Alþýðublaðið - 22.09.1942, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 22.09.1942, Qupperneq 2
2 ALÞYÐUBLAÐIÐ Þriðjudagur 22. sepíember 1942 Prentaraverkfail frá og með 1. oWf Allsherjaratkvæðagreiðsla um vinnu stöðvun stendur yfir í H. í. P. ------*------ ALLSHERJAR ATKVÆÐAGREIÐSLA stendur yfir í Prentarfélaginu um heimild til vinnustöðvunar í öll- um prentsmiðjum frá og með fyrsta október næst komandi. I gær munu prentarar hafa sagt upp samningum vi'ð prentsmiðjueigendUr. Hinn 14. þessa mánaðar sendi stjórn Prentarafélagsins bréf til atvinnurékenda með tillögum um breytingar á kaupi og kjörum prentara, er samþykktar voru á félagsfundi þann 13. þ. m. Samningaumleitanir standa yfir milli aðila, og vonandi tekst samkomulag, svo að ekki komi til prentaráverkfalls öðru sinni á þessu ári. En prentararnir munu hins vegar yera ákveðnir í því að halda fast við köfur sínar. FFirframkosningar tii ai- þingis iryrja á morgnn. Alþýðuflokksmenn! Gleymið ekki að neyta atkvæðisréttar ykkar. YRIRFRAMKOSNINGAR * munu hefjast á morgun. Veltur á afar miklu að allir kjósendur Alþýðuflokksins, sesm heima eíga hér í bænum og eins þeir, sem dvelja hér í hænum, en eiga heima úti á landi, og ekki telja líklegt að jþeir verði heima hjá sér á kjördegi, kjósi hér og sendi sáðan atkvæði sín á réttan stað. Alþýðuflokkurinn væntir þess, að hver kjósandi hans geri skyldu sína, og kjósi nú þegar. I>að er ekkert betra að geyma það. Kjósendum ber að kjósa fram bjóðanda eða frambjóðendur, þar sem flokkurinn hefir menn í kjöri. En annars landlista flokksins. Listi flokksins hér í Reykjavík er A-listi og land- listi flokksins er einnig A-listi. Fyrirframkosningar hér fara fram hjá lögmanni. Allir liðsmenn Alþýðuflokks- ins eru beðnir að starfa að sigri flokksins við kosningamar. Andstæðingamir munu gera allt, sem í þeirra valdi stendur til að hefta framgang Alþýðu- flokksins. Þeir munu ekkert spara, hvorki fé né róg, til að ná þeim tilgangi sínum. Alþýðuflokksmenn munu svara því á viðeigandi hátt: með auknu starfi og brennandi áhuga fyrir hugsjónum flokks- ins og málefnum hans. Atbvæðagreiðsla meðal togarasjómanna innan Sjó mannafélags Reykjavíkur og Hafn arfjarðar um heimild til vinnu- stöðvunar hefst í dag (þriðjudag) kl. 10 í skrifstofum félaganna og sftendur til kl. 22. Stendur hún einnig á miðvikudag á sama tíma og er þá lokið. Sjómenn eru beðn- ir að mæta á þessum tíma og kjóea, því að kosningin stendur að- eins yfir í þessa tvo daga. 5 ! 5 Kosoinpskrif- | i stofa AiÞÝðn- | i flokksins opDnðl | i — ; S T7 JSN-INGASKRIFSTOFA^ S LV AIJ>Ý»UFLOKKSINS • ^verður opnuð í Alþýðuhús- S S inu við Hverfisgötu í dag. S S Skrifstofan er í tveimur- •déildum. Á aruaarri hæð eru^ \veittar upplýsingar um kjör-S S skrá og fyrirframkosningar > ^bæði Reykvíkinga og utan-^ ^bæjarfólks. Sú skrifstofa erS Sopin kl. 10—12 og 1—7 og^ $hefir síma 2931. ^ ^ Á efstu hæð eru upplýs-S Singar fyrir starfslið Alþýðuö ^ flokksins. Sú skrifstofa er ^ ^opin kl. 10—12 og 3—7 ogs Shefir síma 5020. AlþýðuÁ •Hokksmenn ættu að mæta- Sþar sem fyrst og hefja ötults Sstarf fyrir A-listann. S ) S Griskt skip í strand- síglingnm. Hefir verið tekið á lelga til ðriggja mánaða. KIPAÚTGERÐ ríkisins hef ■ ir tekið á leigu lítið grískt skip og ætlar að hafa það í strandsiglingum hér við land. Skip þetta átti að koma hing- að í júlí, en vegna viðgerðar hef ir för þess hingað dregizt nokk- uð. Skipið er aðeins 200 tonn að stærð. Það hefir verið tekið á leigu til þriggja mánaða fyrst um sinn. Sjómenn fordæma rég komm~ únlstaum Slgurjén Á. Ólafsson Fjölmennur Sjómannafélagsfundur veitir konun- únistum ráðningu fyrir árásir þeirra og illmælgi. "P JÖLMENNUR FUNDUR í Sjómannafélagi Reykjavík- ur, sem haldinn var í Iðnó í gærkvöldi, fordæmdi harð- lega og í einu hljóði hinar ómaklegu árásir Þjóðviljans og kommúnista á hinn vinsæla og þrautreynda formann Sjó- mannafélagsins, Sigurjón Á. Ólafsson. En kommúnistar hafa gert sér mikið far um að rægja Sigurjón undanfarið. Þótt veður væri slæmt í gær- kveldi létu sjómenn það ekki aftra sér frá því að koma á fund í félagi sínu. Á fundinum kom fram svohljóðandi tillaga frá nokkrum togarasjómönnum: „Út af ummælum í daghlað- inu Þjóðviljanum 19. sept. s. 1., þar sem- blaðið fullyrðir, að sjómenn og aðrir vérkame,nn treysti ekki Sigurjóni Á. Olafs- syni til þess að fara með mál- efni sín og samninga, vill fund- ur í [Sjómannafélag|i Reykja- víkur haldinn 21. sept. 1942, harðlega mótmæla þessum um- mælum sem tilhæfulausri ill- mælgi, en samþykkir að votta honum fyllsta traust og þakk- læti fyrir framsýna forystu og sigursæla haráttu fyrir mál- efnum sjómannastéttarinnar og alls verkalýðs í landinu.“ Tillaga þessi var samþykkt í einu hljóði og risu fundarmenn úr sætum sínum til þess að hylla formann sinn og votta honum traust sitt. Ummæli þau, sem sjómenn hafa hér með fordæmt, eru með al annars þessi, sem stóðu í Þjóðviljanum á laugardaginn: „Hvernig stendur á því, að sjómennirnir treysta ekki Sig- urjóni Ólafssyni til þess að fara skammlaust með samninga fyr- ir sig. Og hvernig er hagur hins hnarreista bróðurfélags Dags- brúnar, Sjómannafélags Reykja víkur, undir forystu þessa en- demis forseta verkalýðssamtak- anna? Staðreynd er staðreynd og verður ekki dulin með prent- svertu Alþýðublaðsins. Stað- reynd er það, að verkalýðurinn treystir Sigurjóni Ólafssyni ekki til að fara með málefni sín. Og það stoðar ekkert, þótt Al- þýðublaðið reyni að verða rót- tækt fyrir kosningar“. Það er ekki nema makleg ráðning, sem sjómenn hafa veitt sorpblaði kommúnista fyr ir þessi og önnur eins ummæli. Rægitungur kommúnista þurfa ,ekki að--gera sér neinar tylli- vonir um það, að traustasti og stéttvísasti hluti verkalýðsins yfirgefi öruggustu foringja sína þótt þær sletti á þá auri og sví- virðingum. Sigurjón Á. Ólafs- son stendur að minnsta kosti alveg jafnréttur eftir þessa mis- heppnuðu ofsóknarherferð Þjóð viljans gegn honum. Nýjarsáttanmleitanir í togaradeilnnni. Stjóm Sjómannafélagsins gaf á fundinum í gærkveldi skýrslu um samningaumleitanir togara- sjómanna og útgerðarmanna, sem upp úr slitnaði á laugar- dagskvöldið. Samþykkti fund- urinn eftir þá skýrslu að láta fara fram allsherjaratkvæða- greiðslu meðal togarasjómanna um heimild til vinnustöðvunar. Sama ákvörðun var tekin á fundi í Sjómannafélagi Hafnar- fjarðar einnig í gærkveldi. Fregnir bárust hinsvegar blaðinu seint í gærkveldi, að ekki væri enn með öllu von- laust um samkomulag. Sátta- nefndin hefði kvatt aðila á sinn fund enn á ný kl. 11 f. h. í dag. Benedikt Jakobsson m ráðinn iprðtta- ráðnsantar Hvikur. BÆJARRÁÐ samþykkti á fundi sínum á föstudags- kvöld að ráða Benedikt Jakobs- son sem íþróttaráðunaut Reykjavíkurbæjar. Verksvið íþróttaráðunauts verður fyrst og fremst skipu- lagning íþróttamála bæjarins, svo sem umbætur íþróttavall- ‘anna. Enn fremur-gerir hann til- lögur um ný íþróttasvæði, sund- laugar og íþróttahús, t. d. fyrir. skóla og leikvelli í sambandi við þá. Þá athugi hann líka á hverjum tíma þörf íþróttafélag- anna fyrir velli. Bærinn vill að sjálfsögðu hafa eftirlit með íþróttastarf- semi í skólum, sem njóta styrks frá bæjarfélaginu, og heyrir það eftirlit þá auðvitað undir ráðu- nautinn. Benedikt Jakobsson er 'þjóð- kunnur maður fyrir afskipti sín af íþróttmálum. Hann hefir verið íþróttakennari hér í bæn- um samfleytt frá 1931, en þá hafði hann nýlega lokið íþrótta- kennaraprófi í Stokkhólmi. Á þessum ellefu árum hefir hann farið fimm sinnum utan, bæði til þess að kynna sér íþrótta- mál og eins sem fararstjóri í- þróttaflokka. í þessum utanferð- um hefix Benedikt fjórum sinn- um setið alþjóðaþing íþrótta- kennara. Síðan 1939 hefir hann gert tillögur um umbætur á í- þr.völlunum til vallarstjórna og má gera ráð fyrir, að hann snúi sér einna fyrst að þeim málurn. Er ekki að efa, að í þetta nýja ráðunautsstarf bæj- arins hefir valizt vel hæfur og áhugasamur maður, og er þess því að vænta, að hér sé um framfaraspor að ræða í íþrótta- málum bæjarins. Sjálfstæðiiflokkir- inn raðar Stefðnl f Fagraskégi ð land- lista. ALLIR FLOKKAR, að flokM Þjóðveldismanna undan- teknum hafa nú lagt fram landslista við kosniugarnar 18. og 19. október. Eru þeir allir óraðaðir, að landslista Sjálf- stæðisflokksins undan teknum, jþarí er Stefáni Stefánssyni í Fagraskógi, sem er í kjöri I Eyjafjarðarsýslu raðað efstum á landlistanum, en að öðru leytt er óraðað á listann. Stefán Stefánsson í Fagra- skógi gekk í Sjálfstæðisflokk- inn eins og kunnugt er fyrir kosningarnar í sumar og var þá í kjöri fyrir flokkinn í Eyja- f jarðarsýslu en féll < við kosn- ingarnar. Hafði hann áður verið landkjörinn þingmaður Bænda- flokksins. Á nú bersýnilega að tryggja honum sæti á þingi svo að ekki verði með sanni sagt, að hann hafi skaðazt á •því að ganga úx Bændaflokkn- um og í Sjálfstæðisflokkinn. Walterskeppnip: Úrsiit milli Ysis og K.R. á snnnadag. ASUNNUDAGINN fór fram annar kappleikur Walt- erskeppninnar. Áttust þá við K. R. og Víkingur. Úrslit urðu þau að K. R. vann með einu marki gegn engu. Leikurinn var að allra dómi skemmtilegur og fjörugur, þó að veður hamlaði nokkuð. Úrslitakappleikurirm í Walt- erskeppninni verður á sunnu- daginn kemur og verður hann háður milli Vals og K. R. Valur vann þessa keppni í fyrra, en nú mun K. R. hafa fullan hug á að vinna hana Qg þar með síðasta mót ársins; Slátur er nú lækkað i verði SLÁTRIÐ hefir nú verið lækkað niður í kr. 7J50, eða um kr. 2,50. Verði á mör hefir líka verið lækkað úr 8 krónum í kr. 6,50. Aðalsauðfjárslátrun er nú hafin og er farið að senda slát- ur heim á heimilin, en þó ekki minna en 5 í einu. Til dagsins í gær hafði verið slátrað nokkuð á annað þúsund sauðfjár.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.