Alþýðublaðið - 14.05.1942, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 14.05.1942, Blaðsíða 2
ALÞYÐUBLA&IÐ Fimmtudagiu' 14. maí 1942. • F orna nu snmar. ÖLUBÚÐUM matvörukaup- manna, kjötkaupmanna og Kron verður lokað kl. 1 e. h. á iaugardaginn. Er það í fyrsta skipti í vor, en annars verður það fyrirkomulag haft í sumar, að loka kl. 1 á laugardögum, en hafa opið til kl. 8 e. h. föstudaga. Ætti fólk því að hugsa um að hafa heimsendingarpantanir sínar tilbúnar á föstudögum framvegis. uiiiræðn um kjilr-- dæmamáltð loklð i gær. .......... En atkvæðagreiðslu um frumvarpið og frávísunartillöguna frestað til föstudags ANNARI UMRÆÐU kjördæmamálsins í neðri deild var lokið seint í gærkveldi, en atkvæðagreiðslu var frestað til föstudags. Kemur þá til atkvæða, auk kjördæmaskipunarfrum- varpsins sjálfs, frávjsunartillaga Framsóknai’flokksins, en verði hún felid, ætla ráðherrar hans að segja af sér þegar í stað. Þar sem hins vegar nú er gengið út frá því, að frá- vísunartillagan verði felld og frumvarpið samþykkt, búast menn almennt við stjórnarskiptum á morgun. Umræðnrmir Verkamoonnm i setuliðsvinnnnni sKipað að 1 ta skrá síq að n|p. Afleiðing af samningunum við stjórnir setuliðanna, sem ríkisstjórnln neitar að gefa upplýsingar um. Allir verkamenn, sem vinna í setuliðs- vinnunni, hafa fengið fyrir- skipun um að láta skrá sig að nýju í Vinnumiðlunarskrif- stofunni. Tilkynningin um þetta barst þeim frá erlend- um yfirmönnum við vinnuna. Skráning þessara verka- manna byrjaði í fyrrakvöld í Vinnumiðlunarskrifstofunni og hélt áfram í gærkveldi. Mættu allmargir verkamenn þegar fyrstu kvöldin. Eins og eðlilegt er, kom þessi tilkynning verka- mönnum algerlega á óvart, því að ekkert hafði heyrzt um þetta áður. Þeir spurðust fyrir um þetta og fengu þau svör, að þessi nýja skráning væri látin fara fram vegna samninga, sem ríkisstjórnin hefði gert við stjómir setuliðanna. Eins og kunnugt er hefir Al- þýðublaðið krafizt þess að samningar þeir, sem ríkisstjórn- in hefir opinberlega skýrt. frá, að hún hefði gert við stjórnir setuliðanna, yrðu birtir. En blaðið hefir ekkert svar fengið við þeirri kröfu frá ríkisstiórn- inni. Þá bar Sigurjón Á. Ólafs- son fram á alþingi fyrir nokkr- um dögum fyrirspurn til ríkis- stjórnarinnar um samningana, en forsætisráðherra, sem var viðstaddur, er fyrirspurnin kom fram, færðist undan að svara, og kvað það vera hlutverk Ól- afs Thors atvinnumálaráðherra. Ólafur Thors hefir hiris vegar engar skýringar gefið, Þessi leynd um samningana er ákaflega undarleg og gefur tilefni til alls konar ágizkana, sem hljóta að gera illt verra. Verkamenn eiga ákaflega erfitt með a.ð . sætta .*sig við það, !að samið sé um þá eins og hvem annan fénað, og þeir óttast líka, að ríkisstjórnin, sem hefir sýnt áþreifanlega að hún metur hagsmuni þeirra einskis, hafi í þessum samningum alveg geng- ið fram hjá öllu, sem má vera þeim til hagræ^is. Það hefir verið látið í veðri vaka, að samningarnír við setu- liðin hafi verið gerðir til þess að reyna að tryggja innlendum atvinnuvegum nauðsynlegan yinnukraft. Meðan ríkisstjórn- in heldur samningunum leynd- um skal ekkert um það sagt. En heyrzt hefir að það sé eitt á- kvæði í Samningunum, að ekki megi ráða pilta undir 18 ára aldri í vinnu hjá setuliðunum. En ótrúlegt er að samningarnir hafi verið gerðir til þess eins, að tryggja íslenzkum atvinnu- vegum vinnukraft þessara ung- lingá. Tveir dímar í gærmoronn. ÍGÆBMORGUN felldi saka- dómari tvo döma, annan yf- ir manninum, sem hafði í frammi svívirðilegt athæfi við stúlkubarn um dagirin, en hinn fyrir smygl. Sá fyrr nefndi fékk fjögurra mánaða fangelsi og var sviptur kosningarétti og kjörgengi. Hefir áður verið sagt frá til- drögum þess máls'hér í blaðinu. Hinn síðar nefndi, sem var stýrimaður á erlendu skipi, fékk 2500 króna sekt fyrir smygl. Hjónaband. í dag verða gefiri sarnan í hjóna- band af síra Gísla Skúlasyni, Eyr- arbakka fröken k>órunn Kjartans- ciótti.r og Lárus Blöndal Guðmunds son, verzlunarstjóri. Heimili þeirra verður að Vífilsgötu 13 hér í bæn- um.' fgSBI*. Umræðurnar um kjördæma- hófust; um klukkan hálf þrjú og stóðu fram undir mið- nætti. þó með kai'fi- og matar- hléi. ðseeir Ásgeirsspn hafði fram sögu fyrir meirihluta stjórnár- skrárnefndar. Skýrði hann frá því. að tillögur hans — hlut- fallskosningar í tvímennings- kjördæmunum, fjölgun um tvo þingmenn í Reykjavík og sér- stakt kjördæmi með einum þingmanni á Siglufirði — væru samkomulagstillögur allra flokka, sem fulltrúa hefðu átt í nefndinni, annarra en Fram- sóknaAlokksins. En með þeim: tillögum væri aðeins haldið á- fram þeirri stefnu sem upp hefði verið tekin, þegar land- kiör var í lög leitt 1915, og hlut- fallskosningar teknar upp í Reykjavík 1920 og uppbótar- sætin stofnuð 1933. Það hefði síðan sýnt sig, að .fjöldi uppbót- arsætanna hefði ekki nægt til að fullnægja jafnrétti kjósend- anna og flokkanna; þess vegna væri nú lagt til að taka upp hlutfallskosningar í tvímenn- ingskjördæmunum. Á þann hátt, yrði það óþarft að fjölga uppÚ bótarsætunum til að ná jöfnuði milli flokkanna og þar með kjósendanna, sem að baki þeim stæðu. Ásgeir sýndi fram á það, að hér væri ekki um neina deilu milli „dreifbýlis“ og „þéttbýl- is“ að ræða, eins og haldið væri fram af Framsóknarflokknum; það þýddi ekki að ætla að telja neinum trú um það, að sveita- menn og Frarilsóknarmenn værn yfirleitt eitt og hið sama. Þá. minntist Ásgeir einnig á þá mótbáru Framsóknarflokks- ins, að kj ördæmabreytingin hefði í för með sér tvennar kosningar. Hann benti í því sambandi á, að ef tillaga Fram- sóknar um skipun milliþinga- nefndar bæði í kjördæmamáiið og sjálfstæðismálið næði fram að ganga, þá myndi það hafa í för með sér ekki aðeins tv'enn- ar, heldur þrennar kosningar, þ. e. a. s. tvennar kosningar auk kosninganna í.vor. En ef fárin yrði sú leið, sem meirihluti ' Frh. á 7. sfðu. Jón Aðils sem Háiþór og Alfred Andrésson sem Kvíðbogi Kvalar. Revyan 1942t Mn er fmð svart maðurt jj ^ AÐ getur verið hættulegt að vera of mikill lista- maður. því að slíkum manrii hættir til. að vinna sér verkið of létt. Þétta á einkum við ljóð- in í nýju revyunni, sem frum- sýnd var á mánudagskvöld. Að vísu má segja, að þau hafi ekki verið sérlega burðug í révyum undanfarinna ára, en nú er það svart, maður. Annars eru nógu smellnir „brandarar11 í revyunni og nær hún þeim tilgangi jsínum að vekja hlátur, áhoríenda, en þráð urinri hinsvegar svo fími að nálgast bláþráð. Of margir daufir kaflar voru í sýningunni, t. d. lok fyrsta þáttar, en slíkt má „leika af“ og verður vafalaust gert, enda er leikstjórinn þaulvanur og góður leikhússmaður, Indriði Waage. Revyan er í fjórum sjatter- ingum. Fyrsti þáttur fer fram í fornsölunni „Kem strax“, ann~ ar þáttur fer fram á Lækjar- torgi, þriðji á Hótel Gullna Portinu og fjórði í Kronhúsa- nýlendunni. Leiktjöldin, sem voru ágæt, hefir Lárus Ingólfs- son málað og lögin, sem voru. eirjöld og auðlæiáð, en ekki nógu fjörug, hefir höfundur- revyunnar soðið upp úr ýmsum lögum. Aðalskopið hvíldi, eins og oft. áður, á Alfred Andréssyni, enda. veit ég ekki hvernig færi um. kímnilistina í þessum bæ, ef hans nyti ekki við. Lárus Ingólfsson er gerfiförull og góð- ur skopleikári. Jón Aðils og Gunnar Bjarnason eru og lið- tækir skopleikarar. Af kvenleikendum vöktui mesta athygli Emilía Jónasdóttir Aurora Halldórsdóttir og Inga Laxness. Emilía er vön Ieik~ j kona, enda þótt hún hafi ekki.. Frh. á 7. síðu. láíiðahðld Norðmanna 17. lai Skrúðganga norskra barna frá sendi- herrabústaðnuni til Alþingishússíns. Þjóðhátiðardagur NORÐMANNA er eins ög kunxmgt er 17. maí — á sunnudaginn kemur. Um aU- an heim, þar sem Norðmenn eru, munu þeir halda þennan dag hátíðlegan. í Noregi mun þó elckert verða af hátíða- höldum. Þar eru Þjóðverjar húebændur og banna þjóð- inni að halda þjóðhátíðardag sinn hátíðlegan og sýna norska fánann opinberlega. Hins vegar mun dagsins verða minnzt á norskum heimiium heitar og betur en nokkru sinni áður í sögu Nor- egs, og þennan dag munu Norðrnenn heima fyrir herða vilja sinn og þrek til úrslita- baráttúnrla'r'við hina erlendu kúgara. Hér á íslandi verður dagur- inn hátíðisdagur, ekki aðeins meðal þeirra Norðmanna. sem hér dveljast, heldur og meðal ís- lenzku þjóðarinnar. Verður síð- ar skýrt frá fyrirkomulagi há- tíðahaldanna af hálfu okkar ís- lendinga, en það er Norræna fé- lagið, sem gengst fyrir þeim. Hins vegar hefir blaðafulltrúi norsku stjórnarinnar hér, Sig- vard Andreas Friid, skýrt Al- þýðublaðinu frá hátíðahöldum. þeim, sem Norðmenn gangast; fyrir hér í Reykjavík á þjóð- hátíðardegi þeirra. Aðalatriði hátíðahaldanna verða eins og hér segir: Klukkan 11 um morguniim. verður 'sýnd norska kvikmynd- in í enska kvikmyndahúsinu á horni Skúlagötu og Barónsstígs., Kvikmyndin sýnir meðal ann- ars þáttöku Norðmanna í styrj- öldinni, starf sjóliðsins, her- sveitir Norðmanna í Bretlanali og flugæfingaskólann í Toronta- í Kanadá'. Klpkkan, 1.2,30 verður boð* ' *' ' 1 Frh. á 7; síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.