Alþýðublaðið - 01.09.1942, Page 2

Alþýðublaðið - 01.09.1942, Page 2
ALÞYÐUBLAÐiÐ Þriðjudagur 1. september 1942» Þýzk loftárás á ís~ lenzkan bóndabæ. Tveimur sprengjum varpað niður hjá Höskuldarnesi við Raufarhöfn. --- ■».-.—■ Komu niður í kálgarð par sem maður var að vinna, en hann komst undan. IGÆRMORGUN kl. 8% sást stór fjögurra hreyfla sprengjuflugvél, sennilega Focke Wulf „Kurier“, fljúga hátt yfir Raufarhöfn. Kom hún úr austurátt og flaug vest- ur yfir Sléttu. Þegar hún var stödd yfir hænum Höskuldar- nesi, sem er um 3 km. norSan og vestan við Raufarhöfn, sleppti hún tveimur sprengjum. Stjórn ameríkska setuliðsins hér gaf í gær út svofellda tilkynningu xun þennan athurð: „Þýzk sprengjuflugvél flaug yfir Norðaustur-ísland að morgni hins 31. ágúst og kastaði tveimur sprengjum. Sprengjurnar lentu í kartöflugarði í Nesi, sem er í tveggja míina fjarlægð norðaustur af Raufarhöfn. Tveir íslendingar þeyttust um koll, þegar sprengjurnar komu niður.“ Alþýðuhlaðið átti í gær ital við fréttaritara sinn á Raufarhöfn og fékk hjá honum sdtirfarandi upplýsingar: Sonur bóndans í Höskuldarnesi, Árni Árnason að nafni, var staddur í kálgarði, þegar hann sá flugvélina fljúga yfir. Sá hann, þegar hún sleppti sprengjunum, tók til fótanna og komst á að gizka 15—20 faðma út fyrir garðinn. Þá fleygði hann sér niður. « Sprengjurnar komu niður í kálgarðinn. Mynduðu þær tvo stóra gíga og þeyttist mold í allar áttir. Lenti stór mold- arköggull í höfuðið á Árna og ruglaðist hann við í bili, en komst þó hjálparlaust heim að bænum. Var hann búinn að ná sér, þegar blaðið átti viðtal við fréttaritara sinn á Rauf- arhöfn síðdegis í gær, og hafði ekki sakað meira. Á Raufarhöfn sjálfri varð svo mikill loftþrýstingur af sprengingunum, að húsin skulfu og moldarmekkirnir sáust, þótt í hér um bil þriggja km. fjarlægð væru. Flugvélin hvarf vestur yfir Sléttu í áttina til Rauðu- núpá. / Tveir menn biða bana í bif- reiðaslysi ofan við Árbæ. Brezk og íslenzk bifreið rákust þar á. T FYRRAKVÖLD klukkan hálf níu varð sviplegt bifreið- arslys á Suðurlandsbrautinni, skammt fyrir ofan Ár- bæ. Rákust þar á brezk bifreið og íslenzk fólksbifreið, og dóu tveir menn, en nokkrir meiddust. Hryllileg árás Bandaríkja~ manns á islenzka konu. Brauzt inn í sumarbústað suður í Kópavogi og særði hana mörgum sárum á höfði með öxi* Kouðan, sem flutt var á Lands- ^ spítalann, er ná taiin úr hættn óg tllræðlsnaaðurinn taefir náöst. ... +----- A ÐFARANÓTT síðastliðins sunnudags klukkan 2,45 varð sá hryllilegi atburður í Kópavogi, að ameríkskur maður brauzt iun í sumarbústaðinn Smáravelli í Fífu- hvammslandi, réðst þar á konu og veitti henni marga á- verka á höfuðið með öxi. Konan liggur á Landsspítalanum og er talin úr lífshættu. Tilræðismaðurinn hefir náðst. Bifreiðarstjórinn á íslenzku bifreiðinni, K. 31, heitir Ingólf- ur Andrésson og er frá Sauðár- króki. Segir hann svo frá, að þegar hann hafi verið á leið í bæinn fyrir ofan Árbæ, hafi hann tekið eftir Bandaríkjaher- manni, sem stóð á vegarbrún- inni vinstra megin. Þegar bif- reiðin var komin nálægt, bregð- ur hermaðurinn við og hleypur yfir veginn. Til þess að forða slysi beygði bifreiðarstjórinn til hægri, en hermaðurinn lenti á vinstri hluta bifreiðarinnar, kastaðist út á veginn og beið bana. í sama bili kom brezk herbif- reið á móti. Rákust bifreiðarnar á og skemmdust báðar mikið. Ekki er vitað um meiðsli þeirra, sem voru í brezku bifreiðinni. í íslenzku bifreiðinni voru fjórir menn að bifreiðarstjóran- um meðtöldum. Einn þeirra, Jón Elías Jónsson, Ránargötu 1, slasaðist svo, að hann dó á leið til sjúkrahúss. Var hann kvænt- ur og átti eitt barn. Hafði hann setið í aftursæti bifreiðarinnar, þegar áreksturinn varð. Bifreiðarstjórinn hentist fram á rúðuna við áreksturinn og meiddist á höfði og skarst á hné. Þriðji maðurinn , sepa meidd- ist í bifreiðinni, Viggó Eggerts- son matsveinn, fótbrotnaði og marðist á höfði. Fjórði farþeginn slapp alveg við meiðsli. Landsmót í knattspyrnu í I. flokki heldur áfram í kvöld kl. 7. Þá keppa K.R. og Valur. Konan, Klara Sigurðar- dóttir, sem var héðan úr Reykjavík, var stödd þarna í sumarbústaðnum, en húsmóðir- in va.r ekki heima. Auk hennar voru þar tvær telpur, 10 og 11 ára, og ungbarn í vöggu. Samkvæmt upplýsingum frá bæjarfógetaskrifstofunni í Hafn arfirði var atburðurinn á þessa leið: Klukkan 2,45 aðfaranótt sunnuda'gs réðst ameríkskur maður inn í sumarbústaðinn. Var hann með hvítan klút bund- inn fyrir andlitið og barð^stór- an hatt, sem slútti niður fyrir augu og bar öxi í hendinni. Réð- ist hann þegar á konuna og hjó öxinni í höfuð henni. Komst konan nauðulega undan og út, en maðurinn fór á eftir og náði henni. Við neyðaróp konunnar vökn- uðu báðar telpurnar og komust út um svefnherbergisglugga. Þegar þær komu út, sáu þær manninn, en konuna hvergi. Földu þær sig fyrir honum, unz hann hljóp burtu, en þá hlupu þær yfir að sumarbústaðnum Sólvangi og vöktu þar upp, en þar býr Trausti Ólafsson efna- fræðingur og kona hans. Fór Trausti þegar yfir á Smáravelli og kom konan í sömá svifum inn. Var hún mjög illa útleikin, með flakandi sár á höfði, alblóðug í andliti og hafði fengið heilahristing. Þvoði Trausti sár hennar, en því næst var hún flutt á Landsspítalann, en börnin yfir í sumarbústað Trausta. Skömmu seinna kom lögregl- an úr Hafnarfirði og.ameríksk lögregla á vettvang. Fannst þá öxin og var það öxi húsbænd- anna á Smáravöllum, sem árás- armaðurinn hafði tekið, þegar hann brauzt inn í húsið. Við rannsókn á meiðslum konunnar á Landsspítalanum reyndust þau vera: 1 cm. langt blæðandi sár vinstra megin á nefi. 2 cm. langur flipi á neðri vör. Stórt glóðarauga hægra meg- in. Smásár utan til á auga. 4, 7 og 12 cm. langir skurðir í hársverði, allir inn í bein. Auk þess var andlitið allt þrútið og rautt. Föt hennar voru öll tætt og moldug. Árásarmaðurinn hafði verið drúkkinn, þegar hann réðst inn í sumarbústaðinn. TilkyiMiing ame- rfiksku herstjérn- arinnar. Frá ameríksku herstjórninni barst Alþýðublaðinu síðdegis í gær eftirfarandi tilkynning um atburð þennan: „Snemma á sunnudagsmorg- un, 30. ágúst, tilkynnti íslenzka lögreglan herlögreglu Banda- ríkjanna það, að ráðizt hefði verið á íslenzkan kvenmann, Klöru Sigurðardóttur, sem stödd var í sumarbústað ná- lægt Smáravöllum við Hafnar- fjarðarveg, og hún særð. Konan hafði verið flutt í Landsspítal- ann áður en atburðurinn var tilkynntur ameríksku yfirvöld- unum. Rannsókn var þegar hafin, og yfirhershöfðinginn hefir lagt svo fyrir, að Bandaríkjaherinn skuli láta yfirmanni herlögregl- unnar og rannsóknarlögregl- unni alla þá liðveizlu í té, sem kostur er á. Síðan hefir allt, sem hægt er, verið gert til þess að hafa hendur í hári hins seka eða hinna seku. íslenzk yfirvöld vinna með herlögreglunni að rannsókninni, og menn hafa verið handteknir. Yfirhershöfðinginn hefir, fyr- ir milligöngu ameríksku sendi- sveitarinnar, tjáð forsætisráð- herranum hrylling sinn vegna þessa glæps og lýst því yfir, að Bandaríkjaherinn muni gera allt, sem í hans valdi stendur til þess að leysa þetta mál og draga sökudólgana, hverjir sem þeir kunna að vera, fyrir lög og dóm.“ Starfsmenn bank- anna fá lannanppbót SÍÐASTLIÐINN laugardags- morgun varð það að sam- komulagi, að starjsmenn bank- anna skyldu fá launauppbót. Er það sams konar launabót og sú, sem opinberum starfs- mönnum hefir verið greidd. Verður greidd uppbót á laun, sem eru 10,000 krónur á ári eða lægri. Bifreiðaþjófur fundinn. IFREIÐAÞ J ÓFURINN, sem stal nýlega bifreið frá Bifreiðaeinkasölunni og skildi hana eftir uppi hjá Árbæ, hefir nú fundizt. Er það 18 ára piltur og hefir játað á sig fleiri bif- reiðaþjófnaði. Hafði hann áður stolið úr sama porti bifreið, sem Vil- hjálmur Þór bankastjóri átti. Hafði hann skilað herini aftur í sama port, en þjófnaðurinn komst upp á þann hátt, að bif- reiðin var óhrein, þegar að var komið um morguninn, en hafði verið hrein kvöldið áður, þegar skilið var við hana. Þriðju bifreiðinni hafði hann stolið og lent í árekstri við setu- liðsbifreið. Skildi hann bifreið- ina eftir skemmda inni á Laug- arnesvégi. Þá mun hann hafa reynt að stela fleiri bifreiðum. Bifreiðaðrekstar á mótam Sðlvalla- Of Hofsvallagðta. BIFREIÐAÁREKSTUR varS á vegamótum Sólvallagötu og Hofsvallagötu í gærmorgun um það bil sem loftvarnamerkið var gefið,- Voru það tveir ís- lenzkir bílar, sem rákust á, lítil fólksbifreið og vöruflutninga- bifreið. Áreksturinn var mjög harður og skemmdust báðar bif- reiðarnar mikið. Meiðsli urðu lítil. Áreksturinn vildi þannig til, að vörubifreiðin kom vestan Hofsvallagötu, en fólksbifreiðin austan Sólvallagötu og kom hún á vörubifreiðina flata, svo að hún kastaðist á hliðina. Hún var óhlaðin. Bifreiðarstjórinn mun hafa hlotið smávegis meiðsli. Báðar bifreiðarnar voru hroðalega útlítandi. Tíðinda- maður Alþýðublaðsins kom á vettvang skömmu eftir að á- reksturinn varð og lá þá vöru- bifreiðin á hliðinni þvers um á götunni, hafði sýnilega kastazt nokkra metra eftir' áreksturinn og var afturendi hennar fast við húsið Sólvallagötu 27. Stýrishús bifreiðarinnar var mölbrotið, smurningsolían úr vélinni rann niður eftir götunni. Fólksbifreiðin, RE 1756, stóð hér um bil á miðri götunni, nokkuð frá hinni. Vélarhúsið var mjög beyglað saman vinstra megin, og framhjólið brotið og lagt saman, aurbrettið rifið frá aftur með. I

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.