Alþýðublaðið Sunnudagsblað

Issue
Main publication:

Alþýðublaðið Sunnudagsblað - 08.11.1936, Page 1

Alþýðublaðið Sunnudagsblað - 08.11.1936, Page 1
SUNNUDAGSBLAÐ Itt. ARGANGUR ALÞÝÐUBLAÐSINS SUNNUDAGINN 8. NÓV. 1936. , 45- TÖLUBLAÐ Theodör Fri ðri ksson: ÉG VAR ÞÁ húsmaður á Þverá í Dalsmynni, og réð ég mig á hákarlaskip til Akur- •eyrar pá um veturinn. Það haíði verið í ráði að verzl- unin Goodmands Efterfölgere á Akureyri, er Eggert Laxdal veitti forstöðu, fengi nýtt og vel bygt hákarlaskip, og átti það að.vera komið í tæka tíð, eða fyrir 14. april. Var skipshöfnin ráðin löngu áður en skipið kom, og hugðu margir gott til peirrar ferðar, þegar til kæmi. Guðmundur Jörundsson var ráðinn formaður á skipið. Hann var að vísu ungur og litt reyndur sem hákarlamaður. En hann var nýkominn frá stýrimannaskólan- mn í Reykjavík — og sonur gamla Hákarla-Jörundar í Hrís- <ey. Og treystu margir pví, að Guðmundi mundi kippa í kynið og verða aflasæll eins og faðir hans hafði verið forðum daga. Hásetum hafði verið gefið til ikynna, að skipið væri danskt, smíðað úr eik og vel frá því gengið í alla staði. Og voru margir þaulæfðir hákarlamenn ráðnir til þess að vera með Guð- mundi. — Stýrimaður var Guðni Jóhannesson kominn á efri ár. Það dróst með ferð skipsins fram yfir réttan tíma, og kom það. ekki til Akureyrar fyrr en í lok aprílmánaðar. Var þá mörg- um orðið órótt að bíða eftir því, enda voru öll hákarlaskip lögð út af Eyjafirði fyrir löngu. — — En loksins kom skipið og var þá brugðið við og hásetum gerð strengileg boð um að koma. Það var að kveldlagi, sem ég kom til skips, og voru þá allir hásetar fyrir nokkru komnir, bún- ir að fá sér rúmstæði og koma farangri síniun fyrir, og voru þeir mér nú hjálplegir með það, sem ég hafði meðferðis, Ég var þeim kunnugur að máli sumum og kannaðist við þá flesta svona af afspurn, og tóku þeir mér allir vel. Skipið lá á floti við bryggju EFTIRFARANDI grein s-egir Theódór Friðriksson rit- *■ höfundur frá hókarlaferð, er hann fór með Guðmundi skipstjóra Jörundssyni, en hann var sonur Hákarla-Jörundar í Hrísey. Guðmundur var þá nýkominn frá stýrimannaskcl- ftnum í Reykjavík, eg þðtti skipverjum hans hann hafa nokk- uð aðra siði en tíðkuðust í skipstjórnartíð föður hans. I þessari ferð fundu þeir dauðan hval á floti, og segir greinin frá ferðalagi þeirra skipverja með hvalinn í eftirdragi inn á Eyjafjörð. Greinin er úr bókinni: Hákarlalegur og hákarla- menn, eftir Theódór Friðriksson. niður við Oddeyrartanga. Þaðvar gott i sjó og glatt á hjalla um borð. Mönnum leizt vel á skipið. Lúk- arinn var allur málaður og snyrti- lega frá öllu gengið hjá Dansk- inum. En heldur voru nú sumir á því, að finheítin mundu fara af hjá okkur, þegar hákarlinn kæmi til sögunnar. Skipið var hásiglt og seglin barkarlituð, mikil fyrirferðar og mjög óþjál. Þetta var „Galeas“ og var hægt að draga bugspjótið til, eftir þvi sem þurfa þótti, og álitu það margir góðan kost, þeg- ar legið var við stjóra i hvössu veðri. Guðmundur Jörundsson bauð háseta sína velkomna og lék við hvern sinn fingur, Hugði hann gott til þess að leggja út í há- karlinn. Honum leizt vel á skipið og spáði öllu því bezta. Hann var að sjá snyrtilega til fara, hár og spengilegur og fríður sýn- um, og brá honum meira i móð- urkyn en föður. Hann var af yngri börnum Jörundar og Mar- grétar seinni konu hans. Mér leizt einstaklega glaðlega á Guðmund, bg ólíkur var hann þeiiri í sjón og framkomu gömlu hákarlamönnunum. Að vísu skip- aði hann rösklega fyrir verkum daginn eftir og var þá ekki legið á liði sínu að drífa það um borð i skipið, sem þurfa þótti bæði til útgerðar og útbúnaðar. En mörgum þötti þá útgerð skips- stjórans í „flottára“ lagí, borið saman við það, sem venja var til i hákarlalegur. Hann hafð með sér mikið af límonaði, vindl um og ýmsum þeim fínheitum til klæðaburðar, sem eldri mönnum fannst stinga nokkuð mikið í stúf við það er þeir áttu að venj- ast, og varð út af þessu hlátur og keskni. Og spáðu sumir því, að Guðmundur yrði ekki eins „borubrattur,“ þegar hann færi að fást við hákarlinn. Aftur var honum ekki meira en svo um. það gefið, að menn hefðu með- sér mikið af brennivíni; þóttij hann ólíkur föður sínum í því efni. Guðmundur var nú farinn að^ verða órór yfir því, að geta ekki komist út í hákarlinn. Hann gat búizt við því, að skip færu að tínast inn á Eyjafjörð fulll af: lifur, enda voru þau nú búin að ( vera úti einn hálfsmánaðartíma, • en við ekki farnir að sjá eitt einasta got. Fyllti þetta Guð* mund miklum metnaði um að fara að komast af stað. Og urðu eldri og reyndari menn að koma vitinu fyrir hann með það, að að hann gleymdi því ekki, er nauðsynlegt þótti á skipi til há- karlaveiða, fyrir ákafanum að leggja af stað. Og nú óskaði Guðmundur eftir miklum stormi, í þeirri von, að sér gæfist kostur á undir eins að reyna skipið á siglingu og sjá, hve mikið mætti bjóða því af seglum. Lagðist það einhvernveginn í hásetana, eftir þessu skrafi öllu saman að dæma, að- Guðmundur mundi vera mesti gapi á sjó og ófyrir- leitinn, treystu þá margir Guðna gamla Jóhannessyni, að hann mundi köma til skjálanna og bera vit fyiir unga skipstjórann. MAÐUR er nefndur Ámi — kallaður stólpi. Hánn var heljar-skrokkur stór, og tvigild- ur að afli, en 'stirður mjög og þungur í vöfum. Ámi tók miklu ástfóstri við allan kjarngóðan mat, sem menn höfðu með sér til útgerðar, og altaf var hann eitt- hvað að hnýsast eftir því, hvar menn feldu kjammestu bitana. En ekki var hann neitt sérstaklega hrifinn af því, þó skipstjórinn hefði með sér limonaði. Hann var á því, gamli maðurinn, að það væri ekki mikill kjami í svoleið- is gutli. Guðmundur var mesti æringi og sóttist eftir því að vera í áflogum við nokkra unga menn, sem vöm á skipinu, og hafði þá alla með sér á vöku, en skipaði eldri mönnunum á stýrimanns- vaktina með Guðna. Þótti sumum þetta skrítin niðurröðun, og brosti Guðni að þessari ráðstöfun skip- stjórans. Við vomm á annan sólarhring að þvælast út fjörðinn, og var Guðmundur óánægður yfir- að fá ekki leiði. En loksins, þegar við vorum komnir út fyrir fjarðar mynnið, gerði austan storm, og var þá tjaldað því, sem til var af seglum. Var Guðmundur um tíma ófáanlegur til að láta rifa, þang- að til allt ætlaði um koll að keyra, og varð þá Guðni að taka af skipstjóranum ráðin. Guðmund ur vildi flýta sér sem mest að komast út í hákarlinn, og var nú stefnan tekin vestur og fram á Strandagrunn. Þar tókum við tvær stjóraleg- ur með nokkurra daga millibili og fengurn 1200 tunnur af lifur. Skall nú á okkur hriðargarður eftir hálfsmánaðartíma, þar á grunninu, og var þá leitað til lands og siglt inn á Eyjafjörfe með aflann — og þótti túrinn vel hafa gefizt.

x

Alþýðublaðið Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/53

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.