Alþýðublaðið - 28.06.1942, Page 7
Stiimudagur 28. júní 1942.
At^yeUBLAÐIÐ
i Bærinn í dag.j
Næturlæknir er í nótt Halldór
Stefánsson, Ránargötu 12, sími
2234.
Helgidagslæknir er Úlfar Þórð-
arson, Sólvallagötu 18, sími 4411.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
apóteki.
ÚTVARPIÐ:
11,00 Messa í Dómkirkjunni (síra
Bjarni Jónsson). — Sálmar:
36, 46, 394, 250, 647.
15,30—16,30 Miðdegistónleikar
plötur): Sjávar- og sjó-
mannalög.
19,25 Hljómplötur: Æfingar, Op.
25, eftir Chopin.
20,20 Samleikur á orgel og píanó:
Eggert Gilfer og Fritz
Weisshappel): Hugleiðingar
eftir Schumann.
20,35 Erindi: Um Keflavík (Helgi
S. Jónsson).
21,00 Útvarpshljómsveitin: ís-
lenzk alþýðulög. Einsöngur
(Einar Sturluson): a) Sigfús
Einarsson: Augun bláu. b)
Sigv. Kaldalónsf Vorvindur.
c) Sigfús Einarss.: Drauma-
landið. d) Pergolese: Nina.
21,30 Hljómplötur: a) Casals leik-
ur á celló. b) 21,40 Gamlir
dansar.
MÁNUDAGUR:
Næturlæknir er Gunnar Cortes,
Seljavegi 11, sími 5995.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
apóteki.
ÚTVARPIÐ:
19,25 Hljómplötur: Danskir þjóð-
dansar.
20,20 Stjórnmálaumræður,
Reykjavíkurkvöld: Ræðu-
tími fyrir hvern lista 35
mín., tvær umferðir, 20—25
mín. og 10—15 mín. Röð
listanna: 1. A-listi (Alþýðu-
flokkur). 2. E-listi (Þjóð-
veldismenn). 3. C-listi (Sós-
íalistaflokkur). 4. F-listi
(Frjálslyndir vinstrimenn).
5. D-listi (Sjálfstæðisflokk-
ur). 6. B-listi (Framsóknar-
flokkur).
Meistaramótið:
Nýtt met í 4x400
m. boðhlanpi.
K R. taljóp á 3:37,8 mín.
Efsti maður B-list-
ans segíst ætia sð
ttjósa D-iistanií!
Sr’URNINGARNAR ÞRJÁR,
sem Alþýðublaðið lagði
fyrir kjósendur í leiðara sínum
fyrir íáum dögum: hvort þeir
væru með því, að gerðardóms-
lögin væru áfram í gildi; hvort
þeir væru með því að lággengi
krónunnar héldi áfram, og
hvort þeir væru með því, að út-
svör almennings væru hækkuð
eins og í ár, en stríðsgróðaíyr-
irtækjunum hlíft við sköttum
og útsvari, — þessar þrjár
spurningar virðast hafa farið
töluvert í taugarnar á Morgun-
blaðinu, enda benti Alþýðu-
blaðið á það, að það væru ekki
nema þeir, sem vildu svara
þessum spurningum játandi,
sem gætu kosið Sjálfstæðis-
flokkinn við í hönd farandi
kosningar.
Morgunblaðið hefir bersýni-
lega strax farið á stúfana til
þess að leita uppi einhverja,
sem segja vildu já við spurn-
ingunum og lýsa á þann hátt yf-
ir fylgi sínu vio Sjálfstæðis-
flokkinn. En það gekk erfiðlega.
Það varð að síðustu að fara upp
í stjórnarráð á fund Magnúsar
Jónssonar, efsta mannsins á
lista Sjálfstæðisflokksins hér í
Reykjavík — D-listanum -— og
þar fann það loksins manninn,
«em var reiðubúinn til að svara
spurningum Alþýðublaðsins
iátandi. Hann settist niður og
skrifaði fyrir Morgunblaðiö
nafnlausa grein, sem allir
þekkja þó af orðalaginu. Þar
lýsir efsti maðurinn á lista
sjálfstæðisflokksins því yfir,
að hann svari öllum spurning-
um Alþýðublaðsins játandi og
ætli að kjósa D-listann!
Mikið var! Hver ætti annars
að kjósa hann?
Stórntgerðin. I
(Frh. af 2. síðu.)
hrcssakaupum hans við Fram-
sókn um breytingarnar á skatta
lögunum? Hún varð sú, að
hann fékk því til leiðar komið,
að það, sem stríðsgróðafyrir-
tækin urðu að greiða í auknum
stríðsgróðaskatti, fengu þau
aftur við það, að hannað var að
: leggja nokkurt útsvar á tekjur
j þeirra, -sem voru umfram 200
þúsuhd krónur. Það var á þenn-
an hátt, sem Ólafur Thors
tryggði sér það, að útsvar
Kveldúifs í ár var lækkað úr
730 þúsund kronum, sem hefði
átt að vera 2 milljónir, niður í
emar 93 þúsundir!
Það er þýðingarlaust fyrir
Morguntlaðið að ætla sér að
reyna að biekkja Reykvíkinga
um niðurjofnunina í Reykjavík
í ár. Þeir kunna fullkomlega að
lesa úr tölum og þurfa enga
hjálp Mcrgunblaðsins til þess.
Þeir finna líka ’hina auknu
Lyrði af útsvörununm á sínum
eigin bökum, og vita nú, fyrir
hVerja þeim cr látið blæða.
Morgunblaðilygar.
(Frh. af 2. síðu.)
að 100%, og allra sízt, þegar
útsvar Kveldúlfs er um leið
lækkað úr 730 þúsundum niður
í 95 þúsundir og stríðsgróða-
skatturinn ekki hækkaður
meira en það, að KveldúKur
greiðir samtals svo að segja ná-.
kvæmlega sömu upphæð í
skatta og útsvar nú og í fyrra,
þrátt fyrir áframhaldandi millj-
ónagróa og vaxandi varasjóði.
MUNIÐ 15% SKATTINN,
sem íhald og Framsókn ætl-
uðu að setja á laun verka-
manna í setuliðsvinnunni. —
Alþýðuflokkurinn stöðvaði
þá fyrirætlun í bili. — Kjós-
ið A-listann!
Nýi s|ómannaskóiinn:
Loftskeytamertii mótmæia einræði
ðlafs Thors n bsrgpgn skðlans.
Þeir viija ekki láta byggja haun eftir
teikningu Sigurðar Guðmundssonar.
Félag loftskeyta-
MANNA hélt aðalfund
MEISTARAMÓT Í.S.Í. hófst
í gærkveldi. K.R. setti
nýtt met í 4x400 m. boðhlaupi.
Gamla metið átti K.R. Það var
sett 1937 og var 3.44.2 mín. Hið
nýja met er 3.37.8 mín.
Úrslit urðu sem hér greinir:
4X100 m. boðhlaup:
1. Sveit K.R. 46.4 sek. Sveitina
skipuðu: Jóhann B., Sverrir
E., Sigurður F. og Brynjólf-
ur I.
2. Sveit Ármanns 47.7 sek.
Sveitina skipuðu: Sigurjón
H., Árni K., Sigurgeir Á. og
Baldur M.
3. Sveit K.R. 51 sek.
4x400 m. boðhlaup:
1. Sveit K.R. 3.37.8 mín. Sveit-
ina skipuðu sömu menn og í
4X100 m.
2. Sveit Ármanns 3.41.2. Sveit-
ina skipuðu sömu menn og í
4x100 m. að viðbættum
Herði H. og fráteknum Sig-
urjóni H.
Boðhlaup þessi voru mjög
skemmtileg, en áhorfendur
mjög fáir.
Tímamir eru ágætir, sé tekið
tillit til að hlauparar eru ekki
komnir í síha beztu æfingu.
x. y. z.
sinn í fyrradag. Eftir að
venjulegum aðalfundarstörf-
uni var lokið hófust umræð-
ur um ýms hagsmuna- og
velferðarmál loftskeyta
manna og sjómanna yfirleitt.
Var sérstaklega mikið rætt
um hinn fyrirhugaða sjómanna-
skóla, og kunnu loftskeytamenn
illa einræðisákvörðunum Ólafs
Thors í því máli; enda sam-
þykktu þeir ályktun í því máli.
Þá var og rætt um nauðsyn-
ina á enduirnýjun fiskiflotans, '
og voru fundarmenn mjög óá- J
nægðir út af úrslitum þess máls
á alþingi.
Þessar ályktanir voru sam-
þykktar á fundinum:
„Aðalfundur F. í. L„ haldinn
26. júní 1942, mótmælir ein-
dregið að fyrirhugaður sjó-
mannaskóli íslands verði byggð-
ur eftir eða í líkingu við upp-
drætti Sigurðar Guðmundsson-
ar, sem hlutu hæstu verðlaun í
hugmyndasamkeppni um sjó-
mannaskólann, og sem síðan
hafa veri birtir í Lesbók Morg-
unblaðsins. (7. júní 1942).
Álítur fundurinn, að hvorki
sé hægt að sætta sig við útlit
byggingarinnar, eins og hún er
á uppdrættinum, eða þá afstöðu,
sem henni er valin á hinni fyrir-
huguðu lóð.
Enn fremur vill fundurinn
mælast til þess, að 10—20 ut-
anbæjarnemendum verði tryggð
heimavist í skólanum, en ráð
gert fyrir heimavistarhúsi, er
síðar yrði byggt á lóðinni.
7
Jarðarför okkar hjartkæru eiginkonu, móður og tengda-
móður,
MARGRÉTAR VIGFÚSDÓTTUR,
fer fram frá fríkirkjunni þriðjudaginn 30. þ. m. og hefst með
húskveðju að heimili hinnar látnu, Hverfisgötu 58, kl. 1 e. h.
Björn Jóhannsson, börn og tengdabörn.
Jarðarför okkar hjartkæra eiginmanns og föður,
ÁRNA MAGNÚSSONAR, vélstjóra,
fer fram frá fríkirkjunni mánudaginn 29. þ. m. og hefst með
húskveðju að heimili hins látna, Ránargötu 32, kl. IV2 e. h.
Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Valdís Þorvaldsdóttir og börn.
Fundurinn mótmælir einnig
þeirjri ákvörðun atvinnumála-
ráðherra, að taka ekki til greina
ítrekaðar samþykktir og áskor-
anir byggingarnefndar sjó-
mannaskólans, um að húsa-
meistara ríkisins yrði falið að
gera uppdrátt að skólabygging-
unni, eftir að sýnt var, að eng-
inn þeirra uppdrátta, sem borizt
höfðu, var af nefndarinnar hálfu
talinn hæfiyr til 1. verðlauna.“
„Aðalfundur Félags íslenzkra
loftskeytamanna, haldinn 26.
júní 1942, tók til umræðu ný-
byggingarmál og endumýjun
togaraflotans. Lýsti fundurinn
yfir vantrausti sínu á aðgerðum
alþingis í þessum málum, þar
sem ekki hafa enn verið tryggð-
ir fjárhagslegir mögleikar á
endurnýjun fiskiflotans. Telur
fundurinn aðgerðir alþingis
vera veigalitlar og ná alltof
skammt.“
í stjórn félagsins voru kosnir
Friðrik Halldórsson, Halldór
Jónsson, Geir Ólafsson, Jón Ei-
ríksson og Haukur Jóhannesson.
Myndir af ibiíðnm.
Frh. af 2. síðu.
efndi til, og leigði síðan út.
Þetta var alltaf fellt. Loksins
fyrir ári síðan fékk Alþýðu-
flokkurinn allt í einu samþ.
tillögu um að málið skyldi at-
hugað; og skyldi miðað við það,
að byggð yrðu þriggja til fjögra
hæða stórhýsi með smáíbúðum,
sem síðan skyldu leigðar út eða
seldar. Alþýðuflokkurinn ætl-
aðist vitanlega til þess, að mál-
inu yrði hraðað sem mest, vegna
hins ægilega húsnæðisleysis, en
menn þekkja hraðann í athöfn-
um íhaldsins! Á hverjum einasta
bæjarstjórnarfundi, sem hald-
inn hefir verið síðan tillagan
var samþykkt, hefir verið spurt
um; hvað málinu liði, en svarið
hefir alltaf verið það sama, að
málið væri í „athugun11. Um leið
og þessar fyrirspurnir hafa var-
ið gerðar, hafa fulltrúar Al-
þýðuflokksins hvatt til þess, að
bærinn tryggði sér byggingar-
efni, á meðan verið væri að
teikna húsin. Húsameistárar
bæjarins hafa um mjög langan
tíma unnið að teikningunum,
enda hafa þeir mikið að gera,
þar sem á sama tíma er verið að
vinna að teikningum tveggja
barnaskólahúsa. Húsameistar-
arnir báðu um aðstoð, en fengu
hana ekki. Borgarstjóri upp-
lýsti þó á siðasta bæjarstjórnar-
fundi, að hann hefði keypt
byggingarefni og að teikning-
arnar yrðu tilbúnar „innan
skamms“.
Loks í gær er svo Morgun-
blaðið látið birta myndir af
þessum fyrirhuguðu hú^um. Og
á þessum myndum eiga húsnæð-
islausu fjölskyldurnar að lifa
fram yfir kosningar! Það var
ekki hægt að nota hitaveituna
núna! Þess vegna var séð svo
um, að teikningarnar að húsun-
um yrðu tilbúnar fyrir kosning-
ar! En hætt er við, að almenn-
ingi nægi þetta ekki. Ef það,
sem eftir er; tekur jafnlangan
tíma fyrir íhaldið og það, sem
búið er, þá munum við ekki sjá
þessar íbúðir fyrr en að löngum
tíma liðnum.
Alþýðuflokkurinn treystir að
minnsta kosti íhaldinu ekki bet-
ur en svo í húsnæðismálunum,
að hann trúir því ekki enn, þrátt
fyrir teikningarnar og mynd-
irnar í Morgunblaðinu og þrátt
fyrir hið „keypta byggingar-
efni“, að hugur fylgi máli.
Þessar byggingar gátu verið
búnar um leið og þeir verka-
mannabústaðir, sem nú er verið
að taka til notkunar. Það vant-
aði aðeins vilja og skilning
Sjálfstæðisflokksins í bæjar-
stjórn — framkvæmdaþrek
hans og fyrirhyggju.
Vopnakaup
lögreglunnar.
Frh. af 2. síðu.
skotabyssur „í höndum lögregl-
unnar“. Þetta er ekki rétt frá
skýrt. Hins vegar sagði Jón Ax-
el, að hann hefði séð þau vopn,
sem keypt hefðu verið handa
lögreglunni. Það er ekki sama
og að hann hefði séð vopnin í
höndum lögreglunnar.
En af upplýsingum lögreglu-
stjóra, ef upplýsingar skyldi
kalla, og af þögn dómsmálaráð-
herra, er auðséð, að þau vopna
hafa verið keypt handa lögregl-
unni, sem skýrt hefir verið frá.
Hins vegar virðist eitthvað hár-
ugt við þetta, sem almenningur
má ekki fá að vita. Er Jakob
Möller að hlífa Hermanni Jón-
assyni? Og ef svo er: Hvers
vegna er hann að hlífa honum?
Hvers vegna má almenningur
ekki vita hið sanna í þessu
vopnakaupamáli ?
Arthur Gook
heldur almenna samkomu í
kvöld (sunnud.) kl. 8% í Kaup-
þingssalnum. (Lyftan í gangi.)