Alþýðublaðið - 02.10.1942, Page 4

Alþýðublaðið - 02.10.1942, Page 4
ALÞYÐUBUÐIÐ Föstudagnr 2. október 194& fUf><j$trbUdið ÚtgelaadB: AIþýff*fi*k kurinn. Rttstjóri: Stefán rjetorasen. Ritstjóra og afgreiSsla t Al- þýðuhásinu við Ht eríisgótu. Sírrtar ritstjórnar: 40S1 og 4902. simnr afgreifitilu: 1980 og 4909. Veró í lausas»u 30 aura. \' AlþýöuprentsniiSjau h.f. PÉTUR SIGURDSSON: 24 stunda dagbókarefni. Tieudr titiar. ÞAB iná með sarmi segja, að tvennir hafi verið tím- arnir í afstöðu kommúnista til setuliðs'v InnunníU,- hér á lsndi. Um áramótin 1940 og 1941 var húsbóndi þeirra Stalin enn í vináttubandalagi við Hitler á móti Bretum. og bandamönnum þeirra. Þá kölluðu kommúnist- ar hér setuliðsvinnuna land- ráðavinnu og æstu upp til verk- falis í henni, enda þótt engihn ágreiningur væri um kaup og kjör við setuliðsstjórnina þar eð hún fór þá í öllu eftir þeim samningum, setn í gildi voru milli verkamanna og íslenzkra atvinnurekenda. Þetta er öllum enn í svo fersku minixi, þótt aldrei væri nema vegr.a dreifi- bréfsins fræga, sem kommún- istar gáfu þá út, í sambandi við verkfallið, til brezku hermann- anna, þar sem skorað var á þá, að óhlýðnast yfirboðuium sín- um. Þá var nú ekld verið að hugsa um „málstað banda- manna“, „baráttuna gegn fas- ismanum“, né landvamimar hér hjá okkur! En nú er öldin önnur. Nú er Stalin kominn í stríð við Hitler, að vísu ekki af sjálfsdáðum né af neinum sýnilegum áhuga fyr ir „baráttunni gegn fasLsman- um“. En þrátt fyrir það er hann nauðugur viljugur orðinn banda maður Breta og Bandaríkja- manna. Og þegar iþannig er komið, eru kommúnistar nú ekki alveg á þvi, að gera verk- fall í setuliðsvinnunni, sem þeir kalla nú landvarnavinnu í stað landráðavinnu. Þó að setuliðsstjómin þverskallist vikum saman við því að semja við verkamenn, eftir að samn- ingar hafa tekizt milli þeirra og íslenzkra atvhmurekenda um mikla kauphækkun og kjara- bætur, hvetja kommúnistarnir verkamenn til þess að halda á- fram að vinna hjá se-tuliðinu fyrir hið gamla lága kaup. Og þegar setuliðsstjómin eftir langt þóf gefur út valdboð um kaup og kjör verkamanna í setuliðsvinnunni, leggja komm- únistar alveg niður skottið, beygja sig auðmjúklega fyrir valdboðinu, selja . samningsrétt verkalýðsins þannig af hendi við hinn erlenda atvinnurek- anda og réttlæta slíkan undir- lægjuhátt sinn með slagorðum um „landvarnirnar“, „málstað bandamanna" og „bsráttuna gegn fasis®iímum“! Jú, það vantar svo sem ekki ábyrgðartilfhmlnguna hjá kom- múnistum, hinum „nýábyrgu," eins og þeir eru nú kallaðir — ÞEGAJR kunnugir menn hitt- ast, þá er jafnan spurt: „Hvað er í fréttvm“? „Ekki neitt“, segir hinn vanalega, og þó vita flestir menn ósköpin , öll og kunna frá mörgj. að s-egja Ég skrifa dagbók. Þó ekld nógu rækilega. Hér er til dnemis of- urlítið af því efni, sem ég hefi 1 dagbókinni síðústu 24 klukku- stundimar: * Meðal annara frétta segja blöðin frá bílstjóra, er seldi tveimur piltum áfengi. Þeir voru farþegar hans. Þeir not- uðu tækifærið, er bQstjórinn fór út úr bílnum til þess að þeysast áfram, óku yfix1 alllt sem fyrir varð og seinast í st,rand og gengu frjá hílnum hálfeyðilögðum, stálu öðmna bíl og bjuggu til nýtt ævintýri. Fréttir líkar þessum eru ekk- ert sjaldgæfar, og ekki er sjá- anlegt að ráðandi menn þjóðar- innar séu þreyttir á þehn, því óspart er áfengið látið uti. Þeir sem selja, græða, þeir sem drekka, skapa ævintýri og sjá um atvinnu handa lögreglunni; en við, sem nöldrum um ósóm- ann, mannskemmum okkur á því. Allt situr við sama, og of- beldishugsanir þróast í brjóst- um manna. Er ég hafði lesið fréttir blað- anna, gekk ég niður í bæ. Hitti kunningja minn á leiðinni. Mesta sæmdarmann, einn hinna eldri og virðulegustu borgara borgara bæjarins. Hann sagði mér iþessa sögu: P. Ó. hafði verið óreglumað- ur, en var hættur að mestu leyti. P. 0. er landskunntir maður. Hann sneri sér til þess embættismanns ríkisins, er sval ar þyrstum og sagðist tma því illa að hafa þurran bæ. Þyrfti að fá nokkrar flöskur. „í til- efni af- hverju“ ? spurði sá, sem valdið hafði. „Eiginlega ekki neinu“, svaraði hinn. „Já, við skoðum það sem risnu“, sagði veitandinn, og þar með voru kaupin gerð. Mér er sagt, að hvert einasta fyrirtæki geti fengið risnuáfengi, svo koma öll afmælin, giftingar og gervigift ingar, skemtiferðir, reisugildi o. fl. Fyrirtækin eru mörg á meðal vor, afmælin ekki síður, byggingar allmiklar, töluvert um giftingar, bseði alíslenzkar og ástandsgiftingar, og svo gervigiftingar, svo það er engin þurrð á áfengi. Það er svo sem enginn ískyggilegur þurkur í landinu. Áfengisdýrkendur þurfa ekki að ganga til neinna alvarlegra blóta þess vegna. * Maður nokkur fann upp á því íyrir nokkrum árum, að eiga dreng utan hjónabands og laga, svona rétt að gamni sínu. Það era alltaf einhverjir til í slíkt gaman. En svo hirti iþessi mað- u .* aldrei neitt um. drenginn. Nú bar svo við að örengurinn . náði íermmgaraldri, einmitt á þessum peninga og tækfærisíím- um. Faðirinn sótti um undan- þágu. Fékk nokkrar flöskur, seldi þær háu verði, en kom hvergi nærri fermingu drengs- ins, sendi honum ekki einu sinni heillaóskaskeyti. Föður- lega að verið. — Ég sel sögima ekki dýrara en ég keypti hana. Svo leið nóttin með dýra drahrna innan veggja, og hávaða á götunni. Ég gekk enn niður í bæ.) A3 þeasu sinni snemma dags. Einn landskunnur em- bættismaður vék sér að mér á götunni og færði í tal við mig rnikið vandamál. En frá þessu áræði ég ekki að segja ítarlega. Talið barst að þöríinni á ýmsum hælum og stofnunum, svo sem fávitahæli, drykkjumannahæli, hæli fyrir fávísar meyjar o. fl. Vöntun á slíkum stofnunum er mjög tilfinnanleg, en önnur vontun er þó enn alvarlegrL Það er vöntun á forstöðumönn- um og konum, slíkum, sem mættu kallast forstöðumenn af guðsn.ið, sem finna til köllunar brenna af áhuga, sjá takmörk að kej>pa að. Um þetta er ekki hægt að tala gálauslega. Þetta er mikilvægt alvöruznál. Það er nöpur staðreynd, að þrátt fyrir allt menntaflóðið, alla skóla og allan lærdóm, þá er tilfinnan- lega skortur á hinum útvöldu mönnum til hinna brýnustu þjónustustarfa í þjóðfélaginu. Ég játa það, að ég hrökk við, er hinn reyndi og hátt setti embættismaður setti mig inn í þessar staðreyndir. Hér stönd- um við enn andspænis þeim veruleika, að í þjóðaruppeldið heflr eitthvað það vantað, sem geiúr mönnum Ijóst, hver sé köllun þeirra, og gefur þeim sterka trú á mikinn, tilgang. * Á leiðinn heim, varð raér gengið franohjá húsi nokkru. Þá heyri ég allt í einu yfix hofði mér: „Manni, manni! Þú mistir eitthvað"! Ég lét sem ég heyrði ekki. En köllin mögnuð- ust og urðu fleirraddaðri. Þá staldraði óg við og leit upp. Þá gall við í tveimur eða þremur yngismeyjum, sem voru komn- ar næstum hálfar út úr hæsta glugga hú»sins: „Það var bara til að fá þig til þess að líta upp“. Ég spuÁði, hvort þeim liði illa, bvort bær væru í fangelsi, en bevrði óglöggt svör þeirra, því aff þær töluðu margar í einu. Ég hélt leiðar minnar, en þær tóku fyrir þann næsta. Þá mætti ég menníaskólakennara af Akureyri, sagði honum frá hættu á siglingaleið og lét hann sýo halda leiðar sinnar. Jú, viti menn, þær létu köllum sín- um rigna einnig yfir hann, en hann ptóð sig vel Svo fór ég í kringum þær, komst inn í húsið og leitaði mér upplýsinga um dömumar. Þetta var þá að- eins vinnustofa. Aumirifeja stúlkumari. Ég finn nú til með þeim og hefði farið upp til þeirra og spjallað við þær, hefðu þær ekki verið svona margar, en þar sem marg- ar kvensur tala allar í einu, verður Ktið úr maílsku minni. Það er gott að ungar stúlkur séu kátar, en eitthvað er iþetta skrítið. Ég er eigtnlega ráð- laus með svona framkomu kveirna, og ætlast til annars aí þeim. Þá komu til mín góðir gestir. Einn þeirra sagði mér þessa hryggilegu sögu: Móðirin var í hermannaskála, drifin þangað af ást til hermannanna, — auðvitað ,en á meðan dó bam hennar heima hjá henni á sótt- arsæng sinni. En það má ekki kasta steini að ásthneigð kveima. Það eru vondir menn, sem slíkt gera. Ásthneigð þeirra er svo rétthá og heilög, að hana ber að setjr. ofar ætt- jarðarást, þjóðrækni og ef til vill móðurást líka. Það er nú meixi bjargvætt- urin þetta sögulega hernám fyrir þann hluta ísl. kven» þjóðarinnar, sem var í hinu hörmulegasta karlmannsbxald. Hugsa sér! Konur svo þ isund- um skipti fleiri en karlar 1 Reykjavík. Og að leggja sig nið- ur við það, að vera húsmóðir í sveit, þar sem fjöldi bænda býr konulausir. Þaö er alltof „sveitó“ fyrir konur, sem lært hafa að mála varir sínar, lakk- era neglur, réykja sígarettur og jafnvel taka staup. Nú barst talið við kaffiborðið að þrKnaði. Gestur minn hafði nýlega átt tal við læknisfrú, er séð hafði mjög sóðalega um- gengni í einu matsölu- og gisti- húsi landsins. Þá sagði einn. borðgestanna þessa sögu: Tveir ungir menn voru að snæða f matsölu einni í Rvík. Þá sting- ur Óli, sem kallaður er Magga- don, höfðinu í gegnum rifu á dyrum eða einhverja lúku og kallar: „Á ég að skræla meiri kartöflur“? Óli er sjálfsagt góð sál og sennlega betri en bæði ég og margur annar. Flestir mundu þó sammála um, að aðr ir séu betur fallnir til eldhús- starfa. Ungu mennimir hættu að eta og fóru út. Nokkrum stundum síðar en þetta samtal fór fram, tilkynnti útvarpið, að einu hóteK bæjarins hefði verið lokað sökurn sóðaskapar. — Hér gerist þó alltaf eitthvað Frh. k @. síðu, fyrir málstað bandamanna nú, síðan Stalin varð fyrir barðinu á Hitler, þó að þeir væru fyrir rúmu hálfu öðru ári eins og út- spýtt hundskinn í þjónustu Hitlers, leitandi að tækKærum til þess að spilla fyrir setuliði Bretar hér á landi og viðbúnaði þess til að geta varið landið! En hvar er ábyrgðartiKinning þeirra fyrir málstað íslenzkra verkamanna í baráttunni við er- lenda jafnt sem innlenda ait- vinnurekendur? K 3SNINGABARÁTTA koin múnista er hafin. Þið vitið hvernig hún er: Alþýðan á einn óvin, það er Alþýðuflokkurinn! Haldið þið, að íhaldsflokkurinn, flokkur heildsala og stóreigna- manna, sé hættulegur alþýð- unni á íslandi? Eða þá Fram- sóknarmenn, sem harðast gengu fram í setningu gerðardómslag- anna? í Þjóðviljanum fáið þið svar við þessum spumingum: Sei, sei, nei, íhaldið og Fram- sókn eru barnaleikur á móts við bölvaðan Alþýðuflokkinn! AlKr sannir „sósíaKstar“!! verða að sameinast um það að tortíma Alþýðuflpkknum, einkum þó forystumönnum alþýðusamtak- anna. Það er sameiningin! ■ Virðinguna fjTÍr lesendum sínum sýnir Þjóðvilji kommún- ista m. a. rneð ’þessum orðum sínum í gær: „Hver samþykkti að hækka alla tolla á nauðsynjavörum? Hver var með því að gera stríðsgróðann skattfrjálsan og brjála með því allt verðlag í landinu? — Það var Al- þýðuflokkurinn. Og hver óttast nú dóm fólksins, fyrir öll þessi svik, svo mikið, að hann reynir að ljúga sig frá fortíð sinni? — Alþýðuflokkurinn.“ Alþýðublaðið flytur þessi um mæli „sameiningar“-blaðsins 6- breytt og ætlar þeim að dæma þau. -Þau sýna okkur, alþýðu- fólkinu, einu sinni enn, að kommúnistar eru hjálparkokk- ar auðvaldsins, flugúmenn í al- þýðusamtökunum, sem vinna að því að tvístra þeim með lyg- um, rógi og svikum. Alþýða ís- lands mun fyrr eða síðar dæma sKka fimmtu herdeKdarmenn og klofningskempur. Morgunblaðið heldur áfram þjóðfélagshugleiðingum sínum, vegna þess að Alþýðublaðið hrakti firrur þess um Alþýðu- flokkinn, fyrir nokkrum dög- um. En speki Moggans er eins og áður hvorki fugl né fiskur. Hér er einn fróðleiksmolmn: „Sjálfstaeðisflokkurinn lítur hins vegar á stéttarskiptingu þjóðfélags ins sem eðlilega þrpun víðtækrar verkaskiptingar til þess að auica starfshæfni þjóðarinnar. Stéttirnar mynda hins vegar eina samfellda keðju innan þjóð- félagsheildarinnar; sem grundvall- ast á samstarfi þeirra.“ Þetta er ésköp failega sagt. En „samíellda keðjan innan þjóðfélagheKdarinnar“ er bara óhugsamdi meðan ein fámenn stétt situr yfir rétti fjöldans, býr í lúxus-villunum þegar fjöldinn stendur húsnæðislaus á götunni, og sópar að sér millj- ónum þegar dýrtíðin rýir aðra inn að skyrtunni. Þess vegna mun stéttabaráttan halda áfram unz yfir lýkur. Alþýðuflokkur- inn mun jafnan vera þar fremsfe ur í flokki, er alþýðan heimtar rétt sinn af yfirstéttinni.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.