Alþýðublaðið - 30.05.1942, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 30.05.1942, Blaðsíða 7
/v.'j-: ,.Ofc Lanu^&rittgttr 30* «&®í 1642. AIJ>YOUBLAÐÍÐ 57 s. Gullbrúðkaup í dag. í dag eiga gullbrúðkaup hjónin Herdís Símonardóttir og Guðjón Þórðarson verkamaður, Vegamótastíg 7, en þar hafa þau hjónin átt heima í síðast liðin 37 ár. Guðjón er nú nálægt níræðu, en Herdís tæpíega áttræð. Hann er, nú orðinn blindur. I>au hjón- in hafa alltaf notið mikilla vinsælda. Hann hefir unnið störf sín af framúrskarandi frúmennsku og dugnaði, og Herdís er fyrir löngu kunn sem einn af 'brautryðjendum aiþýöusamtakanna, sér- staklega meðal verkakvenna í Verkakvennafélaginu Framsókn. í þvi félagi hefir hún starfað af miklum dugnaði í fjöldamörg ár. Hefir hún gegnt þar mörgum trúnaðarstörfum, meðal annars átt sæti í fulitrúaráði verkalýðsfélaganna og setið á Alþýðusam- bandsþingum sem fulltrúi verkakvenna. Vinir og kunningjar þessara öldnu brúðhjóna óska þeim hjartanlega til hamingju í dag. JÞað tilkynnist hér með, ,að faðir mimi, ; íit GÍSU ÞÓHÐAESON, andaðist aðfaranótt 29. maí að heimili dóttur sinnar, Laugavegi 38 3.. v. Friðfinnur Gíslason. BI W li W ! #1 if iim 5 manna straumlínubifreið til sölu og gjýnis á Háteigsvegi 13 frá kl. 1 í dag. Tilkynning frá Viðskiftanefnd. Samkomulag hefir nú náðst uifi sölu á helm- ingnum af meðalalýsisframleiðslu þessa árs. Verðið er frítt um borð fyrir ókaldhreinsað 1. fl. meðalalýsi $ 575—730 eftir gæðum. Samningar verða væntanlega undirskrifaðir næstu daga og þá byrjað að afskipa þeim hluta lýsisins, sem búið er að selja. VIÐSKIPTANEFNDIN Unglingar geta fengið atvinnu við að bera Alþýðublaðið út til kaupenda. Talið við afgreiðsluna sem fyrst. ? Baerinn í dag. \ Kæturlæknir er Bjami Jónsson, Vesturgötu 18, sími 2474. . Kætiirvörður. ér: í ; Laúgavegs-: apóteki. ÚTVABPIÐ: 12,15—13,00 Hádegisútvarp. 15,30—16,00 Miðdegisútvarp 19,25t Úingfréttir. 20,00 EréttirJ: V: 20,30 Kvöld Stúdentafélags Rvík- ur, ÍH: á) Útvarpshljóm- sveitin leikur. b) Ólafur Jó- ; hannesson lögfr.: Ræða. c) , Andrés Björníson, stud. mag.: Upplestur. d) Einar ÓL Sveirisson dr. phil.: Ræða. e) Útvarpshljómsveit in leikur. f) Jón Thoraren- sen prestur: Upplestur. g) fræðingur: Ræða. h) Tómas Klemenz Tryggvason hag- Guðmupdsson skáld: Upp- lestur. i) Guðmundur Finn- bogason landsbókav.: Ræða. 22,00 Fréttir. 22,10 Danslög. 24,00 Dagskrárlok. Hatlgrimsprestákali. Messa á xriorgun kl. 2 e. h. í bíó- sal Austurbæjarskólans. Síra Jak- ob Jónsson. Rarnakörinn „Sólskmsdeildin**, sem ætlaði að Igegja af stað í söngför um Nörður- og Austurland í dag, hefir orðið að fresta för sinni í eina viku vegna þess að i snjóað hefir á veginn frá Akureyri til Austurlands. Frjálslyndi söfnuðurinn. Ekki messað, en aðalsafnaðar- fundur í kirkjunni kl. 2 á morgun. Ráðningarstofa iandbúnaðarins, sem hefir aðsetur sitt í húsi Bún- aðarfélags íslands, auglýsir í blað- inu í dag eftir verkafólki. Ætti fólk að hafa tal af mönnum þeim, sem starfa í skrifstofunni og kynna sér þar vistir þær, sem skrifstófan hefír á boðstólum. L.eiðrétting. í grein um Kvennaskólann í blaðinu á fimmtudag varð dálítil viila. Nafn einnar námsmeyj arinn- ar tvíprentaðist, en nafn Ingu 1 Guðmundsdóttur, Reykjavfk, féll út., Laugarnessprestakall. Messað á morgun kl. 2 síra Garðar Svavarsson. Að lokinni guðsþjónustunní verður aðalsafn- aðarfunduir ársins. Embættispróf í gaMfæSi. Kl. 5 í dag flytja fjórir guðfræði kandidatar, þeir Erlendur Sig- mundson, Jens Benediktsson, Ing- ólfur Ástmarsson og Eiríkur Jón ísfeld prófporédikanir sínar í Há- skólakapellunni. — Almenningi er heimill aðgangur. Fríkirkjan. Messað á morgun kl. 5 síra Árni Sígurðsson. Dansleik heldur Félag íslenzkra hljóð- færaleikara í kvöld kl. 10 í Odd- fellowhúsinu. Dansað verður bæði uppi og niðri. Tóniistarskpliun heldur hina árlegu nemenda- hljómleika sína i Iðnó í dag og verður efnisskráin mjög fjöl- breytt. Gömlu dansarnir verða i kvöld kl. 10 í Alþýðu- húsmu. Harmonikuhljómsveit fé- lagsins leikur. Úrslitabeppni í 2. flokks mótinu verður n.k. sunnudag. Kl. 8 keppa Víkingur og Fram, dómari er Guðmundur Sig- urðsson. Klukkan 9,15 keppa Val- ur og K.R., dómari Guðjón Einars- son. íslandsgííman verður háð 4. júní og er búizt við mikilli þátttöku. MÆHRADAGSN EFNDIN Framh. af 2. síðu. meðal mæðra, enda margar notið hennar. Við stofnuðum fyrsta dvalarheimili okkar árið 1936 að Egilsstöðum í Hvera- gerði. Síðan höfum við rekið heimili að Reykholti í Biskups- tungum, í Menntaskólaselinu í ölfusi og viðar. Þá höfum við nokkrum sinnum getað komið mæðrum í vikudvöl að Laugar- vatni, en þessi starfsemi okkar er bæjarbúum svo kunn, að ó- þarfi er að fjölyrða um hana. Við höfum mikla löngun til að starfa eitthvað á þennan hátt í sumar, en hún hefir orðið að sitja á hakanum fyrir starfsemi Sumardvalarnefndar. Nú kepp- um við að því að koma upp hvíldar- og dvalarheimili fyrir einstæðar mæður hér í bænum, þar sem þær gætu dvalið áður en þær yrðu léttari og fyrst á eftir. Einnig keppum við að því að koma upp sumardvalarheim- ili, sem við einar gætum ráðið yfir og rekið.“ Þetta sagði formaður Mæðra- styrksnefndarinnar. Og nú er mæðradagurinn á morgun. Þá er leitað til bæjar- búa um stuðning við þessa starfsemi. Það er áreiðanlegt, að ’ engir þurfa jafnmikið á hijálp að halda hér í bænurn og einstæðar mæður. Börn ög ung- lingar eru beðin að koma í skrifstofu nefndarinnar í Þing- holtsstræti 18 og taka mæðra- j blómin til. .sélú og i ímr full- J orðnú efú beðnir að kaupa þau.; ÁRSt;ÍNG I. S. I. 1 . Frámh. af 2. síðu. ■ -flaggi (yeifu). Ákvasði þessi' •tgilda .meðan ^rfiðléíkar eru' iái Úfve^un. skotfæra. .. . y Nýlega hefir íþróttaráð Borg- arfjarðar verið skipað þessum mönnum: Þorgils Guðmunds- son form. og meðstjómendur: Guðráður Davíðsson, Nesi, Reykholtsdal, Höskuldur Skag- fjörð, Borgarnesi, Jón Þórisson, Reykholti, og Runólfur Sveins- son, Hvanneyri. Stjórn Í.S.Í. hefir staðfest reglugerð fyrir Framhornið, gefið af knattspymufélaginu Fram til keppni fyrir 1. aldurs- flokk í knattspymu á ísafirði. Glímufélagið Ármann og KR hafa haldið miklar og merkileg- ar innanhússíþróttasýningar í tilefni a£ 30 ára afmæli Í.Sl Þá hafa knattspynrufélög höf- uðstaðarins háð sérstaka knatt- spyrnukeppni í meistarafl. um verðlaunagrip, sem dagbl. Vísir hefir gefið. FERÐAFÉLAGIÐ Framh. af 2. síðu. bifreiðum þaðan heimleiðis. -— Gengið verður að Kleifarvatni, ef tími vinnst til. Farmiðar seld- ir í skrifstofunni Túngötu 5 í dag kl. 10—12 og (>—8 1 kvöld. Takið þátt í þessari ágætu for. Verkamannaíélagið Dagsbrún. Félagsfundair verður haldinn í Iðnó næst komandi sunnudag, 31. máí kl. Vh eftir hádegi. DAGSKKA: 1. Upplestur: Sverrir Kristjánsson. .2. Félagsmái. : 3. Útreikningur dýrtíðarvísitölunnar. 4. Fsekkun verkapianna í landvarnavinnunni. .,.. .5. Kosning bráðabirgðafulltrúa í Fulltrúaráð '!ú ■ j1':"" verkalýðsfélaganna. _ . .■ 6. Örmur mál, ;.. , . / ' . .- Dagsbránarmenhí Fjölmennið og mætið stunúvíslega! STÍÖBNIV . . SIGLINGAR miili Bretlands og íslands halda áfram eins og að undanfömu. Höfum 3—4 skip í förum. Tilkynn- ingar um vörusendingar sendist €nUiford & Clark Ltd. - ,. - • ■ ; .... . BRADLEYS CHAMBEBS, ; LONDON STRÍEET, FLEETWOOD. 4T-

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.