Alþýðublaðið - 24.10.1942, Side 5

Alþýðublaðið - 24.10.1942, Side 5
JLawgardagux 24. októbc.r 1942,__ALÞTÐUBLADIP Jðrðin og reikistj örnurnar. REININ, sem fer liér á eftir, birtist nýlega i brezka útvcerpstímarit- inu „The Listener“ í Lon- don, og er eftir þekktan brezkan fræðimann, Sir James Jeans. JÖRÐIN virðist vera traust, þegar við stöndum á henni, •og stór yíirferðar, svo að það er emgin furða, þótt fólk áliti, *hér áður fyxr, að jörðin væri óbifan- legur miðdepill alheknsins. Ýmsir álitu, að jörðin væri flöt og himinirtn hvelfdást yfir henni eins og glerhjálmur. Auðvitað veittu menn því at- hygli, að stjömumar hverfðust um pólinn, svo að menn álitu, að hjáimurinn snérist. Það virtist eánfaldari skýring en s|ú, að jcirðin snérist. Meðal fom- Grikkja voru þó uppi ýmsar skoðanir. Meira en fimm öldum fyrir Krists burð hélt Pytha- igoras því fram, að jörðin væri hnöttótt, hnöttur, sem' svifi um geiminn, sagði hann. Fáeinum öldum síðar voru til menn með- al Grikkja ,og þar var Aris- tarchus fremstur í flokki, sem héldu því fram, að jörðin færi sína ákveðnu braut umhverfis sólu. En þessi skoðun varð ekki almenn. Menn vildu ekiki trúa öðru, en að jörðin, sem þeir byggðu væri miðdepill aiLheims- ins. Þeim fannst það enn fremur miklui virðulegra, að jörðin stæði kyrr, en allt axmað snérist um bana. Þannig óðu menn í sömu villu og svíma um nærri því tvö þúsund ára skeið eftir að Aristarchus hafði komið auga á sannleikann og birt hann. En loks, fyrir hér um bil fjögur hundruð árum, skrifaði póLskur maður, Kopemicus að nafni, rnjög þýðingarmilda bók. Hann benti á það, aö hreyfingar stjarnanna og sólarinnar um himinhvolfið mætti einfaldlega akýra á þann hátt, að 'hugsa sér að sólin stæði kyrr, en jörðin og stjömurnar snerust um hana. Meðan eim þá var verið að ræða þessar kenningar, smíðaði Gali- lei, prófessor við háskólann í Padua, ofurlítinn stjömukíki með eigin höndum og sannfærði bæði sjálfan sig og aðra um það, að Kopemikus hafði á réttu að standa. Sólin snérist ekki um- hverfis jörðina, heldur snérist jörðin umhverfis sólina. Jarðar- búar uxðu því að sætta sig við , það, að hnötturinn þeirra væri ’ ekki midepill alheimsins, heldur væri hún aðeins venjuleg plán- eta, sem snérist umhverfis sólina Og þriggja alda stjörnurannsókn ir hafa dregið eirn þá meira úr mikilvægi hennar. Ef við lítum út urn gluggann okkar á heið- slíýrri en tuniglskinslausxi nóttu, munum við sjá vetraxbrautina eins og perlufesti eftir ihimnin- um. Við vitum, að vetrarbrautin er fjarlægt stjörnubelti, en sér- hver stjarna er sól, mjög svipuð sólinni. okkar. Stjörnurnar eru svo fjarlægar að ekki er hægt að telja þær í bezta stjörnukíki, en þótt furðulegt megi virðast, er hægt að vega .allan sæginn imeð því að reifcna út aðdráttar- afl þeirra á sólina. Á þennan hátt getum við kom- izt að rauin um, að í vetrarbraut- inni eru um 100 000 milljónir stjarna. Það skal játað, að erfitt er að hugsa sér slíkan aragrúa. Það er hægara með því að hugsa sér fimmtíu stjörnur á hvern í- búa jarðar. En jafnvel þessi fjöldi er aðeins örlítill hluti af öllum stjörnum himlnsdns. Vetr- iarbrautin er stjörnuþyxping, sem sólin er innan í. Þess vegna sjáum við stjömur hennar um- hverfis okkur. Og þetta er aðeins ein af mörgum stjörnuhvirfing- um og sérhver þeirra telur um 100 000 miHjónir stjama. Það er erfitt að segja, hversu margar stjörnuhvirfingarnar eru, en líklegt er, að þær séu um það bil jafnmargar og stjömumar eru í hverri hvirfingu, nefnilega um 100 000 milljónir. Ef svo er, munu vera um fimmtíu stjörnu- hvirfingar á hvern íbúa jarðar- innar eða fiimm. xnilljóniir miHj- óna stjarna á mann. Óhætt mun að segja, að það séu eins margar stjörnur á mamn og stráin á hverri fermílu þéttsprotins vall- lendis. Hugsið um þetta næst þegar þið giangið um túnið og hugsið ykkur svo geysistærð al- heimsins, sem við lifum í. Það hljóta að vera fleiri stjörriur á himninum, en grösin á öllu yfir- borði jairðar. Það er aðeins tilgáta, að öðr- um sólum fylgi piánetur. Þær eru svo f jarlægar, að við getum ékki vænzt þess að sjá nokkru sdnni plánetur þeirra. Ef við gætum koonizt að þvi, hvers vegna plánetur eru í fylgd með okkar sól, gætum við ef tU vHl myndað okkur skoðanir á því, hvort líklegt sé, að svo sé um aðrar sólir eða ekki. Það er vissulega engin ástæða til að ætla, að okkar sól sé gert hærra undir höfði en öðrum sólum með tiUiti til fylgihnatta. Hún er aðeins ein af 100 000 milljón- um stjarna vetrarbrautarinnar og auk þess mjög venjuleg stjarna, í meðaHagi stór, með- allagi þung, meðallagi björt, heeit og þar fram eftir götunum. Sumar stjörnurnar eru mörgum milljónum sinnum stærri en sól in, en meirihluti þeirra er þó töluvert rninni. Sumar stjörn- urnar gefa frá sér miklu meira Ijósmagn og hita en sólin, en sumar minna. Sólin er því svona hér um bil mitt á milli öfganna. Um 'hana hverfast átta plánetur auk jarðarinnar, og aHar eru þær mjög litlar samanborið við sólina. Fjórar plánaturnar er-u stærri og fjórar minni en jörðin. Jörðin er þaimig pláneta af með-alstærð. Þar er líka meðal- hiti, eða rétt þar yfir. Við búum því á venjulegri plánetu, sem snýst im venjulega sól. Þá er og annars að gæta. Ef við getum komizt að því, hvern- ig plánetumar yrðu tH, gætum við ef til viU komizt að raun um, hvort aðrar sólír gætu látið skap ast um sig plánetur eða ekki. Áður fyrr var Htið svo á, sem pláneturnar væru brot, sem hrokkið hefðu út frá sólunni á hinum hraða snúningi hennar. Ef svo væri, gætum við dregið af því þá ályktun, að þær sólir, sem smúast hratt, hefðu einnig myndað út frá sér plánetux, en hinair ekki. Við vitum, að þessi skýring nægir ekki. Sólin hefir aldirei getað snúizt svo hratt, að hún vairpaði frá sér plánetum, og við verðum að skyggnast betur uim eftir því, hvemig pláneturnar hafi myndazt. Flest ir stjörnuÆræðingar álíta nú, að plánetur hafi' myndazt á þann hátt, að önnur stjarna hafi komið nálægt sólunni á sveimi sínu um geiminn. Mikil flóð hafi orðið á sólu og pláneturnar hafi myndazt af sindri út frá sól- unni. Ef við eigum að gera okkur skiljanlegt, hvernig þetta hafi orðið, skulum við hugsa okkur flóðin, sem við þekkjum 'hérna við sjávarsíðum. Það eru flóð, sem myndast fyrir aðdráttarafl tunglsiins. Tunglið hefir álíka verkanir á jörðina og gufuhvoíf ið, en þær eru ekki eins áber- andi o gsjávarflóðin. Flóð þessi eru mjög smávægHeg, sumpart vegna fjarlægðar tunglsins og sumpart vegna þess, að tungHð er svo lít|ð, samanborið við jörðina. Ef í^pgHð yrði skyndi- lega jafnstórft, og jörðin, yrðu flóðið áttatíu sinriúm meina. Og ef þetta stóra tungl færðist tíu sinnum nær jörðinni, myridi flóðið aukast enn þúsunfdalt. Jörðin myndi þvi aflagast öll fyrir tilverknað tunglsins. Hið sama myndi verða um sólina, ef hún færðist tveimur eða þreanur mHljónum milna nær axtnísrri etærri stjörnu, en Fxh. & 9. sm*. i Tilkynning til lækna og sjúkrahúsa. Eins og yður mun kunnuigt er það miklum. erfiðleikum bundið að fá Rekordsprautur erlendis frá. Hefir oss nú tekizt að fá brezkt firma til að gera við þær brotnu sprautur, sem til eru í landinu. 0 Eru það því vinsamleg tihnæli vor, að þeir, sem brotnar sprvautur eiga, sendi oss þær, sem aHra fyrst. Ciarke Gable Clarke Gable, hinn frægi kvikmyndaleilcari, sem missti konu sína Carole Lombard, kvifcmyndaleikkorm við flugslys í Banda- ríkjunum, er nú hættur að leika og genginn í ameríkska sjóliðið. Myndin var tekin skömmu áðux en hann fór í einkennisbúning flotans. . Hjalað rnn Kristmann duðmundsson fertugan. — Nokkrar minningar rifjaðar upp. Enn um symfoníur, útvarpið og æðri tónlist. KKISTMANN varð fertagrur í j í gær. Ég hefði þoraff aff sverja þaff, aff þessi einbúi undir „Hamr- hmm‘* væri yngri en ég, en kirkju bæki^rnar skrökva ekki .aimars bygg ég aff Kristmann hafi treyst betur eigin minni en kirkjubókun um. ÉG ÓSKA KRISTMANNI tíl hamingju með afmælið og þakka honum fyrir , Morgun lífsins", „Ármann og Vildís“, „Brúðarkjól- inn“ — og vfirleitt bækurnar hans. Svo þakka ég honum fyrir rigning arkvöldin, stundirnar undir veggn um í drífunni — og fyrstu kvæðin hans sem ég heyrði þar. ÞA» VAR GAMAN að vera með Kristmanni á þeim árum. Þá var hann eins og Bólu-Hjálmar, sem krítaði ljóðin sín á súðina af því að hann átti engan pappír. Þá vissi hann að hann yrði mikið skáld — og þá sagði hann mér sögumar, sem hann hefir siðan skrifað — og skapað hafa honum mesta frægð. VIÐ börðumst stundum i þá daga sameiginlega við glerhálar götumar í Reykjavík á vetrarkvöld um. Eg vissi þá, að enginn fótaði sig betur á hálku en Kristmann — og þetta hefir síðar komið fram. Hann hefir alltaf staðið einn og aldrei stutt sig við neinn. Ég hygg að hann myndi ekki einu sinni grípa til þess næsta, þó að hann væri að missa fótanna á glerhálli götu. EN l’Effi ERU lika oftast sterk astir, sem standa einlr. Þegar Kristmann fór til Noregs sögðu flestlr: Þú ert bjúlfi. Hann vissi betur — og honum varð að trú sinni. Hefði hann orðið kyrr, þá hefði hann týnst á Bergþórugöt- unni eða Þórsgötunni — og enginn hefði auglýst eftir honum. í stað- inn fengum við bækurnar hans, hetjusöguna af Halldóri Bessasyni og allar hinar. ÞEGAR KRISTMANN hafði unnið sigur, kom hann heim. Og nú býr hann undir „Hamrinum" — og þegar hann kemur út á kvöldin sér hann myrkan „haus“ hamarsins glotta að sér eins og nátttröll. Þar sér hann fleiri mynd ir, en allir aðrir íbúar Hveragerð- is, og næsta saga hans kvað eiga að heita: „Nátttröllið glottir.“ KRISTMANN er einhver sér- stæðasti persónuleiki, sem ég hef þekkt. Hann stefnir jafnvel einn upp á öræfin, þegar allir aðrir leita til stranda. Hann trítlar ekki gömlu fjárgötuna, eða hestaslóð- ina, sem troðin hefir verið í alda- raðir. Hann býr tíl nýja slóð — og varðar það engu, þó að aðrir fari hina leiðina. SUMIR SEGJA, að stjómmála- foringjar eigi að hlusta eftir því, sem fólkið segir, og fara svo eftir þvf, annars nái þeir ekki hylli fjöldans. Kristmann myndi, eftír þessari kenningu, ekki verða vin- sæll „pólitíkus“, — en það gildir víst önnur regla um rithöfunda og skáld! ÞETTA ER EKKI .afmælisgrein* eins og þið sjáið. Kg mixmist aðeina Framh. 4 8, síðu.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.