hlið málsins skal ekki farið lengra hér. Það er óþarfi; því að stað- hæfingar Framsóknarblaðsins hafa ekki við nein rök að styðj- ast. Þær eru bláber ósannindi. Þær breytingar, sem gert er ráð fyrir í kjördæmaskipunar- frumvarpi Alþýðuflokksins, eru: 1) að þingmönnum Reykja- vikur verði fjölgað úr 6 upp í 8; 2) að Akranes, Siglufjörður og Norðfjöjður verði gerðir að sérstökum kjördæmum með 1 þingmanni hvert, og 3) að hlut- fallskosningar verði teknar upp í núverandi tvímenningskjör- dærnurn, 6 að tölu. Skal nú at- hugað, hvað áhrif þessar breyt- ingar myndu hafa á fulltrúa- töl-u flokkanna á þingi. Það er nokkum veginn víst, að Sjálfstæðisflokkurinn myndi vinna af Framsókn annað þing- sætið í öllum tvímenningskjör- dæmunum, 6 að tölu. En við það myndi hann hins vegar tapa uppbótarsætum, sem hann hefir orðið, og þau skiptast á Al- þýðuflokkinn, Kommúnistafl. og Bændaflokkinn. Um hitt er ekki hægt að segja með neinni vissu, hvaða flokk- ur eða flokkar myndu vinna hin nýju þingsæti í Reykjavík, Akranesi, Siglufirði og Norð- firði. Líklegt virðist þó, eftir úrslitum bæjarstjórnarkosning- anna í vetur að dæma, að við- bótarsætin tvö í Reykjavík myndu skiptast á milli Alþýðu- flokksins og Kommúnistaflokks- ins. Miklu vafasamara virðist, hver úrslit yrðu á Akranesi, Siglufirði og Norðfirði. En jafn- vel þótt gert væri ráð fyrir þeim möguleika, að Alþýðuflokkur- ynni ekkert þessara kjördæma, myndi hann í staðinn fá hlut- fallslega þeim mun meira af uppbótarsætunum en sá flokk- ur eða þeir flokkar, sem unnið hefðu þessi þrjú nýju kjördæmi. Hér skal ekki farið út í neina nákvæma spádóma um það, hvemig kosningar myndu fara nú, eftir að bnéytingahnar á kjördæmaskipuninni og kosn- ingafyrirkomulaginu væru komnar á. Hér hefir aðeins ver- ið bent á líkur og möguleika um það. En lesendum til meiri glöggvunar skal að endingu sagt hvað útreikningar sýna, að orðið hefðu sem næst úrslit síðustu alþingiskosninga, 1937, ef þessar breytingar hefðu þá verið komnar á, og geta menn þá séð, hve sannar, eða hitt þó heldur staðhæfingar Framsókn- arblaðsins eru um það, að Al- þýðuflokkurinn hafi ekkert við breytingarnar að vinna. Má þó í því sambandi gera ráð fyrir með tilliti til bæjarstjórnar- kosninganna í vetur, að breyt- ingarnar á kjördæmaskipuninni og kosningafyrirkomulaginu myndu tryggja Alþýðuflokkn- um að minnsta kosti eins góða cg sennilega töluvert betri út- komu nú heldur en þær hefðu gert þá. Alþýðuflokkurinn fékk við (Frh. á 6. síðu.) Fylkið llði 1« maif .............. Ávarp stéttarfélaganna til verkalýðsins og allrar alþýðu í Reykjavik. ........ ♦ FYRSTI SUMARDAGUR VERKALVÐSINS, alþjóðlegur samtaka- og baráttudagur alþýðustétt- arinnar í öllum löndum, 1. maí, rennur upp að tveim nóttum liðnum. Tvö ár eru liðin, síðan vinnustéttinni leyfðist að ganga frjálsum skrefum um götur höfuð- borgarinnar og sýna vilja sinn og bera fram kröfur sínar, og á þessum tvcimur árum hafa gerst mikil tíðindi, mikil tíðindi og ill. Landið hefir verið numið herskildi, og valdamenn þjóðarinnar hafa orðið að biðja um hervernd. Þjóðin hefir verið sett til framleiðslu í stríðsþarfir, og landið er að kalla má orðið að útvígi eins mesta stónreldis í heimi. Ógrynni fjármuna hafa streymt inn í landið og þjóðarauðurinn vaxið gífurlega, en ójöfnuðurinn í skiptingu auðæfanna hefir auk- ist að sama skapi. Að vísu hefir vinnustéttin ekki orðið fátækari en hún var, en eignastéttin hefir orðið margfait auðugri og þar með voldugri en áður, svo að stéttamunurinn hefir vaxið stór- kostlega. Þetta eru þó ekki verstu tíðindin, þótt full ill séu. Merki sjást þegar til uppsiglingar hinnar verstu óaldar, ef ekki verður rönd við reist í tíma. Árið 1938 voru sett í landinu lög um stéttarfélög og vinnudeilur. Þrátt fyrir ýmsa galla á. þeirri löggjöf, sem hefði getað staðið til hóta, var með henni viðurkennt jafnrétti stéttanna á þann hátt, að vinnustéttin gæti sjólf kveðið á um lífskjör sín, kaupgjald og vinnuskilyrði, meö frjálsu samkomulagi við eignastéttina, atvinnurekendur. Með þessari löggjöf var í rauninni gerS- ur þjóðfélagssamningur milli stéttanna «m friðsamlega lausn þeirra vandamála, sem óhjákvæmi- lega skapast af hagsmunaandstæðum þessara þjóðfélagsstétta, meðan stéttaskiptingin er ekki afmáð. Nú hefir þessi þjóðfélagssanmingur verið rofinn. Með bráðabirgðalögum ríkisstjómar at- vinnurekenda um gerðardóm í kaupgjalds- og verðlagsmálum frá í vetur sem leið, er tekinn af. vinnustéttinni sá takmarkaði réttur, sem henni hafði verið tryggður með vinnulöggjöfinni, ojg eignastéítinni fenginn nær ótakmarkaður réttur til að ákveða með valdboði, hversu mikið verka- lýðurinn skuli hera úr hýtum fyrir vinnu sína. Jafnrétti þegnanna hefir þar með verið fótun® troðið af valdhöfunum, og er með þessu stofnað til ranglætis, er ekki má þola. Fyrir rúmlega 940 árum sagði vitur maður á alþingi íslendinga, að frásögn Ara fróða, „a® honum þótti þá komið hag manna í ónýtt efni, ef menn skyldu eigi hafa allir ein lög á landi hér^ og taldi fyrir mönnum á marga vega, að það skyldi eigi láta verða, og sagði, að það myndi a& þrí ósætti verða, er vísa von var, að þær barssmíðir gerðist á milli manna, að landið eyddist af. Það mun verða satt, er vér slítum í sundur lögin, að vér mimurn slíta og £riðinn,“ kvað hann, og var það hans ráð, „að allir skyldu ein lög hafa“, allir sama rétt, fullkomið jafnrétti. Þetta er ráðið enn í dag, en enginn tekur það ráð nú, ef þeir, sem ranglætið bitnar á, rísa ekki upp gegn því. Því er það, að verkalýðurinn, öll vinnustéttin, hefir aldrei síðan verkalýðshreyfingin hófst hér á landi, haft jafn knýjandi ástæðu til að rísa upp, kasta verkfærunum og fylkja liði til mót- mæla gegn ranglæti og ójöfnuði og bera fram í órjúfandi fylkingu einingar og samtaka kröfur sínar um jafnrétti fyrir lögunum, jöfnuð í skiptingu verðmætanna og sómasamleg lífskjör fyrir starf sitt og strit. Fyrir því skorum við undirrituð í nafni samtaka okkar á allan verkalýð í hvaða atvinnustétt sem er og alia þá, sem lifa á kaupi fyrir vinnu sína, og ennfremur alla aðra, sem teljast á eims eða annan hátt til vinnustéttarinnar, eða hafa samúð með henni, að ganga í fylkingu okkar 1«. maí næstkomandi, svo að hún verði sem stærst og voldugust. f þeirri fylkingu á stétt okkar að sýna mátt okkar og megin, -— sýna, að við heimtum jafnrétti við hina stétíina, að við munum ekki þola heimi ranglæti og einræði, — sýna, að við erum vinnufólk, en ekki vinnudýr, sem eignamennirnir geti farið með að vild sinni, —: sýna, að við viljum ekki vinna til þess eins a® afla þeim gróða, heldur til þess að efla þjóðina að mætti og menningu, — sýna, að við viljum ekki Iáta þræla okkur út fyrir fjármagnið, heldur viljum við láta fjármagnið vinna stríð lífsins fyrir mannfólkið. Þetta viljum við sýna með fylkingu okkar, — en hvað viljið þið sýna, stéttarsystkini okk- ar, sem hafið ekki hingað til tekið þátt í göngunum með okkur, heldur staðið hjá og horffc á? Athugið það, að á slíkt verður ekki litið, er ekki unnt að líta öðru vísi á nú en svo, a® þið viljið samþykkja ranglætið, — viljið leggja blessun ykkar yfir ójöfnuðinn, — viljið ganga S lið með þeim, sem kúga okkur og ykkur, — viljið auðmýkja ykkur og ganga undir ok ójafnaðar- ins eins og meinlausar skepnur, — viljið heldur daðra við peningana en virða vinnuna. Nei, þvi verður ekki trúað, að nokkur vinnandi manneskja velji sér viíandi vits svo aum- legt hlutskipti nú, þegar svo mikið liggur við. Nú er ekki heldur nein ástæða til að láta ágreim ing í stjórnmálum aftra sér frá þátttöku. í samtökum okkar er fólk úr öllum stjórnmálaflokkum og tekur þátt í fylking stéttarinnar. Mestu varðar, að sem allra flest fólk sé í göngunni, því að við erum sannfærð um, að ef fylkingin aðeins verður nógu fjölmenn, — ef það sýnir sig nógis greinilega, að hin kúgaða stétt okkar er voldug og sterk, — þá verður ■ orðalaust látið undan kröfum okkar. Rísum því upp. Köstum frá okkur verkfærunum og áhyggjum hversdagsstritsins. Gönguna fram og skipum okkur í fylkingu stéttar okkar til vaxandi og hatnandi samtaka og einingar í harátiunni fyrir frelsi, jafnrétti og bræðralagi ailra manna. Reykjavík, 29. apríl 1942. / 1. maí-nefnd Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna: Sæmundur Elías Ólafsson. Hallbjörn Hálldórsson. Karl Karlsson. Sigurður Guðnason. Gíslína Magnúsdóttir. Helgi Guífmundsson. j Björn Bjamason. Halldór Pjetursson. Runólfur Pjetursson. Jóhanna Egilsdóttir. Hólmfríður lngjáldsdóttir. i F. h. Verkamannafélagsins Dagsbrún. *** Sigurður Guðnason. Helgi Guðmundsson. Hannes Stephensen. Emil Tómasson. Eðvarð Sigurðsson. (Frh. á 6. síðu.)

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.