Alþýðublaðið - 24.06.1942, Side 7
Miðvikudagur 24. júní 1942
Næturlæknir er María Hall-
grímsdóttir, Grundarstíg 17, sími
4384.
Nætúrvörður er í Reykjavíkur-
apóteki.
ÚTVARPIÐ:
12,10—13,00 Hádegisútvarp.
15,30—16,00 Miðdegisútvarp.
19,25 Hljómplötur: Söngvar úr
óperum.
20,00 Fréttir.
20.30 Erindi: Draumur æskunnar
og dagleg störl (Pétur Sig-
urðsson erindreki).
20,55 Hljómplötur: íslenzkir kór-
ar.
21,10 Upplestur: Þula og sögu-
korn (frú Unnur Bjark-
lind).
21.30 Hljómplötur: Þjóðlög frá
ýmsum löndum.
21,50 Fréttir. Dagskrárlok.
Knattspyrna í Hafnarfirði.
Á sunnudaginn var 1. flokks
kappleikur milli Hauka og Fim-
leikafélags Hafnarfjarðar. Lauk
honum með jafntefli, 1 : :1 marki.
Á Suðurlandsbraut
vildi það til í fyrradag, að geð-
bilaður maður réðst upp í bifreið
frá Bandaríkjahernum og réðst á
liðsforingja. Gat liðsforinginn
sloppið út og komu margir þarna
að og reyndu að taka manninn, en
það reyndist erfitt, því að hann
barði frá sér með ól, sem kopar-
hringur var festur við. Loks náð-
ist hann þó og var fluttur í bifreið
til bæjarins. Hafði hann hlaupið
að heiman frá sér eftir að hann
hafði brotið þar alít og bramlað.
Úlfurinn kemur til hjálpar
heitir æsileg leynilögreglumynd,
sem Nýja Bíó sýnir núna. Aðal-
hlutverkin leika: Warren William
og Jean Muir.
Tímarit iðnaðarmanna
er nýkomið út og er að þessu
sinni helgað Múrarafélagi Reykja-
víkur. Efni: Fagnaður á tímamót-
um.' Fyrstu múrararnir í Reykja-
vík. Kjartan Ólafsson múrari.
Fánasöngur múrara. Guðjón Bene-
diktsson múrari (mynd). Mynd af
ávarpi, fulltrúaráði og stjórn.
Nokkur orð.um stofnun Múrarafé-
lags Reykjavíkur. Guðjón Bene-
diktsson. Þættir úr sögu Múrara-
félags Reykjavíkur. Ólafur Pálsson
múrari (myndir). Sjóðir Múrara-
félags Reykjavíkur. Ólafur Pálsson
múrari. Kaupgjaldsmál Múrarafé-
lags Reykjavíkur. Guðjón Bene-
diktsson. Þróun múraraiðnarinnar
í Reykjavík. Guðbr. Guðjónsson
múrari. Frá Sambandsfélögum.
Leiðrétting.
Meinleg prentvilla hefir slæðzt
inn í fréttina um nýja hljómsveit-
arstjórann á Hótel Borg í blaðinu
í gær. Þar var talinn upp á meðal
þeirra, sem í hljómsveitinni væru,
Árni Kristjánsson, en átti að vera
Árni Björnsson.
WORM-MÚLLER
(Frh. af 2. síðu.)
frásagnarstíllinn eins og hann
sé að segja fallegt ævintýri. En
aðalinntakið í orðum prófess-
orsins er býsna líkt því, sem
haft er eftir Ólöfu ríku:
Ekki skal gráta Björn bónda,
heldur safna liði.
Binflinðísmannadaimriim:
Aukið samstarf
ýmissa félags-
samtaka.
Fimm manna framkvæmda-
nefud kosin.
INDINDISMANNADAG-
URINN hófst, eins og til
stóð, með virðulegri messu í
dómkirkjunni s.l. sunnud. kl. 11
árd. Síra Sveinn Víkingur flutti
ræðu. Fyrir altari þjónaði síra
Fr. A. Friðriksson, Húsavík.
Fundurinn var svo háður í
Iðnó frá kl. 1—IV2. Fyrri hluta
tímans voru flutt framsöguer-
indi frá hinum ýmsu félagasam-
böndum. Frá stórstúkunnar
hálfu talaði Friðrik Á. Brekkan
og ræddi hann aðallega um
nauðsyn þess að komið yrði upp
drykkjumannahæli hið bráð-
asta. Lagði fundurinn mikla á-
herzlu á þetta atriði. Síra Ei-
ríkur J. Eiríksson talaði fyrir
hönd ungmennafélaganna, Úlf-
ar læknir Þórðarson var fulltrúi
Í.S.Í., og talaði um íþróttalíf og
áfengis- og tóbaksbindindi. Er-
indi hans vakti sérstaka eftir-
tekt og þótti mjög merkilegt.
Frú Ragnhildur Pétursdóttir,
forseti Kvenfélagasambands ís-
lands, flutti þar og erindi og
urðu um það allverulegar um-
ræður. Helgi Sæmundsson, for-
seti Sambands bindindisfélaga
í skólum, talaði um æskulýðinn
og bindindisstarfið.
Umræður hófust kl. og
stóðu yfir til kl. rúmlega 7. Tók
þar margur rösklega til máls og
voru umræður bæði fjörugar og
ákveðnar. Meðal annarra voru
þarna þekktir skólamenn og
tóku sumir þeirra þátt í umræð-
unum. Allmikið var rætt um á-
framhaldandi samstarf félaga-
sambandanna, og möguleika á
því, að þau gæfu út blað í sam-
einingu. Mótinu lauk með kaffi-
samsæti kl. 9—12. Létu fund-
armenn óspart í ljós ánægju
SÍna yfir þessu samstarfi félag-
anna. Eftirfarandi tillögur voru
samþykktir á fundinum:
„Fundurinn lýsir ánægju
sinni yfir því samstarfi félaga-
kerfanna um bindindismálið,
sem þegar er hafið, og telur
nauðsynlegt að slíkt samstarf
geti haldið áfram og orðið sem
mest milli þeirra félagakerfa,
sem að þessum bindindismanna
I degi standa og annarra slíkra
félagasamtaka. Fundurinn kýs
5 manna framkvæmdanefnd, er
vinni að því milli funda að
glæða slíkt samstarf og almenn-
an áhuga þjóðarinnar fyrir
bindindi. Framkvæmdanefnd-
inni sé falið að athuga mögu-
leika á útgáfu blaðs, sem bind-
indismenn í landinu sameinist
um og geri fjölþætt og útbreitt.
Fundurinn telur brýna nauð-
syn að komið verði upp drykkju
mannahæli og skorar á ríkis-
stjórn og alþingi að veita til
þess á fjárlögum næsta árs
hundrað og fimmtíu þúsund
krónur. — Fundurinn felur
framkvæmdanefndinni að hafa
samstarf við framkvæmdanefnd
Stórstúku íslands um að hrinda
þessu nauðsynjamáli í fram-
kvæmd sem allra fyrst.
Fundurinn lýsir megnri van-
þóknun sinni á hinum tíðu og
óþörfu undanþágum um vín-
veitingaleyfi, sem ríkisstjórnin
hefir veitt síðan áfengisverzlun-
inni var lokað. Telur fundurinn
þessar undanþágur bæði
hneykslanlegar og siðspillandi
og. skorar á ríkisstjórnina. að
ráð,a bót, á þessu.
Fundurinn skorar á allan al-
menning í landinu að styðja
sem bezt bindindisstarfið og á
Félagsdómarinn á
móti Verfe lýös-
féiagi Afeurejrrar.
Sératkvæðf Siguu-
jóns Á. Ólafssonar.
EGAR skýrt var hér í blað-
inu frá þeim úrskurði Fé-
lagsdóms að dæma kommúnist-
ann Steingrím Aðalsteinsson
inn í Verkalýðsfélag Akureyr-
ar, sem hann hefir barizt árum
saman fyrir að eyðileggja, var
sératkvæði Sigurjóns Á. Ólafs-
sonar ekki birt orðrétt. En hér
á eftir kemur það orðrétt:
„Það er upplýst í málinu, að
stefnandi fullnægir ekki þeim
upptökuskilyrðum Verkalýðsfé-
lags Akureyrar, að vera ekki
meðlimur í neinu öðru stéttar-
félagi á félagssvæðinu og með
því að þetta ákVæði er óbreytt
tekið upp í félagslögin með
heimild í 2. gr. laga um stéttar-
félög og vinnudeilur, þá verður
krafa stefnanda um upptöku í
félagið ekki tekin til greina,
enda eru hagsmunir stefnanda á
engan hátt skertir með þessari
niðurstöðu, þar eð hann getur
notið fullra vinnuréttinda með
því að vera aðeins meðlimur í
Verkamannafélagi Akureyrar.“
2. gr. laganna, sem Sigurjón
vitnar til, hljóðar svo:
„Stétíarfélög skulu opin öll-
um í hlutaðeigandi starfsgrein
á félagssvæðinu, eftir nánara
ákveðnum reglum í samþykkt-
um félaganna. Félagssvæði má
aldrei vera minna en eitt sveit-
arfélag.“
flnglýsið i Alpyðublaðinu
allan hátt að glæða sannan
þegnskap, er útiloki það meðal
annars, að menn leggist svo lágt
að leita til erlendra manna um
áfengisneyzlu og áfengiskaup.
VÉLST J ÓRASKÓLINN
Frh. af 2. síðu.
son formaður — og auk hans:
Þorsteinn Árnason, Hafliði Haf
liðason, Júlíus Ólafsson, Ágúst
Guðmundsson, Aðalsteinn
Björnsson og Jóhann Jónsson.
Fundur annað kvöld kl. 8. —
Stúkurnar Gróandi nr. 234, frá
Strönd á Rangávöllum, og
Verðandi nr. 9 heimsækja. —
' Dagskrá: 1. Upptaka nýrra fé-
laga. 2. Stúkurnar ávarpa.
Að loknum fundi hefst sam-
sæti. Skemmtiatriði verða þessi:
a. Ávörp: Stórtemplar, um-
dæmistemplar og þing-
templar.
b. Einsöngur með undirleik á
guitar: Hr. Karl Sigurðsson
c. Einleikur á píanó: Ónafn-
greindur.
d. Dans að loknu samsætinu.
Hljómsveit leikur undir
dansinum.
Reglufélagar, fjölmennið og
mætið annað kvöld stundvíslega
Resokápir,
Rykfrakkor!
Á karlmenn,
Á kvenfólk,
Á unglinga,
Á börn.
Verð frá 18.50 stk.
Grettisgötu 57.
Innilegt þakklæti til allra nær og fjær fyrir auðsýnda sam-
úð við andlát og jarðarför eiginmanns og sonar,
PÉTURS ÁRNASONAR
Maríanna Elíasdóttir. Guðbjörg Loftsdóttir.
ALÞYÐUBLAÐÍÐ
hnefaleikakappar.
Hér sjáið þið fjóra af frægustu hnefaleikamönnum heimsins saman. Þeir voru fyrir nokkru heiðraðir af hnefaleikafélagi í
New York. Þeir eru, talið frá vinstri: Dempsey, Tunney (í flotanum), Joe Louis (í hernum) og Braddock. Dempsey er nú
einnig genginn í herinn.