Alþýðublaðið - 26.06.1942, Blaðsíða 7
Föstudagur 26. júni 1942.
ALÞYÐUBLAÐIÐ
7
Framboðsfundur
í Mafnarfirði
verður haldinn í leikfimishúsi Barnaskólans
laugardaginn 27. þ. m. kl. 8V2 eftir hádegi.
Fr amb j óðendur.
iBkrifstofa
Alþýðuflokksins í Hafnarfirði er í Austurgötu
37, sími: 9137. Látið skrifstofuna vita um
Alþýðuflokksfólk, sem dvelur utan bæjar eða
sem verður að heiman á kjördag.
Hjartans þakklæti færi ég öllum þeim, sem heim-
sóttu mig og sýndu mér vináttu á margvíslegan hátt
á sextugsafmæli mínu 22. þ. m. — Dagurinn varð mér
ógleymanlegur. — Guð blessi ykkur öll.
Jóhanna Jónsdóttir.
íslandsmótið:
Frana wann K. R. með
2 mðrkum gep 1.
\ Bærinn í dag. \
Næturlæknir er Axel Blöndal,
Eiríksgötu 31, sími 3951.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
apóteki.
ÚTVARPIÐ:
12,10—13,<O0 Hádegisútvarp.
15,30—16,00 Miðdegisútvarp.
10,25 Hljómplötur: Harmóníku-
lög.
20,00 Fréttir.
20,30 Erindi: Um sprengiefni
(Bjami Jósepsson cand.
polyt.).
20,55 Strokkvartett útvarpsins:
Kvartett. Op. 74, nr. 2, F-
dúr, eftir Haydn.
21,10 Erindi: Frá Hornströndum
fyrr og nú, I (Þorleifur
Bjarnason kennari).
20,30 Hljómpjötur: Endurtekin
lög.
21,50 Fréttir. Dagskrárlok.
Maria Gerharda,
príórinna við St. Jósefsspítala í
Hafnarfirði, andaðist nýlega. Hafði
hún verið príórinna við spítalann
í Hafnarfirði í ’fjögur ár.
Trúlofun.
Nýlega hafa opinberað trúlofim
sína Oddný Guðmundsdóttir, Ás-
vallagötu 17, og Pétur Steinsson,
Hringbraut 52.
Fimmtugur
er á morgun Finnbogi Jónsson,
Hellisgötu 3, Hafnarfirði. Finnbogi
hefir stundað verkamannavinnu í
Hafnarfirði mörg undanfarin ár og
er trúr og dyggur verkamaður og
sómi sinnar stéttar.
TÉKKNESKT ÞORP
Framh. af 3. síðu.
inu frá Prag í gær. Er svo að
sjá, að ógnaröldinni hafi ekki
létt, þótt nazistar hafi fundið
banamenn Heiderichs (að því er
þeir sjálfir segja).
íbúamir í þorpi þessu, sem nú
er ekki lengur til, voru ákærðir
um að hafa hjálpað fallhlífar-
hermönnum, sem áttu að hafa
aðstoðað við dráp Heiderichs.
Auk þessa fjöldamorðs hafa
Þjóðverjar drepið 18 manns í
Prag og 12 öðrum stöðum í
landinu. Er áreiðanlegt, að yfir
1000 manns hafa varið drepnir,
síðan Heiderich var drepinn
utan við Prag.
SÉRA SVEINBJÖRN
(Frh. af 2. síðu.)
fyrir störf í byggingarnefnd Há-
skólans.
Það sýnist vera orðin full
þörf á því fyrir sra Sveinbjörn
að fara að losa sig við þetta
„mjólkurklerks“ embætti, þar
sem þetta bætist nú við þann
árangur af starfi hans þar, að
honum hefir tekizt að espa alla
neytendur og viðskiptamenn
Samsölunnar gegn fyrirtækinu.
Vanhagi hann um eitthvað ,,bí-
starf“ í staðinn, sýnist vera til-
valið að stofna handa ,honum
nýja nefnd, siðgæðis- og bind-
indismálanefnd, þár sem hann
ætti að hafa nærtækara starfs-
svið.
Æfing í kvöld kl. 7 hjá
meistara-, Í. og 2. flokki.
— Mætið allir!
Skattar Kveldnlfs.
Frh. af 2. síðu.
því upp í opið geðið á Reykvík-
ingum, sem verða almennt að
greiða allt að 100% hærri út-
svör nú en í fyrra, að skattar
og útsvar Kveldúlfs í ár nemi
þó meiru, en þeir hefðu numið
ef lagt hefði verið á hann eftir
sömu reglum og þá var gert,
þegar 4—5 milljónum af gróða
hans var skotið alveg undan
tekjuskatti og útsvarið ákveðið
mikið meira en einni milljón
lægra en það átti að vera!
Fyrr má nú vera blygðunar-
leysi hjá Morgunblaðinu og
S j álfstæðisflokksf orsprökkun-
um, en að þeir séu að þakka
Kveldúlfi það, að hann skuli nú
greiða svo að segja nákvæmlega
sömu upphæðina og í fyrra,
þegar aðrir verða að greiða allt
að 100% hærra útsvar en þá!
Vettiingatokin á
stríðspróðanum.
En í þessurn samanburði á
skatta- og útsvarsgreiðslum
Kveldúljs 1941 og 1942 kemur
einmitt jram aðalatriðið í öllum
umræðunum um skattlagningu
stríðsgróðans. í jyrra var stór-
útgerðinni leyjt að sajna tugum
milljóna í varasjóði. Maður
skyldi því halda, að tími hejði
nú verið kominn til þess, að
skattleggja stríðsgróðann, sem
stöðugt heldur ájram, svo um
munaði. En hin nýju skattalög
Ólajs Thors og Eysteins Jóns-
sonar eru bara þannig, að það
eru ekki nema í hæsta lagi 60%
stríðsgróðans, sem tekin eru í
skatta og útsvar samanlagt. Það
eru allar ejndirnar á lojorðun-
um um að taka hann úr umjerð.
En því rækilegar er
almenningi látið blæða,
eins og útsvörin í Reykjavík
í ár sýna. Sjálfstæðisflokk-
urinn hefir ekki til einskis ver-
ið í flatsænginni hjá Framsókn,
og hann efir sannarlega kunn-
að að notfæra sér hinn hreina
meirihluta, sem hann hefir nú
í fyrsta sinn í niðurjöfnunar-
nefnd.
En Reykvíkingar munu á
kjördegi líka kunna að kvitta
fyrir það, sem að þeim hefir
verið rétt.
Krlstilegt möt ð
Akranesi.
400 fastir Oátttabendnr.
KOSNING framkvæmda-
nefndar Stórstúkunnar
fór fram á þingfundi í fyrra-
kvöld, og hlutu kosningu:
Kristinn Stefánsson stór-
templar. Árni Óla, stórkanzlari.
Þóranna Símonardóttir frú Stvt.
Jóh. Ögm. Oddsson stórritari.
Jón Magnússon stórgjaldkeri.
Hannés J. Magnússon Stgu.
Petur Sigurðsson stg. löggjafar-
starfs. Margrét Jónsdóttir st.
fræðslustjóri. Sigfús Sigurhjart-
arson Stkap. Gísli Sigurgeirs-
son st. þegur.
Dómnefnd var endurkosin og
eiga allir nefndarmenn heima á
Akureyri, , nema stórtemplar,
sem er oddamaður.
í fjármálanefnd voru kosnir
Þórður Bjarnason, Gissur Páls-
Skaðabðíamáliö.
Frh. af 2. síðu.
leggjast í götuna. Þá og þar
kippti Ólafur með nýju átaki
vinstri hendi Lárusar upp á bak
í þeim tilgangi, að því er hann
segir, að fá Lárus til að rísa upp
og halda áfram, en Þorkell hélt
jafnframt hægri hendi Lárusar
upp á bak. Við þetta átak brotn-
aði vinstri handleggur Lárusar
rétt fyrir ofan olnboga, og var
Lárus síðan fluttur í sjúkrahús.
Brotið reyndist mjög erfitt við-
fangs — og var þarna um svo
kallað vindubrot að ræða. Varð
Lárus að liggja í sjúkrahúsi frá
21. janúar til 10. marz.
Lárus hélt því fram í málinu,
að handtakan hefði verið ólög-
mæt og meðferðin á honum
hrottaleg. Hinir stefndu héldu
því hins vegar fram, að brotið
skapi ekki rétt til skaðabóta,
þar sem lögregluþjónarnir voru
að skyldustörfum sínum — og
að Lárus yrði því sjálfur að
bera tjón sitt.
Við málsmeðferðina skýrði
Lárus svo frá, að hann hefði
dvalið í Hótel Heklu og beðið
eftir manni þennan dag. Frá kl.
2Vá—6 kvaðst hann hafa drukk-
ið sem svaraði 1 pela af brenni-
víni, kl. 6—7Vá, sem svaraði
hálfum lítra af útlendu öli og
loks nokkra íslenzka ,,bjóra“.
Kl. 11 um kvöldið, þegar mað-
urinn kom ekki, fór Lárus út,
en þá varð á vegi hans amer-
íkskur sjóliði, sem var að gefa
viðstöddum dollara. Vildi Lárus
hjálpa sjóliðanum og fá hann
heim með sér til þess að gefa
honum kaffi. Reisti Lárus sjó-
liðann við, en í því kom amer-
íkski lögregluþjónninn.
Lárus kveðst sjálfur hafa að-
eins lítils háttar fundið á sér —
en lögregluþjónarnir héldu því
fram, að hann hefði verið áber-
andi drukkinn.
Lárus gat þess í málinu, að
þegar hann hefði verið hand-
tekinn, hefði hann sagt við lög-
regluþjónana: „Er ykkur ljóst
að þið eruð að fremja lagabrot?
Munið þið eftir dómnum í máli
Karls Jónssonar læknis?“
í niðurstöðum dómsins er á
það bent, að í „dagskipan“ lög-
reglustjóra sé m. a. brýnt fyrir
lögregluþjónunum að fara var-
lega. Enn fremur sé það upp-
lýst, að Valtýr Albertsson lækn-
ir, sem undirbýr lögregluþjón-
ana í starfi þeirra, hafi brýnt
fyrir þeim að nota ekki baktök,
nema í neyðarvörn.
Leit dómarinn svo á, að fram-
ferði lögregluþjónanna hefði
verið harðneskjulegt úr hófi
fram — og að þeir hefðu gerzt
brotlegir í starfi sínu. Hins veg-
ar voru þeir ekki dæmdir fyrir
það að hafa tekið Lárus Jóhann-
esson hæstaréttarmálaflutnings
mann úr umferð.
Félagsblað K.R.
er nýkomið út. Efni: Fimleika-
sýning K.R., Frá sundflokknum,
Handknattleiksmót íslands, Létt-
ara hjal, Tveir íþróttagarpar þrí-
tugir, Bezta met íslendinga, Frétt-
ir frá Í.S.Í. o. m. fl.
51 árs
er í dag Eggert Th. Grimsson,
verkamaður, Hverfisgötu 104 C.
1 /
sön Hjörtur Hansson, Jón Haf-
liðason og Þorst. Þorsteinsson
kpm.
FRAM vann K.R. með 2 : 1
í bráðskemmtilegum leik
í gærkveldi. Öll mörkin vord
sett í fyrri hálfleik og bæði
mörk Fram úr hornspyrnu.
Virtist dómarinn þó vera í vafa
um annað til að byrja með, því
að hann dæmdi ekki mark-fyrr
en knötturinn var kominn aftur
út á völl. Þennan hálfleik lék
Fram undan vindi og var í
harðri sókn.
í síðari hálfleik lék K.R. und-
an vindi og var í stöðugri sókn.
Gerðist meiri hluti leiksins við
vítateig Fram. Lá oft nærri, að
mark yrði hjá Fram. K.R. fékk
í þessum hálfleik* tvær horn-
spyrnur á Fram, en þær mistók-
ust báðar hrapallega.
Björgvin Schram lék nú með
K.R. í fyrsta skipti í sumar.
Var hann miðframherji í stað
Þórðar Pétúrssonar og gerði
enga lukku. Dómarinn var mjög
óviss, en það mun að mestu hafa
verið að kenna öðrum línuverð-
inum, sem ekki var starfi sínu
vaxinn.
Nú standa leikar svo, að
Fram hefir 6 stig, K.R. 4 stig,
Valur 4 stig, Víkingur ekkert
stig.
Á sunnudaginn keppir K.R.
við Víking og á mánudagskvöld
Valur við Fram. Ef K.R. vinnur
Víking og Valur Fram, verða fé-
lögin 3 jöfn og verða að keppa
aftur, en ef Fram vinnur Val,
þó ekki væri nema með jafn-
tefli, hefir Fram unnið mótið.
VERÐL AUNIÐ EKKI
hina neikvæðu pólitík kom-
múnista! Kjósið Alþýðu-
flokkinn — A-listann!
Worm-Miiller pré-
fessor flytar fjöra
fyrirlestra.
W)RM-MULLER pró-
fessor byrjar fyrir-
lestra sína á sunnudags-
kvöld.
Þá gengst „Normannslaget“
hér fyrir fyrirlestri, sem pró-
fessorinn flytur í kvikmynda-
salnum á horni Barónsstígs og
Skúlagötu kl. 9. Talar prófessor-
inn um „Þróun ófriðarins og
þær kröfur, sem styrjöldin ger-
ir'til Norðmanna“.
Allir Norðmenn og vinir
Noregs eru velkomnir.
Norræna félagið hér hefir
fengið prófessorinn til að flytja
þrjá fyrirlestra á þess vegum.
Verða þeir allir fluttir í Hátíða-
sal Háskólans.
Á mánudagskvöld talar pró-
fessorinn um: Innrás Þjóðverja
í Noreg og tímabilið þar til
Quisling tók við völdum. Á
þriðjudagskvöld talar hann um:
Tímabilið frá því að Quisling
tók við völdum og til þessa dags.
Á miðvikudagskvöld talar hann
um: Skipulag norska hersins ut-
an lands og þýðingu hans og
kaupskipaflotans.
Aðgöngumiðar að öllum þess-
um fyrirlestrum verða seldir í
einu í Bókaverzlun Eymund-
sonar og ísafoldar.
Aufllýsið i AiÞýðublaðinu