Alþýðublaðið - 28.06.1942, Page 2
ALÞYÐUBLAÐIÐ
[Útvarpsumræðnr
annað kvðld.
ST J ÓRNMÁLAUM-
RÆÐUR fara fram
annað kvöld í útvarpinu,
og eru þær í þetta sinn fyrir
Reykvíkinga eina, enda
taka þátt í þeim fulltrúar
allra þeirra sex lista, sem
í kjöri eru hér í bænum.
Fulltrúar listanna tala í
þessari röð: Alþýðuflokkur,
Þjóðveldismenn, kommún-
istar, Signrður Jónasson,
Sjálfstæðisflokkur og
Framsóknarflokkur. Tvær
umferðir verða hafðar: 20—
25 og 10—15 mínútur.
Silfurbrúðkaup
eiga í dag frú Ástríður Jónsdótt-
ir og Sigurður Kjartansson kaup-
maður, Laugaveg 41.
Hjónaband.
í dag verða gefin saman í hjóna-
band af síra Árna Sigurðssyni ung- [
frú Hulda Bogadóttir og Brynjólf- J
ur Marel Vilbogason bifreiðarstj.
Heimili ungu hjónanna verður
fyrst um sinn á Þórsgötu 8.
Stórútgerðin greiðir ekki
nema 18 °|0 meiri gjöld til
bæjarins en í fyrra.
En almenningur 100°|0 hærri útsvðr.
KVELDÚLFUR hefir hingað til verið tekinn sem dæmi
um það, hve blygðunarlaust stríðsgróðafyrirtækjun-
um hefir verið hlíft við niðurjöfnunina í Reykjavík í ár
við sköttum og útsvari á kostnað almennings.
En séu skattar og útsvör hinna stórútgerðarfyrir-
tækjanna athuguð, þá er útkoman nokkurn veginn
sú sama. Ef lagt er saman það, sem öll stórútgerðar-
fyrirtækin, að Kveldúlfi meðtöldum, greiðá til Reykja-
víkurbæjar í útsvörum og stríðsgróðaskatti (hærinn
fær 45% af honum), þá kemur í Ijós, að það nemur í
ár 2 898 215 krónum. í fyrra nam þessi upphæð hins
vegar 2 456 673 krónum. Það munar því ekki nema
441 543 krónum, sem stórútgerðarfyrirtækin greiða
meira til bæjarins í ár en í fyrra. Það er 18% hækkun.
En hækkunin á útsvörum almennings nemur allt að
100% og jafnvel þar yfir. Og þetta kallar Sjálfstæðis-
flokksmeirihlutinn í niðurjöfnunarnefnd að jafna niður
. „eftir efnum og ástæðum“.
Mjrnðir i Morgnnbiaðinn
istaðinn fyrir ibúðirl
Það er verið að flytja inn í nýju verka-
mannabústaðina, en af bæjaribúðunum
er ekki meira til en myndirnar einar!
ASAMA TÍMA, sem Morgunblaðið birtir okkur Reyk-
víkingum myndir af væntanlegum fjögurrra hæða
byggingum, sem bærinn ætlar að láta reisa, eru húsnæð-
islausar fjölskyldur að flytja inn í nýjar og veglegar í-
búðir í verkamannabústöðunum í Rauðarárholti.
Sama daginn, sem Morgunblaðið útskýrir fyrirkomulag hinna
væntanlegu íbúða í stórhýsunum við gamla íþróttavöllinn, taka
ung hjón, meðal þeirra tvenn, sem giftu sig í gær, og eldri f jöl-
skyldur, íbúðirnar í verkamannabútstöðunum til afnota og koma
þar fyrir búslóð sinni.
Bikisstjöri viðstadd"
nr knattspyrnukopp-
leik á morgnn.
Úrslitaleikfr í tslands
mótinu i kvold og
annað kvöld.
IKVÖLD klukkan 8,30 hefst
mjög skemmtilegur knatt-
spymukappleikur á íþrótta-
vellinum.
Þá keppa K. R. og Víkingur.
Ef K. R. vinnur þennan leik,
hefir það 6 stig, eins og Fram
nú.
Á mánudagskvöld keppa svo
Valur og Fram. Ef Fram vinn-
ur þann leik eða gerir jafntefli
við Val, þá hefir það unnið mót-
ið. Ef Valur vinnur hins vegar
Fram, hafa öll þrjú félögin 6
stig. Og þá verða þau öll þrjú
að keppa aftur til úrslita.
Frh. á 6. síðu.
í Rauðarárholti hefir nú risið
upp eitt fegursta íbúðarhverfi
borgarinnar fyrir atbeina lag-
anna um verkamannabústaði,
sem Alþýðuflokkurinn kom
fram, íhaldið barðist á móti og
taldi skaðlegt og kommúnistar
notuðu til árása á „hurgeisa Al-
þýðuflokksins, sem aldrei hugs-
uðu, um þá, sem verst væru
staddir“, Bygging þessara nýju
bústaða hefði ekki tekizt, hefði
málið ekki notið hins mikla
stuðnings Stefáns Jóhanns Ste-
fánssonar, meðan hann var fé-
lagsmálaráðherra, og frábærs
dugnaðar stjórnar Byggingar-
félags verkamanna undir leið-
sögn Guðmundar I. Guðmunds-
sonar.
Og byggingarnar halda á-
fram. Takmarkið er 100 nýjar
íbúðir, og að því er unnið
sleitulaust.
Alþýðuflokkurinn hefir á
hverju ári í mörg ár, þegar fjár-
hagsáætlun bæjarins hefir verið
samin, lagt til, að áætlað væri
fé til bygginga, sem bærinn
Frh. á 7. síðu.
Þessi linkind við stríðsgróð-
ann á kostnað almennings er
því hneykslanlegri, sem vitað
er, að stórútgerðarfélögin áttu
að greiða miklu hærri upphæð
til bæjarins í skatti og útsvör-
um í fyrravor, en þau raunveru-
lega voru látin gera. Þeim var
þá ekki gert að greiða samtals
í útsvörum meira en 2 080 000
krónur, en hefðu átt að greiða
4 milljónir, ef lagt hefði verið
á þau eftir sömu reglum og
aðra gjaldendur bæjarins. En
fyrir það urðu bæjarbúar þá að
greiða 25% hærri útsvör al-
mennt en þeim bar.
Nú er þessu svindli haldið
áfram. Stórútgerðarfélögin eru
ekki látin greiða nema auð-
virðilega fjárupphæð til bæjar-
ins umfram þá, sem þau
greiddu til hans í fyrra, þegar
þau sluppu við helmingi lægri
útsvör en þau áttu að greiða.
En fyrir það er öllum almenn-
ingi í Reykjavík látið blæða.
Hann verður að greiða allt að
100% hærri útsvör.
Samtals 20 milijónir
5 í varasjóðnm!
Ennþá blygðunarlausari verð
ur þessi linkind við stríðsgróð-
ann þó, þegar litið er á það, að
stórútgerðarfélögin eru nú búin
að safna í varasjóði hvorki
meira né minna en 20 milljón-
um króna.
Maður skyldi því ætla, að það
væri ekki nauðsynlegt að í-
þyngja almenningi í .Reykjavík
með 100% hækkuðum útsvör-
um til þess, að hægt sé að hlífa
þessum stríðsgróðafyrirtækjum
við sköttum og útsvari til bæj-
árins. Enda vantaði ekki, að
Ólafur Thors talið nógu digur-
barkalega um það í útvarpið í
vetur, þegar hann var að reyna
að réttlæta kúgunarlögin gegn
launastéttunum, að nú skyldi
stríðsgróðinn tekinn úr umferð.
En hver varð útkoman af
(Frh. á 7. síðu.)
ar að Alþýðablaéiö
færi sðooir á Morg
[ noblaðiljrgar!
Algerlega rök-
ÞROTA í umræðunum
um hina ósvífnu, allt að
100% hækkun á útsvörum
almennings í Reykjavík sam-
tímis því, sem stríðsgróða-
fyrirtækjunum er svo að
segja alveg hlíft við útsvari,
reynir Morgunhlaðið í gær að
bjarga sér og Sjálfstæðis-
flokknum úr klípunni með
því að ljúga því upp, að Al-
þýðublaðið hafi sagt, að út-
svörin væru 100% hærri á
SÖMU TEKJUM og í fyrra,
og skorar síðan digurharka-
lega á Alþýðublaðið að sanna
þessa Morgunblaðslygi!
Það, sem Alþýðublaðið hefir
sagt, er þetta: að það hafi til
þess að fullvissa sig um hækkun
útsvaranna, gert samanburð á
útsvörum margra gjaldenda nú
og í fyrra. Voru teknir sömu
gjaldendur bæði árin, en at-
vinnufyrirtæki ekki talin með,
þar sem á tekjum þeirra eru
miklar sveiflur.
„Þessi samanburður sýndi, að
útsvörin höfðu hækkað að með-
altali um hér um bil 100%, og
getur hver maður, sem er, sagt
sér það sjálfur, að tekjur þess-
ara manna hafa ekki hækkað
um neitt svipaðan hundraðs-
hluta á eintx einasta ári, enda
hækkaði dýrtíðaruppbótin ekki
nema um 25% á árinu 1941.
Alþýðublaðinu er kunnugt
um nokkra gjaldendur, sem hafa
haft alveg óbreyttar GRUNN-
tekjur síðan í fyrra og þó feng-
ið nákvæmlega 100% hærra út-
svar nú en þá.“
(Alþýðublaðið 25. júní 1942.)
Og yfir grein Alþýðublaðsins,
sem - hér er vitnað í, stóðr
„Hækkun útsvaranna á almenn-
ingi er margföld á við tekju-
hækkun hans árið 1941. Dýr-
tíðaruppbótin hækkaði kaupið
1941 um 25%, en útsvörin
hækka um 100%!“ Úr þessu
gerir Morgunblaðið í gær það,
, að Alþýðublaðið hafi sagt, „að
útsvor hér í bæ hefðu hækkað
frá í fyrra um 100% af sömu
tekjum“ og skorar á Alþýðu-
blaðið að sanna það!! Nei, Morg-
unblaðið getur sannað sínar
lygar sjálft.
En hitt vill Alþýðublaðið
segja Morgunblaðinu, að 25%
hækkun á tekjum manna er
engin afsökun fyrir því, að'út-
svör þeirra séu hækkuð um allt
(Frh. á 7. síðu.)
Sunnudagur 28. júní 1942.
Pétur Ottesen
misti stjórn á
sér á Akranes
fundinum.
\
PÉTUR OTTESEN aL
þingismaður missti al-
veg stjórn á sér á frambjóð-
endafundi á Akranesi á föstu-
dagskvöldið og hellti sér £
hræði sinni yfir Sigurð Ein-
arsson dósent með soralegum
um óhróðri, sem lapinn var
upp úr Tímanum og áður
hefir verið getið um hér £
blaðinu.
Blöskraði fundarmönnum svo
óhefluð framkoma alþingis-
mannsins og mátti hezt merkja
það á því, að þegar Pétur kom
næst upp á ræðupallinn var ekki
klappað fyrir honum á undan
ræðunni, þó að það væri gert
hin fyrri skiptin.
En þegar Sigurður Einarsson
kom uþp á eftir fúkyrðaræðu
Péturs, kvað húsið allt við af
lófataki, bæði á undan ræðu
hans og eftir.
Fundurinn á Akranesi fór að
öðru leyti vel fram og var mjög
fjölsóttur. Var frambjóðanda
Alþýðuflokksins tekið ágætlega
og mátti merkja það á undir-
tektum fundarins, að hann þótti
mjög bera af hinum frambjóð-
endunum um málflutning allan
og mælsku, enda er fylgi hans
talið fara ört vaxandi.
Framsóknarmaðurinn, Sverr-
ir Gíslason, og kommúnistinn,
Steinþór Guðmundsson, áttu
sáralitlu fylgi að fagna á fund-
inum.
Vopnakaup
lögreglunnar.
Er Jakob Möller afþ
Mifa • Mermanni ?
Ab/ejarrádsfundl
. sem haldinn var £
fyrrakvöld, sagði Bjarni
Benediktsson frá því, að hann
hefði, samkvæmt tilmælum
síðasta bæjarstjórnarfundar,
spurt Agnar Kofoed Hansen
lögreglustjóra um vopnakaup
þau handa lögreglunni, sem
mikið hefir verið talað um
undanfarið og rætt var um á
þessum hæjarstjórnarfundi.
Sagði borgarstjóri, að lög-
reglustjóri hefði skýrt svo frá,
að lögreglan hefði ekki annað
vopna en kylfur og skammbyss-
ur. Aðrar upplýsingar kvaðst
lögreglustjóri ekki geta gefið,
nema í samráði við dómsmála-
ráðherra.
Jakob Möller dómsmálaráð-
herra var staddur á fundi bæj-
arráðs, þegar borgarstjóri gaf
þessar upplýsingar lögreglu-
stjóra, en hann vildi ekkert við
þær bæta.
í sambandi við þetta mál
segir ,,Þjóðviljinn“ í gær, að
Jón Axel Pétursson hefði sagt á
síðasta fundi bæjarstjórnar, að
hann hefði „séð þessi vopn“, þ.
e. gasbombubyssur og hríð-
Frh. á 7. síðu.