Alþýðublaðið - 24.12.1942, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 24.12.1942, Blaðsíða 2
JÓLABLAÐ ALÞÝÐUBLAÐSINS Samvinnumenn vilja samkeppni í verzlun. En samkeppnin á að tryggja lágt vöruverð. KRON hefst handa um nýja afgreiðslutilhögun, sem dregur úr dreifingarkostnaði. SJÁLFSKIPTI. Samkeppni milli verzlana er æskileg. Verzlanirnar keppa um að gera kostnað sinn minstan í hlutíalli við söluna. Það á svo að koma neytendum til góða í lægra vöruverði. Þó fær slík samkeppni fyrst full gildi, þegar hún fer fram milli einka- verzlana annars vegar og samvinnuverzlanar hins vegar. Þá fyrst er tryggt, að sparnaðurinn renni í pyngju neytendanna. Séu einkafyrirtæki ein um verzlunina, sýnir reynslan, að þau freistast til að gera með sér verðsamtök. KRON hefir haft forustu um viðleitni í þá átt að lækka dreifingarkostnaðinnn, t. d. með því að koma á pöntunarfyrir- komulaginu, bæta sölubúðirnar þannig, að vinnuafl sparist, og nota ýmiss konar áhöld, sem bæði spara vinnu og draga úr vörurýrnun. Nú síðast hefir KRON opnað nýja búð í tilrauna- skyni, þar sem ætlast er til, að viðskiptamennirnir afgreiði sig að mestu leyti sjálfir. Er þá ætlað að spara talsvert mikið launagreiðslur og lækka þannig dreifingarkostnaðinn. Slíkar húðir eru nú orðnar algengar í Bandaríkjunum, þar sem sam- keppni er mjög hörð. KRON vill nú æskja samvinnu neytenda í þessu efni, þannig að þeir taki nýjunginni vel. Neytendum er hér með gerður kostur á að efla eiginn hag, með því að í sjálfskipta- búðinni eiga þeir aldrei að þurfa að bíða afgreiðslu, og allur sparnaður af þessum nýtízku afgreiðsluháttum rennur- til þeirra sjálfra.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.