Alþýðublaðið - 13.10.1942, Blaðsíða 2
ALÞTÐtfBUWSÐ
Þriðjudagiir 13' oktdber 1342*
Sfefán Jótaann Stefánsson segir i
vera áfram í
t kvðld kl. 9 i Iðnéi
Jéhann Sæmundsson
flytar nýtt erlndi.
Efui: Dýrtið, mataræði og heil-
brígði. Fyrirspurnum svarað á eftir
FJÓRÐA stjómmála- og
fræðslukvöld Alþýðu-
ílukksins verður í Iðnó í kvöld
«g hefst klukkan 9 stundvislega.
Jóhaim Sæmundsson yfirlæknir
flfytur nýtt erindi um dýrtíð,
jaaataræði og heilbrigði. Fyrir
nokkru flutti hann erindi í út-
varpið um þetta efni. Var það
kirt hér í blaðinu. En erindið,
sem hann flytur í kvöld, er
m@kk.urs konar framhald af því
«g fer þó að ýmsu leyti inn á
onnar svið.
Eftir að yfirlæknirinn hefir
íiutt erindi sitt, verða frjálsar
awæður, og mun yfirlækirinn
u svara fyrirspurnum frá
ftmdarmönnum, er snerta þetta
aíhyglisverða mál.
Erindi læknisins um daginn
vaktí feikna athýgli, og svo mtm
eitmig verða um þetta. Er þess
©g að vænta, að ýms fleiri at-
riði, en þau, sem hann tekur
jfyrir í erindi sínu, muni skýr-
ast við fyrirspurnir frá fundar-
mönnnm.
Jóhann Sæmundsson
yfirlæknir.
Aðgöngumiðar að þessu fjórða
stjórnmála og fræðslukvöldi AI-
þýðuflokksns fást í dag í af-
greiðslu Alþýðublaðsins, í kosn-
Ingaskrifstofu Alþýðuflokksins
í Alþýðuhúsinu og við inngang-
inn, ef nokkrir verða eftir. En
ráðlegast mun fyrir fólk að
tryggja sér aðgöngiuniða í
tíma.
KosDingaskrifstofan er far-
in nr Menntaskðlannm I
..-.♦ ' ...
Og skólinn er þegar tekinn ti! starfa.
b bréfaskriftnnam mnn bé ekki lokið enn.
17 RIÐUR virðist vera
kominn á í Mennta-
skólamálinu. Magnús Jóns-
stm, kennslumálaráðherra,
hafði ekki síðdegis í gær sent
Pálma Hannessyni, rektor,
meitt bréf út af bréfi hans,
sem rektorinn sendi ráðherr-
anum á laugardag.
Um helgma var hin umdeilda
kosningaskrifstofa flutt úr
Menntaskólanum og starfar nú
I Alþingishúsinu, gengið inn frá
Kirkjustrætí. Virðist henni ekki
hafa verið skipaður lægri sess
«n meðan hún hafðist við í
Menntaskólanum, öllum tíl ang-
*ots og armæðu.
Menntaskólinn er byrjaður
að starfa. Próf standa yfir í 2. J
og 6. bekk, en aðrir bekkir
hefja sína starfsemi strax þeg-
ar stofumar Iosna, en það mun
verða næstu daga.
Bréf það, sem Pálmi Hannes-
son skrifaði kennslumálaráð-
herra á Iaugardag og birt var
hér í blaðinu, átti, samkvæmt
umsögn rektors að vera bráða-
birgðasvar hans til ráðherrans.
Bíða meim nú eftir íullnaðar-
kvittun rektorsins, sem sagt er
áð sé væntanleg næstu daga.
Ráðherrann lét Morgunblaðið
birta mikla greinargerð frá sér
í málinu, en sendi hana ekki
öðrum blöðum, þó að einkenni-
legt sé. Virðist því ekki nema
eðlilegt, að rektor vilji gera full
nægjandi grein fyrir afstöðu
sinni til þessa máls, sem vakið
hefir meiri athygli en efni
stóðu jafnvel til.
unir
Viðtal við formann Alþýðu-
flokksins um kosningarnar
næstkomandi sunnudag og
málin, sem þær snúast um.
..
HVAÐ myndir þú telja að hafi verið aðalatriði kosninga-
baráttunnar tii þessa, og um hvað telur þú að hún ætti
að réttu lagi að snúast?
Þessa spumingu lagði Alþýðublaðið fyrir Stefán Jóh. Stefáns-
son, fomiann Alþýðuflokksins, í gærkveldi, en nú fer að styttast
til kosninganna — aðeins fixnm dagar eru eftir.
Stefán Jóhann svaraði:
— Kosningabaráttan hefir
fram að þessu að ýmsu leyti
verið sundurtætt, aukaatriða-
kennd og oft meira snúizt um
menn en málefni, eins og oft
vill verða hér á landi. Mjög á-
berandi voru framan af hinar
illúðlegu persónulegu deilur á
xnilli hinna fj^rrverandi sam-
herja í stjórn Framsóknar- og
Sjálfstæðisflokksins. Hefir þar
hver brugðið öðrum um svik-
semi og fláttskap, og sannast
þar hið fornkveðna að:
Eldi heitari
brennur með illum vinum
friður fimm daga,
en þá slokknar,
er hinn sjötti kemur
og versnar allur vinskapur.
En á síðustu dögum hefir þó
nokkuð dregið úr þessum deil-
um, og hefir ,,friðarhöfðing-
inn“ Jónas Jónsson, gert sitt tii
þess að bera klæði á vopnin og
smyrsl á sárin í hinum harð-
sótta smáskæruhernaði þessara
flokka, sem svo oft áður hafa
sameinazt gegn alþýðusamtök-
unum, þegar hagsmunir at-
vinnurekenda og auðborgara
hafa verið í veði. En þessar per-
sónulegu, allt að því fjölskyldu-
deilur, hafa lítið skýrt aðaldag-
skrármálin og afstöðu þessara
flokka til aðkaUandi úrlausna
á vandamáMnum.
P>jéðs tjórnargrýlan.
Kommúnistar hafa hagað
kosningabaráttu sinni á líka
lund og áður. Hvössustu spjóta-
lögunum og eitruðustu örvun-
um hafa þeir leitazt við að
skjóta að Alþýðuflokknum.
Sýnist það sanna óvéfengjan-
lega, að enn þá sé í heiðri höfð
hin hefðbundna kennisetning
þeirra að Alþýðuflokkurinn sé
fyrst og fremst „höfuðóvinur-
inn“, er leggja verði mesta á-
herzlu á að veikja og tor-
tryggja. Og einn þátturinn í á-
rásinni á Alþýðuflokkinn eru
hinar persónulegu árásir og róg
mælgi um einstaka forystu-
menn hans. En flest vopn \
kommúnistanna eru bæði farin
að ryðga og orðin æði skörðótt,
eftir öll þau klámhögg og vihd-
myliuorrustur, sem með þeim
hafa verið háðar. En ekki vant-
ar viljann til þess að nota sveðj
una, ef færi gefst, og einkum
þegar baki er snúið við.
Þjóðstjómargrýlan er eitt af
mest notuðu vopnum kommún-
ist gegn Alþýðuflokknum. Þeir
reyna leynt og Ijóst að læða
því inn með áróðri sínum, að
Alþýðuflokkurinn muni, að
kosningum loknum ,ganga til
sameiginlegrar stjórnarmynd-
unar með Framsóknar- og Sjálf
stæðisflokknum. Þeir strika yf-
ir allar þær staðreyndir, er
blasa við augum þeirra manna,
er fylgt hafa gangi málanna á
síðustu tímum, að það var Al-
þýðuflokkurinn, sem ekki hik-
aði við að rjúfa þjóðstjómina,
þegar %ekki tókst lengur að
hindra framkvæmdir á sameig-
iniegum árásarfyrirætlunum
Framsóknar- og Sjálfstæðis-
flokksins gegn Iaunastéttunum
og allri alþýðu þessa lands. Það
Stefán Jóh. Stefánsson.
var Alþýðuflokkurinn, sens
beitti sér harðast og með bezt~
um árangri gegn afturhaldssam
vinnu þessara flokka, með
þeirri niðurstöðu, að hún gliðn-
aði í sundur og ofbeldislögun-
um var af létt. Og Alþýðuflokk-
urinn mun hér eftir sem hingað
til, standa á verði fyrir hags-
munum alþýðunnar. Hann unir
því vel, að vera áfram í harðri
og einbeittri stjómarandstöðu
og lætur afstöðu sína eingöngu
mótast af málefnum þeim, er
hann berst fyrir. Hann mun
gera sitt ýtrasta til þess að afla
þeim fylgis, er þess albúinn að
hrinda þeim í framkvæmd, me®
hverjum þeim öðrum, er vilja
af einlægum hug, Ijá þeim lið-
sinni.
Sdýrtiðarmállnt Tiilög
nr Alpýðnflokksins«
Þessar kosningar eiga vissu-
lega fyrst og fremst að snúast
um lausn dýrtíðar- og fjárhags-
málanna, um ráðstafanir til
þess að hindra og draga úr verð
bólgunni, um jöfnun og öryggi
kjara alþýðu manna og sam-
komúlag á milli alþýðustétt-
anna, til sjávar og sveita, og
um sameiginlegar aðgerðir til
tryggingar nauðsvnlegri vinnu
í landinu.
(Frb. á 7. sfðu.)
Aðelns 2400 atkvæði
vantaðl fi snmar.
Vinníð pessi atkvæði fyrir A-listann
i Rvík þá fær hann prjá kosna á þing
EF kosið hefði verið um 8 þingmenn í Eeykjavík við kosn-
ingarnar 5. júlí í sumar, þá hefði Aþýðuflokkinn ekkí
vantað nema aðeins 2—300 atkvæði til þess að fá þrjá menn
kosna af lista sínum, tvo sem þingmenn Beykjavíkur og
þann þriðja landkjörinn.
Nú á að kjósa 8 þingmenn fyrir Reykjavík komandi
sunnudag. Nú veltur því aðeins á því, að auka fylgi flokks-
ins við kosningarnar um þessi 2—300 atkvæði frá því í sumar.
Þetta þarf hver einn og einasti Alþýðuflokksmaður að hafa
í huga þessa daga. sem eftir eru. Ef hann gerir það, og e£
hann vinnur vel að sigri A-Iistans, þá er tryggt, að hann
kemur þremur mönnum að — tveimur efstu mönnumun
sem þingmöimum Reykjavíkur, og þeim þriðja sem land-
kjörnum.
Sjálfstæðisflokkurinn býður launastéttum Reykjavíkur
upp á Pétur Magnússon bankastjóra, formanji gerðardóms-
ihs. Alþýðuflokkurinn býður þeim upp á Sigúrjón Á. Ólafs-
son, fonnann Sjómannafélagsins og forseta Alþýðusam-
bandsins. Hvorn vilja launastéttir Reykjavíkur heláur?