Alþýðublaðið - 19.12.1942, Page 3
IkimjSardagurlS. descmbcí 1M2
ALt>VÐUBLAÐIÐ
Flnysamgöngor
í striði og friði.
ÁSAMLEGT fyrirbrigði
átti sér stað hér í síðast-
liðinni viku. Roosevelt forseti
skrifaði Chiang Kai Shek, hers-
höfðingja og einni klukkustund
síðar var kínverska leiðtogán-
um í Chungking afhent ná-
kvæm eftirprentun af bréfinu.
Útvarpssamband sem þetta
auðveldar sannarlega samband
þjóða á milli. En í raun pg
veru er það alls ekki merki-
legra eða mikilvægara en að-
ýerðir þær, sem nú eru notað-
ar til þess að auka samband
milli annarra ríkisstjórna.
Símtöl milli Hvíta hússins og
Downing Street 10 í London og
Kremlin í Moskva eru að verða
eins einföld og símtöl innan
Reykjavíkur. Flugvélin er
einnig að gera samband manna
á milli auðveldara. Churchill
hefir tvisvar farið til Washing-
ton og einu sinni til Moskva
síðastliðið ár.i Utanríkisráð-
herra Rússlands, Molotov, hef-
ir farið til London og Washing-
ton. Flotaforingjar og herfor-
ingjar herstjórnanna hafa tíð-
um farið á milli landa Banda-
manna.
Þetta stríð er að sjálfsögðu
á margan hátt ólíkt hinu fyrra
og ég held að það muni einnig
verða margir erfiðleikar við
' safnningu friðarins. Að einu
mikilvægu leyti verður þetta
. stríð ólíkt hinu fyrra, en það
er hversu auðveldlega leiðtogar
Bandamanna geta haft sam-
band sín á milli. Mennirnir,
sem stjórna þessu stríði geta
hitzt og talað saman og þess á
milli talað saman símleiðis.
Friðurinn í þetta sinn verður
ekki aðeins skjal, sem skrifað
verður í einhverri höll Banda-
manna og síðan fast skorðað
með undirskriftum. Friðurinn
verður að þessu sinni líðandi og
síbreytilegt ástand, Sem mun
þarfnast sífelldra umræðna og
endurbóta af stjórnmálamönn-
um hinna ýmsu þjóða. Það er
ómögulegt að gerður verði fast-
iskorðaður friður eins og sá,
sem fór svo vesældarlega út um
þúfur síðastliðinn aldarfjórð-
ung.
Þegar Wendell Willkie og fé-
lagar hans komu úr hættuferð
sinni, var einn þeirra svo hrif-
inn af hinum auðveldu sam-
göngum, að hann sagði, að það
mundi auðvelt fyrir þá Roose-
velt forseta, Stalin og Chiang
Kai Shek að halda með sér fund
í Alaska. Enginn þeirra mundi
þurfa að eyða meira en einum
degi í ferðalög utan síns eigin
lands til þess að sækja slíkan
fund. Það er ólíklegt að nokk-
uð verði úr uppástungu þess-
ari, en hún sýnir á áhrifaríkan
hátt, hvað mögulegt er nú á
" dögum.
Samvinna sú, sem Baiida-
í herstjórnartilkynningu Banda
manna í dag er ekki minnst á
hinar innikróuðu hersv. Þjóð-
verja í dag á miili Masalas og
Wadi Matatin en hinsvega segja
fréttir fréttaritara frá því að all
ar tilraunir þessara hersveita
til þess að komast undan vest-
ur á hóginn hafi mistekist og sé
ráðist á þær bæði, að austan og
vestan af hersveitum Banda-
manna og flugvéla þeirra komi
noð nokkra mínútna millibili til
árása á þær.
Nokkur ihluti hersveita Banda
manna, sem komst, að baki iþess
um hersveitum Þjóðverja
halda áfram, að elta flótta
hinna flýjandi þýzku hesveita
og eru þær á hælum hinna öft-
ustu hersveita Rommels ná-
lægt E-n Nofilia á strandvegin-
um til Tripolis.
Mótspyrna Þjóðverja í iofti
er sama og en-gin og geta því
flugsveitir Bandamanna gert
óhindrað árásir, á hersveitir
Rommels, sem halda undan
vestur eftir strandveginum til
Tripolis. Þýzkar orrustuflug-
vélar gerðu vart við sig yfir
bardagasvæðinu í gær og var
ein þeirra skotin nið-ur.
Það sem hefir aðailega vald-
ið því að Þjóðverjar eru mátt-
lausir í loftinu eru hinar hörðu
árásir, sem flugvélar Banda-
manna hafa u-ndanfarið gert á
flugvelli möndulveldanna við
Tripolis.
Fréttaritarar vekja athygli á
hinni gífurlega löngu leið, sem
Bandamenn verða nú að flytja
Tyrkir reiðir
Þjóðverjum.
rV* JRKNESK blöð fara hörð-
um orðum um þá yfirlýs-
ingu Þjóðverja, sem nýlega kom
fram i þýzkum blöðum, að allar
þær þjóðir á meginlandi Ev-
rópu, sem ekki aðhylltust ný-
skipan Þjóðverja, ættu að sæta
sömu örlögum og Þjóðverjar.
Tyrkneska blaðið ,,Jeni Sa-
ba“ segir, að Þjóðverjar skuli í
eitt skipti fyrir öll vita það, að
Tyrkir verði aldrei þrælar
þeirra.
menn hafa náð sín á milli er að
miklu leyti að þakka þvi,
hversu samgönguleiðir hafa ver
ið styttar með flugsamgöngum.
Nú er varla meir en þriggja
daga ferð frá Washington til
nokkurra mikilvægrar bæki-
stöðvar Bandamanna. Við ger-
um okkur öll glögga grein fyr-
ir því hverja þýðingu þetta hef-
ir i stríðinu. En ég hygg, að við
getum varla ímyndað okkur
enn, hversu mikla þýðingu það
mun hafa fyrir friðinn.
Alex-andríu, því að höfnin í
Bengbazi er en-n lítt nothæf. En
það, sem hj-álpar Bandamönn-
um, að þeir hafa svo mikinn
flugvélakost, að þeir geta alltaf
flutt nokkuð af birgðúm loft-
leiðis.
Frðnsk hersveftirnar
vörðnst mjög vask-
lega i Tnni«.
London í gærkveldi.
FTIR að veðrið batnaði i
Tunis er nú nokkuð meira
um aðgerðir könnunarsveita en
áður. En enn sem komið er láta
Bandamenn mest til sín taka
með loftárásum sínum. Fransk-
ar hersveitir hafa náð á sitt
vald þýðingarmiklum vegi til
borgar einnar í Suður-Tunis.
Flugvélar Bandamanna hafa
gert enn nýjar loftárásir á
Tunis og Bizerta, sem eru aðal-
hafnarbæirnir, sem möndul-
veldin' nota til flutninga til
herja sinna, og komu upp mikl-
ir eldar. Ameríkskar flugvélar
gerðu loftárásir á Gabes á suð-
urströndinni og eyðilögðu 5
flugvélar fyrir möndulveldun-
um. Fljúgandi virki gerðu loft-
árásir á Sfax og Soussa.
Þjóðverjar óttast mjög, að
Bandamönnum takist að kom-
ast til strandar í Suður-Tunis og
hindra með því, að hersveitum
Rommels og Nárhings takist að
ná saman og verjast í samein-
ingu. Þjóðverjar eru sagðir
flytja aukið lið til Souna og
Sfax.
GIRAUD TALAR VIÐ
BLAÐAMANN
Giraud yfirhershöfðingi alls
herafla Frakka í nýlenduríki
Norður-Afríku hefir átt tal við
ameríkskan blaðamann og seg-
ir hann, að samvinnan milli
hinna frönsku hersveita og her-
sveita Bandamanna sé með á-
gætum. Hann sagði, að frönsku
hersveitirnar í Tunis hafi varizt
vasklega þegar möndulveldin
ruddust inn í landið, en þær
hafi orðið að .láta undan síga
fyrir ofureflinu og tekið sér
stöðu í Suður-Tunis.
Giraud sagði enn fremur, að
Þjóðverjar yrðu nú þegar að
berjast á tveim vígstöðvum.
Það væri vitað, að f jöldi af flug-
vélum þeim, sem Þjóðverjar
notuðu í Tunis, hafi komið
beina leið frá Rússlandi og eins
væri um marga hermenn þeirra.
Þeir hefðu komið þaðan og frá
Frakklandi ög mörgum öðrum
hernumdu landanna. Það hefir
gengið mjög á hinar miklu
birgðir Þjóðverja og það er nú
kominn ótti í lið þeirra.
Eitt skip möndulveldanna,
sem var hlaðið skriðdrekum og
bifreiðum, var hæft thndur-
Hersveitir Rommeis hart
leiknar ii undanhaldinn
Engin mótspyraa Þjóðverja í lofti.
----»....—
Fremstu taersveitir 8. hersins eru
ná komnar til En Mofilia.
LONDON -í gærkvöldi.
HERSTJÓRNARTILKYNNINGIN frá aðalstöðvum Al-
exanders hershöfðingja í Cairo í dag segir, að barizt
sé nú um 60 km. vestur af Wadi Matratin á strönd Tripoíit-
aaniu. — Þjóðverjar veita sama og enga mótspyrnu í lofti
og eru stöðugum árásum haldið uppi á hinar flýjandi her-
sveitir allt til Tripolis.
bir-gðir sínar eða alla leið frá
Stalingrad í flugsýn.
M’ynd þessa tók þýzk flugvél af Stalingrad úr loftinu. Reykur
inn, sem sést á myndinni, er af sprengjum, sem hafa fallið
niður rétt við Volgu. Mynd þessi var senda frá hlutlausu
la-ndi ti-1 London.
Afstaða Þjóðverja á Stalin-
gradvigstððvunum versnar
Rússar mótmæla pýzkri sigurfregn.
LONiDON í gærkvöldi.
13 ÚSSAR segjast fylgja eftir sigrum sínum á Stalingrad
^ vígstöðvunum og hörfi Þjóðverjar enn við Kotelnikovo
Rússar segjast hrinda öllum gagnáhlaupum Þjóðverja, bæði
á Stalingrad- og miðvígstöðvunum.
Fréttaritari brezka útvarps-
ins sagði í fréttum sínum í dag,
að hringurinn um 6. herinn,
sem von Horth er fyrir, þreng-
ist stöðugt og fari rússneskar
hersveitir, sem sækja fram fyr-
ir sunnan Stalingrad, á ísnum
vestur yfir Don.
Hann segir enn fremur, að
eftir sigur Rússa vestur af Stal-
ingrad við Surovnkino eigi Þjóð
verjar á hættu, að Rússum tak-
ist að umkringja hina þýðing-,
armiklu borg Kotelnikovo, sem
er suðvestur af Stalingrad við
járnbrautina til Svartahafsins.
Þá nefr.ir fréttaritarinn nýja
borg, Pavlosk, sem er miðja
vegu milli Voronesh og Stalin-
grad og segir hann, að Rússar
hafi þar nokkuð mikið lið og
séu ítalir þar aðallega til varn-
ar. Ef þessu liði tækist að sækja
fram, mundi það geta ógnað að-
alsamgönguleiðum Þjóðverja í
Suður-Rússlandi, Kursk-Kar-
kov-Rostov járnbrautarlínunum
Það er sagt, að þýzki herfor-
inginn von Manstein, sem lagði
Krímskagann undir Þjóðverja,
hafi verið falin herstjórn á
Stalingrad vígstöðvunum.
Engar stórar breytingar hafa
orðið á miðvígstöðvunum. Rúss-
ar segjast halda áfram að vinna
á bæði við Rshev, þar sem þýzk-
ar hersveitir eru innikróaðar og
eins við Velikie Luki.
Rússar mótmæla sigurfregn-
um Þjóðverja við Toropetz og
segja, að sá staður liggi nú um
65 km. að baki víglínu Rússa
eftir að hersveitir Rússa sóttu
fram á þessum vígstöðvum.
skeyti fyrir utan Tunis og
varð að renna því á land. Brezk-
ir kafbátar hafa sökkt tveimur
skipum möndulveldanna á Na-
poliflóanum.
7 japönskum
skipum sökkt.
—— y
London í gærkvéldi.
LOTAMÁLARÁÐUÍSíEtT-
IÐ í Washington hefir til-
kynnt, að ameríkskir kafbátar
hafi sökkt 7 japönskum skipurn
á Kyrrahafi,
Meðal þessara skipa voru tvö
olíuflutningaskip og 4 flutn-
ingaskip.
Otto Gelsted
handtekinn.
EINS og skýrt hefir verið frá
x fréttunum undanfarið,
hafa farið fram miklar handtök-
ur í Danmörku í s.l. mánuði.
Blaðið Frit Danmark, sem gefið-
er út í London, segir að á meðal
þeirra, sem handteknir voru,
hafi verið danski rithöfundur-
inn og blaðamaður við Ekstra-
bladet Otto Gelsted.
London í gærkveldi.
Molotoff utanríkisráðherra
Rússlands hefir gefið svipaða
yfirlýsingu varðandi framtíð og
sjáMstæði Albaníu og Anthony
Eden gaf í gær í brezka þinginu.
Molotoff lýsti því yfir, að
Rússar væru samþykkir því, að
Albanía fengi fullt sjáMstæði
eftir stríðið og að Albanir
fengju að ráða því sjálfir, hvaða
i stjórnfyrirkomulág þeir hefðu.