Alþýðublaðið - 22.09.1942, Page 3
í»riðjudagur 22. september 1942
Gústav Svíakonungur,
Svíaríki er umkringt ófriðarríkjum og herteknum löndum, en hefir
tekizt að halda hlutleysi sínu. Um helgina fóru fram mikilvægar
kosningar þar í landi og hafa þær vakið mikla athygli um alla
Evrópu. Hér 'birtist mynd af hinum aldraða konungi Svíaríkis,
Gustav '5.
Stðrpðlitfskar kosningar í
f Svfpjóð á sunnudaginn.
Úrslita þeirra beðið með tnikilli eftir-
væntingu víðsvegar um heim.
Frá jréttaritara Alþýðublaðsins
STOKKHÓLMI á mánud.nótt.
TjT’ OSNINGAR fóru fram til landsþingsins svo og til bæj-
ar- og sveitastjórna um alla Svíþjóð á sunnudaginn og
bíða menn úrslita þeirra með mikilli eftirvæntingu ekki að-
eins hér, heldur og víða um, heim.
Hefir fyrirfram verið litið á
; þessar kosnignar bæði í Sví-
þjóð og erlendis sem stórvið-
burð, sem marka mætti af, hve
föstum fótum núverandi stjórn
Sví|)jóðar stefidur undir for-
ystu Alþýðuflokksins, en hann
liefir nu í samfleytt tíu ár
verið við völd og haft lang-
mest að segja um stjórn lands-
ins, þó að stjórnin sé nú sam-
steypustjórn allra lýðræðis-
flokkanna. Erlendis hafa menn,
áð minnsta kosti sumstaðar
gert ráð fyrir þeim möguleik-
um, að kosningarnar myndu
sýna verulegan vöxt einræðis-
flokkanná, nazista og kommún-
ista, og í Þýzkalandi hafa svæsn
ar blaðaárásir verið gerðar á
Svíþjóð síðustu dagana fyrir
það, sem þýzku blöðin kalla
linkind sænsku stjórnarinnar
við kommúnistíska skemmdar-
varga og njósnara.
Á undan kosningunum fór
hörð kosningabarátta, sem stóð
í nokkrar vikur. Allir helztu for
vígismenn stjórnarflokkanna
tóku þátt í henni og leiddu
saman hesta sína bæði á um-
ræðuí'undurn og í útvarpinu,
enda þótt þeir sitji endraiíær
sáttir saman við ríkisráðsborð
konungsius.
Það var sólskin og blíða á
ikosningaddginn. Þátttakan í
kosningunum var mikil hér í
Stokkhólmi, og engu minni en
■'í' landsþings- og bæjarstjórn-
arkosningunjum fyrir fjórum
árum. Sama er að segja um
þátttökuna í kosningunum úti
um land. í Stokkhólmi var
kjörstöðunum ekki lokað fyrr
en kl. 9 síðdegis, en þá voru
fyrir nokkru síðan fyrstu fregn-
irnar farnar að berast af kosn-
ingaúrslitum utan höfuðstaðar-
ins. Þær báru ekki vott um nein
ar meiriháttar breytingar á
styrkleika flokkanna. Þó virtist
Bændaflokkur.inn á stöku stað
hafa unnið lítið eitt á, á kostnað
íhaldsflokksins og Alþýðu-
flokksins.
í Stokkhólmi var á sunnu-
dagskveldið búið að gera ráð-
stafanir til þess að birta kosn-
ingaúrslitin jafnharðan á
nokkrum torgum. Múgur og
margmenni var saman kominn
þar og beið úrslitanna með
óþreyju.
Lindquist.
Bretar umkringja
höfuðborg Mada~
gaskar.
London, í gærkvöldi.
ERSVEITIR Breta nálgast
nú óðum höfuðborg
Madagaskar, Antananarivo, og
hafa nú umkringt hana. Frakk-
ar tefja framsókn Bretanna all
mikið með að eyðileggja vegi
og brýr og leggja farartálma á
ALÞYÐUBLAÐIP
s
Bardagarnir breiðast út um
Stalingrad.
------»-r--
„Það er eins og Jorðin sé að
sokkva nndir sprengingnnnm.44
-............ » .... —
Gagnáhlaup Rússa.
London, í gærkvöldi.
ARDÖGUNUM um Stalingrad heldur áfram og hafa'
litlar breytingar orðið í borginni um helgina. Þjóðverj-
ar sækja fram, hægt en sígandi, en rússnesku hersveitirnar
gera hvert gagnáhlaupið á fætur öðru og það er sem fyrr
barizt um hvert hús og hverja gö,tu!
Loftárásir á borgina eru meiri en nokkru sinni hafa
verið gerðar á nokkurn stað í styrjöldinni, jafnvel meiri en
gerðar voru á Sevastopol síðustu daga þeirrar borgar. „Það
er eins og jörðin sé að síga undan sprengingunum“ segir einn
fréttaritarinn um þetta. „Hvarvetna er ekki annað að sjá en
rústir húsa og víða stendur ekki steinn yfir steini“.
Þjóðverjar hafa flutt meira af stórskotaliði sínu fram til
borgarinnar og heldur það uppi stórkostlegri skothíð á stöðv-
ar Rússa og þær byggingar sem enn standa. Rússar hafa flutt
allar konur og börn á brott frá borginni og eru þar nú ekki
aðrir en hermennirnir, sem verja hana. Allar verksmiðjur
hafa hætt störfum og verkamennirnir tekið sér vopn í hönd.
Fréttasambaod við
Norðorlðod.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ hefir
nú tryggt sér einka-
skeyti frá Stokkhólmi um
alla meiriháttar viðburði á
Norðurlöndum og vonast til,
að geta á þann hátt bætt ár
brýnni þörf á áreiðanlegum
fréttum þaðan, sem erfitt hef
ir verið að fá, síðan Danmörk
Jg Noregur lokuðust við inn-
rás Þjóðverja.
Það er Erik Lindquist,
blaðamaður við Social-
Demokraten í Stokkhólmi,
sem hefir tekið að sér að
vera fréttaritari Alþýðublaðs
ins þar. Birtir blaðið fyrsta
skeyti hans í dag.
Nazistar hafa tekið
200.000 af lifi ð
meginlandinn.
Skriðdrekar Þjóðverja sækja
inn í Stalingrad tveir og þrír
saman, en í hverri húsarúst, í
hverjum garði og á bak við
hvert horn er von á rússneskri
leyniskyttu, sem lætur ekki vita
af sér fyrr en óvinir hennar eru
komnir í dauðafæri, og þá er
það með ógurlegri skothríð.
ÞJÓÐVERJI UM RÚSSA
Þýzkur herforingi hefir í út-
varpinu frá Berlín talað um
stríðið í Rússlandi. Hann sagði
meðal annars: „Auðveldasta
leiðin til þess að sigra þjóð er
að brjóta kjark hermannanna
og fá þá til þess að trúa, að það
þýði ekkert að berjast. Þetta er
ekki hægt með rússnesku her-
mennina. Þeir virðast ekki vera
eins viðkvæmir og aðrir her-
menn, sérstaklega ekki fyrir ó-
sigrum.“
KAUKASUS
Þjóðverjar tilkynritu í dag, að
þeir hefðu tekið með áhlaupi
borgirnar Terek og Vladimirov-
sky, sem eru í Suður-Kaukasus.
Hins vegar hafa Rússar enn
ekki viðurkennt þetta og segj-
ast aðeins hafa háð mikla bar-
daga við óvinina á þessum slóð-
um og hindrað frekari framsókn
þeirra.
Á Svartahafi er floti Rússa
enn einráður og geta Þjóðverjar
ekki sent skip sín út á hafið án
fylgdar. Svartahafsflotinn hefir
nú misst tvær beztu hafnir sín-
ar, Sevastopol og Novorossisk.
Við Voronezh eru enn sem
leið þeirra, en á þennan hátt
geta þeir aðeins tafið framsókn
hersveitanna, og er það von
laust fyrir þá að stöðva þær.
Þar sem brezku herflokkarn-
ir sækja að borginni úr vestri,
eiga þeir enn eftir 75 km. til
hennar og miðar þeim hægt á-
fram af ofangreindum ástæð-
um. Hafa Bretar tekið mikil-
væga járnbrautarstöð af Frökk
um á þessum slóðum.
fyrr harðir bardagar og hafa
Rússar átt frumkvæðið á þeim
slóðum allt frá því þeir gerðu
áhlaup sín fyrir helgina.
Við Leningrad hafa einnig
verið nokkrir bardagar og
fylgja Rússar, sérstaklega borg-
arar borgarinnar, því með eftir-
tekt, því að fyrir þá er sérhver
tilraun til þess að bæta sam-
göngurnar við borgina merkileg
og góðs viti.
Brezkar flugvélar
yfir Daumörku
og Svípjéð.
Stokkhólmur.
EGAR mikill fjöldi enskra
sprengjuflugvéla lagði
tundurduflum í Eystrasalt og
dönsku sundin aðfaranótt
sunnudags, voru gefin loftvarna
merki á mörgum stöðum í Dan-
mörku. Þessa nótt flugu einnig
15 brezkar flugvélar yfir Málm
ey og Helsingjaborg og var haf
in skothríð á þær úr loftvarna-
byssum Svía og þær hraktar á
hrott.
Þjóðverjar í Danmörku hófu
einnig mikla loftvarnaskothríð
á hinar brezku flugvélar og var
ein þeirra skotin niður í Stóra-
belti. Aðeins einn af flugmönn-
unum bjargaðist.
Brezku flugvélarnar lögðu
meðal annars tundurduflúm í
Eyrarsund og hafa Svíar mót-
mælt því við brezku stjórnina.
Meðan verið var að slæða dufl-
in úr sundinu, voru allar sigl-
ingar stöðvaðar þar. Einn
sænskur bátur rakst á eitt dufl-
anna og sprakk í loft upp.
Hættumerki voru gefin í
Kaupmannahöfn og fór fólkið
að sögn allvel eftir settum regl-
um. Ekki er vitað um að
sprengjum hafi verið kastað á
Danmörku og dönsk blöð minn-.
London, í gærkvöldi.
TOFNUN ein í London hef
ir það hlutverk á hendi að
fylgjast með og halda skrá yfir
allar aftökur Þjóðverja á meg-
inlandinu. Eiga svo að segja öll
herteknu löndin fulltrúa við
þessa stofnun. Nú hefir þessi
aftökustofnun tilkynnt, að Þjóð
verjar hafi alls, svo að vitað er
með vissu í London, tekið
207 373 manns af lífi á megitir-
landinu:
Mikill meirihluti þessara
manna, sem nazistar hafá tekið
af lífi, eru Pólverjar, eða um
200 000. Hafa aftökur þar
eystra verið ótrálega miklar og
oft farið fram í stórum stíl. Sér-
stakléga hafa Gyðingar orðið
fyrir barðinu á hatri og morð-
fýsn nazista og hafa þeir verið
skotnir hundruðum sarnan.
í Frakklandi hafa verið tekn-
ir aí lífi 250 saklausir gíslar,
frá því landið var hernumi8.
Síðastliðna 6 mánuði hafa ver-
ið teknir af lífi eða dæmdir til
dauða 1500 Frakkar.
Á eynni Krít hafa 3000 menn
verið drepnir, enda hefir and-
staða gegn nazistunum alla tíð
verið þar geysihörð, en eyjar-
skeggjar eru menn harðskeytt-
ir og ættjarðarvinir með af-
brigðipn-
í Tékkóslóvakíu hafa aíls ver
ið teknir af lífi 525 menn fyrir
dráp Heyderichs, og eru þá ekki-
taldir með menn þeir, sem áttu
heima í þorpunum, sem lögð
voru í eyði, þar á meðal Lydice.
Þrátt fyrir hinar miklu af-
tökur Þjóðverja í París fyrir
helgina, hefir andstaða Parísar-
búa ekki minnkað. Umferða-
bann hefir verið í borginni um
helgina og verður það áfram á
kvöldin. Sprengjum hefir verið
kastað á margar stöðvar Þjóð-
verja.
ast ekki á tjón. Hins ber þó að
minnast, að Þjóðverjar gætu
hindrað, að slíkar fréttir yrðu
birtar.