Alþýðublaðið - 25.08.1942, Qupperneq 7
Þriðjudagur 25. águst 1942,
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
i
jBærinn í dag. ?
Næturlæknir er Halldór Stefáns-
son Ránargötu 12, sími 2234.
Næturvörður er í Laugavegs-
apóteki.
Valar enn bezta knatt*
spjrrnufélag Rvíkur.
Vann K.R. i gærkveldi með 3^0.
ÚTVARPIÐ:
12,10—13,00 Hádegisútvarp.
15,30—16,00 Miðdegisútvarp.
19,25 Hljómplötur: Lög leikin á
Hawaiangítar.
20,00 Fréttir.
20,30 Erindi: Frá Lómagnúpi á A1
mannaskarð, II (Eiríkur
Helgason prestur).
20,55 Hljómplötur: Tónverk eftir
Schubert:
a) Symfónía nr. 7.
b) Rösamunda-forléikurinn
21,50 Fréttir.
Gestir í bænum
voru um helgina Erlingur Frið-
jónsson, Akureyri, Magnús Bjarna-
son, Sauðárkróki, Sveinn Halldórs-
son, Bolungarvík, Guðmundur G.
Hagalín, ísafirði, Stefán Stefáns-
son, ísafirði, Kristján Sturlaugs-
son, Súðavík, Bjarni Friðriksson,
Súgandafirði, Steindór Benjamíns-
son, Þingeyri, Sveinbjörn Oddsson,
Akranesi, Sveinn Guðmundsson,
Akranesi, Ragnar Guðleifsson,
Keflavík og Guðmundur Helgason,
V estmannaey j um.
SíSasta tækifærið
til þess að hlýða og horfa ó hina
ágætu, norsku söng- og leikkonu,
frá Gerd Grieg, er í kvöld! Að
því er blaðinu hefir verið tjáð, er
ekki að vænta endurtekningar á
skemmtun þeirri, er hún stendur
fyrir, því atvikin hafa skipast þann
veg, þótt á hinn bóginn margir
verði eflaust afskiptir þeirrar á-
gætu dægrastyttingar.
Katrín
er nafn á bók, sem ísafoldar-
prentsmiðja hefir gefið út. Gerist
mestur hluti. sögunnar í Noregi, og
lýsir bókin þrá stúlku, af norsk-
dönskum uppruna, eftir því landi,
og dvöl hennar þar. Er sagan eink-
um ætluð ungum stúlkum til
skemmtilesturs.
Síðasta sýning frú Gerd Grieg
er í kvöld kl. 8 og eru aðgöngu-
miðar seldir í Iðnó.
Lang hæsta verði.
Hafnarstræti
URSLIT Reykjavíkurmóts-
ins urðu :þau. að Vaiur
varð hlutskarpasta félagið.
Vann mótið með 6 stigum, K.
R. hlaut 4, Fram 3 og Víkingur
1.
Úrslitakappleikurinn fór
fram í gærkvöldi, eins og til
stóð, milli Vals og K. R.
Lolli var nú kominn á sinn
stað í Val og var félagi sínu
mjög þarfur eins og vant er. Er
]sitt fyrir Val, að geta ekki haft
tækifæri til að sýna þennan á-
gæta liðsmann í hverjum leik.
K. R. ingum bættist líka góð-
ur maður, sem var Björgvin
Schram, og hefir hann ekki sést
fyr á þessu móti. Var hann nú
á sínum gamla stað, og kom fél-
agi sínu að góðu liði með sín-
um hnitmiðuðu spyrnum og
traustu vörn.
Bæði félögin sýndu góðan
leik, mjög góðan, er óhætt að
segja, með ágætu samspili og
vel byggðum sóknum á báða
bóga. Þó segja megi að heldur
hafi hallað á K. R., þegar litið
er í heild yfir leikinn, eru úr-
slit hans, 3:0, mjög ósanngjörn
og gefa ekki rétta hugmvnd
um frammistöðu félaganna. 2:1
hefði verið sanngjarnt.
Þó K. R. ingar sýndu oft að
þeir 'hefðu í fullu tré við Val,
voru á köflum þær veilur í
leik þeirra, sem ásamt einstakri
óheppni, orsökuðu þessi úrslit.
Gerðu þeir til dæmis eitt mark-
ið hjá sér sjálfir, og varð ekki
úr vítaspyrnu, er þeir fengu á
síðustu mínútu.
Áhorfendur skiptu þúsund-
um. Og þó þeir hefðu allflestir
kosið meira fjör og sanngjarn-
ari úrslit, fengu þeir þó að sjá
góða knattspyrnu, er byggðist
á samvinnu góðra íþróttamanna
eftir látlausa æfingu þeirra og
ástundun við íþrótt sína. Hafi
þeir þökk íyrir það, svo og fyrir
góða skemmtun á þessu móti.
Áh.
Lok msisíaramóts í. S. í.
h ton Björnssoa
meistari f tugpraut.
Mistaramóti í. s. í.
lauk um helgina með
keppni í 10,000 m hlaupi og tug
þraut. Veður var allgott og
gekk mótið giViðlega. Meist-
arastigin liafa fallið svo að K.
R. hlaut 11, Ármann 5 og F.
H. 4.
Úrslit í 10,000 m hlaupi og
tugþraut urðu sem hér greinir:
10,000 m hlaup:
Meistari
Har. Þórðars. Á. 35,29,6 mín
2. M. Guðbj.s. K.R. 40,53,6 —
Tugþraut:
Meistari
Anton Björnss. K.R. 4794stig
2. Sverrir Emilss. K.R. 4466 —r
3. Jóhann Bernh. K.R. 4208 —
4. Jón Iijartar K.R. 4206 —
5. Rögnv. Gunnls. K.R. 3793 —
Úrslit í einstökum greinum
þrautarinnar voru'sem hér seg-
ir:
100 m hlaup:
1. Jóhann 11,4 sek.
2. Sverrir 11,8 —
3. Rögnvaldur 12,3 —
Tími Jóhanns er sá bezti, sem
náðst hefir í 100 m hlaupi í
sumar.
Langstökk:
1. Rögnvaldur 6,06 m
2. Sverrir 6,01 —
3. Jóhann 5,80 —
Kúluvarp:
1. Anton 11,33 m
2. Jóhann 10,54 —
3. Rögnvaldur 9,58 —
Hástökk:
1. Jón 1,60 m
i.
Nýr tundurspillir
„1
Mynd þessi sýönir nýjan ameríkskan tundurspillir, Fullam, sem hleypt var af stokkunum
í Boston fyrir nokkru. Sama daf var öðrum tundurgpilli hlcypt af stokkunum í sömu
skipasmíðastöð.
Faðir okkar og tengdafaðir,
HELGI SIGVALDASON
frá Litlabæ
andaðist að heimili sínu Hverfisgötu 21 B, Hafnarfirðix23. þ. m.
Börn og tengdabörn..
Móðir mín og tengdamóðir,
GUÐRÚN ÍVARSDÓTTIR
andaðist 23. ágúst.
Bjarney Bjarnadóttir. Þorkell Sigurðsson.
2. Rögnvaldur 1,55 —
3. Ariton 1,50 —-
400 m hlaup:
1. Jóhann 54,2 sek.
2. Sverrir 56,2 —
3. Anton 58,2 —
110 m grindahlaup:
1. Anton 21,2 sek.
2. Rögnvaldur 22,5 —
3. Sverrir 22,6 —
Kringlukast:
1. Anton 32,24 m
2. Rögnvaldur 29,97 —
3. Sverrir 28,28 —
Stangarstökk:
1. Anton 2,97 m
2. Sverrir 2,87 —
3. Jón 2,00 —
Spjótkast:
1. Jón 50,61 m
2. Anton 43,91 —
3. Jóhann 37,19 —
1500 m hlaup:
1. Anton 4:42,00 mín
2. Sverrir 4:44,2 —
3. Jóhann 4:52,4 —
Þetta Meistaramót hefir far-
ið vel fram og árangur frekar
góður. x y z.
Lannatuáí opinberra
starfsmanna.
Frh. af 2. síðu.
varpið í hvorri þingdeild. Frum
vörpum þessum hefir verið vís-
að til fjárhagsnefnda deildanna,
og íhafa þær unnið saman að
afgreiðslu þeirra.
Nefndirnar hafa orðið sam-
mála um að afgreiða þessi mál
með þingsályktunartillögu þess-
ari, og standa allir nefndar-
menn beggja nefndanna að því.
Páll Hallgrímsson áskilur sér
rétt til að bera fram brtt. við
3. málsgrein.“
Eins og sést á þessu' má gera
ráð fyrir að tillagan verði sam-
þykkt. Samkvæmt henni eiga
laun opinberra starfsmanna að
Ihækka um 25—30%. Opiniberir
starfsmenn munu sætta sig við
þessi málalok, en þó ekki verri.
Þeir munu verða óánægðastix
með það, hve lágt markið er,
sem 30% hækkunin er miðuð
við, því að 200 kr. á mánuði er
allt of lágt, þegar tekið er til-
lit til þeirra tíma sem nú eru.
Viðíal við Gaðjðn B.
Baidvinsson.
Alþýðublaðið spurði í gær
ritara Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja, Guðjón B. Bald-
vinsson, um álit hans á iþessari
tillögu og sagði hann m. a.:
„Miðað við þær grunnkaups-
hækkanir, sem ýmsir hópar
lau<nþega hafa náð fbam, og
nú síðast félögin Iðja og Dags-
brún með samningum við vinnu
veitendur, verður ekki talið að
hér sé farið lengra en góðu
hófi gegnir ;sérstaklega er ein-
kennandi að hærri prósentan —
30% — skuli vera miðuð við
200.00 kr. grunnkaup á mán-
uði, það mark er mjög lágt mið-
að við þau launakjör, sem tíðk-
ast annarsstaðar, en hjá rík-
inu.
T. d. hafa hjálparstúlkur nú
orðið slík mánaðarlaun auk
fæðis og húsnæðis. En með öðr-
um endurbótum, sem fást
kunna, er þetta góður styrkur.
Þó lofað sé í orði kveðnu
endurskoðun launalaga, höfum
við því miður takmarkaða von
um að hún verði framkvæmd
-nú; en það er flestum áhuga-
mál.
í slæmu árferði er okkur sagt
að tekjurnar komi þegar batn-
ar í ári, en nú þegar vel árar,
þá fáum við alltaf uppbætum-
ar síðastir, og lægri en aðrir
og þá er látið í ljós af sumum,
að tímarnir séu óheppilegir til
endurskoðunar þar, sem — allt
sé „óeðlilega“ hátt. Þings-
ályktunartillögur um endur-
skoðun launalaga eru árlegir
viðburðir, en árferðið þykir
aldrei eðlilegt — normalt — til
að framkvæma þær. M. a. þess-
vegna var lagt á hilluna að
mörgu leyti ágætt frv. frá milli
þinganefnd er starfaði 1933—34
En við lifum í þeirri vori að
þröngsýnin eigi færri formæl-
endur nú en áður, og réttindi
opin'berra starfsmanna hækki í
gengi við hvern unninn sigur
stéttarfélaganna.“
KJÖRDÆMAMÁLIÐ
(Frh. af 2. síðu.)
son, Bjarni Benediktsson, Brynj
ólfur Bjarnason, Eiríkur Ein-
arsson, Gísli Jónsson, Haraldur
Guðmundsson, Sigurjón Á. Ól-
afsson, Steingrímur Aðaþsteins-
son.
Nei sögðu: Bernharð Stefáns-
-son, Einar Árnason, Ingvar
Pálmason, Páll Hermannsson.
Fjórir þingmenn voru fjar-
verandi: Hermann, Hriflu-Jón-
as, Magnús»ráðherra, Þorsteinn
Dalasýslumaður.
3. FLOKKS MÓTIÐ
Frh. af 2. síðu.
vann Knattspyrnufélag Hafnar-
fjarðar Víking með 5:1.
í kvöld keppa Valur og Fram
í 1. flokki.