Alþýðublaðið Sunnudagsblað - 03.05.1936, Blaðsíða 7
AKÞtÐUBLAÐIÐ
7
Tvð ljóö
Eftir Stefán Jónsson.
Vor.
Ég veit það og finn hversu fátækleg orð
ég flutt get hér með þessum línum.
En nú vil eg sannlega bera á borð
hið bezta af hugsunum mínum.
Því vorið það kemur með gróandans ght
og geisla, sem danza um bæinn,
svo göturnar jafnvel fá gullroðinn lit
um glóbjartan heiðríkjudaginn.
Ég heilsa þér vor, því hið fegursta flest
í faðmi þér hefirðu borið.
Og íslenzka þjóðin hún þekkir sinn gest
og þess vegna blessar hún vorið.
í þúsund ár komstu, en þjóðin hún beið
og, þráði að tækirðu völdin.
I þúsund ár koma þín lýsti ’enni leið
um langdrægu skammdegis kvöldin.
Þó mörgum sé skamtað til skeiðar og hnífs
og skuggana þekkjum við svarta.
Þá ertu þó táknið um töfra þess lífs,
sem til er í sérhverju hjarta.
Við finnum þú ert hinum veikari vöm
og velur þér óskir til fylgdar,
er rétta okkur arminn, sem brosandi böm —
því bezta í sál okkar skyldar.
Þú vor, sem að kemur með blíðviðris blæ,
er bömunum strýkur um vangann —
og svífur með ilm yfir sérhverjum bæ
um sóldaginn mildan og langan.
— Ég veit það, að margur kvað ljúfara ljóð,
er listfengar tign þína málar.
Ég sendi þér bara minn ómstirða óð
af innileik fagnandi sálar.
Saga um kvœði.
Ég ætlaði mér að yrkja til þín kvæði
og efna loforð mitt af dygð og trú.
Og eiga kvæðið áttum við svo bæði
þó ætti kannsk minna ég — en þú. —
— En þér finst kannske þetta ávarp skrítíð
og þetta ávarp klaufalega flutt.
En eitt er víst: Ég þekki þig svo lítið
og því gat kvæðið bara orðið stutt. —
En kvæðið sem ég orti varð um vorið ,
ég veit þó raunar ekki fyrir hvað,
og sjálfsagt getur enginn úr því skorið.
Eða átt þú kannske nokkuð skylt við það?
Nei, sleppum því. — En þannig lauk því ljóði,
[ því Kf og draumar fara hvort sinn veg.
Við hittumst eins og hendingar I óði —-
sem hljóma ei. Víð kvöddumst þú og ég.
Þegar Stauning lagði á dögnn- hluti atvinnurekendanna hafnaðí
um lagafrumvarpið fyrir ríkis- þeim, safnaðist múgur og maruj-
þingið í Kaupmaunahöfn um að menni fyrir framan þinghúsið.
gera málamiðlunartillögur sátta- Myndin sýnir mannfjöldann fy*-
semjara ríkisins í verkhanninu ir framan Christiansborg, þar sia*
mikla að lögum, enda þótt meiri- þingið hieldur fundi sina.
FLANDIN UTANRÍKISRÁÐHERRA (NÆST FREMSTUR Á
MYNDINNI HÆGRA MEGIN VIÐ BORÐIÐ) EINN AF FOR-
INGJUM MIÐFLOKKANNA, Á KOSNINGAFUNDI I KJÖR-
DÆMI SÍNU.
Hefndin.
Mahe), 16 ára gömul stúlka,
dóttir milljónamæiings i New
York, var dauðskotin í ungum
inanni, sem ekki var neitt hrifinn
af liemii og gekk að eiga aðm
stúlku. Á brúðkaupsdaginn var
lungfrú Mabel í kirkjuntni í hvit-
um silkikjól og hafði saumað í
kjólinn eftirfarandi með rauðum
stöfum: „William Stratton hefir
heitið mér eiginorði og svikið
mig."
Enskur skjálfti.
í Englandi eru' mjög fjörugjir
andafundir nú á tímum. Nýlega
var haldinn aindafundur í „The
Society iof progressive Souls“,
sem mætti kalla á íslenzku: „Fé-
lag framtakssamra sálna."
Flutti þar framliðinn liðsforingi,
Charles Molesworth, sem dó fyrir
iöngu síðan 19 ára að aldri, 25
mínútna ræðu. Aðalefini ræðunnar
var auðvitað það, að EngLending-
ar ættu að' auka vígbúnöð sinn.