Alþýðublaðið - 20.11.1942, Blaðsíða 7
Pbslndagur 20. nóvember 1942.
' -fc'i jIí. .'íi■'ff-'v"'
ALpy P U B L AÐ1Ð
7
Bærinn í dag.
Næturlæknir er Ólafur Jóhann-
esson, Gunnarsbraut 38, sími 5979.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
apóteki.
Alþýðnflokksfólk í Hafnarfirði.
Alþýðuflokksfélögin ' efna til
kvöldskemmtunar með sameigin-
legri kaffidrykkju annað kvöld í
Góðtemplarahúsinu. Nánar aug-
lýst í blaðinu á morgun.
Frá Barnaverndarnefnd.
Vegna alvarlegra ástæðna vill
Barnaverndarnefnd Reykjavíkur
vekja athygli almennings á því, að
hún hafi samþykkt eftirfarandi:
JMeð tilvísun til 8. gr. bráða-
birgðalaga um eftirlit með ung-
mennum o. fl. frá 9. des. 1941,
leyfir Barnaverndarnefnd Reykja-
víkur sér að leggja til við ríkis-
stjórnina, að notuð verði heimild í
nefndri lagagrein til að banna alla
verksmiðjuvinnu barna á skóla-
skyldualdri, og alla næturvinnu
unglinga 16 ára og yngri frá kl.
10 síðdegis til kl. 7 árdegis. Enn
fremur leggur nefndin til, að öll
vinna á veitingastöðum fyrir börn
og unglinga 16 ára og yngri verði
bönnuð með öllu.“
Anglia
heldur fund í kvöld kl. 8,45. að
Hótel Borg. Björn Sigfússon mag-
ister flytur þar fyrirlestur um Ara
Þorgilsson. Á eftir verður dansað
til klukkan eitt.
Loðdýraræktin 1941—’42
heitir nýútkominn bæklingur frá
Loðdýraræktarfélagi íslands. Hefst
hann á skýrslu um aðalfund fé-
lagsins, sem haldinn vár á Blöndu-
ósi í sumar. Þá eru kaflar úr
skýrslu formannsins, H. J. Hólm-
járns á sama fundi, grein um refa-
afbrigði og loks grein um meðferð
á loðskinnum.
Bókasafn Angliu
á Laugavegi 34 er opið á þriðju-
döginn og laugardögum kl. 5,30—
7 og fer þá fram útlán bóka.
Sigurgeir Sigurjónsson
hœstqféttarmálaflutnlngsmaður
Skrifstdfútími 10-12 og 1—6.
Á?olstrœti 8 Simi 1043
|Rý föt fyrir gömali
\ \
) Látið oss hreinsa og pressa?
Uöt yðar og þau fá sinn upp-^
^runalega blæ. S
S Fljót afgreiðsla. ^
\ EFNALAUGEtv TÝR.S
S Týsgötu 1. Sírci 2491.J
— Félagslíf —
Æskulýðsvika
K. F. U. M. og K.
I kvöla kl. 8 ýa tala Sverrir
Sveiusson stud. theol og Jóhann
Hlíðar, stud. theol. — Mikill
söngur og hljóðfærasláttur. —
Allir velkomnir.
S
Blándulöberar
í úrvali.
Laugavegi 74.
Forsetakjorið á
alningi í gær.
Frh. af 2. síðu.
innar, Jóhann Jósefsson. En við
kosn. varaforsetaima greiddu
Sjálfstæðisonenn atkvæði með
varaforsetaefimxjn Alþýðuflokks
ns og Kommúnistaflokksins,
kommúnistar einnig með vara-
forsetaefni Alþýðuflokksins,
þannigr að Framsóknarflokkur-
inn fékk engan foxseta þar
frekar en í sameimuðu þingi.
Launaði Sjálfstæðisflokkurinn
Framsókn þannig þann grikk,
sem hún hafði ger't honum í
sameinuðu þiingi!
Við forsetakjörið í efri deild
byrjuðu allir flokkarnir einnig
á því að kjósa sína menn, nema
Sjálfstæðisflokkurinn. Tveir af
fulltrúum hans kusu forsetaefni
kommúnista, hinir fimm skil-
uðu auðu. En í seinni umferð-
inni kusu fulltrúar Alþýðu-
flokksins einnig forsetaefni
kommúnista, sem þar með var
kosið. Við kosningu varaforset-
anna beggja neytti Sjálfstæðis-
flokkurinn aftur atkvæðamagns
síns sem stærsti flokkur deild-
arinnar og fékk því báða, þann-
ig að Framsókn fékk ekki held-
ur neinn forseta í efri deild.
Engin samtök.
í sambandi við forsetakosn
ingarnar á alþingi og þá sér-
staklega forsetakosninguna í
sameinuðu þingi, er rétt að
taka það fram, þó að úrslit
kosninganna bera það raunar
alveg með sér, að ehgin sam-
tök á.ttu sér stað milli flokk-
anna um þær. Það var aðeins
iimbyrðis úlfúð Framsókn-
arflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins, sem varð því vald
andi, að Alþýðuflokkurinn
fékk forseta sameinaðs þings
en Framsóknarflokkurinn
' engan forseta, hort heldur í
sameinuðu þingi eða þing-
deildunum.
Talað hafði verið um það áð-
ur milli flokkanna, að hafa
allsheirjarsamkomulag um for-
setakjörið þannig, að stærsti
flokkurinn fengi forseta sam-
einaðs þings, sá næsti forseta
neðri deildar, þriðji forseta
efri deildar, fjórði fyrsta vara-
forseta í sameinuðu þingi og
neðri deild, sá fyrsti fyrsta vara
forseta í efri deild og svo koll
af kiolli, og höfðu allir flokk-
arnir tjáð sig reiðubúna til slíks
samkomulags. En þegar til kom
neitaði Framisókn að standa við
það. Töldu hinir flokkarnir sig
þá svikna og ákváðu að kjósa
hver sinn mann. En tilgangur
Framsóknar virðist hafa verið
sá að ná sér niðri á Sjálfstæðis-
flokknum með því að fella Gísla
Sveinsson frá kosningu. Það
tókst henni líka með þvi að
kjosa Harald Guðmundsson
með Alþýðuflokknum, en um
þá fyrirætlun hennar var Al-
þýðuflokknum með öllu ókunn-
ugt þar til fyrsta umferð kosn-
ingarinmar var lokið, enda sýna
úirslit forsetakjörsins í neðri
deild og efri deild, það alveg
tvímælalaust, að engin samtök
voru millji. Alþýðuflokksins og
Framsóknarflokksi ns við þess-
ar forsetakosningar.
Framsókn heppnað.ist því að
vísu 'herbragð sitt gegn Sjálf-
stæðisflokknum í sameinuðu
þingi, og sameinað þing fékk
forseta, sem ekki aðleáns Al-
þýðuflokkurinn helduir og öll
þjóðin mun sennilega telja þing
xpanna bezt til fallinn., —
að skipa þann virðingarsess. En
herbragðið 'borgaði sig illa fyrir
Framsókn. Hún fékk engam
forseta kjörinn.
Jarðarför mannsins mins og föður okkar
JÓHANNESAR V. H. SVEINSSONAR, kaupmanns,
fer fram frá Dómkirkjunni, mánudaginn 23. þ. m. og hefst með
kveðjuathöfn kl. 1 e. h. á Freyjugötu 6.
Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
GuðlaUg Bjömsdóttír.
Sveinn Jóhannesson.
Kristín Jóhainnesdóttir.
Ólafur Jóhannesson.
Frambald
aimennra bólusetninoa.
Laugardaginn 21. þ. m. verður bólusetningu haldið á-
fram í Templarasundi 3 (Ungbamaverndin).
Kl. 9.30 til 11 skal færa þangað börn af svæðinu
milli Skólavörðustígs, Laugavegar og Frakkastígs.
Kl. 13 til 14.30 skal færa þangað börn af svæðinu
frá Ingólfstræti inn að Frakkastíg norðan Laugavegs
til sjávar.
Kl. 16 til 17 skal færa þangað böm, sem frá urðu
að hverfa mánudaginn 9. nóv. s. 1. og eftir urðu á því
svæði sem þá var auglýst, nefnil. milli Lækjargötu,
Fríkirkjuvegs, Sóleyjargötu, Hringbrautar að Skóia-
vörðustíg, Eiríksgötu og Barónsstíg.
Bóluskoðun fer fram laugardagmn 28. þ. m. á sama
stað og tíma.
Fólk er beðið að athuga þessa auglýsingu vand-
lega, þar sem áríðandi er að eldíi sé komið með börn
af öðrum svæðum en hér er tiltekið.
Reykjavík, 19. nóvember 1942.
Héraðslæknirinn í Reykjavík
Heillaöskir rikis-
stjóra é afmæli
fiústavs Adolfs
SvfakróiipriDS.
Ob svarskeyti kronprinsins
til rikisstjóra;
ITILEFNI AF sextugsaf-
mæli kxónprins Svía, 11.
þ. m., fóru eftirfarandi skeyta-
skipti fram á milli ríkisstjóra
Islands og krónprinsins:
„Eg sendi yðar konunglegu
tign hinnar hjartanlegustu ósk-
ir mínar og íslenzku þjóðarinn-
■ar á 60 ára afmæilisdegi yðar.
Endurminningin um heimsókn
yðar, er fjórði hluti íslenzku
þjóðarinnar kom saman til þess
að mmnast 1000 ára afmælis
Alþingis, lifir ennþá í hugum
þjóðarinnar. Heimsókn þessi og
hlýhugur yðar í garð íslenzku
þjóðarinnar, sem þér létuð svo
fagurlega í ljós, er þér heim-
sóttuð oss þá, er af mörgum
hér á landi talinn einn af mik-
ilsverðu þáttum í vaxandi vin-
áttu milli íslenzku og sænsku
þjóðanna. Eg nota tækifærið til
þess jafinframt að 'láta í ljós ein-
lægar óskir hans hátignar kon-
unginum til handa, hennar kon-
unglegu tign krónprinsessunni,
og allri sænsku þjóðinni, en hin
friðsamlega og árangursríka
barátta hennar við örðugleika
þá, sem nú eru, vekur óskipta
aðdáun íslendinga.
Sveinn Björnsson, ríkisstjóri
íslands“.
Eftirfarandi svarskeyti barst
ríksstjóra frá krónprinsinum:
„Ég flyt yður innilegar þakk-
ir, herra ríkisstjóri, fyrir hinar
vinsamlegu hamingjuóskir, sem
þér senduð mér frá yður sjáif-
um og íslenzku þjóðinni á sex-
tugsafmæli mínu. Ég get einnig
fullvissað yður um, að þær
árnaðaróskir, sem þér létuð þá
um leið í ljós til hans hátignar
konungsins, til konu minnar og
sænsku þjóðarinnar, voru mik-
ils metnar.
Ég minnist með mikilli á-
nægju Islandsferðar minnar,
þegar 1000 ára afmæli Alþingis
var hátíðlegt haldið, og ég mun
geyma minninguna um þær
hjartanlegu móttökur, sem mér
voru þá veittar.
Eg vil nota þetta tækifæri til
að færa yður, herra ríkisstjóri,
mínar beztu árnaðaróskir yður
sjálfum og íslenzku þjóðinni til
handa.
Gustav Adolf“.
Slátrnn i haast:
Alls var slátrað
403,693 kindum
FORMAÐUR kjötverðlags-
nefndar, Ingólfur Jónsson,
hefir sent blöðunum grein um
slátrun sauðfjár og kjötsölu.
Grein þessi hefir inni að halda
tölur, sem sýna slátrun hér í
haust, og tölur teknar til sam-
anburðar frá síðasta hausti. Er
skýrt frá þessum tölum hér á
eftir.
Samtals var slátrað 365 333
dilkum, sem vigtuðu samtals
5 073 470 kg„ 13 008 geld-
kindum, sem vigtuðu samtals
301 082 kg. og 25 352 ám, sem
vigtuðu samtals 458 022 kg.
Alls var því slátrað 403 695
kindum, sem höfðu að kjöt-
magni 5 832 574 kg.
S
s
c
Til samanburðar má geta þess,
að haustið 1941 var slátrað alls
391 200 fjár, eða 12 493 kindum
færra en nú. Kjötmagnið 1941
var samtals 5 582 885 kg. eða
249 689 kg. minna en núna.
Heildarsala í sláturtíð 1941 eða
til 1. nóv. nam 1177 tonnurn. Þá
seldist mikið kjöt á súmarmark-
aði, í ágúst og byrjun september
mánaðar. Þá keypti setuliðið
mikið kjöt, eða samtals 214
tonn. Sala til landsmanjna var
þá, í sláturtíðinni 1941, 963
tonn. Kjötbirgðir 1. nóv. 1941
voru 4073 tonn.
Heildarsala á sláturtíð nam
1105 tonnum, þar af til setiiliðs-
ins 2 tonn. Sala til landsmanna
hefir því numið 1103 tonnum á
móti 936 tonnum 1941.
Birgðir voru 1. nóv. s. 1. 655
tonnum meiri nú en á sama
tima 1941. Stafar það af meiri
slátrun og einniff því, að dilkar,
sérstaklega sunnanlands, voru
meiri í haust en árið áður.
Eins og áður er greint, hefir
setuliðið nær ekkert kjöt keypt
um sláturtíð, en hefir nú byrjað
kaup, sem ætla má að verði
5—600 smálestir samtals.
Wblskf-9]óf?rnlr.
Frh. af 2. síðu.
að horfnir væru um morguninn
11—12 kassar. Hvorugur þess-
ara manna hefir viðurkennt að
hafa framið hið fyrra innbrot x
Nýborg og er það mál því enn
óupplýst.
Rannsóknarlögreglan vill
ekki gefa upp, hvernig hún fór
að því að finna innbrotsþjófana
og hafa hendur í hári þeirra
svona fljótt. Þeir munu hafa
brotið stálsagarblöð, er þeir
notuðu, þegar þeir söguðu í
sundur járnteinana í glugga-
Magnús Pétursson. j
hlerunum og fann rannsóknar-
lögreglan sagarbrotin. En rann-
sóknarlögreglan segir, að það
hafi þó ekki verið þessi sagar-
brot, er komu henni á sporið.
Bæði Ottó og Eyþór sitja nú
í gæzluvarðhaldi og mál þeirra
er í framhaldsrannsókn.
fitflutsliiBr kvikmjrnd
arinnar „Iceland" verð
ur ekki leyfðnr frá
Bandarikjnnna.
SAMKVÆMT ^ símskeyti frá
sendiherra íslands í Was-
hington hefir utanríkismála-
ráðuneyti Bandaríkjanna komið
því til leiðar við kvikmyndafé-
lagið, að breyta nafni kvikmynd-
arinnar í „Married on Ice“
(Gifting á ísi) og sleppa úr
kvikmyndinni öllu, sem beinist
að íslandi, undir eftirliti utan-
ríkismálaráðuneytisins og sendi-
ráðs íslands þar, og verður úf«
flutningur kvikmyndarinnar úr
'landi ekki leyfður fyrr en þetta
hefir verig gert.
FiM-
pappi.