Alþýðublaðið - 23.08.1942, Síða 3
Sunnudagur 23. ágúst 1942
ALÞYÐUBLAÐIÐ
. újkS3&‘ Tsqm
Brazilia segir Þýzkalandi og Ítalíu stríð
Rrupps-verksmiðinrnar
á hendur.
Eitt auðugasta
land jarðarinnar
gengur í hóp
Bandamanna
II EIMSSTYRJÖLDIN mikla,
sem hófst í Póllandi fyrir
tæpum þrem árum, hefir nú
breiðzt út til eins landsins enn.
Brasiliumenn, ein auðugasta
þjóð heimsins, hafa svarað fyr-
ir skipin, sem var sökkt fyrir
þeim, og mennina, sem voru
drepnir, með því að segja
jÞýzkalandi og Ítalíu stríð á
hendur.
Stjórn Brasilíu samþykkti í
dag stríðsyfirlýsingu á hendur
þessum tveim árásarþjóðum, og
hefir sendiherra Brasilíiunanna
s Washington þegar tilkynnt
Bandaríkjastjórn, að land hans
eigi í stríði við Þýzkaland og
Ítalíu, þótt stríðsyfirflýsingijn
hafí ekki veri(ð samþykkt af
þinginu.
Brasilía er 11. og, að Banda-
ríkjunum undanskildum, auð-
ngasta þjóðin á vesturhveli-
jarðar, sem segir sig í stríð við
Möndulveldin. Kafbátar höfðu
xxndanfarna daga sökkt sex skip-
um úti fyrir strjindum landsins,
og fórust mörg hundruð manns
með þeim.
Með Brasilíu hafa Banda-
menn fengið í sinn hóp eitt auð-
ugasta land jarðarinnar, sem
jafnframt er þannig staðsett, að
þeim er, hinn mesti hagur að
bækistöðum á því. Landið er 85
sinnum stærra en ísland, eða
8 511 000 ferkm. og íbúarnir eru
46 milljónir. í Brasilíu, sem rit-
höfundurinn Stefan Sweig kall-
aði „land framtíðarinnar“, er
landbúnaður í miklum blóma,
og er þar eitt hið mesta kaffi-
land veraldarinnar. Einnig er
þar að finna gúmmí, sem
Bandamenn hafa mjög mikla
þörf fyrir, sykur, kókósbaunir,
bómull, húðir og skinn, kjöt og
margt fleira. Málmauðug er
Brasilía með afbrigðum og er
þar mikið járn í jörðu, svo og
dýrir málmar, gull, silfur og
fleira.
Brasilía á lítinn en vel þjálf-
aðan her og flugher, sem þegar
hefir sökkt nokkrum kafbátum
úti fyrir ströndum landsins.
Flotinn er einnig lítill,, en mun
þó koma sér vel. Flotastöðvar
landsins munu verða skipalest-
úm Bandamanna hinar mikil-
vægustu, þegar á það er litið,
hversu stutt er frá ströndum
Brasilíu yfir til Afríku. -Fyrir
flughernaðinn er þessi land-
fræðilega lega ómetanleg.
Allmikið er af Þjóðverjum í
Brasilíu og hafa þeir verið mjög
vel skipulagðir og haldið uppi
víðttekri njósnar- og áróðurs-
starfsemi. Síðan Brasilía sleit
stjórnmálasambandi við Þýzka-
land í janúar 1942 hefir starf-
semi þessi minnkað allmjög
vegna framkvæmda stjórnar-
innar til þess að uppræta hana.
i
♦
I Köln hafa verið eyðilagðar 250 verksmiðjur og vafalaust er sömu sögu að segja um Essen. Hér sést mynd af hinum
------------------------------------------------------------------------,--------* írægu Kruppverksmiðjum, sem
hafa skemmzt mikið.
Orrustan um Don-bugðnna er að
Japðnsknu gaonð-
hlapnnm hrnntið ð
Salouonsejrjum.
New York í gærkveldi.
MERÍKSKA landgöngulið-
ið á Salomonseyjum hefir
hrundið mikilli tilraun Japana
til þess að ná aftur úr höndum
þess einni af Salomonseyjunum,
sem eru á valdi þess. Að nætur-
lagi fluttu hraðbátar 700 manna
lið og settu það á land á eynni,
sem taka átti. Ameríkumenn
voru þó viðbúnir og kom þegar
til mikillar návígisorrustu, sem
stóð fram undir morgun.
Ameríkska landgönguliðið
hélt velli og hrakti Japana aft-
ur til strandar, þar sem þeir
voru svo að segja allir felldir,
en þeir fáu, sem eftir lifðu, voru
teknir fastir.
Segir í tilkynningu frá Nimitz
aðmírál, að 670 japanskir her-
menn af þeim 700, sem árásina
gerðu, hafi verið drepnir, en
hinir 30 teknir til fanga.
GILBERTSEYJAR
Það, sem Japanir höfðu til-
kynnt, að væri innrásartilraun
Bandamanna á Gilbertseyjar,
var víkingaárás. Hafa Ameríku-
menn tilkynnt, að þeir hafi gert
slíka árás á eyna Makin, sem er
ein af nyrztu eyjunum 1 í Gil-
bertseyjaklasanum. Voru 80
Japanir felldir, loftskeytastöð
eyðilögð, tvær sjóflugvélar
eyðilagðar, flutningaskipi og
fallbyssubát sökkt. Jaþanskar
flugvélar komu á vettvang og
köstuðu þær sprengjum sínum
í misgripum á stöðvar sinna eig-
in manna.
ALEUTEYJAR
Flotamálaráðuneytið í Wash-
ington tilkynnir, að 3 flutninga-
skipum hafi verið sökkt við
Aleuteyjar. Enn fremur var
tundurspillir laskaður og hefir
sennilega verið sökkt. Annars
staðar í Kyrrahafinu hefir stóru
japönsku flutningaskipi verið
sökkt.
London, í gærkveldi.
RETAR hafa tekið 14
danska fiskibáta á Norður-
sjó og flutt þá til brezkrar hafn
Bjirgonarstarjsemi
í Eritreu.
KAIRO, 6. ágúst.
MERÍKSKIR verkamenn,
sem unnið hafa við eitt
mesta björgunarstarf í sögu
siglinganna, hafa lokið við stór-
virki, sem margir héldu að
væri ómögulegt að vinna. Er
það að ná upp þurrkví einni,
sem getur tekið allt að 10 000
smálesta skip; en hún er í Mas-
sava í Eritreu við Rauðahaf.
Höfn þessi féll í hendur Breta
8. apríl 1941.
Verk þetta var unnið undir
stjórn Edward Ellsberg, höfuðs-
manns, sem er frægur fyrir að
bjarga kafbát og hefir einnig
ritað margar bækur.
Höfnin í Massava var stæsta
flotastöð ítala fyrir utan Ítalíu.
Skömmu áður en hún féll í
hendur Breta sökktu ítalskir og
þýzkir skipstjórar öllum skip-
um og þurrkvíum í höfnina og
eyðilögðu mannvirki við hana.
Þeir hældu sér af því að hafa
unnið verk sitt til fullnustu. 26
skipum og annarri minni skipa-
kví var enn fremur sökkt
um leið. — Það kom í ljós, að í
skipakvínni Voru átta vatnsþétt
rúm og höfðu ítalir sett 200
punda sprengju í hvert þeirra.
Byrjað var að kafa 11. maí og
var kvíin komin á flot 20. maí.
Þannig höfðu þeir gert ,,hið ó-
mögulega“ á níu dögum.
Ellsberg höfuðsmaður sagði í
dag, að hann áliti, að mögulegt
væri að 'bjarga öllum skipunum
þýzku og ítölsku í Massava.
Flest skipin eru 5000 smálesta
flutnings- og farþegaskip og enn
fremur eru 2 þýzk 14 000 smá-
lesta farþegaskip. (N.Y. Times.)
LONDON — Bretar gerðu í
gær árás á skipalest á Miðjarð
arhafi og sökktu einu skipi.
ar. Var fyrir nokkru gefin út
frá London aðvörun til fiski-
manna á ströndum Evrópu og
iþeir varaðir við því að sigla
út fýrir landihelgina. Þessu hef
ir ekki verið fylgt og hafa Bret-
ar því tekið dönsku fiskiskipin
og gert þau upptæk.
taefjast.
Smáflokkar Þjóð-
verja komast yfir
fljótið.
Undanhald í Kaukasns.
London, í gærkveldi.
IKLAR orrustur eru nú
háðar á báðum bökkum
Donfljótsins, þar sem það er
næst Stalingrad'. Rússar berjast
enn yestan við fljótið og segj-
ast hafa gert þar gagnáhlaup
mikil og tekið nokkur þorp. Það
er hins vegar Ijóst, að Þjóðverj-
ar hafa á stóru svæði komizt að
bökkum fljótsins. Hafa þeir sent
smáflokka yfir fljótið, en þung-
um hergögnum hafa þeir enn
ekki komið yfir það. Eru það
hermannaflokkar, vopnaðir
Tommyvélbyssum, sem fara yf-
ir að næturlagi og fela sig á
eýstri bakkanum. Gera þeir svo
árásir á Rússa úr launsátrum,
meðan þeir bíða eftir liðsstyrk.
Er það von Þjóðverja að ná
þannig fyrr eða síðar fótfestu,
þótt þeir geti ekki um sinn gert
stórsókn yfir fljótið.
Suðvestan við Stalíngrad
hafa Þjóðverjar gert mikið
skriðdrekaáhlaup og tekizt að
brjótast nokkuð í gegnum víg-
línur Rússa. Höfðu þeir þegar
síðast fréttist misst um 50 skrið-
dreka, en orrustan geisaði af
miklum krafti.
í Kaukasus hafa Rússar enn
hörfað fyrir ofurefli liðs, sem
Þjóðverjar hafa þar. Þjóðverj-
ar segjast hafa tekið bæinn
Krimskaya, sem er aðeins 30
km. frá flotastöðinni Novoros-
sisk, en hún er í mikilli hættu.
Sunnan við Pyatigorsk hafa
Þjóðverjar enn sótt fram til ol-
íunnar við Grozny. Hafa Rússar
neyðzt til þess að hörfa, en á-
standið er enn ekki vonlaust
fyrir þá, segja fréttaritarar.
Landið er á þessum slóðum
hæðótt og blómlegt mjög. Eru
Rússar að flytja sig af láglend-
inu til fjallanna, eftir því sem
( Þjóðverjar sækja á. Má sjá fjöl-
skyldur, konur, börn og gamal-
menni streyma suður í fjöllin,
en hermenn og brynvagnar
streyma í öfuga átt, til vígstöðv-
anna.
250 verksmiðj-
nr í Koln ero
í rnstnm
ii! -i' if i
250
verksmiðjur voru lagð
ar í rúst eða stórkost-
lega skemmdar í æjáisunum
miklu, sem brezki flugherinn
gerði á Köln, sagði flugmálaráð
herra Breta sir Archibald Sin-
clair í ræðu í dag. Og í árás-
unum, sem gerðar voru á Ren-
aultverksmiðjurnar við París
hefðu Þjóðverjar getað fengið
bifreiðar og skriðdreka fyrir
fimm vélahersveitir, ef flugher
Breta hefði ekki eyðilagt þær.
Sir Archibald Sinclair hélt á-
fram; “Árásir Bandamanna
verða miskunnarlausar og það
má búast við fleiri fjögurra-
talna-árásum, þegar ameríkski
flugherinn hefir komið sér vel
fyrir í Bretlandi.“
“Flugherir Bandamanna háðu
mestu loftorrustu stríðsins yfir
Dieppe,“ sagði hann, ,,og voru
farnar 3000 árásaferðir til
Frakklands þann dag. Strand-
gæzlufluglið Breta hefir flogið
um 75 000 000 kílómetra, síðan
stríðið hófst.“
Spitfireflugvélar fóru í dag
yfir Dieppe og sögðu flugmenn-
irnir frá því, að þeir hafi flogið
yfir fallbyssustæði og ekki séð
sálu þar, en eina andstaðan. sem
þeir urðu varir við, var frá einu
loftvarnavirki. Annar staður
var, eins og flugmaðurinn orð-
aði það, „rækilega brenndur
niður“.
Pólskir flugmenn í Spitfire-
flugvélum fóru í dag til árása á
| ýmsa staði í Norður-Frakklandi
og gerðu mikinn usla hvar-
vetna.
London, í gær.
BREZKI kafbáturinn Up-
holder hefir ekki komið aft
ur til bækistöðva sinna og er
hann talinn tapaður. Var þetta
frægur kafbátur^ sem sökkt
hafði skipum óvinanna alls
122 000 smálestum. Hafði hann
verið í Miðjarðarhafinu alla tíð
og var þetta 25. ferð hans. For-
ingi hans hlaut Vietoriukross-
inn fyrir djarflega árás á ítalska
skipalest.