Alþýðublaðið - 02.10.1942, Side 5

Alþýðublaðið - 02.10.1942, Side 5
Fðstudagtu' 2. október 1942. ALiÞYÐUBLAÐIÐ ■é Siriðið og afbrotin. á heimiii, þar sem heimilisfólk- EINTí landflótta þýzki pró- , fessor í refsirétti, sem nú býr á Englandi, Hermann Mann hekn, hefír nýlega í bók um styrjaldir rætt um glæpavanda- málió á Englandi og Þýzkalandi ernlcum í fyrri heimsstyrjöld- imd. í ritgerð um glæpi á Eng- landi í núverandi styi jöld hef- ir hann aukið við fyrri rann- sóknir mörgum staðreyndum um áhrif myrkvunar og sprengjuvarps á glæpi. Margar af athugunum höfundarins eru mjög athyglisverðar. Hernaður Englendinga hefir i för með sér miklar hræring- ar í þjóðlífinu. Auk þess, sem milljónir' rnanna eru kallaðar undir fánana, eru enn þá fleiri fluttir af einum stað á annan. ÁriS 1939 voru flutt burtu 1,3 milljón xnanns. Margir þeirra hata komið aftur heim, en nýjar brottflutningsöldur hafa gengið yfir, og auk þess hafa margir flutt sig til af sjálfs- dáðum. Fyrsta afleiðing af þess- um flutningum hefir verið sú, að fjölskyldunum hefir verið sundrað, og það liggur í augum uppi, að þegar aðhald heimilis- ins er ekki lengur fyrir hendi, aukast glæpirnir að minnsta kosti meðal verkalýðsins. í>að er því engin furða, þótt brott- flutningur fólks og nýtt um- hverfi og nýct fólk að um- gangast hafi áhrif á brek og glæpi barna. Þegar öll gögn frá þessarí styijöld liggja á borð- er enginn efi á því, að margar mikilsverðar staðreyndir bæt- ast við rannsóknir á þessum málum. Þegar rannsökuð eru áhrif brottflutninga fólks á glæpa- hneigð, verður að aðgreina þrjár tegundir manna: Þá, sem verða eftir heima, þá, sem fara, og þá, sem fyrir eru á þeim stað, sem flutt er tíl. Meöal þeirra, sem heima eni, virðist engin breyting verða með tilliti til glæpa, ef um full- orðna er að ræða. En um æsku- lýðinn er allt öðru máli að gegna. Skólabörntmum, sem verða kyrr heima, hefir lokun skólanna orðið mjög skeinu- hætt. Skólunum var lokað af hernaðarlegum ástæðum, en einnig í því skyni að neyða for- eldrana til að flytja börnin burtu. Þe->si ráöstöfun dugði þó ekki. í árslok 1940 voru t. d. í Lcndon um 30 000 börn á skóla- skyldualdri. Þannig féngu mörg böm að ráía um án eftirlits eða aðhalds og merrn eru sannfærðir um, að aukning glæpanna eigi að töluverðu leyti rót sína að rekja til þess fyrirkomulags. Smám saman neyddust því yfirvöldin til þess að opna skólana aftur og hefir því ástandið batnað í þessum efnum. Oft haia mæður flutt burtu með yngstu böxain, en eldri bömin hafa fengið að ráðskast í íbúðunum. Þá hefir það og haft mikla þýðingu, að nærri því allir drengjaklúbbar, sunnu dagaskólar og kvöldskólar hafa verio lokaðir á brottflutnings- stöðunum. Og þegar það bæt- ist að ílestir leikvellir og íþrótta veliir hafa verið teknir til hem aðarþarfa, em litlir möguleikar eftir til hollra frítírnaskemmt- ana. Aukning fylliríisafbrota drengja um 16 ára er talin af- leiðing af þessu. Meðal fulloröinna hefir brott- flutningur ekki aukið afbrot, að því er vinöist, heldur meðal hinna brottfluttu barna. Eng- inn vafi er á því, að margir árelcstrar haía átt sér stað, sem hafa aukið brek og glæpi barn- anna. Menn hafa reynt að skýra þessa aukningu á tvenns konar hátt. Það, að neyðast til þess að yfirgeía heimilið, skapar hjá barninu öryggisleysi, einkam börnum frá fátækum heimilum. Hugsunin um það að flytja burtu, vekur hjá þcim hug- mynd um einhvers konar stofn un. Og það, að tívelja meðal ákunnugra, vekur sams konar tilfinningu og hjá óskilgetnum börnum. Stundum hefir fyrirkomulag- ið verið svo óheppilegt, að það hefir gert ástandið verra í þess- um efnum en annars hefði þurft að vera. Það hefir reynzt skyn samlegt að koma börnum fyrir ið hefir verið af annarri stétt, en þau voru. Vandræðabörn, sem hafa verið á hælum, hafa elcki kunnað að virða eignarétt inn. Böm úr fátækrahverfun- um, sem komið hefir verið fyr- ir úti í sveit, eiga erfitt með ) að venja sig af því að tína upp það, sem þau finna utan húss, hversu lítilfjöríegt, sem það er. Þó má fullyrða, að brottflutn- ingur fólksins hefir valdið minni glundroða, en mátt hefði vænta. Það hefir verið mjög erfitt að ráðstafa vandræðabörnunum. Vcgna þess, að brottflutningur- inn er víðast hvar frjáls — en ekki lögskipaður, hafa for- eldrar getað haft áhrif á yfir- völdin með því að hóta að flytja börnin heim. Yfirvöld héraðanna sem flutt hefir verið til, orðið að taka á sig viðbótar- störf, sem þau hafa ekki getað risið undir. Stór bót hefir orðið að því, að Lundúnaborg hefir sent marga uppeldisfræðinga á þá staði, þar sem fjölmennast er. Smámsaman hafa líka verið útbúin sérrtök heimili handa börnum, sem erfið eru. Hjá fólkinu, secn fyrir bjó í sveitum þeim, sem flutt hefir verið í, hefir ekki orðið vart við neina breytingu í þá átí, að glæpir hafi aukizt. Af reynslunni um England ætti að vera hægt að draga viss- ar ályktanir í öörum löndum, eem þannig hefir verið ástatt um, að þurft hefir að flytja fólk af einum stað á annan um það, hvernig megi koma í veg fyrir aukningu afbrota meðal æskulýðsins. 1) Menn verða að fara mjög varlega í lokun skóia og sjá um að bömin hafi eitthvað að sýsla við í frítímum sínum. 2) Yfirvöldin á þeim stöðum, sem flutt er frá, verða að gefa sérstakar gætur að því æsku- fóllci, sem skilið er eftir heima. 3) Sérstaka gát verður að hafa á því, að börnum sé komið fyrir á heimilum, sa(m hæfa stétt þeirra í þjóðfélaginu. 4) Bamavemdarráð í iþeim héruðum, sem flutt er til, verða að fá meiri völd í hendur með tilliti til barnanna, einkum vandrseðabama. Frá því í ágústmánuði 1940 hafa milljónir manna orðið að eyða rióttum sínum í almenn- um loftvarnabyrgjum. Það er þegar hægt að sjá, að við þetta hefir glæpum fjölgað. Árásum virðist þó ekki hafa fjölgað að mun. Á tímabili fvrstu loftárás- anna. var að vísu tiltölulega mikill fjöldi árása á verði og* áflog milli þeirra, sem hafa verið að leita sér skjóls, enn- fremur notuðu vændiskonur loftvarnabyrgin fyrir markaðs- torg. En því lengra sem liðið hefir og menn hafa fengið meira vald á fólkinu, hefir dregið úr glæpunum. Hinsveg- ar hafa þjófnaðir farið f vöxt, og hefir þetta verið mestí upp gangstími fyrir vasaþjófa og skemmdarvarga. Einkum hefir þessi byrgis- Seadisvein vutar á ritstjórn Alþýðublaðsins. Vinnutími frá kl. 1—7. Gott kaup. I Upplýsingar á ritstjómarskrifstofimum eftir kl. 1 í dag. Okkur vantar eldri mann eða ungling til aðstoðar við afgreiðslu á bensínstöð. Blfreiðastoð Steindórs Ósprungln sprengja Brezki hermaðurinn á myndinni gengur rólega í áttina til sprengjunnar, sem þýzk flugvél kastaði — en spraldc ekki. dvöl haft slæm áhrif á æsku- •lýðinn. Þar eð börnin sækja sjaldan sömu loftvarnabyrgi og foreldrarnir, hafa þau ekki not- ið umsjónar foreldranna. Enn- fremur hefir orðið auðveldara að koma við allskonar lausung. Myrkvunin hefir skapaS tvennskonar afbrot. Fyrst og fremst voru það brot gegn sjálf um myrkvunarákvæðunum. Það getur verið lærdómsrílct að geta ‘þess, að meðan loftárás- Frh. á 6. síðu Verður íslands óhamingju allí að vopni? — Trúin á w lygi og róg. — Það, sem ungi verkamaðurinn á hafnar- bakkanum sagði við mig á raánudagskvöldið. — Fyrir- spum frá „Sjómanni“. Rþetta adiyglisverða bréf, og tBVITRINGUR" skrifar mér birtí ég það í heilu lagi: „Ég var að hugsa um það í gærkveldi, hvort gamla orðtakið „íslands ó- hamingju verður allt að vopni“ ætlaði að rætast cú, jafnvel miklu skýrar og áíakanlegar en nokkru sinni áður. — Ég er áhorfandi að öllu. Ég geri aldrei kaupkröfur, aldrei verkfall. Ég á ekkert til að seija, eða ég tel það ekki — og get því ekki á neinn hátt tekið þátt í hinu vitfirringslega kapp- hlaupi, sem nú er þreytt.“ „ÉG HEFI ÓBILANDI TRÚ á því, að fólkið eigi að ráða, að lýð- ræðið sé hið eina stjómarfyrir- komulag, sem ekki þrýsti niður vilja fólksins og sjálfsákvörðunar- rétti, og ég trúi því að samtök hins eignalausa fjölda, sem aðeins lifir á vinnu sinni, sé grundvöllur alls þess, sem horfir til framvindu í leit mannfólksins að fu’lkomnari og réttlátari þjóðfélagsháttu.. . þar sem enginn þarf við kúgun að búa •— og allir geti frjálsir neytt brauðs síns í sveita síns andlitis." ,,EN SVO KOMA „bölvaðar staðreyndimar“ og skrækja fram- 1 an í mig: Ég sé menn, sem ég. með minni trú, get ekki álitið annað en óþvegna glæpamenn, sá eitri og rógi milli manna, eyðileggja til- raunir, sem gerðar eru til að koma á þolanlegum stjórnarháttum. Ég sé heila flokka stefna að því að sprengja þjóðfélagið í loft upp, ég sé samvízkulaust unnið að því að skapa hatur milli einstaklinga og stétta.“ „ÉG VAR AÐ RÖLTA niður á hafnarbakka eftir vinnutíma eítt kvöldið. Undir skúr stóð ungur verkamaður. t>að er sagt að hann sé séivitux og baldinn. Ég vissi að hann værí vel gcfínn og óvenju- lega reglusamur á þessum tímum. Ég staðnæmdist hjá honum svolitia stund. Hann fór að tala við mig um villihveiti, sem yxi niður við Tjörn. Svo minntist hann á kola- bingina og svo fór ég að tala um pólitík. Þá sagði hann nokkura veginn orðrétt: „AibX.T VELTUR Á RÓGI OG LYGI! Þeir, sem beita þessu, þeir vinna á. Fólkið vill það. Ef þú til dæmis hamrar á því í viku, aö Árni frá Múla hafi verið keyptur fyrir 10 þúsund krónur út úr í- haldinu, þá trúa þúsundir manna því. Ef kommúnistar t. d. segja að þér hafi verið mútað til að skrifa þetta eða hitt, þá er því trúað af fjölda mörgum. — Það var róg- uriiuiiog lygin, sem skapaði kosn- ir.gasigur kommún'ista í vor.“ „ÉG ÞEKKI nokkra starfsama konimúnista. Þeir setja róginn og lygina í „system”. Og þeir trúa á þetta eins og gömul kona trúir á prestinn sinn og frelsarann. Sérðu hvað þeir ætla sér nú? Nú rægja þeir oR ljúga upp á Sigurjón í Sjó- mannafélaginu. í vor rægðu þeir og lugu upp á Stefán Jóhann. —• Ef þú vilt sigra í kosningum, þá skaltu hamra á lygi og rógi um andstæðingana viðstöðulaust og nt nógu mikilli grimmdl" (Frh. ét 6. s<0u.)

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.