Alþýðublaðið - 06.10.1942, Page 3
KISKÁ^j^*
'» ✓ti
\amchitka
tanaca';;^
il\o
o\v.
OUTCH
HARBOR
...
V ONALASKA
UMNAK
Pacific Ocean
; í gær bárust fróttir um að Ban daríkjamenn héfðu sett lið á land á Andreanof-eyjunum, sem
J eru miðhluti Aleuteyjanna. Eins og kortið sýnir er lega þessara eyja mjög þýðingarmikil
fyrir hernaðinn í norð-vestur Kyrrahafi og skapar Bandaríkjamönnum möguleika til að herja
á -Japana norðan frá, samtímis sem þeir herja á þá að sunnan með Ástralíu sem aðalbækistöð.
Barizt með sama ofsa og
Bándarikskar flug-
vélar byrja loftárás
ir frá hinum nýju
bækistöðvum á
Aleuteyjum.
Daglega loft-
árásfr á Kiska.
: ! Washington. 5. okt.
Ameríkski land- og flugher-
inn hefir stöövar aÖeins 125
mílur frá Japönum á Aleuteyj-
um. í tilkynningu frá flotan-
um er sagt, að hinir ameríksku
herir, sem fá aðstoö frá flotan-
um hafi komizt á land á And-
reanofeyjum, sem ef til vill er
fyrsta sporið í dllsherjarárás til
að stökkva Japönum á flótta
frá þrem vestustu eyjunum í
Aleuteyjaklasanum.
Hinar sjö Andreanofeyjar
eru 245 mílum fyrir vestan að-
albækistöð Ameríkumanna á
Dutch Harbor. Nú þegar eru
ameríkskar sprengju- og árás-
arflugvélar byrjaðar að ráðast
á Japani á höfninni í Kiska.
Flotinn skýrði frá því að flug
vélar hafi gert sprengjuárás á
japanskt flutningaskip, og einn
ig hafi aðrar flugvélar kastað
sprengjum, gert vélbyssuárás á
óvinahöfn og hafnarmannvirki
Ameríkumenn misstu enga flug
vél.
ÞJóðverfar vinna á í norý -
urhverfnnnm en Rnssar
suður af borginni.
Rússar í sókn við Rzhev.
B ARIST er í Stálingrad af sama ofsa og áður, en engar stór-
breytingar hafa orðið á vígstöðvimum í borginni. Rússar
halda öllum stöðvum sínum í miðhluta borgarinnar, en í Norður-
hverfunum, þar sem Rússar gerðu nýlega miklar tilraunir til að
stöðva Þjóðverja, hafa Þjóðverjar samt unnið eitthvað á. Fyrir
sunnan borgina ganga bardagarnir hinsvegar Rússum í vil.
Sókn Timoshenkos er enn hæg.
Á Rzhev vígstöðvunum hefir Riissum tekizt að hrekja her-
sveitir undir stjórn von Hoffmans 11 km. til baka.
Báðir aðilar tilkynna mikla
loftbardaga yfir Stalingrad víg-
stöðvunum. Reyna báðir aðilar
að fremsta megni að eyðileggja
samgönguleiðirnar hvor fyrir
öðrum með loftárásum.
BRETAR tilkynna, að 40
skipum hafi verið sökkt
fyrir andstæðingunum í sl.
mánuði á hinum ýmsu höfum
heims.
Aðaljárnbrautarlínan á Ma-
tíagrskar er nú á valdi Breta.
Enn eitt flugvéla
móðurskip.
Washington, 5. okt.
Bráðlega mun koma enn eitt
flugvélarrióðurskip, sem mun
bera nafnið “Yorktown.” Frank
Knox flotamálaráðherra segist
hafa gefið samþykki sitt til
að breyta nafni flugvélamóður
skipsins Bon Homme Richard,
sem nú er verið að smíða.'York
town er flugvélamóðurskip af
Essex-gerðinni. '
Essex var hleypt af stokkun-
um 31. júlí. Það er 26000 smá-
lesta skip og tekur 2.000 menn
og meir en 100 flugvélar. Hið
nýja “yorktown” mun verða
fjórða skipið og annað flugvéla
moðurskipið, sem hefir fengið
nafn af orustunni, sem var sú
síðasta í ameríksku bylting-
unni. Hinu fyrsta var hleypt
af stokkunum 1839, öðru 1888,'
og hinu þriðja “Yorktown”
flugvélamóðurskipinu var
sökkt í Midwayorustunni.
KÁKASUS
Rússar segjast hafa hrundið
árásum Þjóðverja við Mosdok
og hersveitum þeirra verði vel
ágengt við Novorossisk. Hins-
vegar segjast Þjóðverjar hafa
tekið tvo bæi við Terekfljótið.
VORONES og RZHEV
Á Vorones-vígstöðvunum til-
kynna Rússar aS þeir hafi fellt
800 Þjóðverja á emum degi. Á
Rzhev vígstöðvunum hafa Rúss
ar hrakið hersveitir sem stjórn-
að er af von Hoffmann hers-
höfðingja 11 km. til baka.
Tveir hershöfðingjar falla.
í Berlín var tilkynnt í dag að
tveir hershöfðingjar hefðu fallið
á austurvígstöðvunum. Var ann
ar þýzkur freiherr von Lange-
mann en hinn ungverskur, að
nafni Naki.
Hann telur varnarmátt RAssa
meiri en sóknarmátt Þjóðverjau
C TALIN hefir átt viðtal*
við amerískan blaða-
mann í 'Moskva. Svaraði
hann þremur spumingom,
sem blaðamaðurinn lagði fyr-
ir hann.
í fyrsta lagi lagði Stalin
áherslu á nauðsyn nýrra víg-
síöðjva í Evrópu, með því
einu sköpuðust möguleikar
til þess að sigra Þjóðverja.
í öðru lagi kvað hann h jálp
Bandamanna til Rússa vera
litla í hlutfalli við þá hjálp,
sem Rússar veittu Banda-
mönnum með baráttu sinni
við þýzka herinn, sem mest
allur berðist nú í Rússlandi.
Að lokum sagði Stalin, að
varnarmáttur rauða hersins
væri;nú meiri en sóknarmátt
ur hins þýzka hers.
Ræða Stalins hefir vakið
nokkra athygli og margir vilj-
að 'álykta, að samkomulag
Russaá við Bandaménn sína
væri-.; ekki sem ákjósanlegast.
En nú hafa þeir Sumner Well-
es varautanríkisráðh. Banda-
ríkjanna og Halifax lávarður
sendiherra Breta í Washingtön
átt tal við blaðamenn út af
ræðu Stalins. Wells sagði, að
Bandaríkin mundu standa við
þau. ákveðnu loforð sín við
Rússá að hjálpa þeim eins mik
ið og eins fljótt og hægt væri.
Halifax lávarður: „Það er
enginn. misskilningur á milli
Stalins, Churchill og Roose-
velts. Þeir skilja fullkomlega
hver annan.“ Halifax sagði enn
fremur, að það gleddi sig að
heyra ummæli Stalins um varn
armátt Rússa. Hann kvað enn-
fremur að loftárásir Banda-
mánna á Þýzkaland hefðu lam
að mjög siðferðisþrótt þjóðar-
verja og veikt þýzka herinn.
Gera Þjóðverjaí
nýjar kröfur
til Dana?
Umræðnr staadft
yfir í Berlfn og
Kaupmannahöfn.
London í gærkvelcS.
P RETTIR frá Stokkhóhm
herma, að miklar um-
ræður fari nú fram miM
dönsku og þyzku ríkisstjómm-
innar. Fara umræðumar bæM
fram í Kaupmannahöfn og í
Berlín og hafa sendiherrar rfh-
isstjórnanna milligöngu.
Orðrómur gengur um, að
Þjóðverjar séu með nýjar kröf-
ur á hendur Dönum um mexrí
stuðning við Þýzkaland í stríÖ-
inu.
Umræðum þessum verðirr lok
ið á mánudag, segir í fréttinni
ennfremur.
Þjóðverjar her-
skylda Slovena.
ÞJÓÐVERJAR hafa á-
kveðið að allir vopnfærir
karlmenn í Sloveníu skulu her
skyldir. — Afsaka Þjóðverjar
þetta með því að Slóvenar séu
af þýzkum uppruna og banda-
menn Möndulveldanna.
En eins og kunnugt er, haía
Slóvenar tekið öflugan þátt í
baráttu Júgóslavnesku þjóðar-
•innar gegn þýzka innrásarhern
um, sem mun vera orðínn von-
daufur með að geta innleitt ný
skipun Hitlers með nokkrum
árangri í Júgóslavíu.
Ræða Görings:
Þjóðverjar mnnn halda í sér lífinn
á kostnað hernnmdn hiéðanna.
GÖRING hélt ræðu í Berlín í gær. Hann er fjórði nazistafor-
inginn, sem heldur ræðu til að stappa stálinu í Þjóðverja
undir veturinn. Áður höfðu þeir von Rippentrop, Gobbels og
Hitler flutt ræður.
Ræða Görings hefir vakið mikla athygli vegna þess hve
hann var berorður um örðugleika Þjóðverja.
Hann talaði um matvælaástandið og mótmælti því að nokkurt
hungur væri á meginlandinu. Hann sagði, að ef matvælaskortur .
yrði mundu Þjóðverjar svelta síðastir.
Göring skýrði frá því að 6
milljónir stríðsfanga væru við
allskonar störf í Þýzkalandi.
Kjötskammtur aknennings
verður aukinn á. næstunni um
50 gr. á viku, sagði hann enn-
fremur. Fólk fengi aukaskamt
fyrir jólin.
Eins og Hitler gerði í ræðu
sinni hótaði Göring Bretum
hefnd fyrir loftárásir þeirra á
Þýzkaland. Þegar Þjóðverjar
eru búnir að sigra Rússa, sem
hann kvað gert, mundu þúsund-
ir þýzkra orrustuflugvéla fylla
ioftið yfir þýzkum borgum.
Göring lauk ræðu sinni með
því að lýsa því yfir að hver sá
hermaður eða foringi, er brygð
ist skyldu sinni yrði hiklaust
skotinn.
Blöð Bandamanna benda á að
nú finnist nazistum þurfa
mikils við, þegar fjórir helstu
foringjar nazista halda opin-
berar ræður hver á eftir öðrum.