Alþýðublaðið - 23.12.1942, Page 7
v\ ' V
Þeir sem vilja gjöra hagkvæm innkaup, snúa sér ætið fyrst tll okkar
Höfum fyrirliggjandi allskonar vefnaðarvöru, skófatnað og margskonar
smávöru. Fáum eftir áramótín vandað úrval af sokkum, karla og kvenna,
Allskonar klæðskeravörur útvegum við frá Ameríku.
Talið við okkur
í tíma þar eð afgreiðsla frá Ameriku gengur seint
Austurstræti 1
Reykjavík
3VnöviJ..udagur 23. des.. 1M2.
er Halldór Stef-
Ránargötu 12, síml 2234.
er í lyfjabúðinni
ÚTVARPIÐ:
Hádegisútvarp.
Miðdegisútvarp.
Fréttir.
Endurvarp á jólakveðjum
frá Danmörku.
21.®0 Þorláksvaka: a) Árnl Páls-
son próf. flytur erindi um
helgi Þorláks biskups. b)
20.20 Útvarpshlj ómsveitin
leikur þjóðlög. e) 20.30
Ziésin Þorlákskvæði. d) 20.40
Útvarpshlj ómsveitin leikur
. jólalög.
21.50 Fréttir.
22.00 Danslög.
23.00 Dagskrárlok.
Hjábnur
heitir nýtt blað, sem gefið er út
í Hafnarfirði. Er það félagshlað
Verkamannafélagsins Hlif.
Ný gjðf til stúdentagarSsins.
Minningarherbergi G. T. Zoega
rektors og konu hans. — Börn og
tengdabörn Geirs T. Zoega rekt-
ors og konu hans, Bryndísar
Zoega, þau Geir G. Zoéga vega-
málastjóri og frú, Þorsteinn Þor-
steinsson hagstofustjóri og frú,
Hallgrímur Benediktsson og frú,
og systkinin Sigríður og Jófríður
Zoéga, hafa gefið 10.000 krónur
—- andvirði eins herbergis — til
minningar um rektorshjónin. í
gjafabréfinu segir: „Við höfum
tekið þessa ákvörðun, þar sem
okkur er það fullkunnugt, að þau
hjónin voru um það samhuga að
bera mjög fyrir brjósti hag og vel
gengni stúdenta við háskólann og
er okkur því ljúft, að minningin
um þau geymist á þessu nýja
heimili stúdentanna.“
Verzlanir eru opnar til kl. 12
á miðnætti.
líívarpstíðindi,
4.—5. hefti 5. árgangs er nýkom
ið út. Efni: Viðtal við Árna frá
Múla um jóladagskrárnar og út-
varpið, dagskrá næstu viku, Mað-
ur,sem hefir villzt, jólasaga eftir
Margit Palmar, Viðtal við Sigurð
Grímsson lögfræðing, Útvarps-
tækni og tónlist, grein eftir Pál
K. Pálsson. Þá er lag eftir Karl
O. Runólfsson við kvæði eftir Jó-
hannes úr Kötlum og kvæði eftir
Sigurð Grímsson o. m. m. fl.
Eimreiðin,
4. hefti þessa árgangs er ný-
komið út. Hefst það á lagi eftir
Hallgrím Helgason við kvæðið Jól
in, eftir Margrétu Jónsdóttur, Þá
eru þrjár jólateikningar eftir Bar-
böru W. Árnason. Jól og ,,vís-
indi“ nefnist grein eftir Þorstein
Jónssön, Úr Suðureyjum, grein eft
ir In'gólf Davíðsson, Á Sturlunga-
öld, grein eftir Björn Sígfússon,
ennfremur grein um Kjarval og
önnur grein um Soffíu Guðlaugs-
dóttur lcxkkonu, Maðurinn, sem
ekki beygði sig, saga eftir Paul
Wenz, Fjörðurinn minn, nefnist
kvæði eftir Einar Friðriksson, Dag
bók fyrir styrjöldinni 1939’—1942,
Hamfarir, þáttur eftír sögn Guð
nýjar Pétursdóttir, Þagnarstundin,
grein eftir ritstjórann, Kominn
heim, kvæði eftir Þóri Bergsson,
Arfleifð, kvæði eftir Þráin o. m. fl.
HEHRA-SLOBROKKAR
Regnfrakkar, dökkbláir.
Vetrarfrakkar. Treflar í
miklu úrvali.
U n n u r
(horni Grettisgötu og
i Barónsstígs).
Laagarnesskirkja.
Frh. af 2 .síðu.
eru frá aðalkirkjunni með fá-
einum sívölum súlum. En fyr-
ir endum þessara ganga verða
síðan sett kirkjuleg málverk, —
og undir þedm lágir skemlar
með blómum á. Söngloft er
fyrir öðrum gafli kirkjunnar,
en engar aðrar svalir. Öðrum
megin við kórinn verður sér-
v herbergi prestsins og innan-
gengt úr því í prédikunarstól-
inn.
Undir kórnum er kjallari og
verður þar allmikill salur, sem
tekur 150 manns í sæti. Þar á
að vera eins konar heimili fyr-
ir félagslíf safnaðarins, safnað-
arfundi, kvenfélag og annað
slíkt. Verður þar líka eldhús og
er það sennilega fyrsta kirkju-
eldhús á íslandi. Þarna við
hliðina á salnum er líka skrif-
stofa sóknarnefndar.
Umhverfis kirkjuna er allstór
lóð, sem síðar á að lagfæra og
græða.
Það liggur í augum uppi, að
mikið fé þarf til slíkra frarp-
kvæmda. Stendur nú yfir sala
happdrættismiða fyrir kirkj-
una, og á að verja ágóðanum
til byggingarinnar. Er þar til
mikils að vinna, því að dregið
verður um bíl, nýjan Dodge,
sem kostar í innkaupi 22.000
kr. Tala happdrættismiðanna
er aðeins tólf hundruð.'Fá þeir
sem þess æskja þarna tækifæri
til að styrkja þessa veglegu
kirkju Laugarnessóknar, og
geta sjálfir borið stórfé úr být-
um, ef svo ber undir.
Húsameistari ríkisins gerði
uppdrátt að kirkjunni, en Þor-
lákur Ófeigsson byggingameist-
^arí stendur fyrir verkinu.
KAUPMNGEÐ
Frh. af 2. síðu.
Landsbankans og bankaráðs-
menn og nokkrir gestir.
Jón Árnason, formaður
bankaráðsins, setti fundinn og
skýrði frá stofnun kaupþings-
ins. Kvað hann stjórn Lands-
bankans lengi hafa fundið til
nauðsynjar þess, að slíkri stofn-
un yrði komið á.
Hann skýrði frá því, að Jón
Halldórsson yrði kaupþings-
stjóri, en Björn Ólafs kaupþing-
ritari.
Félagar kaupþingsins eru 14,
og höfðu þó fleiri sótt. Þessir
14 eru:
1. Brunabótafél. íslands.
2. Búnaðarbankinn.
3. Eggert Claessen og Einar
Ásmundsson.
4. Einar B. Guðmundsson og
Guðlaugur Þorláksson.
5. Garðar Þorsteinsson.
6. Jón Ásbjörnsson. Svein-
björn Jónsson og Gunnar Þorst.
7. Kauphöllin.
8. Landsbankinn.
9. Lárus Jóhannesson.
10. Samband ísl. samvinnuf.
11. Spaisjóður Reykjavík-
ur og nágrennis.
12. Stefán J. Stefánsson og
Guðmundur I. Guðmundsson.
13. Söfnunarsjóður.
14. Lárus Fjeldsted.
Að lokinni ræðu Jóns Árna-
sonar flutti Björn Ólafsson
fjármálaráðherra stutta ræðu,
lýsti ánægju sinni yfir stofnun
kaupþingsins og óskaði bankan-
um til hamingu með það.
Síðan hófst kaupþingsfundur
að venjulegum hætti-og stýrði
Jón Halldórsson honum.
Var á þessum fundi verzlað
með verðbréf fyrir kr. 373.000.
Ný íjóðabófe:
M morpi eftlr
Einar M. Jónsson.
Að morgni. Ljóð. Vík-
ingsútgáfan. Rvík 1942,
95 bls.
P INÁR M. JÓNSSON hef-
ir þreytt fang við þung
örlög. Er hann var vel á veg
kominn með guðfræði hér í há-
skólanum, kenndi hann sjúk-
leika þess, sem hefir haldið
honum rúmföstum meir en ára
tug samfleytt, oft sárþjáðum.
Löngum hefir hann hvorki
mátt lesa né skrifa og jafnvel
orðið tímunum saman að vera
í hálfrökkri. Tvö síðustu ár hef-
ir sjúkdómurinn gefið honum
nokkur grið, og hefir hann á
þeim tíma ort flest þau kvæði
og sálma, er í þessari bók birt-
ast.
Einar var eitt aðalskólaskáld-
ið, þegar hann var í Mennta-
skólanum: Lagði hann þá mikla
stund á ljóðagerð, og væntum
við vinir hans mikils af honum
í því efni. Munu sumir að sjálf
sögðu sakna í bókinni ýmissa
kvæða, er hann gerði á skóla-
árunum, meðan hann hafði
fulla heilsu.
Ljóð þessi og sálmar eru vel
ort og smekklega, og sums stað
ar gætir meiri innileika og til-
þrifa en í flestum andlegum
ljóðum samtíðarinnar. Rúms-
ins vegna verð ég að láta mér
nægja örfá dæmi:
Mín bíður ei hin djúpa, dimma
gröf
því drottinn sjálfur bjó mér
aðra leið,
AUGLÝSIÐ í Alþýðwblaðinw
Til jófiasgjafa
PARKER
Sjálfblekungar og skrufblýantar i skrautöskju.
Enn er úr miklu að veSjan -
Fengum nýja sendingy af PAIRICER fyrir beigina.
Bókaverzlun Sigurðar Kristjánssonar
BANKASTRÆTE 3
og bak við dauðans breiðu,
myrku höf,
þar bíður annað fagurt lífsins
skeið.
En gröfin þögul, geigvænleg og
köld,
hún geymir aðeins það, sem
jörðin á.
Mín leið er yfir hel og harma
völd
til hans, sem andi minn og líf
er frá.
(Líf eftir líf).
Myrkt er yfir heimsins högum;
hjörtun skelfir stigið spor.
Upp til þín á dimmum dögum,
Drottinn, leitar hugur vor.
Sendu ljós þitt, herra hár,
harma léttu, græddu sár.
Þú veizt,. hvað er þungt að
líða,
þyrsta eftir hjálp — og bíða.
Kvæðið Stjömuhrap er eitt
bezta ljóðið í bókinni:
Kvöld er yfir, nálgast nótt.
Nú er allt svo kyrrt og rótt.
Stjörnur háum himni frá
horfa til vor jörðu á.
Glæst er þeirra bjarta braut,
Brátt þar ein úr flokknum
hraut
nið’r í myrkan haustsins heim
hrapaði úr stjarna geim.
Út af minni óskabrauit
ég sem þú, mín stjamas
hraut.
Eg hef séð, að örlög mín
einnig voru forlög þín.
Ef til vill felur þetta smá-
kvæði betur en nokkuð annað
í sér viðhorf Einars við örlög-
unum.
Bók þessi ber vitni Undra-
verðu andlegu þreki höfundar. '
Það er næstum ótrúlegt, að
maður, sem þjáist af jafnlang-
vinnum og kvalafullum sjúk-
dómi, skuli nota hverja stund,
sem af honum bráir, til að yrkja.
Ljóð hans eiga sér rætur í dýþri
lífsreynslu en þorri manna öðl
ast. Hann tekur hlutskipti sínu
með æðrulausri karlmennsku.
Trú hans á guð og hínn háleita
og góða tilgang lífsins varpar
ljóma á ljóð hans. Þau eru eng
inn harmagrátur, heldur hugg-
unaróður. Þar er engin bölsýni,
engin örvænting, engin beiskja
eða gremja við höfund tilver-
unnar. Við lestur bókarinnap
vakna þær vonir, að Einari
auðnist að vinna bug á hinum
langvinna sjúlcdómi sínum.
Símon Jóh. Ágústsson
Trúlotun.
S.l. laugardag opinberuðu trú-
loíun síiia Aúður Gísladóttir írá
Stokkseyri og Jóel Ottó Jóelaton
frá Vestm.-eyjum.