Alþýðublaðið - 16.05.1942, Side 4

Alþýðublaðið - 16.05.1942, Side 4
* -■**?&?* AiMWwum lauganiasar Ift. maí 1942. )[U|>^ dttbladid Úlgeíandl: AIþý3uílokkurinn Kitstjóri: Stcfán Pjetnrsson Eitstjórn og afgreiðsla 1 Al- þýðuhúsinu við Hverfisgötu Síraar ritstjórnar: 4901 og 4902 Símar afgreiðslu: 4900 og 4906 Verð í lausasðlu 25 aura. Alþýðuprenísmiðjan h. f. jSljóroarskiftin ÞAÐ er nú skeð, sem allir haía sxðustu dagana vitað, að í aðsigi væri: Stjórn Her- manns Jónassonar biðst lausnar í dag vegna kjördæmabreyting- arinnar, sem nú er sýnt, að nær fram að ganga á þessu þingi, og Sjálfstæðisflokkurinn myndar nýja stjóm undir forsæti Ólafs Thors, skipaða Sjálfstæðis- mönnum einum. Mun hún sennilega verða fullmynduð eirmig í dag og gera alþingi eftir hádegið grein fyrir ætlunar- verki sínu. Með þessum yiðhurðum er ekki aðeins samstjórn Fram- sóknarflokksins og Sjálfstæðis- flokksins, sem mynduð var til þess að framkvæma kúgunar- lögin gegn launastéttunum í vet ur, búin að vera; ekki að eins leifar þjóðstjómarinnar roknar út í veður og vind, ekki aðeins átta ára forsætisráðherraferill Hermanns Jónassonar á enda. Nei, með þessum viðburðum, kjördæmabreytingunni oglausn- arbeiðni Hermanns Jónassonar, er heilt tímabil í stjómmálasögu okkai' farið veg aUrar veraldar, Framsóknartímabilið, sem byrj- aði svo efnilega árið 1927, og endar nú svo ömurlega árið 1942.. í>egar Hermann Jónasson varð forsætisráðherra í samstjórn Framsóknarflokksins og Alþýðu flokksins árið 1934, gerðu hinar vinnandi stéttir og umhótamenn landsins bæði til sjávar og sveita sér enn vonir um áframhaldandi skipulagsbreytingar í lýðræðis og jafnaðarátt. Og þær vonir virtust í fyrstu ekki ætla að bregðast. En það leið ekki á löngu þar til umbótaviljinn fór að dofna og vinstri stefnan að verða reikul hjá Framsóknar- flokknum. Vaxandi afturhald og einræðisbrölt úti í heimi hefir vafalaust flýtt fyrir' því. Engu að síður reyndi Alþýðuflokkur- inn árið 1939 enn á ný að tryggja áframhaldandi ximbóta- stjóm í landinu í stjómarsam- vinnu við Framsóknarflokkinn, þó að S j álf stæðisf lokkurinn væri þá einnig tekinn inn í stjórnina, vegna óvenjulegra efnahagslegra erfiðleika, sem að •þjóðinni steðjuðu. Það vantaði heldur ekki, að Hermann Jónas- son lofaði, þegar þjóðstjómin var mynduð, að eitt skyldi látið yfir aila ganga og engri stétt látið haldast uppi, að ota fram sínum tota á annarra kostnað. Og Alþýðuflokkurinn lét ekki sitt eftir liggja, til þess að stjómin stæði við þau loforð. En stríðsgróðahugurinn varð ekki aðeins hjá Sjálfstæðis- flokknum, heldur og hjá Fram- sóknarflokknum öUum loforð- um yfirsterkari. Vinstri stefn- uimi, sem byggzt hafði á sam- vinnu FramsóknarHokksins við Alþýðuflokkinn, var fórnað til fuUs, og samstjórn mynduð við íhaldsöflin í Sjálfstæðisflokkn- um í berhöggi við launastéttir og umbótamenn landsins í öllum flokkum. Þessi breyting Fram- sóknarflokksins úr frjálslynd- um mnbótaflokki í einræðistrú- aðan íhaldsflokk var fullkomn- uð með kúgunarlögunum gegn launastéttxmum í vetur. En það má segja í dag, að skamma stund verður hönd höggi fegin. Með þeim lögum gróf Framsóknarflokkurinn undir forustu Hermanns Jónas- sonar sér þá gröf, sem hann er nú faUinn í, aðeins fjórum mán- uðum síðar. * Einhver kann að segja, að Al- þýðuflokkurinn hafi ekki yfir miklu að fagna, þegar Sjálfstæð- isflokkurinn einn er að mynda stjóm í staðinn undir forystu Ólafs Thors. En við því er það að segja, að enda þótt.Sjálfstæð- isflokksstjórn sé einskis trausts verð af umbótamönnum og launastéttum Xandsins, er öllum ljóst, að sú stjóm, sem Sjálf- stæðisflokkurinn er nú að mynda, er neydd til þess að beita sér fyrir þýðingarmikiUi umbót á stjórnarfari landsins í lýðræðisátt, kjördæmabreyting- irnni, sem borin er fram af Al- þýðuflokknum, og hefir ekkert bolmagn til þess að gera neinar sérhagsmunakröfur íhaldsins gildandi — eins og hin sameig- inlega stjórn Framsóknarflokks- ins og Sjálfstæðisflokksins — þann stutta tíma, sem henni em tryggðir lífdagar. Alþýðuflokkurinn er ekki á nokkurn hátt bundinn hinni nýju Sjálfstæðisflokksstjórn. Hann mun að vísu ekki styðja að f aHi hennar þann stutta tíma, sem tilvera hennar er nauðsyn- leg til þess að tryggja fullnaðar- samþykkt kjördæmabreytingar- innar. En stefna hans ef og verður alltaf sú sama: að vinna að velferð hinna vinnandi stétta með auknu jafnrétti og lýðræði. Og til þess hefir hann betri að- Stöðu en nokkru sinni áður eftir að kjördæmabreytingin er kom- in til framkvæmda og jafnrétti kjósendanna tryggt. Ávarp vepna Nor~ epssðfinnnarinnar DAGLEGA berast nú hörmuleg tíðindi af frændþjóð vorri Norðmönnum. Vér ísléndingar erum fámennir og lítils- megandi, stöndum álengdar og getum lítt að gert annað en sýnt samúð vora á einn eða annan hátt. Á sama tíma sem Norðmenn hafa beðið ómetanlegt tjón, höfum vér íslendingar auðgazt af veraldlegum auð meira en dærni eru til á jafnskömmum tíma. Oss væri því ekki vansalaust að sitja hér með digra fjársjóði, sem meðal annars hafa til orðið vegna þeirra hörmunga, sem dynja nú yfir þjóðirnar, án þess að láta eyri af hendi rákna til hjálp- ar nauðstaddri bræðraþjóð. Þess vegna teljum vér, sem undir þetta ávarp ritum, að vér getum. á engan hátt betur, svo sem högum vorum er háttað, synt samhug vom með þessari frændþjóð en með því að safna nú álitlegri fjántpp- hæð, sem varið yrði henni til hjálpar að striðinu loknu eða þegar. hún hefir endurheimt land sitt og frelsi. Með slíkri fjársöfnun styðjum vér ekki aðeins nauðstadda þjóð, héldur björgum vér einnig, á þessu sviði, heiðri vomm sem frjáls- borin þjóð. Sameinumst því allir íslendingar um ^ að sýna Norð- mönnum óskipta samúð og veitum þeim þá hjálp, er vér megum. Sendið gjafir yðar til Norræna félagsins, Ásvallagötu 58, Rauða Kross íslands, Hafnarstr. 5, Norska félagsins s. st. eða annarra stofnana á landinu, er auglýst verður að taki á móti gjöfum til Noregssöfnunarinnar. Reykjavík, 16. maí 1942. Steíán Jóh. Stefánsson, form. Norræna félagsins. Sigurður Sigurðsson, form. Rauða Kross íslands. Árni Pálsson, prófessor. Alexander Jóhannesson, rektor Háskóla íslands. Sigurður Thorlacius, form. Samib. ísl. bamakennara Helgi H. Eiríksson, form. landssamb. iðnaðarmanna. Kjartan Thors, form. Fél. ísL botnv.skipaeig. Pálmi Hannesson, rektor Menntaskólans í Rvík. Sigurgeir Sigursson biskup. Einar Árnason, form. Samb. ísl. samvinnufél. Ásmxmdur Guðmxmdsson, form. Prestafélags íslands. Daníel Ágústínusson, ritari Ungmennafél. íslands Ben. G. Waage, kaupm., forseti í. S. í. Kristján Guðlaugsson, ritstj. Vísis. Skúli Skúlason, ritstj. Fálkans. Guðl. RósinkraRz, ' ritari Norræna félagsins, Harald Faaberg, form. Nordmannsiaget. Jónas Jónsson, alþingism. Sigurjón Á. Ólafsson, forseti Alþýðxisamb. íslands. Hallgrímur Benediktsson, form. Verzlunarráðs íslands. Árni G. Eylands, form. Norræna búfrfél. N.J.F. Guðmundur Ásbjörnsson, forseti bæjarstjómar Rvíkur. Ragnbildur Pétursdóttir, form. Kvenfélagasamb. íslands. Kristinn Stefánsson, stórtemplar. Bjarni Ásgeirsson, form. Búnaðarfél. íslands. Valtýr Stefánsson, ritstj. Morgunblaðsins. Jón Eyþórsson, form. útvarpsráðs. Stefán Pétursson, ritstj. Alþýðublaðsms. Jón H. Guðmundsson, ritstj. Vikunnr. Jón Magnússon, fréttastj. Útvarpsins. Nofuð hásgðgin mmí mm ávalt iisðsta verHI Kem strax FornversluailEi fireftisgSfa 4S Ragnheiður Jónsdóttix- Bagnheiðnr Jðflsdólt ir ráðin forstððn- kona IKvennaskðte í Beykjavik. P ORSTÖÐUKONÁ A Kvennaskóians íRéykja vik er nú ráðin Ragnheiður Jónsdóttir, sem í moirg ár hefir verið aðalkennari skól- ans. Síðasliðið haust, er skólinn hóf st.^rf sitt, gat þavemndi forstöðuk. Ingibjörg H, Bjarna- son ekki gegnt starfinu, sökutn veikinda, en Ragnh. Jónsdóttir tók þá að sér stjom skólans. Ingibjörg H. Bjamason var for- síöðukona skóláns í 35 ár, en hún andaðist 3t). október síðast- liðinn. Ragnheiður Jónsdóttir er ættuð frá Vestri-Garðsauka í Hvols- breppi. Foreldrar herniar voru Jón bóndi Ámasoxx og Sigríður Skúladóttir frá Móheiðarhvoli. Ragnheiðiir útskrifaðist úr Kvennaskólanum og stundaði síðan nám í Danmörku og Sví- þjóð. Hún hefir verið kennari við Kvennaskólann síðan 1913 og verið hægri hönd forstöðu- konunnar síðustu árin, í Kvennaskóianum eru nú 124 námsmeyjar í bekkjum, og munu 15 útskrifast þaðan í vor. Næsta ár er áætlað að auka skólann, og þannig hafa 6 starf- andi deildir, og munu þá verða 150—150 námsmeyjar í skólan- um og er hann þegar fullskip- aður. Sú breyting verður nú. að húsmæðradeild skólans, sem starfað hefir í 31 ár, mun leggj- ast niður, enda ekki sama þörf nú og áður, síðan hinn nýi Hús- mæðraskóli Reykjavíkur er kom inn upp. Kvennaskólanum verður sagt upp í dag kl. 2. Frikirkjan í íteykjavík. Messa á morgun kl. 2, síra Á. S Unglíngafélagsfunöur á morguxi kl. 4 í baðstoíu i.ðnaðarmanna, Fjölbreytt efni. Fermmgardrengii fríkirkjusafnaðarins eru v -»nn- Ir. Aðalsafnaðaríundur Hallgrímsprestakalls verðux haldinn laugardaginn 16. maí n.k, kl. 8% síðdegis í húsi K. F. U. M. og K. við Amtmannsstíg. — Fund- arefni: l. Tekin ákvörðun uin upp- haeð kirkjugjalda. 2. Kosnir tveii varamenn í sóknamefnd. 3. önnui mál. — Sóknamefndin. m

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.