Alþýðublaðið - 11.08.1942, Page 3
ALÞYÐUBLAÐIÐ
JÞriðjudagur 11. ágúst 1942.
Amerikumenn setja lið á land á Salomons
K
mni-
krðaðar.
Þjóðverjar faka
Maikop, Srasno»
das* og Pyatigorsk
UBANHER RÚSSA hefir
verið afkróaður og
nu
Þjóðverjar sækja hratt fram í
tvær áttir í Kaukasus: Til flota
stöðvarinnar Novorossisk, sem
er við Svartahaf, og til stranda
Kaspíhafsins, en þar er stytzt
yfir Kaukasusfjöllin eða fram
hjá þeiín til avýðugustu olíu-
Svæða í heimi við Baku.
Aukatilkynningar voru gefn-
ar út í Berlín í gær: Þjóðverj-
ar hafa tekið olíuborgina Mai-
kop með áhlaupi, þeir hafa
iekið Krasnodar, þeir hafa tek-
Íð Pyatigorsk. Krasnodar er
skammt frá strönd Svartahafs-
ins og mikilvæg járnhrauta-
borg. Maikop er, sem kunnugt
er, annað olíusvæðið norðan
við fjöllin og Pyatigork ,er
miðja vegu milli Maokop og
Groznau olíusvæðanna.
Á öllu þessu er bersýnilegt,
að Þjóðverjar vaða mótstöðu-
lítið yfir landið og eru þeir
komnir í næsta nágrenni við
Kaukasusfjallgarðinn. Fréttarit
arinn Paul Winterton segir í
skeyti frá Moskva, að það sé
bersýnilegt, að Kubanher
Rússa sé innikróaður og hafi
ekkert samband við austurhér-
uð landsins.
í krikanum á Don halda
Rússar að því er virðist ve’xli
og hafa Þjóðverjar enn hvergi
komizt yfir fljótið. Hafa Þjóð-
verjar á þessum slóðum haldið
uppi stórkostlegum loftárásum
Lið á land . . .
Bandamenn hafa nú í fyrsta sinni hafið sóknaraðgerðir til þess að vinna lönd af Möndul-
veldunum með því að fara yfir sjó og setja lið á land. Þessi mynd er að vísu ekki af am-
eríkskum hersveitum, sem nú hafa gengið á land á Salomonseyjum, en hún sýnir skozka
hermenn stökkva út úr landgöngubát.
Óelrðlr i Indlandl eftir handtðkn
* Gandhis og féiaga hans
á stöðvar Rússa og má á hvorri
stundu búast við því, að peir
geri tilraun til þess að brjótast
til Stalingrad.
Þjóðverjar tilkynntu í gaér, að
þeim hefði tekizt að innikróa
mikinn rússneskan her á svæð
inu við Kalatsch. Segjast þeir
hafa hrundið miklum tilraun-
um Rússa til þess að rjúfa
hringinn, sem þýzku hersveit-
irnar hafa myndað um þá. Þýzki
flugherinn heldur uppi stór-
kostlegum árásum á hinar inni-
króuðu hersveitir.
Hræddir við innrás?
Þjððverjar lýsa II strandsvæði
Noregs í hernaðarástand.
Hóta að taka hvern mann af lífi, sem
uppvís verði að pví, að hjálpa ,óvininum‘
BLÖÐIN í STOKKHÓLMI fluttu í gær, undir stórum
fyrirsögnum, þá frétt frá einkafréttariturum sínum í
Osló, að öll strandsvæði í Noregi hefðu verið lýst í hernaðar-
ástandi og verið undir herlögum síðan 1. ágúst.
Því var samtímis yfir lýst af þýzku herstjórninni, að ef íbú-
arnir á þessumsvæðum hjálpuðu „óvininum“, eins og komist var
að orði, á einn eða annan hátt, yrðu þeir, sem sekir yrðu álitnir
um það, teknir af lífi tafarlaust.
Lögreglan skýtur á mugmn,
margir særðir og drepnir.
--------------- .. ♦.....
EFTIR að indverska stjórnin fyrirskipaði handtöku
Gandhis, Nehrus og um 40 annarra leiðtoga Kongress-
flokksins, hafa miklar óeirðir átt sér stað í Indlandi. Mestar
hafa þær orðið í Bornbay, en einnig allmiklar í Allahabad,
Ahmedbad og Poona, en þar eru hinir handteknu leiðtogar
Kongressflokksins hafðir í haldi.
Fylgismenn Kongressflokksins hafa farið hópgöngur í
trássi við fyrirskipanir stjórnarinnar, þeir hafa reynt að
eyðileggja síma og póstkerfi Bombay, þeir hafa slitið síma-
línur, og eyðilagt járnbrautalínur. Hefir lögreglan gripið
til öflugra gagnárása og hvað eftir annað skotið á mann-
fjöldann. Hafa 15 manns verið drepnir, og 159 særzt, ekki
aðeins af Indverja hálfu, heldur og meðal lögreglumanna.
Hafa tveir þeirra látizt af sárum og aðrir 27 liggja meira
eða minna særðir á sjúkrahúsum.
Þá skýrðu Stokkhólmsblöðin
einnig frá því í gær, samkvæmt
fregnum frá Oslo, að Quisling
sé í kyrrþey farinn til Þýzka-
lands til fundar við Hitler. —
Þetta hefði þó strax vitnast, og
væri búizt við, að Þýzkalands-
för hans myndi hafa ýmsar mik
ilvægar ákvarðanir í för með
sér, sem sennilega yrðu birtar
norsku þjóðinni þ. 25. sept. n.k.
— en þá eru tvö ár liðin frá
því, að Terboven, landstjóri
Hitlers í Noregi, gerði Quisl-
ing að forsætisráðherra í Oslo.
Margir af ,,hirðmönnum“
Quislings hafa verið dregnir
fyrir rétt fyrir að ræna hús
manna, segir í fregn frá Oslo.
Svenska Dagbladet í Stokkh.
hefir fyrir nokkru^ birt áskor-
unarskjal frá „Hinum frjálsu
verkalýðsfélögum,“ þar sem
skorað er á norska verkamenn
að neita að vinna að virkja-
byggingum fyrir Þjóðverja. —
Stjórn Indlands; sem tók á-
kvörtunina um handtöku Kon-
gressmannanna og hinar öflugu
gagnráðstafanir lögreglunnar,
er skipuð 11 Indverjum og 2
Bretum, og er annar þeirra vara
konungur landsins.
Smáhópur stúdenta og ann-
arra Kongresssinna hafa ráðizt
á ýmsar stöðvar Breta, þar á
meðal lögreglustöðvar og grýtt
Segir þar, að /það sé tilgangur
nazista að gera Noreg að óvinn-
andi virki, og hafi þeir orðið
að þvinga menn til vinnu, þar
eð þeim hefir ekki tekizt að fá
nægan vinnukraft á annan hátt.
í skjalinu er skorað á menn
að „láta Þjóðverja sjálfa heyja
sitt stríð .... hjálpa þeim ekki
að þvinga Norðmenn .... og
neita að vinna fyrir þá, án til-
lits til eigin hagsmuna“. Segir
Svenska Dagblaðið að lokum
um skjal þetta, að mótstaða
Norðmanna muni harðna, ef
þetta komi til framkvæmda.
þær. Þá hefir komið til vinnu-
stöðvunar í nokkrum baðmull-
arverksmiðjum. — Kaupmenn
hafa verið hvattir til þess að
loka verzlunum sínum, og
jafnvel neyddir til þess á sum-
um stöðum.
Kona Gandhis, sem er sjötug,
tveim árum yngri en hann, hef-
ir einnig verið handtekin. Var
henni boðið að fylgjast með
manni sínum, ef hún vildi, en
ella ganga laus. Vildi hún ganga
laus, en þá komust Bretar að
því, að hún hélt beina leið til
fundar, þar sem Gandhi ætlaði
að vera. Brugðu þeir þá fljótt
við og tóku hana líka fasta.
í tveim borgum hefir komið
til alvarlegra óeirða, svo að um
hreint múgæði var að ræða. —
Kornverzlanir hafa verið
rændar og Önnur ódæðisverk
framin.
Jinnah, leiðtogi Muhammeds
manna hefir skorað á menn
sína að láta sig baráttu Kon-
gressflokksins engu skipta.
eyjum.
■ ■ * . \
Stórorrustur
geísa þar.
Fréttip Japana um
skipatjón banda*
manna stórýktar.
AMERÍKSKAR hersveit-
ir hafa gengið á land
á Salomonseyjum norðaustur
af Ástralíu, og eru háðar þar
stórorrustur við Japani, sem
hafa eyjarnar á sínu valdi.
Þetta er fyrsti vottur um
sókn af hálfu Bandamanna
£ Kyrrahafi og er eðlilegt,
að þeir snúi sér fyrst að Sal-
omonseyjum því að þaðan
geta Japanir gert árásir á
samgönguleiðina milli
Bandaríkjanna og Ástralíu,
en eftir henni flytja Ameríku
menn hergögn og lið til
Ástralíu.
Fregnir eru mjög af skorn
um skammti um viðureign-
ina á eyjunum, en flotinn
mun bera hita og þunga
dagsins og stjórnar Nimitz,
aðmíráll hernaðaraðgerðum.
Yfirforingi ameríkska flot-
ans, King, aðmíráll, hefir
gefið út yfirlýsingu um inn-
rásina á Salomonseyjar, og
segir hann þar, að Japanir
hafi sýnt harðvítuga mót-
spyrnu. Ameríkumenn komu
þeim fyrst á óvart, en þeir
jöfnuðu sig brátt og gerðu
mikil gagnáhlaup. Hafa stór-
kostlegar orrustur verið háð-
ar og munu þær geysa enn.
King skýrði frá ,því, að ó-
mögulegt hefði verið að fram-
kvæma hernaðaraðgerðir þess-
ar án þess að verða fyrir
nokkru skipatjóni. Hefir einu
ameríksku beitiskipi verið
sökkt, tvö verið löskuð, tveir
tundurspillar laskaðir og eitt
flutningaskip. Japanir hafa birt
fregnir um mikið skipatjón
Ameríkumanna en King kvað
þær fjarstæðar. Japanir sögð-
ust hafa sökkt 21 skipi: orustu-
beitiskip, fimm beitiskipum,
fimm tundurspillum og tíu
flutningaskipum. Ennfremur
segjast þeir hafa skotið niður
41 flugvél. Um tjón Japana eru
Ameríkumenn fáorðir, og var
þetta tilkynnt: Fjölda margar
flugvélar skotnar niður og skip-
um sökkt.
Japanir hafa sett lið á land á
Kiska í Aleuteyjum, og hafa
ameríkskar flugsveitir gert loft-
árásir á stöðvar þeirra. Áður
höfðu Japanir náð eynni Attu
á sitt vald.
Matvælaástandið í Noregi er
mjög slæmt og segir málgagn
Quislings, „FrittFolk", að það
sé svo alvarlegt sem það geti
orðið og verra en nokkru sinni
fyrr. Vegna skyrbjúgs og ann-
arra sjúkdóma hefir vinnu-
máttur verkamanna minkað
mjög og gera framleiðendur
ráð fyrir því, að heildarfram-
leiðsla landsins minnki innan
skamms um 30 af hundraði.
■i.ini’