Alþýðublaðið - 14.05.1942, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 14.05.1942, Qupperneq 7
FiwmittHlagúr 14. maí 1942. ;Bærinn í dag.j Helgidagslæknir er Sveinn Pét- ursson, Garðastræti 34, sími 5511. Næturlæknir er Halldór Stef- ánsson, Ránargötu 12, sími 2234, Næturvörður er í Iðunnarapó- teki. ÚTVARPIÐ: 10 Morguntónleikar (plötur): atam eftir Beetlioven. 1215—13 Há- degisútvarp. 14 Messa í Fríkirkj- Sónata í Es-dúr og Kreutzer-són- unni (síra Árni Sigurðsson). — Sálmar: 4S3, 652, 184, 186, 638. 1530—16 Miðdegistónleikar (plöt- ur): Ferðasöngvar. 19,25 Hljóm- plötur: Lög eftir Handel. 19,40 Lesin dagskrá næstu viku. 20 Fréttir. 20,30 Erindi: Mimiisverð tíðindi (Jón Magnússon fil. kand.). 20,50 Hljómplötur: Cellólög. 21 Upplestur: Úr kvæðum Jóns Páls- sonar frá Hlíð (Guðjón Halldórs- son). 21,10 Einsöngur (Sigfús Halldórsson): Tvö lög eftir Jón Pálsson. 21,15 Hljómplötur: a) Passacaglia í c-moll eftir Bach. b) 2130 Andleg tónlist. 21,50 Fréttir. Dagskrárlok. FÖSTUDAGUR: Næturlæknir er Axel Blöndal, Eiríksgötu 31, sími 3951. Næturvörður er í Iðunnarapó- teki. ÚTVARPIÐ: 12,15—13 Hádegisútvarp. 15,30 —16 Miðdegisútvarp. 19,25 Þing- fréttir. 20 Fréttir. 20,30 Erindi: Siðskiptamenn og trúarstyrjaldir, XV: Niðurlagsorð (Sverrir Krist- jánsson sagnfræðingur). 21 Strok- kvartett útvarpsins: Næturljóð eftir Mozart. 21,1.5 Erindi: Um handíðaskólann (Lúðvíg Guð- mundsson skólastjóri). 21,40 Hljómplötur: íslenzk lög. 21,50 Fréttir. MESSUR: Fríkirkjan í Reykjavik. Messað kl. 2. Síra Árni Sigurðsson. Frjálslyndi söfnuðurinn. Messa kl. 5. Síra Jón Auðuns. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Kvöld- söngur með altarisgöngu kl. 8%. Síra Jón Auðuns. Messur í dómkirkjunni: K1 11 síra Bjarni Jónsson. Kl. 5 síra Friðrik Hallgrímsson. Lágafellskirkj a. Messað kl. 12,30 síra Hálfdan Helgason. 10 daga varðhald. Nýlega kvað sakadómari upp fjóra dóma yfir mönnum, sem höfðu ekið bíl undir áhrifum á- fengis. Einn þeirra fékk 10 daga varðhald og 1 árs ökuleyfismissi, annar 10 daga varðhald og 3 mán- aða ökuleyfismissi og tveir 10 daga varðhald hvor um sig. Leikfélagið sýnir ,,Gullna hliðið11 í kvöld klukkan 8. Revyan Halló, Ameríka! verður sýnd í dag klukkan 3. Leiðrétting. í Alþýðublaðinu 22. apríl s.l. er skýrt rangt frá, þar sem sýnd er mynd af gö'tu á Akureyri, sem Tryggvi Jónatansson bygginga- meistari hefir byggt og ráðið gerð húsarpia. í fyrstu reisti Tryggvi þá'rná tvö hús' fyrir eigm réikning __ sem sýnishorn af haganlega gerðum einbýlishúsum. Húsin þóttu svo vel gerð og haganlega innréttuð, að þau seldust strax og aðrir, sem byggðu þarna síðar. létu Tryggva byggja fyrir sig. Meðal annarra voru þarna nokkr- ir, sem eru í samvinnubyggingar- félaginu, sem starfar á Akureyri. Mun þetta hafa villt þann, sem ritaði í Alþýðubl. Verkamannabú- staðimir, sem Erl. Friðjóhsson sér um, eru byggðir við Eyrarveg. Þar ætlar bæjarstjóam pláss fyrir 18 hús. Hafa 3 verið byggð þar, og ætlunin að‘ byggja önnur 3 í sumar. Með þökk fyrir birtinguna. H. F. ALÞYÐUBLAÐIÐ ðnnnr nmræða bjðrdæmamðlsins. iFrh. af 2. síðu.) stjórnai'skrárnefridar gerði ráð fyrir, að • afgréiða kjördæma- málið á þessu þirigi, og sjálf- stæðismálið ekki fyrr en á næsta þingi, eftir að kjördæma- breytingin hefði /engið fullnað- arsamþykkt, yrðu kosningarnar ekki nema tvennar; því að vegna sjálfstæðismálsins þyrfti þá engar sérstakar kosningar; þær féllu saman við síðari kosnirí'garnar végna kjördæma- breytingarinnar. Lauk Ásgeir máli sínu með því að segja, að einar aukakosn- ingar gætu sannarlega ekki tal- izt of dýrar til þess að jafnrétt- ið næði fram að ganga og þing- ið gæti orðið rétt spegilmynd af þ j óðarvil janum. Sveinbjörn Högnason hafði framsögu fyrir minnihluta stjórnarskrárnefndar, Fram- sóknarfulltrúunum, og voru ,,rök“ hans öll þau sömu og undanfarið í Tímanum: Það væri verið að gera tvímennings- kjördæmin áhrifalaus á þingi með hlutfallskósningunum; það væri ábyrgðarleysi, að koma með slíkt mál á öðrum eins al- vörutímum og nú eru og annað þess háttar. Sagði hann, að ekki væru færð nein rök fyrir kjör- dæmabreytingunni í nefndar- áliti meirihlutans önnur en þau að jafna ætti kosningarréttinn og taldi það harla veigalitla á- stæðu. Þá andmælti hann og þeirri fjölgun upp í 8 þing- menn, sem fyrirhuguð er í Reykjavík, og kom í því sam- bandi með þann samanburð, að Oslo hefði ekki nema 7 þing- menn af 150 í Noregi. Ásgeir Ásgeirsson sagði í síðari ræðu, að meirihluti stjórnarskrárnefndar teldi það ærin rök fyrir kjördæmabreyt- ingunni, að jafna þyrfti kosn- ingarréttinn. í þessu máli þyrfti engin rök önnur en þau, að kjósendurnir gerðu kröfu til að hafa jafnan rétt í landinu. Hann sýndi fram á að samanburður Sveinbjarnar milli Reykjavík- ur og Oslo væri alveg mis- heppnaður frá sjónarmiði Fram sóknar; því að Reykjavík, sem hefði 1/3 af öllum íbúum ís- lands, ætti að hafa svo að segja nákvæmlega 8 þingmenn af 52, til þess að búa við sama rétt og Oslo með 1/10 af íbúum Nor- egs og 7 þingmenn af 150. Loks vítti Ásgeir harðlega þær tilraunir, sem verið væri að gera til að þyrla upp mold- ryki um „alvöru tímanna“ og amiað þess háttar í sambandi við kjördæmamálið. Það væri aðeins gert til að reyna að vísa á bug máli, sem einum flokki, Framsóknarflokknum, þætti ó- þægile'gt fyrir sig. Þingmenn Framsóknar þættust nógu ör- uggir til þess að sitja á þingi og gefa út lög, og það væri því einkennilegt, ef kjósendum stæði þeim mun meiri hætta af því, að ganga að kjörborðinu, að kosningar mættu ekki fara fram. En mergurinn málsins væri sá, að Framsóknarflokkur- inn vildi aðeins ekki láta af- greiða kjördæmamálið og kjósa um það. Hann, sem einu sinni hefði barizt á móti sérréttind- um og viljað vera jöfnunar- flokkur, héldi nú af meiri harð- drægni í eigin sérréttindi en nokkur annar flokkur hefði gert. Framsóknarflokkurinn hefði í kjördæmamálinu gerzt mesti íhaldsflokkurinn á land- inu. Margir fleiri þingmenn tóku þátt í umræðunum. þar á meðal Sigurður Kristjánsson og Einar Olgeirsson, sem báðir töluðu með kjördæmabreytingunni, og Bergur Jónsson og Steingrím- ur Steinþórsson, sem töluðu á móti hsnni. GnðmnntiBrEinarsson opnar listaverka- sýningu. 30 málverk og 11 hðggmyadlr. UÐMUNDUR EINARSSON listmálari og myndhöggv- ari frá Miðdal opnar í dag sýn- ingu á 30 málverkum og 11 höggmyndum í vinnustofu sinni á Skólavörðustíg 43. Hefir hann breytt vinnustofu sinni mjög, svo að hún er orðin góður sýningarsalur. Alþýðublaðið haf ði samtal við listamanninn í gærkveldi og spurði hann um sýninguna. Hann sagði: „Það er ekki margt um sýn- inguna að segja. Af þessum 30 málverkum mínum eru 23 ný, og hefi ég gert þau á síðustu 2 árum. Hefi ég þar aðallega valið mér viðfangsefni úr ríki náttúr- unnar, sýni fugla og dýralíf til dæmis. Þá lýsa nokkur málverk athafnalifi þjóðarinnar.“ Sýning Guðmundar verður opin daglega klukkan 10—22. H an n y r ðas ý n in gi n anum. Kvennaskól- í gær vax sýning á hannyrðum Kvennaskólastúlkna. Ber sýningin vott um frábærlega gott handbragð og smekk. Er þar margt að sjá fyr- ir þá sem áhuga hafa fyrir fögrum heimilisiðnaði, og ættu konur bæj- arins sérstaklega að sækja sýning- una. Hún er enn opin í dag klukk- an 1—10. Verkamönnum þeim sem unnu með mér við Hafnargerðina í Hafnarfirði þakka ég auðsýnda samúð og gjöf er þeir færðu mér í veikindum mínum á síðastliðnum vetri.. Hafnarfirði 1. maí 1942. Jón Bergþórsson. r Jarðarför konu minnar og móður okkar, ALICE BERGSON, fer fram frá dóxnkirkjunni föstudaginn 15. þ. m. og hefst mefi húskveðju að heimili okkar, Suðurgötu 39, kL 1 síðdegis. Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað. Kristján Bergsson. Ragna Kristjánsdóttir. Anna Kristjánsdóttir. Maðurinn minn SIGURGEIR FRIÐRIKSSON bókavörður verður jarðsunginn frá Dómkirkjimni föstudaginn 15. þessa mán- aðar klukkan 4 e. h. Malin Á. Hjartardóttir. Jarðarför mannsins míns, og föður JÓNS GÍSLASONAR, múrara fer fram frá dómkirjiuini laugardaginn 16. þ. m. og hefst með húskveðju að heimili okkar, Barónsstíg 22, kl. 1,30 síðdegis. Jarðað verður í gamla kirkjugarðinum. Marta S. Jónsdóttir. Hjörtur F. Jónsson. Lokað vepa Jarðarfarar frá ki. 3-6 föstadagiim 1S. maí. Raftækjawerzlun Eiríks HJartarsonar. Skrifstofum vorum verdnp lokað föstsidagiieia 15. p. m. vegna jaröarfarar. H. F. Svið! Hrfimfaxi 17. MAI Frh. af 2. síðu. fyrir norsk börn í bústað norska sendiherrans. Klukkan 1,15 ganga börnin í skrúðgöngu frá sendiherrabústaðnum til Al- þingishússins, en af svölum þess talar biskup íslands, herra Sig- urgeir Sigurðsson. En íslenzk lúðrasveit leikur norsk þjóðlög. Börnin, sem taka þátt í skrúð- göngunni, . bera litla norska ,fána. Klukkan 2 verður norsk j guðsþjónusta í dómkirkjunni og prédikar síra Kruse. Klukkan 3,15 efnir Norræna félagið til kvikmyndasýningar í Iðnó fyrir norska hermenn, sjómenn o. s. frv. Klukkan 4 tekur norski sendiherrann á móti gestum. Klukkan 8,30 verður almenn skemmtun í hinu nýja sairir, komuhúsi Norðmanna á Hverf- isgötu 115, annarri hæð.. NÚ ER ÞAÐ SVART, MAÐUR Frh. af 2. síðu. leikið oft hér, og virðist svo sem Leikfélag Reykjavíkur ætti að geta notfært sér hæfileika henn- ar. Aurora Halldórsdóttir var skemmtileg á sviðiriu, enda þótt sá, er þetta ritar, viti því miður ekki, hvernig huldukon- ur eiga að líta út. Alda Möller er viðkunnanleg á leiksviði, en nokkuð smámælt. Minni hlut- verk höfðu Wilhehn Norðfjörð, Helga Kalman, ' Inga Þórðar- dóttir, Sigríður Árnadóttir, Hermann Guðmundsson, Gunn- ar Stefánsson og Jón Eyjólfsson. Revyunni var ágætlega tekið og voru leikendurnir kallaðir fram að lokum hvað eftir ann- að, svo og höfundurinn, og gekkst Emil Thoroddsen við faðerninu, þó að því er virtist með ofurlitlum semingi. Allir leikendur fengu blóm, og að því er virtist, fremur eftir stærð en framgöngu, og fékk Jón Eyjólfs son minnsta blómvöndinn. Karl ísfeld.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.