Tíminn - 01.10.1963, Side 5

Tíminn - 01.10.1963, Side 5
 - RITSTJÓRI: HALLUR SÍMONARSON KR OG KEFLVÍKINGA í BIKARKEPPNI - KR VANN MEÐ3 KR BM I URSUTUM m Alf—Reykjavík, 30. september. KR-ingar slónu Keflvíkinga út I bikarkeppninni á sunnudaginn. Þa'ð gekk ekki hávaðalaust fyrir sig. Leikurinn líktist ekki neinum venjulegum kn ifspyrnuleik. — Þetta var eins og styrjöld upp á líf og dauða, sérstak- lega í síðari háifleiknum, þar sem hvorugur aðilinn gaf eftir. Hróp af áhsrfendapöilunum voru í samræmi við það, sem skeði út á velli. Kefl- víiJngum tókst afar vel upp í fyrri hálfleik og skoruðu tvö mörk gegn einu KR. — Það var heldur dökkt útiit hjá KR í byrjun síðari hálfleiks, því Keflvíkingar byrjuðu með stórfelldum sóknarlotum. Loft var þung- búið, þegar lelkurinn hófst á Meiavellinum, og það gekk á með rigningar- skúrum í fyrri hálfleik. En svo skeði það, þegar tíu mínútur voru liðnar af sðari hálfleik, að það rofaði til á suðvesturhimninum og sólargeisli brauzt fram úr skýjaþykkninu og brátt skeln sólin glaðlega. — Þetta er sending úr gamla Vesturbænum, sagði einhver. Og það var orð að' sönnu. Það voru Keflvíkingar, sem komu stríðinu af stað í fyrri hálfleik, nú var komið að KR-ingum að svara rækilega fyrir sig. Það logaði allt og það var stiginn æðislegur darraðardans Frá hinum atburðaríka leik KR og Kefivíkinga. — Kjartan markvörður bægir hættu frá Kefiavikurmarkinu. Það er Ellert, sem sækir. KR-ingar tóku leikinn smám sam an í sínar hendur. Ellert Schram jafnaði fyrir KR á 16. mínútu með laglegu skoti af stuttu færi eftir mikla pressu á Keflavíkurmarkið. Áfram héldu KR-ingar að sækja, en það reyndist ekki auðhlaupið að koma knettinum inn fyrir mark iínuna. — Eftir leikinn sagði Bjarni Felixson: ,,Eg var hrædd- nr um, að okkur tækist aldrei að rkora þriðja markið og ég hugsaði með kvíða til þess, að framlengja þyrfti, ég hef verið að drepast úr hálsbólgu undanfarið . . . Þriðja mark KR-inga — og það sem réði úrslitum — kom samt sem áður, 5 mínútum fyrir leikslok. Aftur var Ellert að verki. Hann fékk sendingu frá Gunnari Fel. inn í teiginn og náði að skjóta fram hjá Kjartani markverði. Slagnum var iokið. Leikmenn beggja liða voru i’tataðir i leðju frá hvirfli til ilja. Sftir allt minnti þetta á sjóorr- ustu. Það var ríkti mikil spenna áð- ur en leikurinn byrjaði. Margir úr Keflavík flykktust til Reykjavíkur til að sjá leikinn. Þeir voru ekki fáir, sem bjuggust við Keflavík- Uisigri. KR-ingar byrjuðu þó skín andi vel og áður en fjórar mín- útur voru liðnar af leiknum hafði Ellert afgreitt knöttinn í Kefla- vikurmarkið eftir skemimtilegan samleik við Gunnar Felixson. — Kc.flvíkingar áttu eftir að svara rækilega fyrir sig og 14. og 15. mínúturnar voru martröð fyrir KR-inga. Taflið snerist við. Á 14. mínútu skoraði Jón Jóhannsson tnjög laglega fyrir Keflavík. Hann fylgdi vel eftir sendingu frá Rarli Hermannssyni — og Heimir fékk ekki við neitt ráðið. Mínútu síðar framkvæmdi Sigurður Albertsson vel aukaspyrnu rétt fyrir utan teiginn hjá KR vinstra megin. — Sendingin var lúmsk — snúnings- bolti — sem sveif öruggléga í KR-markið. Undir venjulegum kringumstæðum hefði maður séð Heimi Guðjónsson verja, en hann var úr sambandi. Eftir að hafa náð forustu sóttu Keflvíkingar mjög fast og stund- um svo fram úr hófi keyrði, en mörkin í fyrri hálfleik urðu ekki fleiri. Harkan var yfirgnæfandi á dagskrá í síðari hálfleik og það var ekki sjaldan, sem dómarinn Magn ús Pétursson þurfti að bregða flautunni upp í sig. Stundum varð leikurinn mjög Ijótur. Rétt fyrir leikslok henti það Högna Gunn- laugsson að grípa haustak á Gunn ari Guðmannssyni, þegar knöttur- inn var, víðsfjarri. Því miður hafði dómarinn öðrum hnöppum að hneppa og hafði ekki tök á að fylgjast með þessu, en brot sem þetta hefði átt að kosta brottrekst- ur af vellc. Nóg um það. Úrslitin voru full- komlega réttlát að mínum dómi. KR-ingar sýndu betri knattspyrnu í ieiknum. Þeir stóðu sig vel Ellert og Gunnar Fel. í framlínunni. Hörð ur Fel. átti sinn lang bezta leik á sumrinu og barátta þeirra Sveins og Garðars var árangursrík. Þórð Framhald á 13. sföu. Hápunktur sigursins. Jón Ásgeirsson, formaSur Þróttar, og Eysteinn, fyrlr liði, að leíkslokum. Algjör einstefna - Þróttur sigraSi Breiðablik með 9—0 og leikur því í 1. deiid næsta keppnistímabíl. Það verður lið Þróttar, sem við siáum leika í 1. deild á næsta ári í stað Akureyringa. Þróttarar unnu yfirburðasigur gegn sundurlausu liði Breiðabliks í úrslitaleiknum i 2. deiid á Njarðvíkurvellinum á sunnu dag. Níu sinnum í leiknum slgldi knötturinn inn fyrir marklínua hjá Breiðablik, en Breiðabliksmenn náðu aldrei að svara fyrir sig. — Þessi stóri sigur Þróttar kom mjög á óvart, en fyrirfram hafði verið búlzt vlð frekar jöfnum leik. Reyndar hefði sigur Þróttar getað orðið enn stærri, Hvað eftir annað small knötturinn í markstöngunum hjá Breiðablik — og oft skall hurð nærri hælum. Það var sýnt að hverju stefndi þegar á 2. mínútu leiksins, en þá skoraði Þróttur sitt fyrsta mark. Síðan komu þau eins og af færibandi og einstefnan á Breiða- Akranes kaffærði Val Alf—Reykjavík, 30. sept. Valsmenn höfðu hreint ekkert að segja í Skagamenn í bikarleiknum á sunnudag á Melavelli og mest all- en leikinn stóðu þelr eins og van- máttug peð í baráttu við margeflda drottningu á skákborði. Skagamenn héldu uppi öflugri stórskotahríð sem um munaði og hvað etfir annað mátti Björgvin Hermannsson, mark- vörður Vals, sjá á eftir knettinum í netið. Mörk Akraness urðu sex talsins, en einu slnni tókst Val að skora. —Þetta var algjör kaffæring. Leikur Vals var gjörólíkur ágæt- um leik, sem liðið átti gegn Vest- mannaeyingum — framlínan mátt- laus og vörnin stöð. Það var næstum meira en fyrirhafnarlaust, sem sókn armenn Akraness, Þórður Þórðarson, Ingvar Elísson og Skúli Hákonarson léku Valsvömina sundur og saman. í fyrri hálfleik skoraði Akraness fjögur mörk. Það fyrsta varð að raunveruleika á 20. mínútu. Það varð til fyrir ágætan samleik þremenn- inganna — Þórðar, sem sendi knött inn vel út á hægri kant tU Ingvars, sem síðan sendi viðstöðulaust fyrir markið á Skúla, sem rak endahnút- inn, Aðeins tveimur mínútum síðar bættist annað markið við. Ingvar óð upp miðjuna — gaf í eyðu á Skúla, sem renndi knettinum fram hjá Björgvin og í mark. Á 39. mín. kom þriðja markið. Ingvar og Þórð- ur léku saman upp — og eftir skot frá Þórði skokkaði knötturinn inn. Fjórða markið fyrir hlé kom á 41. mínútu. Skúli gaf frá hægri og Þórð ur skaUaði laglega inn, af þriggja metra færi, en þennan bolta hefði Björgvin átt að verja. Á 16. mínútu í síðari hálfleik skor aði Ingvar fimmta mark Akraness. Þórður óð gegnum Valsvörnina og skaut af frekar stuttu færi — Ingvar fylgdi skotinu vel eftir. Skúli bætti svo sjötta markinu við fyrir Akranes á 31. mínútu. Ingvar gaf inn á miðj- una til Skúla. Það var ekki erfitt verk fyrir hann að hrista Valsvörn- ina af sér — og fast skot hans í stöng og inn var laglegt. Eftir þetta mark sl'öppuðu Skaga- menn af — og slðustu mínúturnar áttu Valsmenn nokkur góð tækfæri. En það var næstum því sama hversu aðstaðan til að skora var góð, alltaf höfðu hinir linu sóknarmenn Vals ráð undir rifi með að klúðra fram hjá — eða hitta Helga fyrir. Ein undantekning varð þó, en rétt fyrir lefkslok tókst Steingrími að pota inn eina markinu fyrir Val. Yfirburðir Akraness voru svo mikl ir í þessum leik, að lítið var gaman að horfa á hann. Þórður, Skúli og Ingvar voru mjög góðir í fremstu víglínu Skagans, þar fyrir aftan voru þeir styrkar stoðir Jón Leðson, Sveinn Teitsson og Ríkharður, sem lá aftur. Annars reyndi fremur lítið á vörnina hjá Akranesi, en hún stóð fyrir sínu — Það var ekki einn ein asti Ijós punktur í Valsliðinu. — Sóknin var alltaf fram miðjuna, en kantar ekki notaðir. Dómari var Baldur Þórðarson og dæmdi hann vel. bliksmarkið var algjör. í fyrri hálfleiknum voru sköruð fimm mörk, þar af skoraði Haukur þrjú fyrstu. Annars skoruðu mörkin fyrir Þrótt í leiknum Axel 2, Ómar 2, Þorvarður 1 og Jens 1. Beztu menn Þróttar í leiknum voru Axel, Haukur og Helgi, en ann ars áttu flestir góðan dag. Lið Breiða bl'iks var furðu sundurlaust í þess- um leik. Reynir Jónsson var sá eini í Iiðinu, sem slapp bærilega. Breiða bliksliðið skortir mjög leikreynslu. Dómari í leiknum var Einar Hjart- arson og dæmdi vel. Urslit á Bretlandi Úrslit í ensku knattspyrnunni á laugardaginn: 1. deild: Aston Villa—Sheffield Utd 0—1 Burnley—Arsenal 0—3 Fulham—Bolton 3—1 Ipswich—West Bromwich 1—2 Liverpool—Everton 2—1 Manch. Utd.—Leicester 3—1 Nottingham Forest—Blackb. 1—1 Sheff. Wed,—Birmingham 2—1 Stoke—Blackpool 1—2 Tottenham—West Ham. 3—0 Wolves—Chelsea 4—1 2. deild: Bury—Manch. City 1—1 Charlton—Plymouth 1—0 Grimsby—Derby 1—3 Leeds—Norwich 4—2 Leyton Orient—Newcastle 1—0 Northampton—Swindon 4—0 Portsmouth—Southampton 2—0 Freston—Huddersfield 2—1 Framhald á 13. síðu. TÍMINN, þriðjudaginn 1. október 1963 —■ ! 5

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.