Alþýðublaðið - 19.12.1942, Blaðsíða 2
*
Bfiðir opnar til
IL 12J nfitt.
ALLAK verzlanir bæjarins
verða opnar í köld til kl.
12 á miðnætti.
Eins verða allar verzlanir
opnar á Þorláksmessukvöld til
kL 12. Verzlun hefir yerið afar
anikil hér í bænum síðustu vik-
uraar, en þó mun verzlunin
ekki hafa verið alveg eins fjör-
ug síðustu dagana og hún var
sömu daga í fyrra.
ALÞVOUBtAOTO
Hetir kwmmúnlstnm sniíizt hBgnrt
Nú vilja peir vinstri stjórn!!
&ommiliiistar senda Alþýðn*
flokknnm og Framsókn sam~
starfs- Ofg samstjórnartilboð.
En jafnframt bjóða þeir íhaidinu sam
vinnu um lausn mála á alþingi!
..............'—
Terðnr koraið ð fðt
vinsnskóia ð höfnð-
bólinn Reybhólnm?
Frumvarp um pað komið fram
Settnr forstjfiri Snnd
hallarinnar.
ABÆJAKRÁÐSFUNDI, sem
haldinn var í gærkveldi,
var ákveðið að setja ungfrú
Sigríði Sigurjónsdóttir, sem
forstjóra Sundhallar Reykja-
víkur til bráðabirgða.
Sigríður er dóttir Sigurjóns
á Álafossi og hefir hún í mörg
ár verið sundkennari við Sund-
höllina.
KOMMÚNISTAR hafa nú skrifað Alþýðuflokknum og
Framsóknarflokknum bréf, þar sem þeir bjóða þess-
um flokkum upp á samstarf um flutning og lausn mála á
alþingi og biðja þess einnig, að teknar verði upp viðræður
um málefnagrundvöll fyrir ríkisstjóm, sem þessir þrír
flokkar tækju þátt í, með öðrum orðum vinstri stjóm.
En samtímis hafa kommúnistar einnig skrifao Sjálfstæðis-
flokknum, sem að vísu er ekki beðinn að vera með í umræðum um
stjórnarmyndun, en þó boðið upp á samstarf um lausn mála á
alþingi. Eru það sumpart söinu málin og þeir segjast í hinum bréf-
unum vilja flytja og leýsa með Alþýðuflokknum og Framsókn. Og
svo ákafur er nú samstarfsviljiim, að þeir telja sig reiðubúna
til þess að flytja hvorki meira né minna en þrjú frumvörp um
eitt og sama mál, eitt með hverjum flokki!
Sérstakar heilbrigðis- og fé-
lagsmáianefndir á aigingf.
* j. ' \
------♦ ....—
Þess! mál eru aó veröa umsvlfa~
melrl með bverju óri.
.....♦■■■-----
FJÓRIR ALÞINGISMENN úr öllum flokkum: Haraldur
Guðmundsson, Steingrímur Aðalsteinsson, Bemharð
Stefánsson og Bjarni Benediktsson flytja í efri deild frum-
varp um breytingar á þingsköpum alþingis þess efnis að
framvegis verði kosnar heilbrigðis- og félagsmálanefndir
til að starfa á alþingi
Er þetta talin brýn nauðsyn, þar sem heilbrigðis- og félags-
málin eru að verfta æ umsvifameiri og munu þó enn vaxa á
næstu ár um.
Frumvarp þetta er flutt að
ósk landlæknis, en ástæður
hans koma fram í bréfi, sem
hann hefir skrifað forseta sam-
einaðs þings um málið. Er bréf-
ið* svohljóðandi:
„í samráði við ráðherra heil-
brigðismálanna og með tilvís-
un til samtals við yður, hæst-
virti forseti, leyfi ég mér að
beina þeim tilmælum til yðar,
að þér gangizt fyrir þeirri breyt
ingu á þingsköpum Alþingis, að
skipaðar verði fastar nefndir í
báðum deildum alþingis, er sér-
staklega fái til meðferðar heil-
brigðismál, er koma til kasta
þingsins, en um mörg þeirra
gildir jafnvel fremur en flest
önnur mál, að menn þurfa að
eiga kost á að kynna sér þau
mjög rækilega, ef þeir eiga að
geta tekið skynsamlega afstöðu
til þeirra. Á fjárlagafrumvarpi
því, er nú liggur fyrir Alþingi,
er áætlað að verja til heilbrigð-
Dýralæknir í
Reykjavík.
BÆJARRÁÐSFUNDI í
í gærfcveldá var Ásgeir
Einarsson dýralæknir ráðinn til
aft gegna dýralæknisstörfum í
Reykjavík.
Er það í fyxsta skipti, sem
ráðiinn er dýnalæknir fyrir lög-
sagraaiiuindiæmi Reytkjavfkur
eitt.
ismála og ýmissar styrktarstarf
semi, sem til heilbrigðismála
má telja, rúmlega 4’/fe millj. kr.
Til samanburðar má geta þess,
að til kennslumála, vísinda og
lista, sem sérstakar mennta-
málanefndir fjalla um að meira
eða minna leyti, er einungis
gert ráð fyrir að verja liðlega
3 millj. kr. Ýmsar aðrar hlið-
stæðar fastanefndir alþingis
þola þó enn miður samanburð
að þessu leyti, svo sem sam-
göngumálanefndir og iðnaðar-
nefndir, sem enginn efast þó
um, að eigi fullan rétt á sér.
Á döfinni eru nú ýmis heil-
brigðismál, sem þetta og hin
næstu alþingi hljóta að taka af-
stöðu til og áríðandi er, að lög-
gjafar- og fjárveitingarvaldið
athugi af velvild, áhuga og
gaumgæfni. HL þar til nefna
ýmsar mjög aðkallandi bygg-
ingarframkvæmdir Landsspítal
ans og á Vífilstöðum, aukningu
sjúkrahúsrýmis fyrir geðveikt
fólk, sjúkrahúsbyggingar á Ak-
ureyri, í Keflavík og á Akra-
nesi auk læknisbústaða- og
sjúkraskýlisbygginga í ýmsum
sveitahéruðum, ýmsar nýjar
hjúkrunar- og líknarstofnanir,
sem of lengi hefir dregizt, að
upp væri komið (fávitahæli,
drykkjumannahæli, örkumla-
mannahæli, hæli fyrir vand-
ræðabörn og unglinga o. s.
frv.), margvísleg heilsuvemdar
mál, sem lítillega hefir verið
byrjað á að rækja (berklavarn-
ar, ungbarnavernd, manneldis-
rannsóknir) og mjög þyrfti að
ftfc. á 7. sfðu.
h Landsmenn hafa undanfarn-
ar vikur fengið nokkuð að kynn
ast skrípaleik kommúnista á al-
þingi. Þeir hafa séð þá hafna
þátttöku í fjögurra flokka
stjórn, þeir hafa séð þá neita að
taka þátt í „vinstri stjórn“, þeir
hafa séð þá heimta „fram-
kvæmdastjórn“, sem skipuð
væri af ríkisstjóra, og þeir hafa
séð þá hafna því að þingræðis-
stjórn væri mynduð til bráða-
birgða, sem sæti meðan verið
væri að finna leiðir og leita
samninga um lausn vandamál-
anna og myndun varanlegrar
þingr æðisst j órnar.
Menn hafa undrast þessa
framkomu og þótt alveg sýnt,
að þessir menn vildu enga þátt-
töku eiga í neinum þeim aðgerð
um, sem telja mætti, að þeir
bæru sameiginlega ábyrgð á
með öðrum flokkum, og að þeir
vildu að eins halda gamla leikn-
um, að deila á og efna til úlfúð-
ar, spenna upp sundrungu og
deilur til þess eins að geta fisk-
að í gruggugu vatni.
Það var því engin furða, þó
að menn rækju upp stór augu
í gærmorgun, þegar þeir lásu
blað kommúnista, því að þar
gaf að líta alveg spónnýja línu.
Nú bjóða þeir öllum flokkum
upp á samvinnu! Þeir skrifa Al-
þýðuflokknum og Framsóknar-
flokknum bréf, þar sem beir
fara fram á samvinnu við þá
um lausn allra helztu mála, og
að jafnframt verði teknar upp
viðræður milli þessara þriggja
flokka til að athuga, hvort ekki
megi takast, að mynda ríkis-
stjórn, sem þeir allir stæðu að,
þ. e. a. s. vinstri stjórn!
En sagan er ekki nema hálfv
sögð. Jafnframt því að birta
þessi samstarfs- og samstjórn-
artilboð til Alþýðuflokksins og
Framsóknarflokksins birtir
Þjóðviljinn enn eitt bréf, sem
miðstjórn kommúnistaflokksins
hefir skrifað Sjálfstæðisflokkn-
um og er þeim flokki einnig
boðið upp á samvinnu við
kommúnista um lausn málanna
á alþingi!
Það er nú sannast að segja
dálítið erfitt að átta sig á slík-
um samstarfs- og samstjórnar-
tilboðum svona rétt eftir að
þeir hafa látið allt samstarf og
allar tilraunir til samstjórnar-
myndunar á þingræðisgrund-
velli stranda á sér! En máske
hefir þeim snúizt hugur. Ef til
vill hafa þeir fengið nýja línu!
Kannske hafa þeir orðið eitt-
hvað varir við að kjóseridur
þeirra hafi ætlast til einhvers
Fkfj. á 7. sthi.
ö REIÐFIRÐINGAFÉLAGIÐ
hefir fyrir nokkru reyft
þeiri tillögu, að hið forua höfuð
ból Reykhólaý á Barðaströnd
verði gert að skólasetri. Hefir
sú hugmynd komið firam, að
þarna verði komið á fót vinnu-
skóla.
Nú hefir Gísli Jónsson, þing-
maður Barðstrendinga borið
fram frumvarp um þetta á al-
þingi. Er þar lagt til, að ríkið
leggi skólasetrinu til jörðina á-
samt öllum hlunnindum, endur-
gjaldslaust. Þriggja manna und
irbúningsnefnd verði skipuð. Sé
húsameistari ríkisins formaður,
en hinir tveir skipaðir eftir til-
lögum Búnaðarfél. ísl. og Breið
f ir ðingaf élagsins.
í greinargerðinni segir svo:
„Þegar ríkinu var heimilað
að kaupa höfuðbólið Reykhóla,
var það fyrst og fremst gert til
þess að reisa það við úr þeirri
fádæma niðurníðslu, sem jörð-
in var komin í, og jafnframt til
þess að tryggja Vestfirðinga-
fjórðungi glæsilegt skólasetur í
framtíðinni. En þó að nú séu
liðin um 4 ár síðan ríkið eign-
aðist jörðina, hefir ekkert verið
gert til þess að koma þar á
endurbótum. Má við svo búið
ekki standa degi lengur.
Breiðfirðingafélagið í Reykja
vík hefir sýnt lofsverðan áhuga
á því, að Reykhólar yrðu sem
fyrst reistir við og gerðir að
höfuðbóli og menntasetri fyrir
Vestfirðingafjórðung. Hefir fé-
lagið leitað álits allra hrepps-
nefnda og sýslunefnda í Vest-
firðingafjórðungi, sem einróma
mæla með því, að komið sé upp
skólasetri á Reykhólum. Hafa
skjöl þessi öll verið send al-
þingi.
1. gr. frumvarpsins miðar að
ar verði gerðir að skólasetri, og
að jörðin öll með hjáleigum og
hlunnindum verði lögð til skóla
setursins. Á þennan hátt eru
skólanum skapaðar nokkrar
tekjur.
2. gr. miðar að því að und-
irbúa þetta mál sem bezt að
unnt er, áður en framkvæmdir
eru hafnar. Þetta er einkum og
sér í lagi nauðsynlegt fyrir þá
sök, að komið hafa fram ýmsar
raddir um það, hvers konar
skóla skuli reisa þar upp, þótt
langflestir hafi fallizt á, að
æskilegast væri, að komið yrði
þar upp fyrst og fremst vinnu-
skóla, sem veitti kennslu í öll-
um venjulegum sveitastörfum,
utan húss og innan. bæði fvrir
konur og karla. Er helzt hugs-
að, að kennslan gæti farið fram
á námskeiðum, sem stæðu um
3 mán. hvert, og þá allt árið.
Jafnframt væri bókleg kennsla
í sambandi við námskeiðin að
vetri til. Þá hafa einnig komið
fram óskir um það, að komið
væri upp þar barna- og ung-
lingakennslu, og mætti það vera
sérstæð stofnun á setrinu.
Nefndinni er ætlað að athuga
öll þessi mál og gera tillögur
um fyrirkomulag, stærð og
starfssvið. Jafnskjótt og hún
hefir lokið störfum er ætlazt
til, að hafizt sé handa um fram-
kvæmdh-. Það er út af fyrir sig
ekkert atriði, að byggingum öll-
um sé komið upp í einu lagi,
Frfa. á 7. *»á.
Láugaidagur T!E. desemfaor j.9jg
Rikissjóðar verðar að
bæta bæudom í \
Norðnr-ísafjarðar-
sýsln tjfin þeirra.
Nokkrir bændor misstH fjár-
stofn sinn i fárviðri
BARÐI gudmundsson
flytur í sameinuðu alþingi
þingsályktunartillögu um aft al-
þingi heimili ríkisstjóminni aft
greiða bændum í Norður-ísa-
fjarðarsýslu, sem urðu fyrir
fjártjóni í fárviðrinu 7. okt. s. 1.,
bætur úr ríkissjóði eftir þeim
reglxim, sem fylgt er við greiðslu
bóta samkvæmt lögum nr. 75
frá 27. júni 1941.
í greinargerðinni er nánar
skýrt frá þessu máli:
„Hinn 7. október s. 1. skall
á eitt hið versta hríðarveður,
sem menn rauna á Véstf jörðum.
Við innanvert ísafjarðardjúp
var veðurhæðin svo mikil, að
hinir röskustu karlmenn réðu
sér varla á bersvæði, og kaf-
aldið var svo svart sem verst má
verða um hávetur. Eirikum var
þó veðurofsinn geigvænlegur á
Snæfjalla- og Langadalsströnd.
Flestir bændur þar á slóðum
munu hama haft fé sitt heima
á túnum eða í hagagirðingum,
þá er óveðrið brast á, enda var
hjá sumum þeirra slátrun ekki
hafin. í Nauteyrar- og Snæ-
fjallahreppi munu alls hafa far-
izt um 470 fjár. Fyrir þungbær-
ustum skaða urðu þeir Helgi
Guðmundsson í Unaðsdal og
Þórður Halldórsson á Lauga-
landi, og mjög tilfinnanlegt
tjón biðu einnig Pétur Pálsson
í Hafnardal og Yngvar Ásgeirs-
son í Lyngholti. Helgi, Pétur og
Þórður eru allir barnamargir
dugnaðarmenn, sem um áratugi
hafa unnið fyrir sér og sínum
af óvenjulegri atorku og þreki.
Það er allra dómur, þeirra er
til þekkja, að varúðarleysi hafi
á engan hátt valdið nokkru um
fjárskaðann. Virðist því sann-
gjarnt, að þjóðfélagið hlaupi
hér undir bagga, ekki síður en
þegar um er að ræða tjón af
mæðiveiki.“
Vetrarhjálpíia:
Skátarnir sðfonðn
20,800 brfioim.
C KÁTARNIR fóru unt
^ bæinn á miðvikudags-
og fimmtudagskvöld til að
safua fé til vetrarhiálparinn-
ar,
Gekk söfnun þeirra helmingi
betur en í fyrra. Söfnuðu þeir
á þessum tveimur kvöldum
samtals kr. 20.868.74. í Vestur-
bænum og í Miðbænum söfnúðu
þeir á miðvikudagskvöld kr.
6.269.89, en á fimmtudagskvöld
söfnuðu þeir í Austurbænum
kr. 14.598.85.
í fyrra söfnuðu skátarnir
alls í tvö kvöld kr. 9.918.54 —
og hefir söfnunin því nú orðið
meira en helmingi meiri.
Skrifstofa Vetrarhjálparinn-
ar er í Bankastræti 7, sími
4966. Er þar tekið á móti gjöf-
um allan daginn.
Nesprestakall.
Bamaguðsþjónusta í skólanum á
Grímsstaðaholti kl. 11 árdegís á
morgun.
Fríkirkjau.
Messa á morgun kl. 5, sr. Ámi
Sigurðsson.