Alþýðublaðið - 06.05.1942, Page 7
Miðvikudagur 6. maí 1&42.
ALÞYÐUBLAÐIÐ
| Bærinn í dag. |
Næturlæknir er Halldór Stef-
ánsson, Ránargötu 12, sími 2234.
Næturvörður er í Reykjavík-
ur-Apóteki.
ÚTVARPIÐ:
12.15 Hádegisútvarp.
15.30 Miðdegisútvarp.
19.00 Þýzkukennsla, 2. fl.
20.00 Fréttir.
20.30 Upplestur: „Frá yztu nesj-
um,“ eftir Gils Guðmunds-
son. (Höf. les).
20.55 Söngvar úr gamanleikjum
með undirleik á gítar. (Nína
Syeinsdóttir).
21.10 Upplestur: Kvæði (Jón
Sigurðsson kennari).
21.25 Hljómplötur: fsl. söngvarar.
21.50 Fréttir. — Dagskrárlok.
Sviptur ökuleyfi.
Nýlega var maður dæmdur fyr-
ir að aka bifreið undir áhrifum
áfengis. Fekk hann tíu daga varð-
hald og var sviptur ökuleyfi í 3
mánuði.
Guiina hUðið
verður sýnt í sextugasta sinn
annað kvöld, og virðist aðsókn
sízt fara minkandi.
Iðnskólanum
var sagt upp s.l. laugardag. í
skólanum voru 310 nemendur og
luku 66 iþeirra burtfararprófi.
Nýr búnaðarráðunautur,
sem fjallar um mjólkurfram-
ieiðslu úti um sveitir landsins, —
hefir verið ráðinn. Er það Sveinn
Tryggvason, mjólkurbússtjóri.
Reykjavíkurannáll h.f.
sýnir revyuna Halló, Ameríka!
í kvöld kl. 8.
Gjafir til Barnavinufélagsins
Sumargjafar.
Leðuriðjan h.f. kr. 50. Kex-
verksmiðjan Esja h.f. kr. 50. —
Hampiðjan h.f. kr. 50. Kassagerð
Reykjavíkur kr. 50. Timburverzl.
Árna Jónsonar kr. 100. Hreinn hf.
kr. 200. Nói h.f. kr. 200. Sirius hf.
kr. 200. Dósaverksmiðjan hf. kr.
100. Tóbakseinkasala rikisins kr.
75. Geir Thorsteinsson kr. 1000.
Hafsteinn Bergþórsson kr. 500.
Eimskipafélag Reykjavikur h.f.
kr. 250. Ásgarður hf. l^r. 100.
Edda h.f., umboðs- og heildverzl.
kr. 500. Gunnl. J. Fossberg kr.
100. H. Benediktsson & Co. kr.
300. Alliance h.f. kr. 100. Djúpa-
yík hf. kr. 1000. liærar þakkir
ísak Jónsson.
Aðalfndnr Eoatt-
spyrnndðmarafél'
agsins.
3 maí var haldinn aðalfund-
. ur Knattspyrnudómara-
télagsins. Gunnar Akselson var
mdurkosinn formaður.
Meðstjórnendur voru kosnir:
ólafur Jónsson, Þorsteinn Ein-
trsson, Þráinn Sigurðsson., Bald-
ir Möller. Til vara: Guðmund-
rr Sigurðsson, Jón Þórðarson.
I dómnefnd (til að reyna nýja
lómara): Guðjón Einarsson, Jón
3ergsteinsson og Friðþjófur
rhorsteinsson.
Samþykkt var áskorun til
iriáttspýrnufáðsins um að hald-
ð verði uppi reglu á kappleikj-
im á gamla íþróttavellinum,
>ar sem 3. og 4. flokksleikirnir
iru háðir.
!„NCer það
svart, maður“!
Frnmsýning á nýrri revýu
á mánudanskveUiiö. vka
ALLT var á ferð og flugi á
leiksviðinu í Iðnó, þegar
tíðindamaður Alþýðublaðsins
kom þangað í gær. Alfreð
Andrésson söng gamanvísur,
með mikilli tilfinningu, en
Gunnar Bjarnason brunaði kóf-
sveittur um leiksviðið nieð unga
blómarós í eftirdragi.
Tíðindamaðurinn snéri sér
að þeim manninum ,sem hon-
um fannst líklegastur til að
vera höfundur nýju revýunn-
ar, en það var Emil Thorodds-
sen, enda gekkst hann við fað-
erninu, þegar hann var kraf-
inn sagna.
Revýan heitir „Nú er það
svart, maður!“ og er í fjórum
þáttum og gerist í Reykjavík
og nágrenni á vorum tímum.
Fremur er þó reynt að sneiða
hjá „ástandinu“, segir Emil,
enda er nóg um þau efni talað
annars staðar. Hins vegar er
drepið á ýmis þau dægurmál,
sem nú eru efst á baugi. í re-
výunni er mikil sönglist, 14
gamansöngvar.
Aðalpersónan er „bjargvætt-
urin,“ þ. e. stórmennið, sem
Rutherford spáði, að koma
mundi fram um þessar mundir.
Gunnar Bjarnason leikur
hann. Dóttur þessa mikilmenn-
is leikur Alda Möller, en konu
hans, Emilía Jónasdóttir, frá
Akureyri. Hún hefir oft leikið
með Leikfélagi Akureyrar, en
leikur í fyrsta sinn hér. Alíreð
Andrésson leikur vísitölufræð-
ing og Áróra Halldórsdóttir,
skáldkonu norðan úr Þingeyj-
arsýslu. Auk þess leika Lárus
Ingólfsson, Jón Aðils, Inga
Laxness, Vilhefm Norðfjörð,
Sigríður Árnadóttir, Inga Þórð-
ardóttir (kona Alíreðs Andrés-
sonar, leikur í fyrsta sinn) og
Hermann Guðmundsson.
Margir sönvarnir eru smelln-
ir. Hér er ein vísa úr vöggu-
ljóði, sem persóna, sem Gróa
heitir, syngur yfir óskabami
sínu:
„Sofðu, litli Nasa-Nasi,
nóttin hnigin er,
Nordal er á næsta grasi
að nappa í skott á þér.
Úti baula Þorgeirsboli
og Blátúns illur Jón,
mýgrútur áf málurum
og Moggans litlu hjón.
Vondir menn og viltir bolsar
vilja flengja þig,
Hjörvar skáld og Halldór
Kiljan
hefna fyrir sig.
Grýlur skulu ei granda þér
hjá Gróu, stúfurinn,
aldrei skal hann Nordal ná
í Nasa minn.“
Frumsýningin verður á
mánudagskvöld.
Fréttir frá Í.S.Í.
N
ÍLEGA hefir l. S. í. stað-
fest met í 4+50 m. boð-
sundi (bringusundi) á 2 mín.
27,7 sek. Sett af Sundfélaginu
Ægi 26./3. 1942.
*
Æfifélagar í. S. í. hafa gerzt:
Þorkell Sigurðsson, vélstjóri, og
frú Anna Þ. Sigurðardóttir,
Reykjavík.
*
Knattleikaráð Reykjavíkirr
hefir verið skipað þessum
mönnum: Gísli Ólafsson, form.,
og meðstjórnendur dr. Halldór
Hansen frá G. í., Haukur Eyj-
ólfsson frá T. og B. R., Georg
Lúðvíksson frá K. R. og Brand-
ur Brynjólfsson frá Víkingi.
Staðfest hefir verið reglugerð
fyrir Meistaramót Í.S.Í. í frjáls-
um íþróttum fyrir fullorðna,
reglugerð fyrir víðavangshlaup
drengja, reglugerð fyrir drengja
mót Ármanns í frjálsum íþrótt-
um, reglugerð fyrir ýmis knatt
spyrnumót og verðlaunagripi
fyrir knattspyrnu. Sú aldurs-
breyting á reglugerð um forseta-
skjöldinn hefir verið gerð, að
keppendur skuli vera 32 ára og
eldri í stað 40 ára og eldri.
Stjórn íþróttasambands ís-
lands hefir staðfest eftirfarandi
aldursákvæði fyrir hvers konar
frjálsa íþróttakeppni drengia.
Leikreglur í. S. í. bls. 50
(Drengjamót) Sérhver íþrótta-
maður innan í. S. í. á rétt á því
að fá að taka þátt í drengjamót
um þannig, að sá drengur, sem
ekki er orðinn 19 ára 31. marz,
má keppa til 1. október sama ár,
enda þótt hann verði 19 ára á
því tímabili. Sama aldursákvæði
gildir frá 1. október til 31. marz
ár hvert.
Þessi knattspyrnumót hafa
verið ákveðin í Reykjavík á
sumrinu:
3. fl. mót hefst 18. maí.
2. fl. mót hefst 26. maí.
1. fl. mót hefst 10. júní.
Reykjavíkurmót (meistara-
flokkur) hefst 6. ágúst.
4. fl. mót hefst 30. ágúst.
Walterskeppnin hefst 6. sept.
BÆNDAGLlMA ÁRMANNS.
Frh. af 2. síðu.
maðurinn með glímuskjálfta
hér í bænum. í þessum glímu-
mannahópi, sem kemur fram í
kvöld, er margt afburða glímu-
manna og glæsilegra kappa og
ef að líkum Iætur, samanber
skjaldargl. Ármanns í vetur,
mun vissara að tryggja sér að-
gang fyrripart dagsins.
Jarðarför föðurbróður míns
HJARTAR BJÖRNSSONAR
frá Skálabrekku fer frain frá dómkirkjuimi fimmtudagiim þama
7. þ. m. kL 1%.
Fyrir hönd vandamamia.
Guðmundur Þorláksson.
mmmm
Jarðarför bróður míns og unnusta
DAGBJARTS JÓNSSONAR kennara
fer fram frá Ðómkirkjunni fimmtudaginn 7. maí kl. 3 e. h.
Kveojuathöfn verður í Gagnfræðaskólanum Flensborg kl.
11 £. h. sama dag.
Bjarni M. Jónsson,
Margrét Jóhannesdóttir.
Jarðarför konunnar minnar, í')
KRISTÍNAR SIGURÐARDÓTTUR
frá Kópsvatni, fer fram frá dómkirkjunni miðvikudaginn 6. n»»{
og hefst með húskveðju frá heimili okkar, Frakkast. 13, kl. 10 f. h.
Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Jarðað verður í Fossvogskirkjugrði.
Jónas Jónsson, frá Grjótheimi.
UNGMENNAEFTIRLITIÐ.
Frh. af 2. síðu.
um verði sem áhrifaríkust svo
að unglingarnir geti notið þar
þroska og öðlazt þar sjálfsvirð-
ingu og starfslöngun, en hvort-
tveggja er meginskilyrði fyrir
því að þetta björgunarstarf geti
heppnazt.
'Unglingadómstóllinn hefir
þegar dæmt í 6 málum og
snerta þau ungar stúlkur á aldr-
inum 14—20 ára. Er þegar farið
að taka stúlkur inn á upptöku-
heimilið. í þessari starfsemi-ríð-
ur ekki minnst á því,* að sam-
vinna sé sem allra bezt milli
unglingaeftirlitsins og foreldra
eða aðstandenda unglinganna.
Og unglingaeftirlitið hefir orð-
ið svo heppið að fá fyrir starfs-
mann Ingimar Jóhannesson,
sem foreldrarnir og unglingarn-
ir geta áreiðanlega treyst fuii-
Óttlnn viö innrás i íst-
raliu Hossar upp é nj.
Sir Thomas Blamey, hinn
þekkti herforingi Ástralíu-
manna, hefir bent á þessa hættu
í ræðu, og sagði hann, að Japan-
ir hefðu aukið mjög aðgerðir
sínar í lofti, og beittu þeir stöð-
ugt fleiri orrustuflugvélum yfir
nýju Guineú og Norður-
Ástralíu.
Forth, hermálaráðherra Ást-
ralíu, hefir haldið ræðu, þar sem
hann ræddi hina miklu hpálp
Bandaríkjamanna til handa
Ástralíu. Sagði hann, að þessi
hjálp væri nú orðin svo mikil.
komlega.
Vandamálin vegna ungra
stúlkna á glapstigum hafa vaxið
gífurlega í seinni tíð og hafa
með hverjum mánuði orðið
meira áhyggjuefni.
Starfsemi sú, sem lýst er iiér
að framan, er fyrsta skrefið í
áttina til þess að leysa úr þessu
j nýja þjóðfélagslega vandamáli.
titsStnmenH
Alplðnblaðsins
át Hm land, eru beðnir
að gera afgreiðslunni
skii, fyrir f yrsta fjórðung
ársins sem allra fyrst.
Helgafell
Undirritaður óskar að ger-
ast áskrifandi að Helgafelli.
Nafn: ...........
Heimili ........
Sendum gegn póstkröfu
um allt land.
Látið
mig pressa fatnað yðar
Tek cinnig í kemiska
hreinsun.
Fatapressun P. W. Bierlng
Smiðjustíg 12. Sími 4713.
Þásanðlr
vita að æfilöng gæfa
fylgir hringunum frá
SIGURÞÓR.